Morgunblaðið - 17.10.1976, Page 3

Morgunblaðið - 17.10.1976, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1976 3 Kristilegt stúdenta- félag 40 ára Á ÞESSU ári eru liðin 40 ár frá stofnun Kristilegs stúdenta- félags. Segja má að kynni fslenzkra stúdenta af norska kristiiega stúdentaféiaginu hafi orðið til þess að áhugi vaknaði hér á landi fyrir stofn- un slíks félags. Brautryðjendur þess voru þeir Valgeir Skag- fjörð sem lézt 1935 og prðf. Jóhann Hannesson sem nú er nýlátinn, en þeir höfðu báðir kynnst erlendu félögunum. Fleiri koma við sögu og þegar félagið er formlega stofnað árið 1936, hinn 17, júní, voru stofn- endur fjórir, próf. Jóhann Hannesson, sem var kjörinn formaður, sr. Magnús Runólfs- son, Ástráður Sigursteindórs- son og Gunnar Sigurjónsson. Félagið var að mestu sniðið eftir lögum norska félagsins og naut það aðstoðar fr Noregi við aðdraganda stofnunarinnar. Strax fyrsta starfsárið, um haustið 1936, kom hingað hópur manna frá Noregi, prédikarinn prófessor Ole Hallesby og með honum sex stúdentar. Þeir komu til Reykjavíkur hinn 6. október og héldu sami komur og fyrirlestra og vakti heimsókn þeirra mikla athygli. Greinar voru skrifaðar í blöð þar sem komu þeirra var and- mælt og fundið var að því að próf. Hallesby fengi að halda fyrirlestra við guðfræðideild Háskólans. Þetta umtal og blaðaskrif vakti enn meiri athygli á heimsókninni og flytja varð fyrirlestra próf. Hallesbys í eitt af kvikmynda- húsum borgarinnar, svo fjölsóttir voru þeir. Eftir hálfsmánaðar dvöl hér sneri Hallesby aftur til Noregs, en samferðamenn hans ferðuð- ust um landið og héldu sam- komur. Enn héldu áfram skrif um heimsóknina og voru sumir á þeirri skoðun að hennar hefði ekki þurft við. Fyrsta árið var farið hægt af stað og gefið út í fyrsta sinn Kristilegt stúdentablað 1. des. 1936. Árið eftir fóru nokkrir félagsmenn til Noregs á Ánfinn Skaaheim er gestur K.S.F. hér á landi um þessar mundir. Hann er ræðumaður á samkomu félagsins f Frfkirkj- unni f kvöld. norrænt kristilegt stúdentamót. Það varð upphaf þess að síðan hafa verið haldin mót hér innanlands og félagsmenn hafa allar götur síðan reynt að sækj'a mót erlendis, sem haldin hafa verið á vegum systurfélaganna þar. Á stríðsárunum féll starfið í nokkra lægð og ekki var unnt að hafa náið samstarf við félög- in á Norðurlöndunum. Eftir stríð komst sambandið á að nýju og þá var einnig leitað sambands við stúdenta- hreyfinguna i Englandi og frá þessum löndum fékk K.S.F. nokkrar heimsóknir. Þá hillti undir að gamall draumur rættist, að halda norrænt kristi- legt stúdentamót á Islandi og var það gert árið 1950. Sóttu það um 250 erlendir stúdentar auk íslendinga og var próf. Hallesby meðal ræðumanna. Móttökurnar I það sinn urðu ekki eins harðar og hann hlaut í fyrri heimsókn. Eftir þetta varð það föst hefð að haldið var hér kristilegt stúdentamót og hefur fjöldi þátttakenda á þeim mótum vax- ið ár frá ári og í ár var fjöldinn um 100 manns á móti í Vatna- skógi. Á árunum 1950 til 1970 gekk starfsemi K.S.F. í bylgjum en segja má að frá árinu 1970 hafi það verið á stöðugri uppleið, og félagatalan vaxið stöðugt. Nú eru félagsmenn um 160. Starfseminni er í aðalatriðum þannig háttað að starfandi eru biblíuleshópar i Háskólanum og fleiri æðri skólum og I hverri viku eru á dagskrá félagsins samverur, opin hús á heimilum félagsmanna, kvöldvökur, fyrirlestrar og fundir með stú- dentum í einhverju húsnæði Háskólans. Að lokum má nefna að nú stendur yfir heimsókn frá Nor- egi eins og getið hefur verið í fréttum. Er það norski stúdentaleiðtoginn Anfin Skaa- heim og talar hann á samkom- um nú um helgina og verður hin siðasta í Fríkirkjunni i kvöld kl. 20:30. Frá kristilegu stúdentamóti f Vatnaskógi um sfðustu helgi. Kosningafyr- irkomulagi breytt að kröfu Vöku KOSNINGAR til hátiðarnefnd- ar 1. desember 1976 fara fram í Háskóla íslands miðvikudaginn 20. október nk. Vaka, félag lýð- ræðissinnaðra stúdenta, skilaði frambaðslista til þessara kosn- inga þrlðjudaginn 12. október. Félagið lagði til, að fullveldis- t hátiðin yrði helguð umræðum um réttarrfkið. I framboði félagsins voru settir tveir fyrir- varar eða skilyrði: I fyrsta lagi var þess krafizt. að fundur sá, er kjósa ætti nefndina, yrði opinn öllum stúdentum allan þann tíma, sem fundurinn stæði yfir, og í öðru lagi var þess krafizt, að fundarmenn gætu neytt kosningarréttar síns allan fundartímann. Kjörstjórnin, en í henni sitja tveir Verðandimenn og einn Vökumaður, neitaði að verða við þessum kröfum og hélt fast við þrengsta mögulega skilning á kosningareglugerðinni. Sú túlkun kjörstjórnar hefði leitt til þess, að aðeins lítið brot stúdenta hefði átt þess kost að taka þátt í kosningunum, þ.e. aðeins þeir, er aðstöðu hafa til þess að mæta á kjörstað á ná- kvæmlega tilteknum tveimur klukkustundum milli kl. 19.30 og 21.30. Allir, sem ætla að taka þátt I kosningunum, þurfa að vera staddir samtimis á kjör- stað, sem rúmar 953 menn, en stúdentar við H. I. eru I vetur 2700 til 3000 talsins. Lýðræðis- sinnaðir stúdentar töldu þetta kosningafyrirkomulag for- kastanlegt og vildu ekki taka þátt í slíkri afskræmingu lýð- ræðislegra kosninga. I framhaldi af synjun kjör- stjórnar á skilyrðum Vöku, lögðu þeir til á stúdentaráðs- fundi 14. okt., að Stúdentaráð skoraði á kjörstjórn að hafa kosningafyrirkomulagið sem rúmast, svo að sem flestir stúd- entar gætu neytt atkvæðisrétt- ar sins. Þessi tillaga var sam- þykkt í Stúdentaráði og i fram- haldi af því breytti kjörstjórn úrskurði sínum um kosninga- fyrirkomulagið, þannig að kos- ið er á opnum fundi og fallizt var á skilyrði Vöku. Vaka mun því ganga til 1. des. — kosninga i ár með Réttarrfkið sem tillögu að umræðu efni. Með ÚTSYN til annarra landa Vikuferðir til L0ND0N Brottför J alla laugardaga _ frá l.nóv. ’76 tn -X- 31. marz '11 - VERÐ FRÁ __ k KR. 44.200,— ^JL ------------S> <2 AUSTURSTRÆTI 17 Helgarferðir til — GLASG0W hálfsmánaðarlega frá^: 24. sept. til 18. des VERÐ FRÁ KR. 35.900.-^'^ ^olarlri í skammdeginu Kanan. Brottför tíl áramóta: 27. okt. Uppselt. 1 2. des Uppselt. 18. nóv. 16. des. Uppselt. 2. des. 29. des. Uppselt. 9. des. 30. des. Uppselt. Verð frá 64.300 í 1 5 daga. Ferðaskrifstofan _+L.__ JT SIMI26611

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.