Morgunblaðið - 17.10.1976, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 17.10.1976, Qupperneq 36
AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 B>»V0unbIflí>ií> SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 1976 Reykjavík: Fjölgun íbúanna er hæg, en meðal- aldur fer hækkandi t NVtJTKOMINNI Arbók Reykja- vfkur fyrir 1976, sem Hagfræði- deild borgarinnar vinnur, skipa upplýsingar um mannfjölda mik- ið rúm, enda eru þær helzti grundvöllur viðmiðunar, þegar mat er lagt á stöðu eða kjör borgarbúa, hvort heldur er innbyrðis eða f hlutfalli við þá, sem búa annars staðar, eins og segir f bókinni. Sérstaka athygii vekur annars vegar hæg fjölgun og hækkandi meðalaldur Reykvíkinga og hins vegar fremur ör fjölgun og lágur meðalaldur íbúa flestra grann- sveitarféiaga Reykjavíkur. Þessi einkenni má að talsverðu leyti rekja til flutningsáhrifa og þeirra gætir einnig í samanburði á búsetu í gömlum og nýjum hverf- um segir þar. Á árinu 1975 er íbúatalan á landinu alls 219.033, þar af búa í Reykjavík 84.856. Hafði fjölgað um 84 í Reykjavík frá árinu áður miðað við 2405 manna fjölgun á landinu öllu. í Reykjavík eru borgarar 67 ára og eldri samtals 8.093, en á öllu landinu búa samtals 17.515 eldri en 67 ára. Á einu ári hafði fólki á þessum aldri fjölgað um 446 á landinu, og þar af komu 252 á Reykjavák eða meira en helming- ur. íbúum Reykjavíkur fjölgaði því alls um 84, en öldruðum fjölgaði um 252 á sama tíma. Hefur þv yngri Reykvíkingum fækkað milli áranna 1974 og 1975. Það kemur einnig fram í Árbók- inni, að hlutur Reykjavikur af íbúafjölda landsins hefur farið vaxandi fram um 1960, þegar Reykjavík var komin með 40,84% af öllu landinu, og stóð siðan nokkuð í stað næstu árin. Hlutur Reykjavíkur hefur síðan 1964 far- ið stöðugt minnkandi og var á árinu 1975 orðinn 38.74%. Hass fannst í bíl LÖGREGLUMENN úr um- ferðardeild Reykjavfkurlög- reglunnar, Eiður Eiðsson og Eirfkur Beck, stöðvuðu f fyrri- nótt bifreið f Öskjuhlfð. Þótti ástæða til að athuga öku- manninn nánar. Var hann færður á lögreglustöðina vegna gruns um neyzlu ffknilyfja. 1 bfl mannsins, sem er 25 ára, fundust fíkniefni, 2—3 grömm af hassi og eitthvað magn af amfetamfr.dufti. Kvaðst maður- inn hafa keypt fíkniefnin fyrir utan veitingastaðinn Tjarnar- búð f Reykjavfk. Að lokinni yfirheyrslu í fyrri- nótt var maðurinn færður í fangageymslur lögreglunnar og í gærmorgun var maðurinn svo tekinn til yfirheyrslu hjá fíkni- efnadeildinni. Um helgar er lögreglan með strangt eftirlit i höfuðborginni. í fyn nótt voru t.d. 14 lögreglubílar við eftirlit og voru tugir bíla stöðvaðar og athugað hvort ökumenn hefðu neytt áfengis. Fjórir ökumenn voru teknir vegna grvns um ölvun við akstur og einn vegna gruns um fíkniefnaneyzlu, en það er frekar sjaldgæft að menn séu teknir af þeim ástæð- um i umferðinni. Eiríkur Beck með hass- molann, sem fannst við leit f bflnum. Ljósmynd Friðþjófur Aðsúgur gerður að lög- reglunni í miðbænum Fylgst med ölvun unglinga LÖGREGLAN f Keflavfk og barnaverndarnefnd staðarins og nágrannabæja gengust á föstu- dagskvöld fyrir sérstöku eftirliti með ölvun unglinga við félags- heimilið Stapa f Njarðvfkum og f nágrenni staðarins. Að sögn Hauks Guðmundssonar rannsóknarlögreglumanns þurfti lögreglan að hafa afskipti af 10 unglingum vegna ölvunar. Voru þeir fluttir til síns heima. Sagði Haukur að þetta væri f 4. skipti, sem lögreglan og barnaverndar- nefndir gengjust fyrir slíkum eftirlitsferðum. Sagði Haukur að ástandið hefði stöðugt farið batn- andi og hefði verið með albezta móti í fyrrakvöld, hverju sem það væri að þakka. 20 unglingar fluttir heim til sín vegna ölvunar „ÞÁÐ VAR færra fólk f miðbæn- um en um sfðustu helgar, 3—400 manns þegar mest var. Þetta voru eldra unglingar en áður, ölvun var meira áberandi og meira um slagsmál. Við tókum sérstaklega eftir þvf að slagsmálamenn, jafn- vel austan úr sveitum, eru farnir að safnast þarna saman og ég ótt- ast að þarna geti orðið hálfgerðar götuóeirðir um helgar, ef ástand- ið breytist ekki,“ sagði Erlendur Sveinsson, varðstjóri á mið- borgarstöð lögreglunnar f samtali við Morgunblaðið f gær. Landsmönnum hefur orðið tíð- rætt um ástandið á svo nefndu „Hallærisplani“ í miðborg Reykjavíkur undanfarnar helgar. Minna af rjúpu Erlendur sagði að með opnun Tónabæjar hefðu yngstu aldurs- flokkarnir horfið úr miðbænum, en vandamálin væru þau sömu og áður og jafnvel verri. „Það var mikið um ólæti og slagsmál i fyrrinótt og þegar lögreglan ætl- aði að skerast í leikinn var gerður aðsúgur að henni og f 'nokkrum tilfellum voru höfuðföt tekin af lögreglumönnum og þeim grýtt langar leiðir," sagði Erlendur. Að sögn Erlends voru 15 lögreglu- menn á vakt í miðbænum f fyrri- nótt og fyrrakvöld og varð að kalla á aðstoð um tíma vegna óláta. Lögreglumenn þurftu að flytja 20 unglinga heim til sín úr mið- borginni vegna ölvunar. Voru þetta unglingar á aldrinum 14—16 ára. Sumir þeirra voru ofurölvi. Nefndi Erlendur sem dæmi, að þeir hefðu haft afskipti af 14 ára stúlku, ofurölvi, sem bar sig mjög illa. Hún átti að fermast á sunnudaginn. Það fólk, sem safnaðist fyrir í miðbænum, var flest á aldrinum 14—20 ára. RJCPNAVEIÐI hófst á föstudag- inn. Að sögn Hafsteins Ólafssonar f Fornahvammi, héldu 20 skyttur til veiða frá Fornahvammi á föstudagsmorgun f ágætu veðri. Veiddu þeir samtals 130 rjúpur, og sá sem flestar fékk skaut 17 rjúpur. Að sögn Hafsteins telja veiðimenn að ekki sé eins mikið Framhald á bls. 35 ÞESSI ungi piltur lá ofurölvi f Lækjargötu aðfararnótt laugar- dagsins. Hann hafði fallið á gang- stéttina og hlotið höfuðmeiðsl. Lögreglukonur hlynna að honum á meðan beðið er eftir sjúkrabfl og fyrir aftan má sjá annað ung- menni spila létt lög á gftar. Við- stöddum þótt það Iftt viðeigandi, eíns Og ástatt var. I.jósmynd Friðþjófur BANASLYS varð í Ishúsi Hafnar- fjarðar við Strandgötu s.l. föstu- dagskvöld. Sextugur maður féll úr stiga og hlaut bana af. Ekki er hægt að birta nafn mannsins að svo stöddu, þar sem ekki hafði náðst f alla ættingja hans f gær. Slysið varð um klukkan 20.30. Maðurinn var að vinna við vél- gæzlu f frystihúsinu. Hafði hann reist stiga upp við vegg og var að vinna f honum í þriggja metra hæð. Skyndilega sporðreistist stiginn og féll maðurinn niður á steinsteypt gólfið. Lenti hann á höfuðið, og er álitið að hann hafi látizt samstundis. Áverkar voru á höfði og hálsi. Umræddur maður er fæddur 1916. Hann var búsettur í Hafnar- firði og hafði unnið í áratugi hjá Ishúsi Hafnarfjarðar. Maðurinn var einhleypur. Ný loðnumið fundin út af Straumnesi GOTT veður var komið á loðnu- miðunum úti fyrirVestfjörðum f fyrrakvöld og voru tveir bátar á miðunum auk rannsóknaskipsins Bjarna Sæmundssonar. Báðir bátarnir, Guðmundur RE og Hrafn GK, fengu dágóðan afla, en sem fyrr var loðnan í frekar smá- um torfum og var erfið viðureign- ar. Bjarni Sæmundsson leitaði loðnu nokkru norðar og á svæðinu um 50 sjómílur rétt vestan við norður af Straumnesi fann skipið mikið loðnumagn. Héldu báðir bátanna á þau mið í gær, en spáð var góðu veðri á þessum slóðum i nótt. Banaslys í Hafnararði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.