Morgunblaðið - 08.07.1976, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JÚLl 1976
KRÍUR SKOTNAR
VIÐ HREIÐUR
UM SÍOUSTU helgi urðu bænd-
ur f nágrenni Flúða f Hruna-
mannahreppi varir við að ein-
hver eða einhverjir skotglaðir
náungar höfðu verið að svala
skotfýsni sinni með þvf að
drepa krfur við hreiður sfn. Nú
sfðustu ár hefur nokkur hópur
af krfum verpt á melunum fyr-
ir ofan Flúðir og á þessu vori
fundust þar nokkur hreiður.
Þegar gengið var um varpland
krfunnar um helgina fundust
vængir af krfum auk hagla-
skota og riffilskota og var ekki
um að villast að þarna höfðu
krfurnar verið drepnar á þenn-
an óskemmtilega hátt.
Að sögn Agnars Ingólfssonar
prófessors eru kriur alfriðaðar
árið um kring og er því hér um
algjört brot að ræða á fuglafrið-
unarlögum. Þá er krían enn
með unga en hún verpir um
mánaðamótin maí-júnf og ligg-
ur á eggjunum í 3 vikur en 3 til
4 vikur líða síðan þar til ung-
arnir verða fleygir.
Vítitil
varnaðar?
84 manns í borginni Madras i
Indlandi misstu nýlega lifið
eftir að hafa gætt sér á heima-
brugguðu áfengi og voru 2
þessara bruggararnir sjálfir. I
áfenginu vartréspíri. Tæplega
100 voru fluttir á sjúkrahús og
er talið, að flestir þeirra muni
missa sjónina af völdum áfeng-
isins. I Madras er bannað að
kaupa áfengi nema samkvæmt
vottorði frá lækni, þess efnis
að kaupandin'n sé drykkju-
sjúklingur, og þá aðeins í sér-
stökum verzlunum.
v____________________z
— Banamenn
Framhald af bls. 32
nefndi áður komizt í kast við lög-
regluna. I gærkvöldi átti eftir að
úrskurða mennina í gæzluvarð-
hald meðan frekari rannsókn fer
fram.
1 samtali við Morgunblaðið í
gær sagði Ásmundur Guðmunds-
son, rannsóknarlögreglumaður í
Kópavogi, að það væru félagar
hans í rannsóknarlögreglunni i
Reykjavík, sem ættu heiðurinn að
því að upplýsa þetta mál, en náin
samvinna hefði verið milli þess-
ara tveggja embætta og rannsókn-
in verið mjög umfangsmikil.
I samtali Mbl. við Njörð Snæ-
hólm, aðalvarðstjóra rannspknar-
lögreglunnar í Reykjavik, kom
fram að níu rannsóknarlögreglu-
menn þar unnu að rannsókn máls-
ins í ailan gærdag. Sagði Njörður
að hann vildi koma á framfæri
þakklæti þeirra rannsóknarlög-
reglumanna til þeirra fjölmörgu
borgara, sem hefðu lagt þeim lið
við að upplýsa þetta mál í gær.
— Spánn
Framhald af bls. 1
málaráðherra Spánar, Federico
Silva Munoz á sæti í nýju stjórn-
inni en hann var einn þeirra, sem
taldir voru standa næstir forsæt-
isráðherraembættinu áður en
Juan Carlos fól Suarez myndun
stjórnar.
Stjórnmálaskýrendur i Madrid
segja, að nýja stjórnin sé líkleg til
að valda mikilli óánægju meðal
andstæðinga sinna og skorti
mjög á þann glæsibrag, sem
Areilza og Fraga hafi sett á fyrri
stjórn. Talið er þó, að ekki hafi
veríð hægt að búast við myndun
stjórnar, sem mundi beita sér fyr-
ir meiriháttar umbótum og breyt-
ingum, þar sem þingkostningar
verði, að líkindum að ári og stjórn
þessi sé því ekki til frambúðar.
— Uganda
Framhald af bls. 1
aði Gaddafi á þá leið að tsra-
elsmenn hefðu beðið mikið tjón
og þess vegna hefðu þeir reynt
að gera nýja innrás í Uganda.
Talið er að hann hafi átt við
þær 30 flugvélar sem sagt var
að hefðu sézt í ratsjám Uganda-
manna í dag.
KENYA NKITAR
I Nairobi bar Kenyastjórn af-
dráttarlaust tll baka þessa frétt
Ugandamanna og sagði að hún
væri uppspuni frá rótum. Að
vísu kvaðst stjórnin ekki getað
talað fyrir hönd Bandaríkja-
manna og ísraelsmanna en
benti á að flugvélarnar væru
ekki enn komnar til Uganda
þótt fréttin um þær væri
margra klukkustunda gömul.
„Við hljótum að draga þá
ályktun að ratsjá þeirra sé eins
rugluð og draumar þeirra,"
sagði í yfirlýsingu stjórnar-
innar.
„Leitt er til þess að vita að
friðelskandi þjóð Uganda skuli
þurfa að búa við stjórn mesta
einræðisherra heimsins á síðari
tímum,“ sagði i yfirlýsingunni.
„Við vottum friðelskandi þjóð
Uganda samúð okkar.“
FELLT HJA SÞ?
I New York var haft eftir
áreiðanlegum heimildum i
kvöld að ályktun þar sem aó-
gerðir Israelsmanna til björg-
unar gíslunum á Entebbe-
flugvelli yrðu fordæmdar, yrði
annaðhvort felld, fengi ekki til-
skilinn meirihluta atkvæða eða
neitunarvaldi yrði beitt gegn
henni.
Fullvist er talið að Bandarík-
in beiti neitunarvaldi gegn
slíkri ályktun, en búizt er við að
Frakkland sitji hjá ásamt Bret-
iandi, Italíu og Sviþjóð. Full-
trúar Japans, Panama og
Rúmeníu eru taldir hafa samúð
með ísrael í málinu.
— Hryðjuverka-
konur
Framhald af bls. 1
hafi þær síðan ráðizt á tvo fanga-
verði sem voru á eftirlitsferð og
hafi Inge Viett ógnað þeim með
byssu, en hinar hafi verið vopnað-
ar rörum, sem talið er að þær hafi
náð í i snyrtiherbergjum fangels-
isins. Tvo fangaverði aðra læstu
konurnar inni i bókasafni fang-
elsisins, og réðust að þvi búnu til
útgöngu. Þær skriðu út um
glugga á þaki fangelsisins og létu
sig síðan siga ofan i samanhnýtt-
um rekkjuvoðum. Sagði Oxfort,
að augljóslega hefði þeirra verið
beðið í bifreiðum utan fangelsis-
múranna.
Flóttinn var ekki uppgötvaður
fyrr en 45 mínútum eftir að flótta-
konurnar voru á bak og burt, en
þá tók vörður við fangelsishliðið
eftir því að bókum var kastað út
um glugga á bókasafninu. Ráð-
herrann sagði, að ríkisstjórnin
léti einskis ófreistað til að ná
föngunum og sjá til þess að slíkt
endurtæki sig ekki. Hann sagði,
að þegar eftir að kröfur flugræn-
ingjanna á Entebbe voru bornar
fram, hefði öryggiseftirlit í fang-
elsum í landinu verið hert mjög,
en þrátt fyrir það hefói þessi ein-
stæði og hörmulegi atburður átt
sér stað. Ráðherrann kvaðst enga
skýringu geta gefið á því að kon-
unum tókst að komast yfir lykla
að klefum sinum.
Plambeck, Rollnik og Berberich
voru allar i haldi vegna meintrar
aðildar að ráninu á Peter Lorenz í
fyrra, en ræningjar hans slepptu
honum i skiptum fyrir fjóra
hryðjuverkamenn, sem enn ganga
lausir.
Öryggisráðstafanir hafa verið
hertar mjög vegna flóttans og við
allar útgönguleiðir frá V-Berlin
hefur verið settur sérstakur vörð-
ur. Glæpir þeir, sem konurnar
hafa ýmist verið dæmdar fyrír
eða eru ákærðar fyrir að hafa
framið, eru m.a. morð, mannrán,
árásír og bankarán.
— Spassky vann
Framhald af bls. 1
með 10 vinninga og eina bið-
skák en Kavalek og Panno eru
með 9,5 vinninga.
Spassky á enga sigurmögu-
leika í þessari keppni vegna
slakrar byrjunar, en hann hef-
ur sótt sig undanfarið.
— íþróttir
Framhald af bls. 31
fús Jónsson allt I sölurnar fyrir nýtt
íslandsmet. Hann byrjaði hlaupið
með miklum hraða og virtist léttur
og hlaupa vel. Eftir nokkra hringi
mátti sjá að honum var brugðið og
þar kom að hann varð nánast að
nema staðar og ganga um tlma. Við
það missti Sigfus keppinauta slna
langt fram úr sér. en hann hafði
verið I öruggri forystu til að byrja
með. Þegar Sigfús jafnaði sig hljóp
hann geysilega vel — týndi hvern
keppinautinn upp af öðrum og hafn-
aði I þriðja sæti. á eftir Finnunum.
Hraustlega gert hjá Sigfúsi. Margur
hefði gefizt upp I hans sporum.
Ég fékk heiftarlegan hlaupasting.
sagði Sigfús eftir hlaupið. — Ég hef
verið að æfa I 30 stiga hita úti að
undanförnu, og þvl mikil viðbrigði
fyrir mann að hlaupa. jafnvel þótt
veðrið sé mjög gott á (slenzkan
mælikvarða. Það var sannarlega
ergilegt að missa af sigrinum og
metinu vegna þessa óhapps.
í 4x400 metra boðhlaupinu háði
Islenzka sveitin svo harða keppni við
þá finnsku. en varð aðeins á eftir.
þrátt fyrir hetjulega baráttu Islenzku
piltanna.
— Vísindanefnd
Framhald af bls. 2
Verkefnaefndimar eru fimm, svo
sem að ofan er sagt, og er ráðstefnan í
Reykjavík nú um endurheimt alvarlega
skaddaðra landsvæða og vatnalífkerfa I
tempraða beltingu fjármögnuð af vist-
fræðinefndinni. Sagði dr. T.D Allan að
fyrir þremur árum hefðu komið upp
raddir um að nauðsynlegt væri að efna
til slíkrar ráðstefnu um hvernig endur-
heimt yrðu sködduð landsvæði, en
próf. Heslop Harrison, framkvæmd-
stjóri Kewgrasagarðsins I London og
dr. Sturla Friðriksson, framkvæmda-
stjóri ráðstefnunnar, eru meðlimir I
vistfræðinefndinni og var sérstaklega
falið að koma henni I framkvæmd. Dr.
Martin Holdgate próf. i Cambridge tók
svo að sér vísindalega framkvæmda-
stjórn, ásamt mr. Michael Woodman
frá Institute of Terrestral Ecology I
Cambridge.
— Guðmundur
Fratnhald af bls. 2
hafa 0,5 vinning og Langeweg
hefur engan vinning.
Dr. Max Euwe forseti alþjóða-
skáksambandsins, sem fylgist
með hverri urtiferð mótsins, lét
hafa það eftir sér í gær að hann
teldi líklegt að Islendingarnir
tveir mundu standa sig með mikl-
um ágætum og spáði hann því að
þeir mundu báðir vinna til verð-
launa, en átta verðlaun verða
veitt á mótinu.
— Steel
Framhald af bls. 2
rúmlega 18% atkvæða i siðustu
þingkosningum. Steel hefur
setið á þingi í 11 ár og er þing-
maður sveitarkjördæmis í Skot-
landi, Roxburgh, Selkirk og
Peebles.
Hann hefur gefið í skyn að
flokkurinn eigi ekki að bjóða
fram í öllum kjördæmum held-
ur styðja þá frambjóðendur
Verkamannaflokksins og
Ihaldsflokksins sem séu frjáls-
lyndari. Þar með óttast ýmsir
flokksmenn að flokkurinn gæti
glatað sjálfstæði sínu.
Steel er fyrrverandi blaða-
maður og menntaður í Kenya,
þar sem faðir hans var prestur,
og Edinborg þar sem hann
lærði við háskólann.
— Gjaldeyrir
Framhald af bls. 32
irfærsla kæmi út í nokkrum
myntum, og gæti hún þannig í
nokkrum tilfellum orðið rúmlega
50 þúsund þegar yfirfærslan
hefði verið rúnuð af. Nýi skammt-
urinn verður þannig 155 pund, en
var 115 pund áður, verður 280
dollarar, en var 210 dollarar, 700
mörk en var áður 550 mörk, og
18.500 pesetar nú en var áður um
17.000 pesetar.
Björgvin kvaðst vilja ítreka að
þarna væri um heildaryfirfærslu
að ræða, og reyndin væri þannig
sú, að þeir sem færu með ferða-
skrifstofu fengju gjaldeyrinn
nánast í tvennu lagi, þar sem ann-
ar hlutinn rynni til ferðaskrifstof-
unnar til greiðslu á hótelkostnaði
viðkomandi og hann fengi þannig
ekki allan þennan skammt
greiddan út. Slíkt gilti aðeins þeg-
ar menn færu á eigin vegum og
þyrftu sjálfir að greiða hótel-
kostnað.
Morgunblaðið sneri sér til
Steins Lárussonar, formanns Fé-
lags ísl. ferðaskrifstofa, og leitaði
álits hans á þessari breytingu í
gjaldeyrismálum vegna skemmti-
ferða. Hann svaraði þvl til, að
forráðamenn ferðaskrifstofa
teldu þá hækkun sem þarna feng-
ist hvergi nærri viðunandi og hún
leysti engan veginn þann vanda
sem fjaldeyrishlið skemmtiferða
til útlanda væri nú komin I. Einn-
ig lýsti Steinn yfir undrun sinni á
því, að þessi ákvörðun gjaldeyris-
yfirvalda skyldi hvorki hafa verið
rædd við né borin undir forráða-
menn ferðaskrifstofanna, heldur
hefðu þeir fengið fréttir af henni
í fjölmiðlum.
— Gaddafi
Framhald af bls. 14
flutt viðtöl við fjölda manns, sem
heldur því fram, að þeir, sem stað-
ið hafi að byltingartilrauninni
hafi verið málaliðar, sem komið
hafi með bifreiðum yfir landa-
mærin frá Líbýu.
Starfsmenn llbýska sendiráðs-
ins I Súdan fóru frá Khartoum I
dag, en þegar Súdan sleit stjórn-
málasambandi sínu við Llbýu I
gær féngu þeir sólarhrings frest
til að hafa sig á brott úr landinu.
— Minning
Margrét
Framhald af bls. 22
rúm 40 ár. I Gísla eignaðist
Margrét þann llfsförunaut, sem
svo miklu varðar að hafa sér við
hlið. Með órofa tryggð, hjarta-
hlýju, elju og festu skapaði hann
að nýju trú og gleði I lífi ungrar
móður. Björnin fjögur litu jafnan
á Gisla sem ástkæran föður.
Nú tóku við bjartari tímar I lífi
Margrétar. Börnin hennar uxu
upp til manndómsathafna og bera
áfram til næstu kynslóða þann
kraft og festu, sem var hennar
aðalsmerki. Ölafur málarameist-
ari hefur um áratugaskeið verðið
einn af helztu forvígismönnum
sinnar stéttar og er ásamt Hauki
Hallgrímssyni eigandi að málara-
vinnustofunni Hörður & Kjartan.
Hann er kvæntur Birnu Benja-
minsdóttur. Jón Pétur hefur lengi
verið framkvæmdastjóri I Gamla
kompaniinu og er nú eigandi
þess. Hann er kvæntur Gróu
Jóelsdóttur. Séra Jónas hefur
gegnt prestsstörfum I Vík i Mýr-
dal, i Reykjavík og hjá íslenzku
Þjóðkirkjunni í Kaupmannahöfn,
og er nú kennari við guðfræði-
deild Háskóla Islands. Hann er
kvæntur Arnfríði Arnmundsdótt-
ur. Áslaug var gift Sveini Björns-
syni kaupmanni og var hans stoð
og stytta meðan heilsa entist. Guð-
laug Lára, elzt þeirra systkina, er
traustur lífsförunautur undirrit-
aðs.
Margrét var hávaxin og mynd-
arleg kona og traust og skapfesta í
allri hennar framkomu. Hún
starfaði mikið í ýmsum félagssam-
tökum s.s. Slysavarnarfélaginu,
Húsmæðrafélagi Reykjavikur og
Sjálfstæðiskvennafélaginu Hvöt.
Eftir atvikum tel ég að ævi-
kvöld Margrétar hafi verið nota-
legt. Börn og barnabörn sóttu
hana heim af áhuga og fylgdust
jafnan með henni af mikilli um-
hyggju, ekki sizt þegar þróttur
hennar fór að dvína.
Þessi fáu orð um Margréti Jóns-
dóttur eru örlitill þakklætisvottur
tengdasonar, sem á henni svo
ómetanlega mikið gott að þakka.
Guð blessi minningu hennar,
Georg Lúðvfksson.
— Afmæli
Stefán
Framhald af bls. 19
fengið hann til þess að vera einn
postulanna tólf sem stofnuðu
Tónlistarfélagið fyrir 45 árum.
Ég vil þakka Stefáni fyrir
tvennt: I fyrsta lagi að hann
skyldi vera mér til ráðuneytis við
pantanir á sigildum hljómplötum
um áratugi eins og minnzt var á
hér að ofan, og í öðru lagi fyrir
ábendingu sem varð til þess að ég
fékk lóðina undir hús mitt að
Skaftahlíð 5 og varð þannig
nágranni hans um allmörg ár. Því
vil ég og Þóra óska Stefáni og
Hönnu konu hans allra heilla á
þessu merkisafmæli.
Haraldur V. Ólafsson
— Minning
Arnór
Framhald af bls. 22
þeim frændum, Arnóri og Erlingi,
svo og öðru heimilisfólki að
Þverá. Var Arnór þeim hjónum,
Friðriku og Erlingi, sem ljúfur og
elskaður sonur. Þá reyndist
Arnór Erlingsson nafna sínum
litla sem bezti bróðir.
Arnór Stefánsson var svipfal-
legur drengur, ljós yfirlitum og
oft brá glettnislegum glampa
fyrir í greindarlegum augum,
enda bjó hann yfir góðri kímni-
gáfu. Hann var mörgum ágætum
kostum búinn, sem margur hon-
um eldri mætti vera stoltur af.
Honum var fjarri skapi að miklast
af velgengni sinni og flíka afrek-
um sinum. Slíku tók hann með
stillingu og jafnaðargeði. En væri
haft orð á því við hann, færðist
blítt gleðibros yfir andlit hans,
hann vildi heldur draga úr dáðum
sínum og taldi þær jafnvel ekki
umtalsverðar.
Arnór fór ekki með hávaða.
Hann var stilltur vel. Sérstaklega
er mér minnisstæð framkoma
hans öll, þá er hann vann
fermingarheitið á síðastliðnu ári,
fullur alvöru og ábyrgðartil-
finningar. Hógværð og heiðar-
leiki voru hans aðalsmerki.
Leiðir hafa skilið. Vinurinn
okkar ungi hefur lagt upp í ferð-
ina miklu, kallaður til stærri af-
reka en hér verða unnin. Við
þökkum góðum dreng ágæta sam-
fylgd.
Yfir minningu Arnórs Stefáns-
sonar skín birta heiðrikju og
eilífðar.
Guðbjörg Kristinsdóttir.