Morgunblaðið - 02.04.1977, Page 1

Morgunblaðið - 02.04.1977, Page 1
40 SIÐUR OG LESBOK 75. tbl. 64. árg. LAUGARDAGUR 2. APRlL 1977 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Bandaríkjamenn og Rússar einbeiti sér að Miðausturlöndum — segir Sadat Egyptalandsforseti Bonn, 1. aprfl. AP. ANWAR Sadat Egypta- landsforseti sagði á fundi með fréttamönnum í Bonn í dag, þar sem hann hefur verið í opinberri heimsókn í tvo daga, að Sovétmenn og Bandarfkja- menn ættu að leggja áherzlu á að leysa vanda- málin í löndum fyrir botni Miðjarðarhafs og leggja til hliðar ágreining sinn á öðrum sviðum. Sadat sagð- ist sammála Helmut Schmidt, kanslara V- Þýzkalands, um að árið upp á besta á að leysa í Miðaustur- að hann sæi 1977 byði möguleika vandamálin löndum og enga ástæðu fyrir því að frestað yrði að finna siíka lausn. Sadat sagði að hann og Schmidt hefðu rætt ftarlega deilur Araba og tsraela og alla möguleika á að kalla Genfarráðstefnuna um friðarumleitanir f Miðaustur- löndum saman. Sagði Sadat nauðsynlegt að menn notuðu þetta góða tækifæri, því að enginn vissi hvað árið 1978 kynni að bera í skauti sér. Schmidt kanslari, sem einnig sat blaðamannafundinn, sagði er hann var spurður um afstöðu V- Þjóðverja til þess að Palestínu- menn fengju fulltrúa á Genfar- ráðstefnunni, að það væri skoðun sín að Palestínumenn yrðu með einhverjum hætti að fá að hafa talsmenn á ráðstefnunni, en það væri eitt af málunum, sem taka yrði afstöðu til fyrir ráðstefnuna, að finna malamiðlunarleið þ.a.l. sem allir gætu sætt sig við. Sadat sagði að Palestínumálið yrði eitt af þeim málum, sem hann myndi ræða við Jimmy Carter Bandarfkjaforseta i næstu viku í Washington og sagðist Framhald á bls 22. AP-simamynd Sadat Egyptalandsforseti kannar heiðursvörð á Bonnflugvelli ásamt Walter Scheel kanslara V- Þýzkalands f gær. Rússar saka Carter um áródursbrögd Moskvu 1. aprfl. Router. SOVÉTMENN sökuðu í dag Carter Bandaríkjafor- seta um að nota áróðurs- Rannsókn á f jár- málum Sanjays Nýju Delhf. 1. apríl. Reuter—AP. CHARAN Signgh, innanríkisráð- herra Indlands, sagði f dag, að hann myndi fyrirskipa rannsókn á fjármálum Sanjays, sonar Indíru Gandhfs fyrrum forsætis- ráðherra. Singh skýrði indverska þinginu frá því að rannsóknin myndi beinast að framkvæmdum Sanjays f sambandi við byggingu risavaxinnar bifreiðaverksmiðju. Þá sagði ráðherrann að rannsókn yrði einnig gerð á fjármálum Bansi Lals, fyrrum varnarmála- ráðherra, sem er náinn vinur og samstarfsmaður Sanjays, svo og að rannsókn myndi fara fram á ný vegna 700 þús. sterlingspunda, sem svikinn voru út úr Indlands- banka fyrir 5 árum, til að kanna hvort einhverjir ráðherrar stjórnarinnar á þeim tfma hefðu átt þar aðild að. Tilkynning um þetta kom eftir harðar tveggja klukkustunda umræður í þinginu, þar sem stjórnarþingmenn kröfðust rann- Framhald á bls 22. brögð til aö reyna að þrengja skoðunutn Banda- ríkjamanna á afvopnunar- málum upp á þjóðir heims. Þessar ásakanir komu fram í frétt frá Tass- fréttastofunni, sem birt var í öllum sovézkum blöð- um í dag, af fundi Carters á miðvikudag, þar sem hann ræddi viðræður Cyrus Vance við sovézka ráðamenn um takmörkun kjarnorkuvopna. Tass-fréttin er talin renna stoð- um undir það álit vestrænna stjórnmálafréttaritara, að hinn óvænti fundur Andrei Grómýkós, utanríkisráðherra Sovétrikjanna, með 500 sovézkum og erlendum fréttamönnum í gær, hafi verið tilkominn vegna ummæla Cart- ers. Carter sagði þá að tillögur þær, sem Vance hafði farið með til Moskvu, hefðu verið svo mikil- Erfiðleikar Svía ástæðan fyrir gengisfellingunni Briissel, 1. apríl. AP — Reuter. HIN óvænta tilkynning í kvöld um að gengi sænsku, norsku og dönsku krónanna verði fellt á mánudaginn á rætur sfnar að rekja til greiðsluerfiðleika Svfa og var fundur efnahags- ráðherra og seðlabankastjóra landanna sjö, sem aðild eiga að hinu svokallaða „snáksgjald- eyriskerfi“, kallaður saman að beiðni Svfa. Lækkar gengi sænsku krón- unnar um 6%, en gengi norsku og dönsku krónanna um 3%. Öll löndin verða eftir sem áður aðilar að snákskerfinu, sem i eru auk þeirra, V-Þýzkaland, Belgia, Lúxemburg og Holland. Fljóta gengi þessara landa sam- an sem ein heild gagnvart gjaldmiðli annarra þjóða. Tilkynning þessi kom sem fyrr segir mjög á óvart, því að gjaldeyrismarkaðir hafa verið fremur rólegir undanfarið og ekki vitað um þrýsting á gjald- miðil nokkurs þessara 7 landa. Fjármálasérfræðingar í Brússel sögðu i kvöld, að fund- urinn í dag hefði verið haldinn að beiðni sænsku stjórnarinnar vegna greiðsluerfiðleika lands- ins við útlönd. Hin aðildarríkin voru að sögn ekkert sérlega hrifin af verulegri sænskri gengislækkun, en Danir og Norðmenn töldu sig verða að fylgja með. Norðmenn, með alla Norðursjávaroliu sina, eiga ekki við greiðsluerfiðleika að stríða, en þar sem 20% af út- flutningi Norðmanna fara til Svíþjóðar þótti nauðsynlegt að lækka gengið um 3% til að norskar iðnaðarvörur væru samkeppnishæfar við sænskar. Þar fyrir utan standa yfir bæði í Noregi og Danmörku erfiðar og viðkvæmar viðræður um launamál á vinnumörkuðunum og atvinnurekendur í þessum löndum hefðu tekið upp harð- ari afstöðu ef ekki hefði verið fylgst með Svium í þessu máli. vægar og umfangsmiklar, að Sovétmenn þyrftu meiri tíma til að skoða þær og því hefðu þeir í fyrstu umferð hafnað þeim. Grómýkó tætti hins vegar tillög- urnar í sig á fundinum í gær og sagði að þær miðuðu að þvi einu að grafa undan öryggi Sovét- rikjanna og Varsjárbandalags- ríkjanna með ójafnri minnkun á kjarnorkuvopnabúnaði þjóðanna. Tass-fréttastofan segir að tillög- urnar hefðu einhliða verið Banda- rikjamönnum í hag og þvi hefðu ummæli Bandarikjaforseta verið hreinn áróður. Stjórnmálafréttaritarar telja að Sovétstjórnin muni á næstunni hefja mikla herferð til að beina athyglinni að eigin tillögum i af- vopnunarmálum. Rússar hafa alltaf haldið því fram, að þeir hafi átt frumkvæðið að öllum meiri- háttar samningum um afvopnun- armál og þvi er einnig hugsan- legt, að þeim finnist Bandaríkja- menn vera að reyna að stela sen- unni frá sér með fyrrgreindum tveimur tillögum. Zbigniew Brezezinski öryggis- málaráðgjafi Carters forseta sagði á fundi með fréttamönnum i Washington í dag, að Bandaríkja- menn hefðu lagt sig alla fram um að taka risastökk í átt til afvopn- unar og væru reiðubúnir til að ræða hvað það væri, sem Sovét- mönnum fyndist óaðgengilegt. Hann sagði að Bandaríkjamenn hefðu m.a. boðist til að leggja Framhald á bls 22. Þingið í Brazilíu sent heim Brasilíu, 1. aprfl. AP. Herforingjastjórnin f Brasilfu rak í dag þing landsins heim f hegningarskyni fyrir að þingið hafnaði stjórnarskrárbreytingu f sambandi við endurskipulagn- ingu dómsmálakerfis landsins. I tilkynningu frá stjórninni eftir fund Ernestos Geisels, forseta landsins og öryggisráðsins sagði að þingið yrði nú sent heim um tfma, en ekki sagt hve lengi það yrði. Geisel átti að flytja útvarps og sjónvarpsávarp til þjóðarinnar i nótt. Meðan þing situr ekki getur forsetinn beitt sérstökum völdum skv. svokallaðri stofnanalöggjöf, sem er yfir stjórnarskrána hafin. Getur hann því beitt forsetavaldi til að koma i gegn frumvörpum, Framhald á bls 22. Einkalögsaga Ira tekur gildi 10. apríl Dublin, 1. aprfl Reuter RlKISSTJÓRN Irska lýðveldisins tilkynnti f kvöld, að skipum lengri en 33 metrar, yrði bannað að veiða innan 50 mflna einkalög- sögu trlands frá og með 10. aprfl n.k. Stjórnin tók þessa ákvörðun eftir að Bretar höfðu hafnað EBE-áætlun um fiskikvóta og fiskverndunarráðstafanir á fundi sjávarútvegsráðherra handalags- ins f Brússel um helgina. Fresturinn til 10. apríl er gef- inn til að gefa öðrum EBE-rikjum tækifæri til að tilkynna fiski- mönnum sinum um breytinguna. Einnig mun gefast lengri timi til frekari viðræðna innan EBí’. V-Þjóðverjar og Hollendingar hafa manna harðast barist gegn þessum fyrirætlunum Ira, en þær voru fyrst. tilkynntar í byrjun þessa árs. Beinast aðgerðirnar einkum að sovézkum og pólskum togurum, sem taka mikinn afla á írskum miðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.