Morgunblaðið - 17.10.1976, Blaðsíða 1
60 SÍÐUR (TVÖ BLÖÐ)
241. tbl. 63. árg.
SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1976
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Mótmælaadgerdir í Shanghai:
Ekkja Maos í
snöru böðuls
CARTER OG DALEY. For
setaframbjóðandi
demókrata, Jimmy Carter,
veifar til fólks á götu í
Chicago I skrúðgöngu,
sem var farin í tilefni af
Kólumbusar-deginum.
Kona Carters, Rosalynn, er
til vinstri og dóttir hans,
Amy, framarlega til hægri,
en Richard Daley borgar-
stjóri er hægra megin.
Peking, 16. október. Reuter.
GEY8IMIKILL mannfjöldi gekk dansandi um götur Shanghai í dag og
bar brúður, sem áttu að tákna ekkju Maos, Chiang Ching, hangandi f
snöru böðuls. Hcimildir í borginni, sem er sú stærsta í Kfna, herma. að
mörg hundruð þúsundir manna hafi tekið þátt í mótmælaaðgerðunum
gegn ekkjunni, sem er fyrrverandi leikkona, og þremur öðrum úr hópi
róttækra, sem eru ásökuð um að hafa undirbúið banatilræði við Hua
Kuo-feng forsætisráðherra.
Fjórmenningarnir, frú Mao;
varaformaður kommúnistaflokks-
ins, Wang Hung-wen; varafor-
sætisráðherra, Chang Chun-chiao,
og Yao Wen-yan, áttu allir mestu
fylgi að fagna í Shanghai. En nú
virðist sem öll borgin sé orðin
þeim andsnúin, samkvæmt
heimildunum.
Mannfjöldinn bar borða þar
sem ókvæðisorðum var beint gegn
félögunum fjórum. Söng fóikið,
dansaði og hrópaði fyrir framan
aðalstöðvar kommúnistaflokksins
við höfnina. F’jöldafundir voru
haldnir í Peking, í verksmiðjum
og annars staðar þar sem Shang-
Soyuz-23
snýr aftur
til jardar
Moskvu 16. október. Reuter.
TASS-fréttastofan skýrði frá
því í morgun, að Soyuzi-23,
sem skotið var á loft í fyrra-
dag, hafi verið snúið aftur til
jarðar vegna bilunar í aðflugs-
stjórntækjum geimfarsins.
Ætlunin var að Soyuz tengdist
í dag geimrannsóknafarinu
Salyut-5, sem verið hefur á
braut umhverfis jörðu undan-
farnar vikur. Um borð í Soyuzi
eru tveir menn. í Tass-
fregninni segir, að Salyut
muni eftir sem áður halda
áfram störfum.
Þetta er í fyrsta skipti sem
Sovétmenn viðurkenna að eitt-
hvað fari úrskeiðis í meir-
háttar geimferðum.
hai-fjórmenningarnir voru for-
dæmdir, en talið er að þeir hafi
verið handteknir fyrir 9 dögum
síðan.
Áreiðaniegar heimildir herma
að mörgum Kínverjum hafi verið
skýrt frá því að frú Mao og félag-
ar hennar hafi gert samsæri um
að myrða Hua. Hua, sem er hóf-
samur og sagður vel gefinn og
harður í horn að taka sem stjórn-
andi, hefur verið tilnefndur eftir-
maður Maos sem formaður komm-
^Tinistaflokksins.
Á veggspjöldum, þar sem fjór-
menningarnir eru fordæmdir, er
jafnframt krafist verndar fyrir
Hua. Sérfræðingar í málefnum
Kína eru sannfærðir um að her-
ferðin gegn róttækum njóti stuðn-
ings þorra þjóðarinnar.
Ástandið í Shanghai líkist mjög
því sem var í menningarbylting-
Framhald á bls. 35
Líbanon:
Chiang Ching
og Wang.
ekkja Maos —
Byssurnar þagna
Aley, 16. október. Reuter
KYRRÐ færðist yfir vígvöllinn í
fjöllum Llbanon I morgun, en
leiðtogar Araba eru á leið til
fundar f Saudi Arabiu, þar sem
þeir ætla að freista þess að binda
endi á borgarastríðið, sem staðið
hefur í 18 mánuði.
Eftir geysiharða bardaga I 3
daga hafa sýrlendingar náð full-
komnu valdi yfir ferðamanna-
bænum Bhamdoun, sem er 6 kfló-
metra vestur af Aley.
Hersveitir sýrlendinga hafa
tekið sér stöðu í útjörðum Aley,
sem er f höndum palestínskra
skæruliða og vinstrisinna, en bær-
inn stendur 12 kílómetra suðaust-
ur af Beirút.
Ekki eitt einasta skot heyrðist
þegar þokunni létti i fjöllunum í
morgun. Háttsettur maður í aðal-
stöðvum Palestínumanna sagði í
morgun að allar sveitir þeirra
væru farnar frá Bhamdoun, en
þeir hafa undanfarna daga barist
þar á götum og í byggingum við
árásarlið Sýrlendinga, sem beitti
skriðdrekum. Sýrlendingar stöðv-
uðu framrás sina í útjöðrum Aley.
Elias Starkis, forseti Líbanon er
farinn frá austur Beirút, sem er í
höndum hægrimanna á fundinn í
Riyadh og álitið er að formaður
Frelsishreyfingar Palestínu-
„Ekkert óljúfara en að þurfa
að minnast á bókun sex”
- segir embættismaður EBE í samtali við Mbl.
Briissel 16. október.
Frá Magnúsi Finnssyni
blaðamanni Mbl.
FUNDUR utanrfkisráðherra
Efnahagsbandalags Evrópu
hefst f Luxemburg á morgun,
mánudag. Eitt helzta verkefni
fundarins verður að ákveða
fiskveiðistefnu bandalagsins og
útfærslu sameiginlegrar fisk-
veiðilögsögu bandalagsrfkj-
anna f 200 mflur 1. janúar 1977,
eins og tillögur framkvæmda-
ráðs EBE gera ráð fyrir.
Bandalagsrfkin hafa enn
ekki komið sér saman um inn-
byrðis deilumál, en fram-
kvæmdanefndin vill fá umboð
til þess að semja við rfki utan
bandalagsins um gagnkvæm
fiskveiðiréttindi.
Háttsettur embættismaður
EBE sagði í samtali við Morg-
unblaðið f gær, að ef samnings-
umboðið lægi fyrir eftir að
fundi utanríkisráðherranna
lýkur á þriðjudag, teldi hann
persónulega að bandalagið ætti
fyrst að snúa sér í samningum
að Bandarfkjunum, en næst í
röðinni kæmi Island, sem væri
aðkallandi vegna tímatakmark-
ana í samningi Breta og tslend-
inga, sem rennur út 1. desem-
ber. Þá sagði embættismaður-
inn að næstu þjóðir á listanum
væru Noregur, Kanada og Fær-
eyingar. Þá verður einnig rætt
við Rússa, Pólverja, A-
Þjóðverja og Spánverja. Tvö
lönd, Bandaríkin og Noregur,
hafa þegar sent bandalaginu
drög að samkomulagi.
Bandalagið hefur einnig átt
viðræður við önnur ríki, t.d.
ísland, en þar var aðeins um
könnunarviðræður að ræða og
skipzt á skoðunum. Af íslands
hálfu tóku þátt í þeim Einar
Ingvarsson, aðstoðarmaður
sjávarútvegsráðherra, Már Elís-
son fiskimálastjóri og Tómas
Tómasson sendiherra í Brussel.
Veiti ráðherrafundurinn nú
umboð til samninga má búast
við þvf að bandalagið óski mjög
bráðlega eftir viðræðum við ís-
lendinga.
Mbl. spurði talsmenn EBE
hvernig unnt væri að ná jöfn-
uði á gagnkvæmum grundvelli,
Þar sem veiðar íslendinga
væru mjög óverulegar innan
væntanlegrar EBE-Iögsögu.
Hann sagði að vissulega væri
það síldarmagn, sem íslending-
ar veiddu f Norðursjó aðeins
brot af afla EBE-ríkjanna á ís-
landsmiðum, þar sem þær
veiddu aðallega þorsk og karfa.
Hins vegar hefðu vísindamenn
bent á að verulegur hluti
þorsksins, sem veiddist við ís-
Framhald á bls. 35
manna (PLO) sé einnig á leið
þangað.
Meðal leiðtoga á grundinum
verða Anwar Sadat, forseti
Egyptalands og Hafez A1 — assad,
forseti Sýrlands, en stjórnir
þeirra greinir heiftarlega á um
stríðið í Líbanon. Þeir hafa ekki
hitzt síðan Faisal konungur Saudi
Arabiu var jarðsettur i fyrra, en
síðan hefur sambúð landanna
versnað mjög.
Tilkynningin um fundinn, sem
birt var f gær, kom mjög á óvart
og varð til þess að utanríkisráð-
herrar Arabalandanna frestuðu
toppfundi sfnum, sem átti að
byrja á mánudag um óákveðinn
tíma.
Sfðustu fréttir hermdu að Yass-
er Arafat, sé innilokaður í Liba-
non og kæmist því ekki á ráð-
stefnuna í Riyad.
Harka í
kappræðu
varaforseta-
efnanna
Washington — 16. október
— Reuter
VARAFORSETAEFNIN í for-
setakosningunum f Bandarfkjun-
um áttust við í sjónvarpskapp-
ræðu í gær, og er það mál manna
að ekki hafi kastazt eins í kekki f
kosningabaráttunni fram að
þessu og þegar brigzlyrði varafor-
setaefnanna gengu á vfxl. Mönn-
um ber saman um að Robert Dole,
frambjóðandi repúblfkana, hafi
Framhald á bls. 35