Morgunblaðið - 08.07.1976, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 08.07.1976, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JULl 1976 7 i Umræður og aðgerðir í fiskvernd- armálum Á sl. ári fór sérstök nefnd, sem sjávarút- vegsráðherra skipaði, og í sátu fulltrúar frá LlU, FlB, FFSI, Sjó- mannasambandi 1- lands, auk fulltrúa Fiskifélagsins, fkönn- unar- og viðræðuferð- ir um gjörvallt land- ið til undirbúnings væntanlegri lagasetn- ingu og útgáfu reglu- gerða um fiskveiðar I landhelginni. 1 fyrri ferðinni var lögð höf- uðáherzla á að kynn- ast sjónarmiðum heimaaðila I öllum landshlutum, en I hinni slðari að kynna sjónarmið nefndar- innar, fiskverndar sem og gagnstæð sjón- armið, er fram komu f hinni fyrri ferðinni. Fundir voru m.a. haldnir I Keflavfk, Reykjavfk, Stykkis- hólmi, Isafirði, Akur- eyri, Reyðarfirði og Vestmannaeyjum. Þá voru og haldnir fundir f Hornafirði og Þor- lákshöfn og með skip- stjóra og stýrimanna- félaginu Ægi, svo og Útvegsmannafél. Reykjavfkur, skv. sér- stakri beiðni þess aðila. Á hinum fyrri fundum voru settar á laggir samstarfs- nefndir fyrir hvern landshluta, sem sæti áttu f fulltrúar sjó- manna, útvegsmanna, og vinnslustöðva, auk- forystumanna fjórð- ungssambanda og deilda Fiskifélagsins. Var hlutverk þeirra að ganga frá álitsgjörð- um og tiilögum til nefndarinnar um ákvæði nýrra laga og reglugerða. Álitsgerðir bárust nefndinni f aprfl og maf fyrra árs. Hófst þá nefndin handa um að samræma þau sjónar- mið öll, sem fram höfðu komið, en f júlf- mánuði hóf nefndin sfðan aðra ferð til við- ræðna við fulltrúa landshlutasamtak- anna. Þá voru og haldnir fundir með sérfræðingum Haf- rannsóknastofnunar. Lögðu þeir fram skýrslu f endaðan ágúst, sem sfðan var endurskoðuð og lögð fram nokkuð breytt f október. Þá hafði nefndin lokið við að gera frumdrög að nýj- um lögum og reglu- gerðum. 1 september bætast fulltrúar þing- flokka f nefndina. Tillögur þegar komnar til framkvæmda Þrátt fvrir nokkurn ágreining milli manna, bæði eftir landshlutum og innan nefndarinnar sjálfrar, náðist samstaða um nokkur veigamikil atriði, sem send voru ráðherra ásamt greinargerð f des- ember sl. Ráðherra fór þá þegar eftir flestum þeim leið- beiningum, sem nefndin sendi frá sér og gaf út reglugerðir þar að lútandi. I þvf efni má nefna: 0 1. Breytingar á lág- marksstærð þorsks, ýsu og ufsa, sem landa má. 0 2. Takmarkanir á þorskveiðum með flot- vörpu. 03. Veigamiklar breytingar á friðunar- svæðum fyrir Norður- landi. Ennfremur ný friðunarsvæði um- hverfis Hvalbak, f Berufjarðarál og Papagrunni og fyrir Vesturlandi. 04. Breyting á friðun hrygningarsvæðis f Faxaflóa. 05. Breyting á Ifnu- og netasvæði fyrir Suður- og Suðvestur- landi á vertfðinni 1976. 06. Breyting á leyfi- legri lágmarks- möskvastærð f botn- vörpu, flotvörpu og dragnót. Ný lög um veiðar í fiskveiði- landhelgi Islands Sfðasta þing sam- þykkti síðan, f fram- haldi af greindu starfi, lög um veiðar f fiskveiðilandhelginni, sem nú náðu til allra veiða. Samkvæmt frumvarpinu getur ráðherra sett reglu- gerðir um allar teg- undir veiða. Állmiklar breytingar voru gerð- ar á togveiðiheimild- um frá því sem var f hinum fyrri lögum og þær miðaðar við lengd skipa en ekki stærð eftir brúttólestum. Við ákvörðun togveiði- heimilda er ekki stuðst við grunnlfnur eða punkta, sem liggja til grundvallar fisk- veiðilandhelginni sjálfri, heldur er dreg- in ný viðmiðunarlína milli tilgreindra lög- bundinna viðmiðunar- staða. Þá eru f hinum nýju lögum mjög þýð- ingarmikil ákvæði um skyndilokanir veiði- svæða, til að koma í veg fyrir smáfiska- dráp, en ungfiskur er á hreyfingu og getur flutzt frá einu svæði til annars. Þessi nýju lög voru veigamikið spor f fisk- verndarmálum, sem óhjákvæmilega hljóta að skipa háan sess í allri viðleitni okkar f sjávarútvegi næstu ár- in, meðan fiskstofn- arnir rétta úr kútnum og ná eðlilegri stofn- stærð á ný. j. Kjörfundur í Mosfellsprestakalli Kjörfundi til prestkosninga, sem fram eiga að fara í Mosfellsprestakalli, Kjalarnesprófasts- dæmi, hefst í Hlégarði, sunnudaginn 1 1. júlí kl. 10 og stendur til kl. 23. Sóknarnefndin. Nýkomin finnsk bómullarefni í kjóla og gardín- ur i fjölbreyttu úrvali, einnig finnsk, hleypt gallabuxnaefni í hvítu, óbleijuðu og mörgum öðrum litum. Gardínuhúsið, I ngölfsstræti 1A Sími 16259

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.