Morgunblaðið - 02.04.1977, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 02.04.1977, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. APRlL 1977 3 Byggingavísitöl- ur f jölbýlishúsa RANNSÓKNASTOFNUN bygg- ingariðnaðarins hefur gefið út annað hefti af vlsitöium bygg- ingahluta fyrir fjölbýlishús og greinir þar frá breytingum vfsi- taina á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Gilda vfsitölurnar fyrir kostnaðarbreytingar í Reykjavfk á þessu tfmabili. Heildarvfsitaia Jöklafarar úr Bolungarvík: Fóru á vél- sleðuni frá Snœfjalla- strönd í Reykjar- fjörð.... Bæjum 28. marz 1 977. Frá Jens í Kaldalóni EINMUNATÍÐ hefur verið hér um slóðir að undanförnu Leyst hefur mikið klaka og svell af jörð, og snjó í hlíðum Aukist vatn í vötnum virkjana svo upp hefir tendrast engilbirta á bæjum, og allir getað eldað góða soðningu í svangan maga, og hverju er þá undan að kvarta þvi allt er þegar þrennt er: góðviðri, birtj og soðinn matur. Föstudaginn 25. þ m lögðu 10 hörkukallar og miklir ferðagarpar úr Bolungarvik leið sina með Djúp- bátnum inní Bæi á Snæfjallaströnd og lögðu þaðan upp i leiðangurá 9 snjósleðum yfir fjöll og fannir, alla götu norður yfir Drangajökul í Reykjarfjörð á Ströndum. Hrepptu þeir blindþoku á hájöklinum, en fundu þó Hrolleifsborg, og gátu skrifað nöfn sin þar í gestabók, sem geymd er i málmhylki við vörðubrot uppá hæsta tindi Hrolleifsborgar sem Hjálmar Bárðarson skipa- skoðunarstjóri rikisins kom þar fyrir af miklum dugnaði og ræktarsemi við staðinn, siðan hann var i skáta- sveit ísfirðinga endurfyrir löngu. Gekk þeim félögum ferðin vel, enda hittu þeir á gott veður, og með þeim i förinni var einn af hinum hagvönu Reykjarfjarðar- bræðrum, Guðfinnur Jakobsson, sem og að þeir höfðu meðferðis öll þau siglingatæki sem i fjallaferðum með þurfa. Eftir næturveru i Reykjarfirði lögðu þeir félagar siðan upp vestur yfir Drangajökul og hæstu fjallgarða, og komu þá ofan I Leirufjörð i Jökulfjörðum, og gistu þar i sumarbústað S'ólbergs Jóns- sonar, sparisjóðsstjóra i Bolungar- vik. En þaðan lá svo leið þeirra út sveitir til Grunnavikur en þangað voru þeir sóttir á sunnudag af bát úr Bolungarvik. Aldrei áður hefur nokkurt vélknúið farartæki farið þessa leið. og þarf þvi áræði og kjark til að ríða á vaðið, en Bolvikingar eru hörku- kallar jafnt á jöklum uppi og öræfum, sem á hinum úfna hafsjó, og láta sér fátt fyrir .brjósti brenna enda var þetta úrvalslið i Björgun- arsveit þeirra Bolvikinga. og var formaður björgunarsveitarinnar, Gunnar Leóson, fararstjóri þeirra félaga en aðrir þeir sem i ferð þessa fóru voru: Guðfinnur Jakobsson, Sigurður Viggó Bernódusson, Hreinn Ólafsson, Sveinn Jónsson, Jón Sveinsson, Sigurgeir Jóhannsson, Valdimar Gislason, Heiðar Hermannsson, Pálmi Karvelsson. Ekkert óhapp henti þá í för þessari og ekkert bjlaói í farar- tækjum þeirra, og slíkum ferðum um háfjallagarða og jökulbreiður Vestfjarðakjálk- ans gleymir enginn, sem farið hefur, og öll hin fegursta dýrð fjafjallageimsins bitur sig svo í meðvitundina, að sælu- minningin greypist í hugann eftir slika vel heppnaða ferð. byggingarkostnaðar hefur hækkað um nfu stig, 1135 stig eða um 7.1%. Kostnaðarflokkar bygginga- hlutanna eru sjö og hafa þeir hækkað nokkuð misjafnlega. Mest er hækkun á flokki, sem spannar ýmsan kostnað. Sam- kvæmt fréttatilkynningu frá Rannsóknastofnuninni eru þar m.a. opinbee gjöld, sem hækkað hafa um 20%. Efnisliðir hafa að meðaltali hækkað um 3% og vinnulaun um 8% Annars hafa flokkar Rb-kostnaðarkerfisins hækkað sem hér segir: 1. flokkur, undirbygging úr 128 stigum í 138 stig — 7,8% 2. flokkur, hrábygging úr 125 stigum í 131 stig — 4,8% 3. flokkur frágangur úr 127 stig- um í 136 stig — 7.1% 4. flokkur, innréttingar úr 123 stigum í 132 stig — 7,3% 5. flokkur, lagnir úr 127 stigum í 133 stig —4,7% 6. flokkur, lóðafrágangur úr 129 stigum i 139 stig — 7,6% 7. flokkur, annað, ýmisl. úr 132 stigum í 146 stig — 10,6% Vísitölurnar eru miðaðar við verðlag í október 1975, 100 stig. Þá segir í fréttatilkynningunni, að fyrstu vfsitölur, fyrir byggingahluta einbýlishúss miðast við verðlag í marz 1977, og verða gefnar út í april. Kökubasar Hvatar í dag HVÖT, félag Sjálfstæðis- kvenna, heldur kökubasar í dag kl. 2 síðdegis. Basarinn verður i Sjálfstæðis- húsinu, Bolholti 7. Að venju verð- ur mikið um glæsilegar kökur á boðstólum. Seinast þegar Hvöt hélt kökubasar seldust allar kök- urnar upp á hálfum klukkutíma og var þó af nógu að taka. Nú gefst tækifæri til að kaupa kökur til páskanna á góðu verði. Meðan Reykjavfkurráðstefnan verður á Kjarvalsstöðum, verða þar til sýnis nokkrar Reykjavfkur- myndir eftir Jón Helgason biskup, en hér má sjá eina þeirra er sýnir Bankastræti. Fjallað um sögu Reykjavík- ur á ráðstefnu í næstu viku SÖGUFÉLAGIÐ og Reykja- vfkurborg halda dagana 5., 6. og 7. aprfl n.k. Reykjavíkurráð- stefnu að Kjarvalsstöðum og verða alls flutt 13 erindi um einstaka þætti úr sögu Reykja- vfkur. Á árinu 1974 var boðað til ráðstefnu með líku sniði og var í framhaldi af þvf gefin út bókin Reykjavfk í 1100 ár, sem var eins konar framlag Sögufél- agsins til Þjóðhátfðarinnar 1974 en félagið naut stuðnings Reykjavfkurborgar við verkið. Fyrirhugað er að þau erindi, sem flutt verða á komandi ráð- stefnu verði gefin út f bókar- formi. Birgir Isleifur Gunnarsson borgarstjóri setur ráðstefnuna þriðjudagskvöldið 5. aprfl og forseti Sögufélagsins, Björn Þorsteinsson prófessor, flytur ávarp. Á blaðamannafundi með að- standendum ráðstefnunnar sagði Björn Þorsteinsson, að i þetta sinn væri boðað til Reykjavikurráðstefnu til þess einkum að vekja athygli á því að nú vantaði nýja landnámu, bækurnar um það, hvernig borgaralegir atvinnuhættir ruddu sér til rúms á íslandi. Minnti Björn á að við Faxaflóa hefði landnám nýrrar þekking- ar, tækni og samfélagshátta, hafist á 19. öld en i 1000 ár hefði íslenskt atvinnulíf verið ánauðarbundið landbúnaði, — en með stjórnarskránni 1874 hófust umskiptin miklu, þétt- býli tók að vaxa að marki i fornum fiskihöfnum. Hingað til hefði engin kerfisbundin rann- sókn verið gerð á þessum um- skiptum en ætlunin væri að fjalla nokkuð um ýmsa þætti þeirra á ráðstefnunni á Kjar- valsstöðum nú. Á ráðstefnunni verður meðal annars fjallað um upphaf trjá- ræktar i Reykjavik, íslenskar konur i atvinnulifi 1885—1914, samgönguleiðir til Reykja- víkur, leikhús i Reykjavík, upp- haf flokkaskipunar i Reykja- vik, vinnudeilur á 18. öld auk þess, sem nokkur erindi verða flutt um upphaf Reykjavíkur sem stjórnmiðstöðvar landsins. Björn minnti á að margt vant- aði á dagskrá ráðstefnunnar og nefndi i því sambandi orkumál, iðnað, hafnargerð og margvis- lega aðra atvinnuhætti, en sið- ustu orðin í sögu Reykjavíkur yrðu vonandi ekki sögð i bráð. Eftir 9 ár yrði Reykjavíkurborg 200 ára, og þá ættu margir þætt- ir borgaralegrar þróunar á ís- landi að vera skýrari en þeir eru nú. Ráðstefnan er opin öllu áhugafólki og á meðan ráð- stefnan stendur yfir, veróa til sýnis á Kjarvalsstöðum nokkrar Reykjavíkurmyndir eftir Jón Helgason biskup. Einsöngvari frá Finnlandi með Karlakór Rvíkur Átriði úr Pilti og stúlku. Gnúpverjar sýna Pilt og stúlku GeldinKaholti, 31 marz. Ungmennafélag Gnúpverja frumsýndi leikritið Pilt og stúlku eftir Jón Thoroddsen f Árnesi s.l. laugardag. Var sýningunni mjög vel tekið og sfðan hafa verið þrjár sýningar I Árnesi og Flúðum. Leikstjóri er Halla Guðmunds- dóttir, en söngstjóri Loftur S. Loftsson. N'æstu sýningar á leikn- um verða f félagsheimili Kópa- vogs n.k. laugardag, 2. aprfl kl. 20.30. Leikritið Piltur og stúlka er nú sýnt í tilefni af hálfrar aldar leik- afmæli Ungmennafélags Gnúp- verja. Reyndar var fyrsta meiri háttar leiksýningin i hreppnum árið 1913 — 1914 er Skugga- Sveinn var sýndur og svo aftur árið 1917. Siðan starfaði ung- mennafélagið ekkert i tæpan ára- tug og lagðist þá öll leikstarfsemi niður. Fyrsta sumardag 1927, eða fyrir fimmtiu árum, var svo Ung- mennafélag Gnúpverja, það sem nú starfar, stofnað. Fljótlega eftir það hófst leikstarf að nýju. Fyrsta leikritið, sem þá var tekið til sýn- ingar, var þýzki gamanleikurinn „Gleiðgosinn" — haustið 1929. Siðan hafa ungmennafélagar hér staðið að leiksýningum nær ár- lega og alls hafa leikrit verið tek- in til sýninga fjörutiu og fimm sinnum. 1 þeim hafa verið um fjögur hundruð hlutverk, sem með hafa farið hundrað manns. Með aðalhlutverk i .Pilt og stúlku fara: Björg Sigurðardóttir, Kristín Guðmundsdóttir, Jóhanna Jensdóttir, Sigurður Steinþórs- son, Þorbjörg Árnadóttir, Sveinn Eiríksson, Hjalti Gunnarsson. Jón. HINIR árlegu styrktarfélagahljóm- leikar KARLAKÓRS REYKJA- VÍKUR verða haldnir í Háskólabíói dagana 4. 5. og 7 apríl n.k. og hefjast kl. 1 9 alla dagana. Hljómleikarnir verða óvenjuleg- ir að því leyti að þessu sinni, að erlendur einsöngvari syngur með kórnum, en það er finnski óperu- söngvarinn Boris Borotinskij. Boris Borotinskij var hér á ferð i fyrra með Karlakórnum Muntra Musikanter í boði Karlakórs Reykja- víkur og varð vinsæll fyrir söng sinn Borotinskij er bass-baritón Hann hefur numið söng og tónlist við þekkta skóla i Finnlandi og Sviþjóð og einnig hjá kunnum óperusöngv- urum Hann útskrifaðist frá Sibelius Akademi 1969 og Statens Musikdramatiska skola í Stokkhólmi 1972 Siðan hefur hann sungið við Borgarleikhúsið i Malmö í nokkur ár, svo og óperuna í Stokkhólmi, auk þess, sem hann hefur sungið i og með kórum i Finnlandi öðru hvoru Söngskrá Karlakórs Reykjavíkur er fjölbreytt eins og áður og setur söngur Boris Borotinskij sérstakan svip á hljómleikana — Þá b'er að geta þess, að kórinn mun nú flytja aftur verk norska tónskáldsins, John Persen's, sem hann samdi sérstak- lega fyrir Karlakór Reykjavikur með styrk frá Norræna menningarsjóðn- um og flutt var að Kjarvalsstöðum í fyrra á Norrænum músíkdögum Söngstjóri er Páll Pampichler Pálsson. Nokkrir hljóðfæraleikarar aðstoða. eh einnig mun Hreiðar Pálmason syngja eínsöng Karlakór Reykjavikur hélt upp á 50 ára afmæli sitt í fyrra og vill nota tækifærið tíl þess að senda nú öllum vinum og velunnurum sinar beztu kveðjur og þakklæti og þá sérstak- lega rikis- og borgaryfirvöldum fyrir kærkominn stuðning fyrr og siðar Boris Borotinskij

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.