Alþýðublaðið - 20.08.1920, Page 2

Alþýðublaðið - 20.08.1920, Page 2
2 Aígreiðsla fjlaðsins er í Alþýðuhúsinu við Ingólfsstræti og Hverfisgötu. Síml 988. Auglýsingum sé skilað þangað cða í Gutenberg í síðasta lagi kl. 30, þann dag, sem þær eiga að koma í blaðið. Jaþularstefua er ekki tóbaksbindindi. Jón: Hefurðu séð það, að það er löng grein í Mogga, um viðtal okkar á dögunum. Skúli: Jú, jú, eg held nú það. Eg var farinn að halda að þessi grein „Til Skúla í Alþýðublaðinu" væri vitlausasta greinin sem eg hefði séð í Morgunblaðinu, og er þá langt jafnað, því eg les flestar greinar Jóns Björnssonar um bók- mentir. Jón: En ertu þá kominn ofan af því nú? Skúli: Ja — líttu ÁÍ Þegar eg var búinn að lesa greinina, hélt eg það, en svo las eg aðra grein til í blaðinu eftir sama höfund, og þá runnu á mig tvær grímur. Jón: Þessi S. Þ. er að tala um að þó verkalýðurinn kæmist til valda, þá mundi ekki fyrir því vera hætt að framleiða óþarfa, t. d. tóbak. Skúli: Það segir hann satt, enda hefir víst engum jafnaðarmanni komið það í hug, en meinið er að þessi Ess Þorn heldur að jafn- aðarstefnan gangi út á það að stöðva óhóf, með öðrum orðum að hún sé nokkurskonar tóbaks- bindindi, og sýnir það hvað vel hann er að sér. Að framleiða til gagns er að framleiða með það fyrir augum að varan sé sem vönduðust, að hún sé sem ódýrust, og að gróð- Inn sem af framleiðslu hennar verð- ur sé á einhvern hátt opinber eign. Andstæðan við þetta er framleiðslan til gróða, sem ein- kennir þjóðfélagsskipun þá, sein nú ríkir, því eins og nú gegnir, þá er varan höfð eins óvönduð og fært þykir, seld eins dýrt og fært þykir, og gróðinn, sem af henni fæst, lendir í vasa einstakra (og örfárra) manna. Jón: Hann segir, þessi Esa Þorn, ALÞYÐUBLAÐIÐ að verkamenn brúki tóbak og á- fengi einna ruddalegast, og svo talar hann um andlega minni hátt- ar menn og „uppskafninga". Skúli: Já, eg ætla nú að tala sem minst um „uppskafningana* og lofa Ess Þorn að fást sjálíum við spegilmynd sfna, en um hitt, að verkamenn séu ruddalegir í tóbaksbrúkun sinni, hygg eg að sé nú líkt og hjá öðrum, en ann- ars væri það nú ekki neitt sérlega merkilegt, þó þeir sem vinna baki brotnu allan daginn, og dag eftir dag, hefðu ekki neina hirðsiði. En eg má ekki vera að því að skrafa við þig núna, en eg skal bráðlega gera spegilmynd upp- skafningsins feetri skil. frakkar ærðir. Khöfn, 19. ágúst. Símað er frá París, að Frakkar hafi vísað úr landi enskri verka- mannanefnd, sem ætlaði að ráðg- ast um við franska jafnaðarmanna- flokkinn, hvernig komast eigi hjá stríðshættunni. 3slenzkur gjalieyrir. Nýlega sögðu Vísir og Morgun- blaðið frá því, að gengi væri á' íslezkri krónu í Danmörk. Síðar réðsit einn af bankastjórum ís- landsbanka með ásökunum á Lands- bankan og Landmandsbankan í Khöfn. Út af þessu máli hefir sendi- herra Dana hér borist eftirfarandi skeyti: „Ritzau fréttastofa hefir birt eft- irfarandi: Út af símskeyti frá hinni „ís- lenzku fréttastofu" [Vilh. Finsen ritstj. Morgunblaðsinsj viðvíkjandi gengi íslenzks gjaldeyris, tilkynnir Landmandsbankinn, að hann skýrt og skorinort verði að vísa aftur þeirri staðhæfingu, er fram kemur í skeytinu, um að bankinn reyni að þrýsta niður gengi íslenzkrar krónu. Bankinn hefir áður og sér- staklega í núverandi gjaldeyris- vandræðum á íslandi stutt gengi hinnar íslenzku krónu, þar senr hann ætíð, og einnig nú, hefir haldið við allmikilli innieign hjá hinum íslenzka viðskiftavini. Ekki er hægt að leggja bankanum það til lasts, þó hann, samkvæmt skip- un ýmissa viðskiftamanna, sem halda því fram að þeir hafi selt vörur fyrir dánskar krónur, sé neyddur til þess að setja rois- munandi gengismun, þyí fremur sem gengið, sem í þessu falli er um að ræða, er íslenzkum inn- flytjendum allmikið hagkvæmara, eij það gengi, sem íslenzk króna hefir á gjaldeyrismörkuðunum," €rleað simskeyti. Khöfn, 19. ágúst. Símað er frá London að byrja® sé á samningunum í Minsk. Asquith vili viðurlrenna sovjet- stjórnina (de fscto). Símað frá Berlín að Þjóðverjar í Kattwitz krefjist þess, að fransk- ar hersveitir verði afvopnaðar. Bærinn hefir verið lýstur í um- sátursástandi. Símað er frá Varsjá, að Pól- verjar sæki fram og hafi í bilí bjargað falli Varsjá. Þetta og hitt. ,Greysistór flskisteingemngnr nýfnndinn í Utah. Fisksteingervingur einn geysi- stór hefir fundist í kletti einum É fjöllunum í Sorfield Country í Utah í Bandaríkjunum (Mormóna- landinu). Steingervingurinn er yfit 50 fet á lengd. Heim á kvöldin í flngvél. Nú í sumar fara um 100 kaup- sýslurnenn heim til sín á kvölditt í einkaflugvél, og aftur á morgn- ana á skrifstofurnar á sama hátt. Geta þeir með þessu móti búið langt úti í sveit þótt þeir ræki sín venjulegu störf í New York á dag- inn. Sennilega fara þeir bráðuns að skreppa heim til sín í flugvéí í matmálstímanum.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.