Morgunblaðið - 17.10.1976, Síða 24

Morgunblaðið - 17.10.1976, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1976 Valdameiri en Mao? EFTIRMAÐUR Maos, Hua Kuo-feng forsætisráðherra gegnir nú fleiri störfum en Mao gerði á löngum valdaferli. Hann er annað hvort valdamesti maður Kfna sfðan alþýðulýðveldið var stofnað eða bráða- birgðaleiðtogi sem fer með völdin þar til valdaba- ráttunni lýkur. Öfugt við Mao og Chou En-lai gegnir Hua nú valdamestu embættunum bæði í ríkisstjórn- inni og kommúnistaflokknum þar sem hann er bæði forsætis- ráðherra og flokksformaður. Auk þess er gert ráð fyrir að stjórn öryggisráðuneytisins sé i hans höndum. Þar sem hann er fyrrverandi öryggismálaráð- herra. Hua var skipaður forsætis- ráðherra f apríl í stað Chou En-lai. Nú hefur hann verið skipaður formaður miðstjórnar kommúnistaflokksins sem hefur 30 milljónir manna innan vébanda sinna. Hann er einnig formaður hermálanefndar- innar sem stjórnar eftirliti flokksins með hernum. ekki veitast auðvelt að stjórna Kfna, jafnvel þótt þeir njóti stuðnings hersins. Mafían Klofningur i flokksfor- ystunni getur verið ástæðan til þess að skipun Hua í formanns- stöðuna var ekki staðfest strax. Fyrst í stað var Hua hylltur á veggspjöldum í Peking, en Yao Wen-yuan Hann varð varaformaður kommúnistaflokksins fyrir þremur árum og hefur oft verið talinn líklegur arftaki Maos. 0 Chang Chun-chiao var talinn líklegur forsætisráðherra, en hlutverk hans i æðstu stjórn flokksins hefur verið dular- fyllra. Hann hefur almennt verið talinn gáfaðasti og hæfi- Lítt þekktur Hua var lítt áberandi þar til fyrir um það bil einu ári og vaf hans í stöðu forsætisráðherra var málamiðlunarlausn vegna hinna hörðu deilna Teng Hsiao- ping, sem gert var ráð fyrir að tæki við af Mao en nú er fallinn f ónáð, og Chiang Ching ekkju Maos sem nú hefur verið hand- tekin ásamt að minnsta kosti .þremur stuðningsmönnum úr hinum róttæka armi kommunistaflokksins. Eftirmaður Maos er litt kunnur utan Kína. Hann er tæplega sextugur að aldri og fulltrúi næstelztu kynslóðar kínverskra leiðtoga sem voru í vöggu þegar byltingin hófst. Hann studdi menningarbylt- inguna öfugt við marga aðra starfsmenn flokksins og því mætti ætla að hann njóti almenns stuðnings. Hins vegar hefur enn ekki komið fram hvaða hæfileika hann hefur til að bera f þau embætti sem honum hafa verið falin. Sennilega er það engin tilviljun að hann gat sér fyrst orð sem flokksforingi f heima- héraði Maos, Hunan, þótt það segi ekki alla söguna. Hjálp hersins Herinn hefur vafalaust hjálpað Hua Kuo-feng til valda. Hann er skipaður þremur milljónum manna sem eru yfir- leitt hófsamir i skoðunum. Niu af 11 yfirmönnum herstjórnar- umdæma hafa sýnt að þeir eru andvígir róttækum, sem gætu ekki fengið stuðning frá hernum ef þeir reyndu að gera byltingu. Yfirmaður herstjórnar- svæðisins í Mansjúrfu, Li The- sheng, hefur samúð með rót- tækum og sömu sögu er að segja um yfirmenn hersins á Shanghai-svæðinu. Yfirmaður stjórnmáladeildar hersins, Chang Chunchiao, er einn hinna handteknu. Það vekur nokkra furðu að hann skuli hafa reynt að ná völdunum svo stuttu eftir lát Maos því hann veit manna bezt að hófsamar menn hafa tögl og hagldir í heraflanum. Chang hafði að vísu róttæka stuðningsmenn f hernum, en vissi mæta vel að þeir höfðu engin úrslitaáhrif. Ef fréttirnar um hand- tökurnar reynast réttar hefur fulltrúum í stjórnmálaráðinu fækkað úr 22 f 12 þar sm tíu menn hafa látizt eða fallið í ónáð. Þrír af þessum tólf mönnum eru smábændur og emn þeirra. er 76 ára gamall sjúkur hermaður. Þá eru aðeins eftir sex eða sjö reyndir menn í stjórnmálaráðinu og þeim mun Anna Hua Kuo-feng tekur á móti forsætisráðherra Papua-Nýju-Guineu skömmu eftir að fréttir bárust um að hann hefði verið skipaður eftirmaður Maos. Li Hsien-nien, sem talað er um að verði forsætisráðherra er til vinstri. síðan voru þau notuð til að hvetja til stuðnings við herinn. Jafnframt varaði Dagblað alþýðunnar eindregið við klofningsstarfsemi og leyni- makki. En ef í hart fer nýtur Hua stuðnings hersins. Áhrif hinna handteknu — eða „Shanghai-mafíunnar eins og Chiang Ching og stuðningsmenn hennar hafa verið kölluð — hafa byggzt á yfirráðum þeirra yfir fjöl- miðlum, menningarlffi og æðri menntun á undanförnum árum. Fyrir þeirra tilstalli hefur byltingarrómantík verið alls- ráðandi f kínversku menningar- lífi og hefðbundin kínversk leakrit og erlend leikrit hafa verið bönnuð. Námstfmi við háskóla hefur verið styttur og kennslan endurskipulögð á grundvelli þeirrar kenningar Maos að „þeim mun meira sem menn læra þeim mun heimskari verði þeir.“ Nú hafa eftírtaldir leiðtogar fallið f ónáð. 0 Yao Wen-yuan hafi á hendi yfirumsjón flokksins með blöðum. útvarpi og sjónvarpi og stóð fyrir ýmsum herferðum gegn pólitískum and- stæðingum. 0 Wang Hung-wen komst fyrst til áhrifa- á dögum menningar- byltingarinnar í Shanghai. leikamesti leiðtogi róttækra. Hins vegar telja margir að hann hafi reynt að f jarlægja sig frá vinstra arminum og taka óháða afstöðu gagnvart hinum strfðandi ölfum flokksins. Hann hefur f raun gegnt hlut- verki aðalritara flokksins á undanförnum árum. en sú staða var lögð niður f menningarbyltingunni. Óvinsæl 0 Chiang Ching, sem stjórnaði samsærinu um að steypa Teng Hsiao-ping af stóli fyrr á þessu ári, eignaðist marga fjandmenn Chang Chuchiao Lin Piao Wang Hung-wen Chiang Ching í menningarbyltingunni þegar hún fordæmdi flokksleiðtoga og eiginkonur þeirra. Hún fékk einnig orð fyrir að vera hroka- full og hefnigjörn. Fyrir hennar tilstilli fengu hinir rót- tæku stöðugt vaxandi áhif á heimili Maos eftir þvf sem heilsu hans hrakaði. Hua er í raun og veru þriðji maðurinn sem valinn hefur verið eftirmaður Maos. Hinir voru Liu Shao-chi fyrrverandi forseti og Lin Piao marskálkur sem jafnframt var landvarna- ráðherra. Liu var steypt af stóli í menningarbyltingunni 1966—68, þar sem Mao taldi skoðanar hans hægrisinnaðar. Hann vildi auka framleiðsluna með því að auka áhuga verka- manna á lffsgæðum og leyfa kommúnufólki að eiga smá- jarðir. Auk þess óttaðist Mao að Liu reyndi að ná flokkskerfinú á sitt vald og drottna yfir þvf eins og einhvers konar „Búdda". Einangraðir Liu var fyrst lækkaður i tign haustið 1966, margir stuðnings- menn hans voru handteknir skömmu síðar, en hann hélt stöðu sinni í stjórnmálaráðinu. Hann var sakaður um að þræða braut kapitalisma og þáverandi aðalritari flokksins Teng Hsiao- ping, var borinn svipuðum sökum. Hvorugur þeirra sætti misþyrmingum og þeir fengu að lifa einangruðu lffi f kommúnu skammt frá Peking. Mao gerði sér grein fyrir þvf 1967 að, menningarbyltingin væri farin út f öfgar og fól hernum að koma á lögum og reglu. Þar með jukust áhrif Lin Piao marskálks sem var land- varnaráðherra. Chou En-lai for- sætisráðherra og aðrir embættismenn þorðu ekki að ógna valdi hans þar sem þeir óttuðust algert upplausnar- ástand. Lin Piao lét gefa út „litla rauða kverið" með hugsunum Maos, stóð fyrir dýrkun á persónu hans og var viður- kenndur „nánasti vopnabróðir og eftirmaður" Maos á niunda flokksþinginu f aprfl 1969. Hann svipti 300 herforingja störfum, skipaði eigin stuðningsmenn í þeirra stað og reyndi síðan að fá samþykkta nýja stjórnarskrá sem kvæði á um ð Mao yrði þjóðhöfðingi og hann arftai hans. Byltingartilraun Að lokum reyndi Lin Piao að taka völdin með stuðningi hersins, en dóttir hans, Tou Tou, fór á fund Chou En-lais og kom upp um samsærið 12. september 1971. Lin lét sleppa Liu Shao-chi úr stofufangelsi til áð dreifa athyglinni, en Chou gaf skipun um að engar flug- vélar fengju að hefja sig til flugs. Þó tókst Lin að komast undan í flugvél ásamt konu sinni og helztu stuðningsmönnum sfnum úr hernum. Annaðhvort hefur flugvélin orðið benzín- laús, farizt eða verið skotin niður yfir Mongólíu. Við tók mikil áróðursherferð gegn Lin og henni lauk ekki fyrr en skýrt var frá samsæri hans tíu mánuðum sfðar. Hua Kuo-feng núverandi for- sætisráðherra, stóð fyrir því að svæla stuðningsmenn Lins marskálks úr heraflanum. Nú hefur hann verið valinn arftaki Maos og staðið fyrir herferð gegn ekkjunni sem reyndi að hrifsa völdin eins og Lin. Eftir á að koma í ljós hvort Hua tekst að sameina kínverska forystu- menn og kfnversku þjóðina undir merki sitt.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.