Morgunblaðið - 05.12.1976, Qupperneq 6
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNVDAGUR 5. DESEMBER 1976
Margir fslendingar hafa komið til Sovétríkjanna, ýmist
sem mikilsvirtir boðsgestir eða fuiitrúar í opinberum
samninganefndum eða öðrum sendinefndum. Þð hef ég
látið til leiðast að segja ferðasögukorn úr austurvegi í
þeirri trú, að reynsla mín kunni að vera sérstæð að ýmsu
leyti, svo og ef verða mætti til að hnekkja missögnum,
sem komizt hafa á kreik, um ferð okkar Helga Helga-
sonar til Moskvu í sl. mánuði. Ég mun að mestu sleppa
að ræða um það, sem fiestum liggur í augum uppi, þegar
þeir koma á þessar slóðir, svo sem þann mikla stétta-
mun, sem þar virðist ríkja, og augljðslega bág kjör
þeirra, sem verst eru settir. Ég mun ekki f jöiyrða um
dýrð Kremlar, né drungasvip Moskvuborgar að öðru
leyti, þegar slökkt hefur verið á ljósaskrautinu frá 7.
nðvember. Ég mun ekki taia um mataræði né hreinlætis-
aðstöðu á opinberum stöðum, þðtt margt mætti um þau
efni segja. Og ég mun ekki reyna að lýsa tilfinningunni,
sem er því samfara að vera allt í einu staddur í landi, þar
sem tunga innfæddra er óskiljanleg með öllu, fáir tala
að gagni hin svo nefndu heimsmál, og meira að segja
stafrófið sjálft er svo framandlegt, að vandræði eru að
stafa sig fram úr gatnanöfnum, a.m.k. fyrstu dagana.
Eurovision og
Teleforum
í fyrra hluta nóvembermánaðar
sl. fór ég, ásamt Helga Helgasyni
dagskrármanni í Frétta- og
fræðsludeild Sjónvarpsins, i viku-
ferð til Sovétrlkjanna, eða til
Moskvu nánar til tekið. Ferð
þessa bar að með þeim hætti, að
einhverntfma f sumar barst Sjón-
varpinu boð um að senda tvo
menn f heimsókn til sovézka sjón-
varpsins. Samkvæmt ósk okkar
var heimsókn þessi tfmasett
þannig, að okkur gæfist kostur á
að sækja svonefnt Teleforum,
sem haldið er f Moskvu f nóvem-
ber ár hvert.
Hér verð ég að geta þess til
skýringar, að sjónvarpsstöðvar
Evrópu — og raunar útvarps-
stöðvar einnig — hafa skipað sér f
tvö sambönd eða bandalög: EBU
— European Broadcasting Union
— eða Eurovision, sem er sam-
band stöðvanna f Vestur-Evrópu
og Intervision, sem er bandalag
stöðvanna f Austur-Evrópu.
Aðeins tvö lönd, Finnland og
Júgóslavfa, eru f þessum banda-
lögum báðum. Bæði samböndin
gangast fyrir árlegum efnis-
skoðunarmótum, þar sem
stöðvarnar kynna nýjustu
framleiðslu sfna. Skoðunar-
fundur Eurovisionar er haldinn í
Milano f október, en skoðunar-
fundur Intervisionar, Teleforum,
f Moskvu f nóvember eins og fyrr
segir. íslenzka sjónvarpið hefur
átt fulltrúa á Mflanófundinum all-
mörg undanfarin ár, enda er
Ríkisútvarpið aðili að EBU. Tele-
forum höfum við hins vegar ekki
sótt fyrr, og þótti þetta þvf gott
tækifæri til að kynnastá einum
stað þvf helzta, sem Intervisions-
löndin hafa fram að færa.
Héldum vonglaðir
úr hlaði
Tilmælum sjónvarpsins um
þessa tfmasetningu á heimsókn
okkar Helga var þegar vel tekið,
en alllöng bið varð þó á þvi, að
hún væri formlega staðfest, og
hafði ég satt að segja nærri af-
skrifað þessa ferð um tfma. Þar
kom þó, að öll formsatriði voru
komin f lag: vegabréfsáritun tók
skamman tfma, og þegar ferða-
áætlun okkar var ákveðin i öllum
atriðum, u.þ.b. viku fyrir brott-
för, fórum við f sendiráðið m.a. til
að fá leiðbeiningar um það,
hvernig við skyldum haga okkur,
þegar til Moskvu kæmi. Okkur
var tjáð skýrt og skilmerkilega, að
tekið mundi verða á móti okkur á
flugvelli f Moskvu, síðan værum
við gestir sovézku stjórnarinnar
meðan við dveldumst í landinu,
séð mundi verða fyrir öllum
okkar þörfum og þyrftum við alls
engar áhyggjur að hafa af einu né
neinu.
Með þetta héldum við vonglaðir
úr hlaði 7. nóvember á sjálfu
byltingarafmælinu, og gistum I
Kaupmannahöfn næstu nótt, þvi
að ekki hafði reynzt unnt að
komast til Moskvu á einum degi.
Næsta dag stigum við svo uppi f
SAS-flugvél, sem flutti okkur til
hinnar fyrirheitnu borgar með
millilendingu í Stokkhólmi.
Samferða okkur voru nokkrir
danskir, norskir og sænskir sjón-
varpsmenn, sem voru á leið á
Teleforum, og var ég kunnugur
sumum þeirra áður. Vélin lenti
síðan, nokkurn veginn á tilsettum
tíma á Sheremetjevo flugvelli við
Moskvu.
Við höfðum heyrt af því sögur,
að það gæti tekið tfmana tvo að
komast í gegn um allt eftirlit á
Moskvuflugvelli, en ekki lét ég
sfíkt á mig fá, þar sem ég þóttist
eiga vfsar móttökur stjórnar-
erindreka, sem mundu leiða
okkur eftir rauðum dregli fram
hjá öllum erfiðleikum. Þegar við
komum inn í flugstöðvarbygg-
inguna, var þar að vísu mjög
margt um manninn, en flestir
virtust standa í biðröðum til að
komast gegn um hliðin, þar sem
vegabréfsskoðun fór fram, aðrir
kunna að hafa verið einhvers-
konar öryggisverðir, og ekki allir
einkennisbúnir, en enginn sýndi
þess nein merki að vera þarna
kominn til að taka sérstaklega á
móti tveimur Islendingum. Við
sáum því þann kost vænstan að
slást f hóp með norrænum starfs-
bræðrum okkar og systrum og
stilla okkur upp í eina af hinum
mörgu biðröðum.
Tvær og hálfa klukku-
stund f biðröð
Þarna voru sjálfsagt menn og
konur af mörgum þjóðernum og
með misjafna biðraðamenningu
að baki. En það er skemmst frá
þvf að segja, að brátt varð þrýst-
ingur þarna f röðinni óþægilega
mikifl, og ekki bætti loftleysið í
þessum salarkynnum úr skák.
Roskin sænsk kona, sem stóðu hið
næsta okkur Helga, varð hvað
eftir annað að flýja úr röðinni til
að ná andanum og forðast yfirlið.
Ut yfir tók þó, þégar á sviðinu
birtist nokkur hópur vasklegra
manna, kannske 10—12 að tölu
sem hóf tangarsókn að því hliði
sem við stefndum að, báru þessir
sókndjörfu fulltrúar einkafram-
taksins sovézk vegabréf, og allir
höfðu þeir samskonar höfuðföt:
sléttar kollhúfur útsaumaðar,
sem sýndust geta verið hluti af
þjóðbúningi. Að öðru leyti kann
ég ekki deili á þeim. En auðvelt er
að hugsa sér, að þarna hefði getað
komið til átaka og einhverjir jafn-
vel verið barðir að lokum, t.d. ef f
biðröðinni hefðu verið fyrir blóð-
heitir og bardagaglaðir
júdómenn, óvanir þvf að láta ýta
sér til hliðar að ástæðulausu,
Það tók tvær og hálfa klukku-
stund að komast f gegn um vega-
bréfaskoðunina, og var okkur
raunar ekki vandara um en öðr-
um sem þarna voru, nema að því
leyti sem við höfðum að sjálf-
„ Tel mig
hafa séð
þetta mikla
land í rétt-
ara Ijósi”
sögðu stöðugar áhyggjur af mót-
tökunefndinni, sem alltaf hlaut
að bíða okkar bak við hið torsótta
hlið. Það varð mitt fyrsta verk,
þegar gegn um hliðið var komið,
að skygnast um eftir henni, en
Helgi bjargaði farangri okkar úr
greiðarlegri hrúgu af töskum,
sem þarna hafði safnazt fyrir og
þóttist góður að okkar töskur
skyldu þó ekki hafa fengið verri
útreið en raun bar vitni. Ekki
urðum við varir við að nein toll-
skoðun færi þarna fram.
Þrír konfektmolar
í kvöldverð
En móttökunefndin, sem við
höfðum hlakkað svo mjög til a
hitta, lét ekki á sér kræla. Hins
vegar var uppi merki Teleforum
þar úti I einu horni, og þar voru í
kring einhverjir menn, sem vís-
uðu okkur, ásamt öðrum þátt-
takendum f Teleforum, út f
gamlan og hrörlegan rútubíl sem
flutti okkur inn f borgina á Hotel
Rossia, sem sagt er vera stærsta
hótel f Evrópu og rúma 6000 gesti.
Þar bjuggu allir þátttakendur I
Teleforum, og þar höfðu forstöðu-
menn Teleforum skrásetningar-
miðstöð. Þeir, sem þar voru fyrir,
höfðu að vísu nöfn okkar, sem
þeim hljóta að hafa borizt hér frá
sendiráðinu. Hins vegar
könnuðust þeir ekki við, að við
værum sérstakir boðsgestir, og
einn þeirra lét f ljós með orðalagi,
sem ég taldi stórlega mógðandi,
efa sinn um að við segðum rétt til
um þetta. Það er skylt að taka
fram, að maður þessi baðst sfðar
afsökunar á þessu. Eftir nokkurt
orðaskak og margar mislangar
biðir var okkur þó komið fyrir á
hótelherbergjum, en þá voru
liðnar hartnær fimm klukku-
Jón Þórarinsson
sfundir, frá því að flugvél okkar
lenti á Moskvuflugvelli, og komið
langt fram á kvöld. Þá óskuðum
við leiðbeininga um, hvar og
hvernig við gætum fengið matar-
bita, áður en gengið væri til náða,
en fengum þau svör ein — og ekki
sem kurteislegust — að mat
gætum við ekki fengið, þar sem
við ættum ekki rúblur, og
peningum gætum við ekki skipt,
því að búið væri að loka
bankanum. Kvöldverður okkar
þetta fyrsta kvöld undir ráðstjórn
urðu því þrír konfektmolar, sem
við f brfarfi höfðum stungið f vasa
okkar í flugvélinni á leið frá
Stokkhólmi. Þannig hófst okkar
„gerzka ævintýri".
Óþægileg og
auðmykjandi
aðstaða
Ríkisútvarpið hefur þann hátt
á, þegar starfsmenn þess þiggja
boðsferðir af þessu tagi, þar sem
allt uppihald á að vera greitt af
öðrum aðilja, að draga verulega
úr dagpeningagreiðslum, og
munu vera í gildi um þetta
almennar reglur hjá ríkisstofnun-
um. Undir þessa sök vorum við
Helgi seldir, og var þvf úr vöndu
að ráða fyrir okkur, ef ekki
rættist úr þeim misskilningi, sem
hér var sýnilega á ferðinni.
Annars vegar hafði stofnun
okkar, Sjónvarpið, greitt fyrir
okkur fargjald til Moskvu, og var
þar um verulega fjárhæð að ræða,
hinsvegar vorum við ekki betur
útbúnir með gjaldeyri en svo, að
hann hefði enzt f 2—3 daga, ef
ekki hefði annað komið til.
Ákváðum við þetta kvöld, að
dveljast í Moskvu, meðan þessir
peningar entust, en halda heim
síðan, ef okkar mál leiðréttust
ekki áþeim tíma.
Næsta dag var okkur tjáð, að
hótelgisting mundi verða greidd
fyrir okkur og okkur fengnir
peningar fyrir öðrum útgjöldum.
Sú upphæð nam þegar til kom 45
rúblum fyrir hvorn okkar, og
reyndist með öllu ónóg til viku
dvalar. Þess skal getið, að gengi
rúblunnar mun hvergi vera skráð,
en Sovétmenn sjálfir reikna 3
rúblur á móti fjórum dollurum.
Samkvæmt þessu nam þessi viku-
lffeyrir okkar 60 dollurum. Allt
var þetta látið i té með þeim
hætti, að okkur fannst það lfkjast
þvf að verið væri að firra vand-
ræðum, úr þvi að við vorum nú
einu sinni þarna staddir, fremur
en verið væri að standa við
höfðinglegt boð. Fannst okkur
þessi aðstaða öll mjög óþægileg og
auðmýkjandi, en ákváðum þó að
láta þetta yfir okkur ganga, úr þvi
sem komið var.
Sjónvarpsefni
frá Austur-Evrópu
Stunduðum við nú Teleforum
samvizkusamlega, skoðuðum
fjölda mynda og ræddum við
fulltrúa þeirra sjónvarpsstöðva,
sem þarna buðu fram efni sitt.
Samkoma þessi var haldin f
gömlu leikhúsi, sem mér var sagt
að sovézka sjónvarpið hefði til
sinna nota. Aðstaða var þar á ýms-
an hátt frumstæð og óþægileg og
stendur mjög langt að baki þvf,
sem skoðunarfundir Eurovisionar
eiga við að búa f Milano. Þó voru
þarna samankomnir, auk þeirra
þjóða, sem beinlfnis standa að
Teleforum, gestir frá mörgum
Vestur-Evrópulöndum, þ. á m. frá
Norðurlöndunum öllum, svo og
m.a. frá Bandaríkjunum og
Canada. Þessir vestrænu gestir
héldu mjög hópinn, og
eignuðumst við marga góða
kunningja meðal þeirra.
Get ég nú farið fljótt yfir sögu,
en ef einhverjir eru farnir að
hlakka til að sjá allt það austur-
evrópska sjónvarpsefni, sem við
höfum dregið að í Moskvu verð ég
að hryggja þá með þvf, að ekki er
von á neinni stórfelldri breytingu
Jón Þórarinsson segir frá boðsferð tveggja sjónvarpsmanna til Moskvu