Morgunblaðið - 08.07.1976, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 08.07.1976, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JULI 1976 Skipbrotið Þá sé ég, hvar hann kemur hlaupandi aftur, eins og fætur toga. „Herra,“ kall- aði hann, „þeir koma; einn, tveir^ þrír, barkbátar." Þessi mikli asi var á honum, af því að hann hélt, að á barkbátum þessum væru villimennirnir, sem hertóku hann fyrr- um. Ég spurði hann, hvort hann vildi liðsinna mér í bardaganum. „Já, herra,“ svaraði hann, „og ég vil deyja fyrir þig, ef þú vilt.“ Nú fór Frjádagur að sækja púður, kúl- ur og byssur, en ég gaf á meðan gætur að villimönnunum, þegar þeir voru að stíga á land. Þeir voru eitthvað tuttugu og tveir að tölu. Ég sá, að á einum bátnum voru tveir bandingjar. Nú kom Frjádagur með byssurnar, og hlóð ég hverja þeirra um sig með fimm kúlum. Það hagaði svo til, að við vorum rétt undir skógarjaðri, og náði hann alla leið þangað ofan eftir, sem villimennirnir höfðu lagst niður. Vió læddumst með fram skóginum og komumst, án þess að vart yrði við okkur, svo nálægt mannætunum, að það mun hafa svarað svo sem áttatíu skrefa bili, sem á milli var. Ég gægðist fram undan tré nokkru og sá, aö þeir voru þegar búnir að drepa einn bandingja og í tilbúningi með að éta hann. Annar bandingi lá á jörðunni, — en hver getur því nærri, hvað mér brá í brún? Þetta var sem sé Evrópumaður eftir klæðnaði og hörundslit að dæma. Tveir villimenn fóru í þessum svifum að 'eysa af honum böndin. Nú tjáði ekki svo mikið sem augnabliks töf. Ég gerði Frjádag bendingu, og skut- um við báðir í einu. Ég hafði hitt báða villimennina, sem voru að eiga við Evrópumanninn, og sært annan, en drep- ið hinn. Frjádagur hafði með sínu skoti drepið tvo villimenn og sært einn. Við skotin kom ógurlegt fát og truflun á villimennina eins og nærri má geta, þegar þeir sáu, að þau gerðu það að verkum, að sumir af þeirra mönnum steyptust emjandi til jarðar. Nú lögðum við frá okkur byssurnar, sem við vorum búnir að hleypa af, tókum upp tvær aðrar og skutum aftur. Þé féllu af vilíimönnunum aðeins tveir, en fjölda margir særðust. Þessir síðar- greindu ædldu um kring með voðalátum og óhljóðum; sumir féllu til jarðar og bröltu þar á hæl og hnakka. Nú tókum við upp báðar síðustu byss- urnar, sem við áttum eftir hlaðnar, og hlupum æpandi fram úr skóginum. Sá, sem særður lá hjá Evrópumannin- um, spratt nú upp og hljóp út í næsta bátinn, og þrír félagar hans á eftir hon- um. „Skjóttu á þá,“ kallaði ég til Frjádags. Hann skaut, og við skotið féllu þeir allir, en þrír stóöu samt undir eins upp aftur. Nú hljóp ég til Evrópumannsins, skai sundur bönd hans og reisti hann á fætur Var hann þá svo máttfarinn, að hann gat / varla staðið á fótunum. Ég spurði hann, hverra manna hann væri, og svaraði hann mér, að hann væri Spánverji. Ég rétti honum rommpelann minn, og tók hann sér góðan teyg úr honum; það hressti hann auðsjáanlega. Síðan fékk ég honum eina skammbyssu og korða minn. Óðara en Spánverjinn var handhafi orðinn að vopnunum, þá fékk hann allt í einu aftur krafta sína og hugrekki. Hann æddi mót f jendum sínum eins og ljón og hjó tvo af þeim niður á einni svipstundu. Ég kallaði á Frjádag og sagði honum að sækja byssurnar; hann gerði svo, og hlóð- VtEP MORö-JK/ RAfp/nu Má ég nota kústinn I kvöld, Hollar hreyfingar — en ég á þá mamma? ekki við eltingarleik við lamba- kjötið. Okkur varð sundurorða, og ég En þú verður að borga? er hrædd um að hann skelli sökinni á mig. Múlasni: — Hvað I veröld- inni ert þú? Skrjóðurinn: — BIII, auð- vitað. Múlasninn: — Nú já, I því tilfelli er ég hestur. X ítali einn var spurður að því hver væri mismunurinn á kristni og fasisma. Hann svaraði: 1 kristninni fórnar einn maður sér fyrir alla, en ! fasisma fórna allir sér fyrir einn. X Hermenn hæddust eitt sinn að Aþenumanni, sem hafði misst annan fótinn. „Ég er hér,“ mælti Aþenubú- inn, „til að berjast en ekki til þess að flýja." X Þjónn: — Hér er kominn maður, sem vill tala við greif- ann. Greifinn: — Hver er það? Þjónninn: — Hann er mállaus. Greifinn: — Hvernig veiztu það. Þjónninn: — Hann sagði það sjálfur. Segðu ekki ætíð það, sem þú veizt — en þú verður að vita það sem þú segir. X Brasidas, hinn frægi lacedemonianiski hers- höfðingi, veiddi eitt sinn mús, en hún beit hann og tókst þann- ig að sleppa. „Ó,“ sagði hann, „hvaða kvik- indi er svo fyrirlitlegt, að það verðskuldi ekki frelsi sitt, ef það nennir að berjast fyrir því.“ X Ung kona kallaði eitt sinn á Rubenstein, hinn fræga pfanó- leikara, sem hafði lofað að hlusta á pfanóleik hennar. „Hvað haldið þér að ég ætti að gera?“ spurði hún, þegar hún hafði lokið leik sínum. „Gifta yður,“ svaraði Rubenstein. X Þegar grfsku heim- spekingarnir komust að þvf að kvaðratrótin af tveimur var ekki „rational“ tala, héldu þeir uppgötvunina hátíðlega með því að fórna 100 uxum. — Er það Hallmannsbfllinn? —Já. 21 rigna, eða ef mér skyldi seinka, geturðu leitað skjóls á kaffistof- unni f bakarfinu. Þeir eru með ágætis kaffi og bakkelsi þar. Og þannig gekk það nú til að örlögín leiddu þau saman Malin Skog og Petrus. Þegar hún hafði lokið erindum sfnum sem Björg hafði beðið hana sinna var klukkan ekki nema þrjú og það hellirigndi. Svo að hún hraðaði sér að bakarfis- dyrunum, settist inn f notalega kaffistofuna fyrir innan og pant- aði kaffi og kanelsnúða. Inni var ekki annað manna en ungur og kraftalegur ungur maður sem breiddi úr sér með blaði sfnu við eina borðið sem hafði útsýni út á götuna. Malin hikaði við beit á vör sér en tautaði svo fcimnislega — Afsakið... ég er að bfða eftir bfl, svo að ég veit ekki hvort... Petrus var hinn viðmótsþýðasti, hann braut saman blaðið og dró stól að borðinu. — Það er mér sönn ánægja að fá félagsskap. Ég á frf i dag og skrapp heim til að heilsa upp á foreldra mfna, en þá var enginn heima og auðvítað hafði ég ekki tekið lyklana með mér. Hann var dökkur á hörund og bláeygður og með sérkennilega Ijóst hár. Það var eitthvað vina- legt og traustverkjandi við hann... — Ég heiti Lars Tureson, sagði hann — en ég er alltaf kallaður Petrus. Malin sagði til nafns og svo skröfuðu þau stund um veðrið og kanelsnúðana og leið ósköp og undur notalega. Bfll ók hjá og Petrus spurði hvort þetta væri sá sem hún væri að bíða eftir. — Nei. Ifann er blár Chr.vstler. Dökkblár. Hún bættí við eftir stutta þögn. — Ég er ritari hjá honum. — Mér skilst á öllum hér í Kila að það sé nú ekki tekið út með sitjandi sældinni. Mér hefur Ifka verið tjáð það hafi orðið dauðsfall á heimilinu. Er það rétt? — Já, sagði hún lágum rómi. — Jón Hallmann... hann dó sfðast- liðna nótt. Petrus var kannski ekki sál- fræðingur, en honum féll sér — sérstaklega vel við þessa freknóttu stúlku, sem var bæði blátt áfram og alþýðleg og hann fékk óljóst hugboð um að eftthvað væri að. — Af hverju er yður órótt? Haldið þér að það sé eitthvað bog- að við það...? — Eitthvað. .. bogið við það? Malin horfði stórevg á hann. I’etrus hrosti hughreystandi á móti. — Þér virðist svo hugsi. Hugsi og hálf kvfðin. Mér fannst þér væruð að hugsa um að það væri eitthvað sem yður fyndist ekki koma alls kostar heim og saman og væruð að brjóta heilann um það. Og það er afskaplega gott að trúa mér fyrir öllu svoleiðis. Petrus og ég — við erum vanir þvf að hlýóa á trúnaðarmál og fara ekki lengra með þau. Hún brosti til hans, en var á báðum áttum. — Ég veit ekki gjörla... kannski er fmyndunaraflið að gera mér gráan leik. En það er rétt að mig hefur langað afar mik- ið til að geta talað um þetta við einhvern hlutlausan og skynsam- an aðila, sem stendur utan við þetta allt og gæti sagt mér hvort ég er að verða eitthvað rugluð f kollinum. . . — Sú rnanneskja situr á þessari stundu hér við hliðina á yður, sagði Petrus fullur af sannfær- ingarkrafti. — Segið mér nú allt af létta. Ég skal með mestu ánægju hlusta endurgjaldslaust og'svo skal ég kveða upp úr með það hvað á þessu er að byggja. — Og þér lofið að vera þögull sem gröfin. — Eins og veggurinn umhverf- is Hall. — Og þér megið ekki hlægja að mér? — Það fer eftir þvf hvað þér hafið að segja. Malin velti málinu fyrir sér. Það væri f senn óheiðarlegt og andstyggilegt að fara að segja al- gerlega ókunnugum manni frá öllum högum Andreasar Hall- mann og hans fjölskyldu. Andreas Hallmann sem revndi af offorsi að vernda einkalff sitt og vinnufrið. En það var samt sem áður eitthvað sem þrýsti á hana að tala um það. Og ekki aðeins vegna þess hún hafði þörf fyrir að létta á hjarta sfnu. Heldur einnig vegna þessarar einkennulegu eðl- isávfsunar... eitthvað hugboð um að það myndi skipta máli ef hún ætti sér sálufélaga og vin f grenndínni. Hún horfði rannsak- andi á hlýlegt og einlægt andlit hans undir hrokknu Ijósu hárinu og svo ákvað hún að treysta hon- um... Hún sagði honum aðdraganda þess að hún hafði farið til Hall. Hún sagði hvað hefði fyrir hana borið þann tfma sem hún hefði verið þar og hún sagði honum frá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.