Morgunblaðið - 17.10.1976, Síða 32

Morgunblaðið - 17.10.1976, Síða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. OKT0BER 1976 Frá # Handknattleikssambandi Islands Skrifstofa sambandsins í íþróttamiðstöðinni í Laugardal er opin: Þriðjudaga kl. 1 9.00 — 21 .00. Fimmtudaga kl. 18.00 — 20.00. Laugardaga kl. 1 3.00 — 1 5.00. Sími skrifstofunnar er 85422. Geymið auglýsinguna. H. S.í. Geymsluhúsnæði óskast Óskum að taka á leigu sem fyrst allt að 100 fermetra húsnæði, sem hentar til geymslu á skjölum Æskilegt er að húsnæðið sé í námunda við Borgartún. Vegagerð ríkisins Borgartúni 1, Reykjavík Sími 210OO Með góðri vélvæðingu og vel æfðum starfs- mönnum, tekst okkur að framkvæma viðgerðir rafvéla á mjög skömmum tima. Veitum fullkomna þjónustu við hverskonar raf- lagnavinnu bæði til sjós og lands. Reynið viðskiptin. frú |f | H r Sími16458 Norðurstíg 3 a Ætt Þórðar Pálssonar á Kjarna við Akureyri. Vegna söfnunar ganga um afkomendur Þórðar Pálssonar og konu hans Bjargar Halldórsdóttur, væru kærkomnar upplýsingar þeirra er telja ættir sínar til þeirra og þá helst sem ítarlegast frá skýrt. Hjá/mar Vilhjálmsson, Drápuhlíð 7, Reykjavík, S. 19581. Horfur í fjárfestingarmálum þjóðarbúsins og vandamál fjármögnunar Mánudaginn 18. október heldur prófessor Barry P. Bosworth fyrirlestur á vegum Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Hann mun fjalla um efnið: Horfur í fjárfestingarmálum þjóðarbúsins og vandamál fjármögnunar. Dr. Bosworth hefur kennt við Harvardháskóla og Berkleyháskóla. Hann starfar fyrir Council of Economic Advisors, efnahagsráðgjafa Banda- ríkjaforseta, og er Senior Fellow hjá Brookings- stofnuninni í Washington. Fyrirlesturinn hefst kl. 20.30 mánudag 18. október í Bláa salnum að Hótel Sögu. Ollum er heimill aðgangur. Félag viðskiptafræðinga og hagfræðinga. BANDARIKIN: STJÓRNMÁLAFRÉTTARITURUM í Bandaríkjunum ber nú almennt saman um að Jimmy Carter hafi aftur náð forystunni f kosningabaráttunni í Banda- ríkjunum. Ford forseti hefur átt erfiða daga undan- farið og stendur frammi fyrir því, að sókn hans, sem í septemberlok hafði minnkað bilið milli hans og Carters niður í 8% (Carter með 50% og Ford með 42%), virðist hafa farið út um þúfur. Ástæðurnar fyrir þessum snöggu umskiptum eru einkum fjórar Fyrsta áfallið sem forsetinn varð fyrir var, er landbúnaðarráðherra hans og náinn persónulegur vinur, Earl Butz, varð að segja af sér eftir að tímaritið Rolling frávik frá niðurstöðum slika kannana. Þetta kemur einnig fram i niðurstöðum skoðanakönnunar New York Times í öllum fylkjunum, sem sýnir, að Carter hefur forustu i 26 með 294 kjörmenn svo og könnun Field Opinionstofnunar- Carter leikur á als oddi. Ford og Carter skiptast á spaugsyrðum eftir seinna sjónvarpseinvigið CARTER HEFUR AFTUR FENGIÐ BYR í SEGL/N Stone birti niðrandi ummæli eftir hon- um um blökkumenn Forsetanum urðu þau mistök á, að hann krafðist þess ekki strax, er ummælin urðu kunn, að ráðherrann segði af sér, heldur seldi hann honum sjálfdæmi Ummæli for- setans um að Sovétríkin réðu ekki yfir A-Evrópulöndunum urðu honum einn- ig dýrkeypt, einkum vegna þess að honum fórst alveg einstaklega óhönd- uglega við að reyna að skýra þau og varð að lokum að biðjast afsökunar á þeim og viðurkenna að sér hefðu orðið á mistök Þriðja áfallið var að tölur frá atvinnumálaráðuneytmu sýndu að at vinnuleysi i september hafði aðeins minnkað um 0.1% og i fjórða lagi sýndu tölur að heildsöluvisitalan hafði hækkað um 0 9% i september. sem er um 1 1% hækkun á ársgrundvelli Þungur baggi Þetta var eðlilega þungur baggi fyrir forsetann og andstæðingar hans voru í sjöunda himni Talsmenn Jummy Car- ters héldu því fram dag eftir dag að sagan myndi leiða í Ijós, að vikan 3—9 október hefði orðið til þess að valda straumhvörfum i kosningabarátt- unni og tryggja Carter kosningu Það er ekkert óeðlilegt þótt menn Carters séu ánægðir, en ekki eru allir sammála um að hann sé búinn að vinna kosn- inguna Tom Wicker, einn af aðstoðar- ritstjórum New York Times, sagði ný- lega i grein ? blaði sínu, að úrslit kosninganna myndu ákvarðast siðustu 4 vikur kosningabaráttunnar Siðustu Gallup-skoðanakannanir, sem sýna C rter með 50% fylgi, Ford með 42% og töluverðan fjölda kjósenda óákveð- inn, renna stoðum undir þetta, þegar haft er i huga, að gefa verður 4% innar, sem sýnir Carter með forystu i 23 fylkjum með 223 kjörmenn Skv. þeirri könnun eru kjósendur i 1 3 fylkj- um, þ.á m New York, Kaliforníu, llli- nois og Ohio með alls 224 kjörmenn, enn óákveðnir Þessar tölur sýna svo ekki verður um villst, að fylgi Carters frá þvi á dögun- um rétt eftir flokksþing demókrata var haldið, hefur minnkað yerulega Þá sýndi skoðanakönnun Field að Carter hefði forystu i 34 fylkjum með 418 kjörmenn. Gáfu ekki rétta mynd Skoðanaj<annanir frá því í júlí og ágúst gáfu hins vegar ekki rétta mynd af ástandinu, þar sem Carter hafði á þeim tima engan andstæðing, repú- blíkanar voru ekki búnir að velja milli Fords og Reagans og Ford var frekar frambjóðandi en forseti Þessar skoðanakannanir urðu hins vegar til þess, að Carter varð of örugg- ur með sjálfan sig Þeir, sem unnu náið með honum, voru farnir að hafa áhyggjur af því, að hann liti aðeins á kosningabaráttuna sem leiðinda forms- atriði á leiðinni til Hvíta hússins. Þegar halla tók undan fæti og skoðanakann- anir sýndu að hann var ekki búinn að tryggja sér kosningu, sá hann að sér og gerði sér grein fyrir því, að hann þyrfti á hjálp að halda, mikilli hjálp. Það rann upp fyrir honum, að hann var að berjast gegn forseta Bandaríkjanna og að það eru aðeins örfá dæmi þess að forseti hafi tapað kosningum Hann sneri sneri sér til flokks sins og bað um aðstoð, sem var að sjálfsögðu veitt. Edward Kennedy fylgdi honum um allt Massachusettsfylki, verkalýðsleiðtogar eins og George Meany héldu stuðn- ingsræður honum til handa, áhrifa- mestu leiðtogar demókrata í hverju fylki hófu virka baráttu fyTir hann Þegar hann undirbjó sigur fyrir sjón- varpseinvigi nr 2 átti hann margra klukkustunda fund með James Ford forseti þreyttur er hann svarar spurningum fréttamanna í síðustu viku.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.