Morgunblaðið - 17.10.1976, Page 2

Morgunblaðið - 17.10.1976, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1976 Boðun slökkviliðs með ýmsu móti á landinu — Allt við það sama 1 slökkviliðsmálum ísfirðinga t GÆRDAG var allt óbreytt f slökkvaliósmálum tsfirðinga. Bæjarráð sendi póst- og sfma- málastjóra skeyti á föstudags- kvöldið þar sem þess var krafist að stúlkur á sfmstöðinni gegndu neyðarþjónustunni áfram, meðan beðið væri úrskurðar ráðuneytis um þessi mál. Að sögn Bolla Kjartanssonar, bæjarstjóra á tsa- firði, hafði ekkert svar borist frá sfmamálastjóra um miðjan dag f gær og þvf engin neyðarþjónusta veitt á sfmstöðinni, en ekki hafði Leiðrétting I FRÁSÖGN Morgunblaðsins í gær af viðtali við Eyjólf Konráð Jónsson var prentvilla í einni setningu. Rétt er setningin svo- hljóðandi: „Loks voru sömu brigzl höfð i frammi í útvarps- þætti Páls Heiðars Jónssonar." Þetta leiðréttist hér með. komið til bruna eða annarra óhappa á tsafirði frá miðnætti á föstudag þangað til seinni part- inn f gær. Morgunblaðið hafði f gær sam- band við nokkra staði og fékk upplýsingar um hvernig boðun slökkviliðsmanna er hagað þar. Er boðunin með mjög ólfkum hætti á hinum ýmsu stöðum og varla eins á neinum tveimur stöð- um. Á Akranesi hefur slökkvilið númer á lögreglustöðinni þannig að ef bruna ber að höndum hafa menn samband við lögregluna. Sá galli er þó á gjöf Njarðar að 3 tíma á næturnar í miðri viku er engin vakt á lögreglustöðinni þannig að eftir að hafa fengið nafn þess manns sem er á bakvakt í gegnum símsvara lögreglunnar verður að velja annað númer. Sagði Magnús Oddsson, bæjar- stjóri á Akranesi, að vitanlega gæti þetta verið bagalegt þegar mikið lægi við. — Við höfum farið fram á að lögreglumönnum verði fjölgað hér þannig að hægt verði að hafa lögregluvakt allan sólar- hringinn og vonandi verður þeirri ósk okkar sinnt, sagði Magnús. i Siglufirði er boðun slökkvi- liðsmanna með sama hætti og var á ísafirði, þ.e. stúlkur á símstöð- inni kalla brunaverði út. Þor- steinn Jóhannesson verkfræðing- ur í Siglufirði sagði Morgunblað- inu í gær að ekki hefði verið rætt um neinar breytingar á þessu kerfi og stúlkurnar veittu þessa þjónustu endurgjaldslaust að því er hann bezt vissi. Á Húsavík er bruni tilkynntur með því að brjóta gler í brunaboð- um, sem eru viðs vegar um bæinn. Einnig er slökkviliðið með sam- tengt símkerfi og um það hefur verið rætt að slokkviliðið verði boðað á Húsavík gegnum sfma Framhald á bls. 35 Bragi Jósepsson: „Verð allavega í lögregl- unni fram til mánudags” „ÞEGAR ég kom heim til mfn á föstudaginn lá þar skipunarbréf um að ég væri orðinn rannsóknar- lögreglumaður frá og með 15. >któber og til æviloka ef ég kysi >að. Eg mun fhuga það yfir helg- na hvort ég tek starfinu eða ekki, ■n allavega verð ég f rannsóknar- ögreglunni fram á mánudag," agði Bragi Jósepsson uppeldis- ræðingur f samtali við Mbl. f :ær. Bragi kvaðst hafa rætt við Ólaf .óhannesson dómsmálaráðherra og Halldór Þorbjörnsson yfirsaka- dómara á föstudaginn og fengið öll mál á hreint. Væri hann nú að íhuga hvað hann ætti að gera, og ákvörðun sína myndi hann til- kynna ráðherra og yfirsaka- dómara á mánudaginn. Bragi kvað það rangt vera f blöðum, að hann hefði sótt um starfið í gríni, hann hefði lengi haft áhuga á því að vinna við rannsóknarlögreglu og þá sérstaklega að unglingmál- um. „Ég er nú í þeirri furðulegu aðstöðu að vera bæði rannsóknar- lögreglumaður og blaðamaður við Alþýðublaðið,“ sagði Bragi. „Og á báðum stöðunum verð ég að mæta á mánudaginn. Þar sem ég hef verið skipaður rannsóknar- lögreglumaður, verð ég að segja starfinu upp með löglegum fyrir- vara ef ég tek því ekki, jafnvel þótt ég hafi aldrei byrjað störf. En ég verð lfka að hafa góðar ástæður til að hafna starfinu,“ sagði Bragi. Þá sneri Morgunblaðið sér til Ólafs Jóhannessonar dómsmála- ráðherra og spurði hann hver væri helzta ástæðan fyrir því að hann veitti Braga Jósepssyni stöð- una, en ekki þeim sem yfirsaka- Framhald á bls. 35 Ólafur Jóhannesson: „Veitti Braga stöðuna vegna menntunar hans” Ivar Eskeland sá um að velja Ijóð- in Forsfða bókarinnar Árekstur á blind- hæð í Mývatnssveit Mývatnssveit, 15. október. MJÖG harður árekstur varð í gær- kvöldi hér f sveitinni á þjóðvegin- um á milli Geiteyjarstrandar og Höfða. Þar óku saman tveir fólks- bílar annar með A-númeri, í hon- um voru tveir menn, en hinn með Þ-númeri, í honum voru hjón með tvö ung börn. Kallað var strax á lögreglu og sjúkrabifreið frá Húsavfk og voru þau sem slasast höfðu flutt þangað á sjúkrahús. Ekki var hægt að sjá annað en báðir bílarnir væru gjörónýtur og beita varð tveimur jeppum fyrir hræin til að draga þau í sundur. Sfðan var kranabíll fenginn á staðinn til að draga bflana. Ekki er fyllilega ljóst með hvaða hætti þetta óhapp átti sér stað, þó er helzt talið að ljósin hafi skyndi- lega blindað ökumenn beggja bif- reiðanna á blindhæð. Hér f Mý- vatnssveit og nágrenni eru víða blindbeygjur og hæðir á þjóðveg- inum og af þeim sökum hafa á undanförnum árum orðið umferð- aróhöpp og slys á þessum stöðum. Nú er það brýn krafa til Vega- gerðar rfkisins að þegar verði ráð- in bót á, áður en meira tjón hlýzt af. Ljóst er að skipta verður veg- inum á verstu blindhæðunum í tvær akreinar. Sfðastliðinn sunnudag varð undirritaður vitni að því að árekstri varð naumlega afstýrt á stórhættulegri blindhæð á Hólasandi á leiðinni frá Mý- vatnssveit til Húsavfkur, en á þeirri leið eru sem kunnugt er nokkrir slfkir staðir. Að vfsu er áður búið að fara fram á endur- bætur á þeim, en til þessa hefur verið daufheyrzt við því, en sem sagt; nú þolir það enga bið lengur. —Kristján. Tveir háhyrninga- bátar á miðunum SIGURVON SH hélt til háhyrningsveiða á ný frá Orna- firði f fyrrakvöld og með f förinni var forstjóri Marinlands sædýra- safnsins f Frakklandí, en hann kom til Hafnar á fimmtudag. 1 þessari ferð er hugmyndin að reyna ná öðrum háhyrningi og þá helzt aðeins yngri en „Jóhönnu“, en hún þykir f elzta lagi. Að lokinni þessari veiðiferð mun Frakkinn taka ákvörðun um hvernig háhyrningurinn eða háhyrningarnir verða fluttir frá Höfn til Frakklands. Guðrún frá Hafnarfirði er sem kunnugt er á háhyrningaveiðum fyrir Sædýrasafnið og Dolfinaquarium í Hollandi. Morgunblaðið náði tali af Jóni Kr. Gunnarssyni forstöðumanni Sædýrasafnsins, þar sem hann vsr um borð í Guðrúnu í gær. Sagði hann, að þeir væru staddir á síldarmiðunum kringum Ingólfshöfða. Alls væru þeir búnir að kasta síldarnótinni fjór- um sinnum á háhyrningavöður, en alltaf hefði þeim tekist að smjúga burtu, áður en búið væri að loka nótinni. Hraðinn á þeim væri oft mikill og því erfitt við þá að eiga. Jón sagði, að rnikið væri af háhyrningi á þessum slóðum og gengju þeir í misjafnlega stórum vöðum. Mest héldu þeir sig í nánd við síldarskipin og ætu sildina sem slyppi úr nótunum eða reknetunum. „Mörg lýs- ingarorð á rússnesku” VLADIMIR Ashkenasy hélt í gærmorgun til Lundúna þar sem hann fer í upptöku í dag. Á morgun heldur hann síðan til Glasgow þar sem hann mun stjórna hljómsveit og leika á fernum hljómleikum I lok vik- unnar. Fjölskylda hans, for- eldrar, eiginkona og börn fóru hins vegar í skoðunarferð til Vestmannaeyja í gærmorgun og sagði Þórunn Jóhannsdóttar í viðtali við Morgunblaðið i gær að foreldrum Valdimars hefði fundist ferðin stórkost- leg. — Þau trúðu naumast því sém þau sáu þegar kom til Framhald á bls. 35 íslenzk ljóð: Gefin út 1 8000 eintökum í Noregi Bókin kemur út hjá Den norske Bokklubben NVLEGA er komin út I Noregi ljóðabók með Ijóðum eftir ís- lenzka höfunda og eru öll ljóðin samin eftir strfð. Það er Norski bókaklúbburinn, sem gefur bók- ina út og ber hún nafnið „Váren kjem ridand". Bókin er gefin út ( átta þúsund eintökum og hefur Ivar Eskeland valið Ijóðin ( bók- inni. Þau (slenzku ljóðskáld sem eiga verk í bókinni eru Jóhannes úr Kötlum, Þorgeir Sveinbjarnar- son, Snorri Hjartarson, Steinn Steinar, Kristján frá Djúpalæk, Jón úr Vör, Þorsteinn Valdimars- son, Stefán Hörður Grlmsson, Einar Bragi, Jón Öskar, Hannes Sigfússon, Jónas E. Svafár, Sigfús Daðason, Sigurður A. Magnússon, Matthias Johannessen Vilborg Dagbjartsdóttir, Jón frá Pálm- holti, Hannes Pétursson, Dagur Sigurðarson, Þorsteinn frá Hamri, Jóhann Hjálmarsson, Ól- afur Haukur Símonarson og Pét- ur Gunnarsson. Bókin er myndskreytt með teikningum eftir Islenzka lista- menn, þá Helga Þorgils, Hilmar Þ. Helgason, Snorra Svein Frið- riksson og Ólaf M. Jóhannesson. Skáldin fá misjafnlega mikið rúm í bókinni og ýmsum mun vafalaust finnast vanta nokkur skáld, t.d. þjóðskáld tslendinga, Tómas Guðmundsson. Ivar Eske- land sem ritar formála segir m.a., að mikil skáld eins og Tómas, Davíð Stefánsson, Jón Helgason og Guðmundur Böðvarsson hefðu átt kröfu á að vera með I bókinni, en þeir heyri þó fremur til milli- strlðsárunum, hvað ljóðlist þeirra viðkemur. Þá segir Eskeland að skáldin, sem kynnt eru I bókinni, hafi öll skrifað sitthvað, sem geri þau hæf til að eiga ljóð I sllku úrvali, jafn- vel hefði verið ástæða til að gefa út sérstaka bók með ljóðum sumra þeirra. En það hefði ekki gefið eins góða mynd af ljóðlist á Islandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.