Morgunblaðið - 17.10.1976, Síða 15

Morgunblaðið - 17.10.1976, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1976 15 var mikil harka i þessum leik og 5 menn voru bornir slasaðir út af vellinum. Ég var einn þeirra. Ég ætlaði að kasta mér á fæturna á einum Víkingnum og verja mark- ið, en fékk þá spark í andlitið, algjört óviljaverk. Ég var fluttur á sjúkrabörum upp á sjúkrahús og þegar ég rankaði við mér úr rotinu vantaði mig báðar fram- tennurnar. Þetta var mikið áfall fyrir mig þá, ég var ekki nema 19 ára gamall og fannst þetta alveg hræðilegt. Mér er líka alltaf minnisstæður fyrsti landsleikurinn, en hann var 17. júlí 1946, við Danmörk. Þá börðumst við Hermann Her- mannsson um markið. A þessum tíma var ég mikið á skíðum til að fá úthald og sunnudaginn 24. marz fór ég með Helga Eysteins- syni upp í Innstadal á skíði. Þar lenti ég í misrennsli og sneri mig heiftarlega um ökklann. Ég varð að ganga stokkbólginn niður á Kolviðarhól og þá voru 115 dagar I landsleikinn og ég gat ekki æft fyrr en l'A mánuði eftir þetta, því þá var ekki hægt að ganga til nuddara og annarra sérfræðinga. Þetta sumar var ég nýbúinn að stofna heimili og átti erfitt með að missa vinnu vegna æfinga, en þá var hringt í mig og mér til- kynnt að ég sé einn af 22 sem hafi verið valdir til að æfa fyrir lands- leikinn, en hins vegar verði ekki endanlega valið fyrr en 3 dögum fyrir leikinn. En ég stóðst ekki freistinguna, lagði bílnum og fór upp að Kolviðarhóli þar sem við æfðum og skildi frúna eftir í bæn- um. Svo var liðið valið og þá var ég búinn að gera mér ljóst að ég yrði ekki valinn en var varamað- ur. Ríkharður Jónsson var einnig Ég lagði nú alltaf alveg ofsalega vinnu og tíma i æfingar og þetta þýddi beint vinnutap, en það þýddi ekki að hugsa um það. Ann- að hvort var að vera með, eða ekki. ADAM: Já, ég get alveg tekió undir þetta. Það má segja að vik- an færi f æfingar og leiki, og annað hvort var að láta sér það lynda, eða detta út úr. ANTON: Já, nú man ég eftir einum skemmtilegum leik, sem ég þarf endilega að segja þér frá, því þar kemur fram að ég var alltaf dálftið hjátrúarfullur, þó enginn hafi vitað það, ekki einu sinni konan mfn. Það eru ekki nema nokkrir dagar síðan ég sagði henni það. En þannig var, að í lok strfðsins eða nánai tiltekið 8. júnf 1945 var ákveðið að velja lið til að leika við brezkt úrvalslið úr hern- um og það er eiginlega mesti leik- ur, sem ég hef spilað. — alla vega sá skemmtilegasti. Torfi Guð- bjartsson, sem þá var vallarvörð- ur, afhenti manni alltaf númer þegar maður afhenti honum verð- mæti til geymslu, — en mér var alls ekki sama hvaða númer ég fékk. Og ég gleymi þvf aldrei í þessum leik þegar mér var afhent númerið. Ég kreisti það f lófanum og ætlaði varla að þora að lfta á það, — og hvað mér létti þegar ég sá að það var 6. Slétt tala var alltaf góðs viti. Versta talan, sem ég fékk var hins vegar 9.1 þessur leik unnum við 4—0 og var alve ofsaleg spenna á vellinum. BLM: En þú, Adam? Varst þú líka svona hjátrúarfullur f fót- boltanum? ADAM: Já, það var ef liðið mitt fór ekki á undan út i hálfleik. Þá var ég alveg ómögulegur maður. ANTON: Svo vorum við alltaf berhentir. — Já, og með stórar derhúfur. BLM: Anton, þú spilaðir ekki öll þessi ár með K.R., er það? ANTON: Nei, árið 1943 gekk ég yfir f Víking, en það er annar kapftuli. sem geymist. BLM: Stundið þið ennþá fót- bolta eða einhverjar aðrar íþrótt- ir? Islenzka landsliðið á Arsenalleikvellinum árið 1946. Aftari röð f.v.: Sigurjón Ólafsson, Sigurður Ólafsson fyrirliði, Ólafur Hannesson, Einar Pálsson, Valtýr Guð- mundsson, Snorri Jónsson, Jón Jónsson (Jón á 11), Sveinn Helgason, Ellert Sölvason (Lolli), Þórhallur varamaður f þessum leik, og er það í eina skiptið, sem hann hefur verið varamaður. En við vorum dálftið þungir yfir þessum enda- lokum. En svo skeði það þegar búið var að velja 11 manns til að spila, að 3 þeirra slasast. Þeir vildu þó ekki gefa eftir og voru frystir til að geta hlaupið inn á völlinn. Einn þessara manna var Hermann og greip ég inn f leikinn þegar frostið var farið að fara úr. Þessi leikur eða öllu heldur að- dragandinn er mér alltaf minnis- stæður. BLM: Þurftuð þið ekki að fórna geysilegum tíma fyrir knatspyrn- una? ANTON: Jú, alveg geysilegum. ANTON: Þetta var svo heilagt fyrir mér og ég gat alls ekki látið strákana vita um þetta því þá hefði þetta verið búið hjá mér. BLM: Höfðu íslenzkir knatt- spyrnumenn mikil samskipti við erlendar þjóðir á þessum árum? ANon: Það var náttúrulega ekki eins mikið um það og f dag. En ég man eftir því að 17. septem- ber 1946 fór ég með íslenzka landsliðinu til Englands og spiluð- um við 5 leiki þar, og gekk vel. I þessari ferð eða miðvikudaginn 2. október var okkur boðið á Arsen- alleikvöllinn og þá vorum við stoltir af að vera Islendingar. Al- bert Guðmundsson lék þá með Arsenal, á móti tékkneska liðinu son og Sigurður Ölafsson í Val, Sæmundur Gislason og Jón Magnússon f Fram og Brandur Brynjólfsson f Víkingi, mennirnir sem settu mestan svip á knatt- spyrnuna ásamt fleirum, sem of langt yrði upp að telja. Þetta voru nú kapparnir f þá daga. Leikaðferðin f dag er lfka allt önnur en áður. Nú er miklu meira byggt á vörninni, en í gamla daga var þetta allt opið og framlínan var byggð á 5 mönnum. Mér finnst knattspyrnan alltaf leiðin- legri þegar verið er að spila upp á að fá ekkert mark á sig. ADAM: Ja, nú má ekki snerta markverðina innan markteigs. 1 Einarsson, Birgir Guðjónsson, Hafsteinn Guðmundsson, útlendingur, Björgvin Schram. Fremri röð f.v.: Gunnlaugur Lárusson, Kristján Ólafs- son, Anton Sigurðsson (Toni), Hermann Hermannsson, Karl Guðmundsson, Albert Guðmundsson. ADAM: Þeir voru náttúrulega nokkrir landsleikirnir, sem mað- ur spilaði. Einnig voru farnir að koma hingað erlendir þjálfarar á þessum tíma. Ég man eftir mönn- um eins og Lindeman, en þó sér- staklega Bucklow, sem var þýzk- ur, þvf ég naut þjálfunar hans um tfma. ANTON: Já, hann var virkileg týpa. Hann þjálfaði mig nú aldrei, en ég stalst til að fylgjast með æfingum hjá honum. BLM: En hvað viljið þið segja um knattspyrnuna f dag? Er hún betri eða verri en áður? ADAM: Ja, ég vil segja að knattspyrnan er betur skipulögð í dag og það eru komnar nýjar og ADAM: Nei, ekki nú orðið. Ég hætti nú keppni um tima 1940 því þá biluðu fæturnir, en svo kom ég aftur inn ‘46 og byrjaði aftut að hamast, en var aldrei almennileg- ur í fótunum. A árunum ‘47—‘51 spilaði ég svo i meistaraflokki, en þá gáfu fæturnir sig aftur og þá hætti ég keppni. Annars eru það mikil viðbrigði að snögghætta svona að æfa og það er nokkuð, sem enginn íþróttamaður ætti að gera. ANTON: Ég var lengi með Hreyfli í fót- og handbolta og einnig fer ég dálftið f sund. Það er nauðsynlegt að reyna að halda sér í sæmilegu formi. En eftir að ég hætti keppni f fótboltanum, fór ég að spekúlera mikið í skák. En ég segi nú ekki að ég sé skákmaður heldur áhugamaður. BLM: Ég hef nú samt frétt að þú Hafir farið margoft erlendis til að keppa fyrir Hreyfil. ANTON: Jú, víst hef ég farið út nokkrum sinnum. Eg man að árið ‘57 fórum við til Helsingförs og þar var okkur sýndur Ólympíu- leikvangurinn. Þar var allt tómt og við komum bara í anddyrið, en þá stakk ég af og hljóp út á völl- inn. Ég mátti til með að komast út á völlinn — og i markið. árós. Islandsmeistarar Fram: Aftari röð f.v.: Þórhallur Einarsson, Hermann Guðmunds son, Ríkharður Jónsson, Valtýr Guðmundsson. Magnús Agústsson, Gísli Benja- mínsson. Fremri röð f.v.: Sæmundur Gislason, Karl Guðmundsson, Adam Jóhanhsson, Haukur Antonsson, Kristján Ólafsson. Sparta, og varð jafntefli 2:2. Þarna skoraði Albert seinna markið og það var svo glæsilegt að hann átti alveg fólkið. Þá var gaman að vera Islendingur. Þegar við komum heim úr þess- ari ferð var okkur boðið f kaffi- samsæti og þar stóð formaður knattspyrnuráðsins upp og af- henti hverjum leikmanni medaliu og sagði að þetta mundi gilda á alla landsleiki hér eftir. Hins veg- ar hef ég ekki revnt þ að!!! betri leikaðferðir. Mér finnst Tony Knapp vera búinn að skipu- leggja landsliðið geysilega vel. Þó held ég að einstaklingarnir sem slfkir séu hvorki sterkari né leiknari þó að við eigum frábæra stráka í dag og meira að segja atvinnumenn. ANTON: Þegar ég lit til baka og minnist gömlu félaganna, þá eru þeir Björgvin Schram og Þcr- steinn Einarsson í K.R., Hermann Hermannsson, Albert Guðmunds- gamla dag var manni hreinlega fleygt inn i markið með tuðrunni og öllu saman, ef maður var ekki nógu snöggur að ná boltanum. ANTON: Já, það var meira fjör í gamla daga. Þá var heldur ekki verið að dekstra neinn. Ef menn mættu of seint á æfingu, fengu þeir ekki að fara inn. Aðstæðurn- ar voru líka að ýmsu leyti ólfkar. Þá var alltaf spilað á mölinni og þá myndast alltaf harðari knatt- spyrna en á grasinu. ADAM: Skrokkurinn fór oft illa á mölinni. Maður kom oft rispað- ur og marinn heim eftir leiki, en það var eins og húðin hertist ein- hvern veginn við þetta.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.