Morgunblaðið - 17.10.1976, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1976
35
— Reykjavíkur-
bréf
Framhald af bls. 19
framkomu Nixons og nánustu ráð-
gjafa hans, en á sama tíma er
ástæða til að geta þess, að Valdi-
mar Björnsson hefur um langan
tíma verið einn vammlausasti og
vinsælasti leiðtogi flokks síns
vestur í Bandaríkjunum og fáir
repúblíkanar hafa notið jafn
mikils trausts í heimabyggð sinni
og hann. Valdimar hefur unnið
aliar þær kosningar, sem hann
hefur tekið þátt í um fjármálaráð-
herraembættið í Minnesota, og
með þeim glæsibrag, að einsdæmi
er. Hann hefur verið íslenzkum
uppruna sínum til sóma, og má
þá jafnframt minnast þess, að
hann er að mörgu leyti íslenzkari
en margur Islendingurinn, sem
heima hefur setið. Valdimar talar
fallegt mál, ræktar tungutak sitt
og þá ekki sízt þjóðernislegan
áhuga, sem m.a. hefur birzt í því,
að fáir eða engir Islendingar eru
betur að sér i ættfræði en hann.
Það er bókstaflega unun að hlusta
á Valdimar, þegar hann rekur
saman ættír manna á Islandi, svo
— Lýðræðis-
sinnar
Framhald af bls. 19
kosningarnar niður sem slíkar,
en kjósa I staðinn umsjónar-
aðila fullveldisdagskrárinnar i
stúdentakosningunum sem
fram fara á vorin, eða að fela
Stúdentaráði að annast
hátíðahöldin 1. desember. En
að lokum vil ég hvetja alla
lýðræðissinnaða stúdenta til
þess að taka þátt i kosningun-
um á miðvikudaginn og fylkja
sér um framboð Vöku.“
— Verð alla
vega....
Framhald af bls. 2
dómari og aðrir yfirmenn
rannsóknarlögreglunnar höfðu
mælt með.
Ölafur Jóhannesson sagði: „Ég
veitti Braga Jósepssyni stöðuna
vegna menntunar hans, — auk
þess sem hann hefur sýnt mikinn
áhuga á þessum málum.“
Morgunblaðið fékk þær upplýs-
ingar hjá sakadómi í gær, að
Bragi Jósepsson væri eini
lögreglumaðurinn við sakadóm,
sem gengi með skipunarbréf upp
á vasann.
— Harka . . .
Framhald af bls. 1.
verið harðskeyttari, en hins vegar
hafi Walter Mondale, frambjóð-
andi demókrata, verið málefna-
legri.
Robert Dole hélt því fram, að
tala fallinna Bandarikjamanna í
styrjöldum, sem háðar hafa verið
á þessari öld undir stjórn demó-
krata, væri 1.6 milljón, en Walter
Mondale svaraði því til að með þvi
að halda þvi fram, að barátta gegn
nasistum og þátttaka í styrjöld-
inni hefði verið flokksmál demó-
krata, efldi Dole aðeins orðstír
sinn sem vígamanns.
— Boðun
slökkviliðs....
Framhald af bls. 2
eins og i Siglufirði, en af því
hefur ekki orðið.
A Neskaupstað er boðun
slökkviliðsmanna með þeim hætti
að loftskeytamenn á loftskeyta-
stöðinni kalla á brunalið með því
að ýta á hnapp og fara þá af stað
tveir brunaboðar í bænum. —
Þeir gera hávaða og læti og vekja
slökkviliðsmenn, sem síðan koma
á slökkvistöðina, sagði Guðni Ein-
arsson á Norðfirði í gær.
Leiðrétting
FRÁ þvi var greint I Morgunblað-
inu í gær að allar götur I Hafnar-
firði yrðu malbikaðar innan
fjögurra ára. Hér er ekki alveg
rétt með farið þvi að nokkrar
minni götur eða heimtraðir munu
verða útundan.
fróður, sem hann er um íslenzkar
erfðir og mannlíf allt hér á landi.
En þó að rætur hans séu hér á
Islandi, hefur hann borið laufið I
Bandarikjunum, og að sjálfsögðu
er hann fyrst og síðast góður full-
trúi sinnar bandarisku þjóðar og
mikilhæfur forystumaður Minne-
sota, sem ól hann og fóstraði.
Repúblíkanaflokkurinn þar sýndi
honum þann sóma að velja hann
fyrir um tveimur áratugum i
framboð til öldungadeildar
Bandaríkjaþings eins og fyrr get-
ur og áttust þeir þá við
Humphrey, síðar varaforseti
Bandaríkjanna og einn af virt-
ustu stjórnmálamönnum þar í
landi, og Valdimar Björnsson.
Humphrey hefur aldrei legið á
þvi, hve mikils hann metur og
virðir Valdimar Björnsson, enda
var viðureign þeirra drengileg og
án þeirra leiðinda, sem oft fylgja
stjórnmálaátökum á Islandi.
Valdimar Björnsson hefur einn-
ig alltaf virt Humphrey. Þeir voru
verðugir andstæðingar. Og Valdi-
mar átti eftir að vinna margar
kosningar sem fjármálaráðherra
Minnesota, þó að hann tapaði
kapphlaupinu um Öldungadeild-
ina fyrir Humphrey, enda var þá
— Minna
Framhald af bls. 36
af rjúpu á Holtavörðuheiði og var
I fyrra.
I gærmorgun héldu 14 skyttur
til rjúpnaveiða frá Fornahvammi.
Veður var mjög gott, logn og 5
stiga frost. Kvörtuðu rjúpnaveiði-
menn yfir of mikilli birtu. Haf-
steinn sagði að rjúpan væri ekki
búin að skipta um lit svo nokkru
næmi og því aðlagaðist hún um-
hverfinu vel.
— Kína Framhald af bls. 1.
unni fyrir áratug, nema hvað nú
er ráðist á vinstri róttæka.
Slagorð hafa verið sett upp um
alla borgina ásamt myndum, sem
sýna ekkju Maos sem galdranorn.
Sumar þeirra eru innan um stórar
myndir af Mao, en lát hans 9.
september var kveikjan að um-
brotunum, sem nú eiga sér stað.
Chang var valdamestur fjór-
menninganna en hann var borgar-
stjóri Shanghai. Talið er að fall
hans eigi eftir að leiða til mikilla
hreinsana meðal embættismanna
borgarinnar. Talið er að mið-
stjórn kommúnistaflokksins hafi
haldið fund fyrir nokkrum dögum
fremur kosið eftir stjórnmála-
ástandinu í öllum Bandarikjun-
um en persónulegum vinsældum í
Minnesota.
Þegar islenzkir stúdentar, sem
voru á ferð um Minnesota I miðri
kosningabaráttunni, hittu Hubert
Humphrey, talaði hann við þá af
miklum hlýhug eins og fyrr getur,
og bar lof á andstæðing sinn;
kvaðst vita að hann væri íslenzkr-
ar ættar og íslendingar gætu
verið stoltir af svo merkum og
ágætum fulltrúa þjóðernis síns.
Það var einnig afar fróðlegt að
fara með Valdimar Björnssyni á
fundi í kjördæmi hans. Hann
talaði jöfnum höndum ensku,
norsku eða sænsku, auk íslenzk-
unnar. — og fór það eftir þvi,
hverjir áheyrendurnir voru, enda
eru fjölmargir norrænir innflytj-
endur í Minnesota, eins og kunn-
ugt er. Valdimar Björnsson er af-
burðaræðumaður, svo að þeir,
sem hafa hlustað á hann á fund-
um i kjördæmi sinu, gleyma því
ekki, svo mikil áhrif sem mál-
flutningur hans hafði. Hann
kunni að tala frá hjarta til hjarta
og á þeirri tungu, sem áheyrend-
ur bezt skildu. Hann er mála-
fylgjumaður mikill, en drengileg-
og að þar hafi verið undirbúin
víðtæk mannaskipti í stjórnsýslu
þar sem hófsamir verða settir í
stað róttækra.
— Mörg
lýsingarorð
Framhald af bls. 2
Vestmannaeyja og það féllu
mörg lýsingarorð á rússnesku I
Vestmannaeyjum, sagði Þór-
unn.
Á föstudaginn halda Þórunn
og tengdaforeldrar hennar til
Skotlands þar sem þau munu
fylgjast með Ashkenasy á
tveimur síðari hljómleikunum
þar. Siðan koma þau heim aft-
ur á mánudaginn, en 29. þ.m.
fara þau á ný til Englands og
síðan til Italíu og jafnvel
Frakklands þar sem Ashken-
asy verður með hljómleika.
— EBE
Framhald af bls. 1.
land, væri þorskur af græn-
lenzkum ættum. Með því að
friða algerlega uppeldisstöðvar
ur i málflutningi og allir vissu, að
þar sem hann fór, var fulltrúi
hins bezta í bandarískum stjórn-
málum. Einhverju sinni mætti
ekki annar ræðúmaður, sem átti
að taka þátt í fundi með Valdi-
mari, en timi var afmarkaður og
þótti illa farið vegna skemmti-
atriða, ef eyða yrði eftir ræðu-
flutning, svo að Valdimar gerði
sér litið fyrir og talaði fyrir þá
báða, ýmist á ensku eða Norður-
landamáli, og var ræða hans með
þeim hætti, að fátítt er, svo
mannleg afstaða sem einkenndi
hana. Þar sátu prósentur ekki í
fyrirrúmi. Aheyrendur skemmtu
sér hið bezta, enda var ræðan
krydduð í samræmi við stund og
stað. Af fagnaðarlátunum að
dæma var ekki vafi á því, að hann
átti vísan stuðning flestra þeirra,
sem þarna voru saman komnir.
Svo miklar eru vinsældir Valdi-
mars Björnssonar og ættmenna
hans í Minnesota, að þegar hann
hafði ákveðið að fara í framboð til
öldungadeildarinnar fyrir Repú-
blikanaflokkinn, skaut allt í einu
upp öðrum Val Björnsson, gjör-
samlega óþekktum manni, sem
bauð sig fram og ætlaði að fljóta
inn í embættið á nafninu einu (!).
við Grænland væri hugsanlega
hægt að auka véiðar við Island
án þess að það skaðaði stofninn.
Þá mætti einnig semja um
umframþorsk framtíðarinnar,
er stofninn hefði náð sér að
nýju. Með þessu væri unnt að
ná gagnkvæmni í samningum.
Það var greinilegt að talsmaður
EBE vildi helzt ekki ræða um
fiskveiðilögsögu og hafsvæði
eins og t.d. Islendingar hafa
litið á það. Hann vill líta á afl-
ann og hve mikið af fiski sé í
sjónum. Enda sagði annar tals-
maður EBE Við Mbl., að ein
mesta meinloka Breta innan
bandalagsins væri sú, að líta á
málið þannig, því krefðust þeir
50 milna einkalögsögu.
Innan EBE skiptast aðildar-
rikin algerlega í tvö horn,
annars vegar eru Bretar og
írar, en hins vegar þjóðirnar,
sem í raun eiga ákaflega litið
land að sjó. Bretar eru þvi þeir
aðilar, sem koma með fiskinn
inn í EBE ef svo má segja, enda
verða 2/3 hlutar fiskveiðilög-
sögunnar brezk hafsvæði. Bret-
ar krefjast 50 mílna einkalög-
sögu, en Bandalagið vill ekki
veita þeim nema 12 mílur og á
Að sjálfsögðu var upplýst hvers
kyns var, og vesalings frambjóð-
andinn hafði ekki erindi sem erf-
iði.
Margt fleira mætti rif ja upp um
Valdimar Björnsson og hið merka
ævistarf hans vestur í Bandaríkj-
unum. Þeir sem notið hafa gest-
risni og alúðar þeirra hjóna, hans
og Guðrúnar Jónsdóttur, konu
hans, gleyma þvi aldrei. Ungir
stúdentar, sem þar voru á ferð
1954, gleyma því t.a.m. ekki, þeg-
ar fjármálaráðherrann sjálfur tók
á móti þeim á járnbrautarstöðinni
í Minn^apolis klukkan hálf sjö að
morgni. Umhyggja þeirra hjóna
fyrir stúdentunum var söm og
jöfn allan timann sem þeir stóðu
við og sömu sögu hafa allir Islend-
ingar að segja, sem hitt hafa þau
hjón, Valdimar Björnsson og Guð-
rúnu konu hans, á heimaslóðum
þeirra.
I tilefni af merku afmæli Valdi-
mars Björnssonar sendir Morgun-
blaðið honum og fjölskyldu hans
alúðarkveðjur þó að þær komi
með seinni skipunum. Hann er
einn þeirra íslendinga, sem hafa
brugðið stórum svip yfir dálitið
hverfi.
þó hefð annarra fiskveiðiþjóða
til veiða að njóta sín innan
þeirrar einkalögsögu.
Stefna framkvæmdanefndar
EBE er að hefja samninga-
viðræður við lönd utan banda-
lagsins sem allra fyrst. Banda-
lagið viðurkennir þá staðreynd,
að ekki verður hægt að ákveða
aflamagn fram i tímann, þess
vegna vill það gera eins konar
rammasamninga, sem síðan
yrðu notaðir til grundvallar I
samningum á hverju ári um
aflamagn, þar sem tekið yrði
tillit til ástands fiskstofnanna.
Embættismaður EBE, sem Mbl.
ræddi við í gær, sagði aðspurð-
ur að íslendingar myndu mæta
sanngirni, er setzt yrði að
samningaborðinu svo lengi sem
þeir sýndu bandalaginu sann-
girni. „Við viljum umfram allt
halda góðu sambandi við Is-
lendinga, hagsmunir okkar fara
saman á ótalmörgum sviðum,
því væri mér ekkert óljúfara en
að minnast á bókun 6 i komandi
samningaviðræðum. Til slíkra
samningaviðræðna má ekki
koma með óraunhæft þjóðar-
stolt, það verður að sýna
skilning og sanngirni."
Sígildar sögur eftir EDM® m
JVIVSNAR VEKJA
BRGNÓ AFVÆR-
UM BLUNDI;OG
HANN þýrUR UPP
STlGAfW TIL
OSKUBUSKU-
---r