Morgunblaðið - 08.07.1976, Page 19
MORGUNBL.AÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. JULI 1976
19
í miklu úrvali
GEísiP
Þetta er ekkert sérstakt tilboð,
heldur eðlileg benzíneyðsla á 50
ha tSOLF sem keyrður er á
leyfilegum hámarkshraða á
sæmilegum vegi, en ef þér akið í
borgarumferð þá er eyðslan um 8 I.
’er ekki aðeins sparneytinn,
hann er rúmgóður 5 manna bíll
með stórt farangursrými og stórar
lugudyr að aftan.
er með diskahemla að
framan, Radial dekk, hita (
afturrúðu, rafknúna rúðusprautu.
öryggisgler, Rúllu-öryggisbelti,
höfuðpúða á framsæti,
hlífðarpönnu undir vél, sterkari
höggdeyfum, þvottekta leðurlíki á
sætum, hurðaspjöldum og toppi.
BOLJF\iarf aðeins eina uppherzlu
á ári eða við 1 5 þús. km. akstur.
Nú er það GOLF. sem slær í
gegn.
FYRIRLIGGJANDI
HEKLAhf.
Laugavegi 1 70— 172 — Sími 21 240
PVESTUR-ÞYZK GÆÐAFRAM LEIÐSLA'
Tjöld og tjaldþekjur
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í
MORGUNBLAÐINU
7 lítrar á 100 km!
Geysis tjöldin þola bezt
íslenzka veöráttu
Stefán Kristins-
son — Áttræður
ÞÖTT Ragnar Jónsson vinur
minn hafi skrifað mjög góða grein
um Stefán Kristinsson, sem varð
áttræður 27. júni s.l., langar mig
til að leggja nokkur orð í belg.
Ástæðan er sú að við Stefán höf-
um verið kunningjar og vinir í
a.m.k. 50 ár.
Ég man fyrst eftir Stefáni sem
ungum manni þegar ég var um
fermingaraldur á reiðhjólaverk-
stæði föður mins, en þá kom
Stefán stöku sinnum til að leigja
sér reiðhjól. Man ég vel hversu
mér fannst Stefán vera fríður
maður og vel á sig kominn.
Seinna flutti fjölskylda Stefáns
að Lundi við Laugaveg, en lóðir
húsa okkar lágu saman og þannig
kynntumst við krakkarnir fjöl-
skyldu Stefáns og þá sérstaklega
þeim bræðrum.
Þegar við í Fálkanum fórum að
fást við að flytja inn hljómplötur
haustið 1925, tók Stefán að venja
komur sinar í Fálkann og þá aðal
lega til að skoða og hlusta á sígild-
ar hljómplötur. Ég varð þess fljótt
áskynja að Stefán bar mikið skyn
á sígilda tónlist, en dægurlög vildi
hann ekkert hafa með að gera.
Þetta þróaðist með árunum og
varð Stefán næstum því daglegur
gestur í Fálkanum, drakk jafnvel
kaffi með okkur áður en hann fór
til vinnu á morgnana og fylgdist
rækilega með því hvað kom af
nýjum plötum. Árið 1926 hafði
Fálkinn fengið umboð fyrir
Columbia, sem var i miklum upp-
gangi og gaf út mikið af sigildum
verkum, óperum o.fl., sem við
pöntuðum. Ég man það greinilega
r. ée rst talið í þá daga á fingrun-
u:n. viðskiptavini okkar sem
höfðu sérstakan áhuga á sigildri
tónlist. Var það í fyrsta lagi
Stefán, Rganar i Smára, Stefán
forstjóri í Framtíðinni, og nokkrir ,
fleiri.
Þar sem mér var vel ljóst að
Stefán hafði mjög mikið vit á
sígildri tónlist, fékk ég hann til að
vera mér til ráðuneytis í fjölmörg
ár um pantanir á sígildum plöt-
um, eða allt fram til loka síðari
heimsstyrjaldarinnar eða jafnvel
lengur. Sá var siður á þeim árum
að umboðsfyrirtæki sendu okkur
sýnishornaplötur af nýjum upp-
tökum. Fól ég Stefáni að hlusta á
þessi sýnishorn áður en pantanir
voru gerðar, og innti hann það
starf af hendi með mikilli sam-
vizkusemi. Las hann ætíð mjög
vandlega umsagnir erlendra
gagnrýnenda um nýjar útgáfur,
sérstaklega þær sem birtust i
tímaritinu Gramophone.
Stefán var ávallt mjög kröfu-
harður um beztu tæki sem til voru
á hverjum tíma til flutnings tón-
listar á hljómplötum, svo að hann
var næstum aldrei ánægður.
Fannst okkur í Fálkanum hann
ganga óþarflega langt í þessari
leit að fullkomnun á þessu sviði.
í sambandi við þekkingu
Stefáns á sígildri tónlist á hljóm-
plötum má geta þess að dr. Páll
heitinn ísólfsson gat þess við mig
að það væru þrír menn sem hann
treysti bezt til að hlusta á
upptökur sínar, og það væri
Sigrún Gísladóttir, Ragnar Jóns-
son í Smára og Stefán Kristins-
son. Mér er einnig kunnugt um að
Torfi Hjartarson fyrrv. tollstjóri
kunni vel að meta störf Stefáns,
enda var hann mjög öruggur og
nákvæmur í starfi sínu.
Ég hygg að Ragnari Jónssyni hafi
verið vel ljós þekking Stefáns á
hljómplötum og því hafi hann
Framhald á bls. 18
Peugeot 404
station 7 manna, arg. 1 973, lítið ekinn og í
mjög góðu lagi til sýnis og sölu.
HAFRAFELL HF.
GRETTISGOTU 2I SIMI 235II
Nýsending
ítalskir leðurskór m/hrágúmísóla.
Svartir og brúnir; 7400. kr Póstsendum
SKÓBÚÐIN SUÐURVERI GRÁFELDUR HF
Stigahlíð 45 Sími 83225 Ingólfsstraeti 5 simi26540