Morgunblaðið - 02.04.1977, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. APRlL 1977
Ú
BÍLALEIGAN
51EYSIR
LAUGAVEGI 66
CAR RENTAL
24460
28810
Hótel- og flugvallaþýónusta
LOFTLEIBIR
r 2 11 90 2 11 88
Sprengja
til Carters
Washington, 30. marz. Reuter.
LEIFAR af bréfasprengju
hafa fundizt í umslagi sem stil-
að var til Carters Bandaríkja-
forseta. Hafði bréfið komizt
alla leið til Hvíta hússins án
þess grunsemdir vöknuðu og
var verið að lesa sundur póst-
inn þegar sprengjusérfræðing-
ar sem jafnan eru viðstaddir
uppgötvuðu sprengjuna og var
hún eyðilögð. Hún var ekki
sögð hafa verið sérlega kraft-
mikíl.
Siglufjörður:
r
Aætlunarbíllinn
í erfidleikum
Siglufirði 31. marz.
SKUTTOGARINN Dagný kom
hingað I dag með 170 lestir af
fiski, þar af voru 60 lestir stór-
þorskur.
Áætlunarbíllinn til Siglu-
fjarðar frá Sauðárkróki átti í
miklum erfiðleikum með að kom-
ast hingað í gærkvöldi. Þegar bfll-
inn kom í Skriðurnar komst hann
ekki lengra, og var því sendur
stór og aflmikill bíll honum til
aðstoðar. Tókst hjáíparbflnum að
koma áætlunarbílnum til Siglu-
fjarðar um miðnæturskeið.
m.j.
Ibúasamtök stofn-
uð í Vesturbænum
STOFNFUNDUR verður haldinn
á mánudaginn kl. 21 f Iðnó fyrir
íbúasamtök Vesturbæjar. Hug-
myndin að baki stofnunar þessara
samtaka er m.a. sú að standa vörð
um umhverfisverðmæti í gamla
Vesturbænum og bæta félagsleg
og menningarleg lífsskijyrði íbú-
anna. Á stofnfundinum verða
lögð fram drög að stefnuskrá og
lögum og kosið í stjórn. Allir
áhugamenn eru velkomnir, en
ætlunin er að atkvæðisrétt og
kjörgengi eigi einungis þeir sem
búsettir eru vestan Lækjar og
norðan Hringbrautar.
(Úr fréttatilkynningu)
Tanghuahan
er eins og eftir
sprengjuárás
Peking, 31. marz. Keuter. NTB.
KÍNVERSKA iðnaðarborgin
Tanghuhan er enn I rústum eftir
jarðskjálftana þar I fyrrasumar, ,
en þeir voru gffurlega öflugir.
Útlendingar sem komu frá borg-
inni greindu frá þvf í dag að þar
stæði nánast ekki steinn yfir
steini. Þetta fólk eru fyrstu út-
lendingarnir sem fá leyfi til að
fara til borgarinnar siðan nátt-
úruhamfarirnar skuilu yfir.
Á þessu svæði fórust um 700
þúsund manns og ámota margir
slösuðust. Einn útlendinganna
sagði að ástandið I borginni væri
eins og eftir hræðilega sprengju-
árás á striðstimum. Reist hafa
verið bráðabirgðaskýli i úthverfi
borgarinnar að sögn sjónvarvott-
anna og hreinsunarstarf er hafið I
borginni þótt það virðist ganga
furðu seint.
Útvarp Reykjavík
L4UG4RD4GUR
2. apríl
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Morgunleikfimi kl.
7.15 og 8.50. Fréttir kl. 7.30,
8.15 (og forustugr. daghl.),
9.00 og 10.00.
Morgunbæn kl. 7.50. Morgun-
stund barnanna kl. 8.00: Sig-
rún Björnsdóttir heldur
áfram að lesa söguna „Strák
á kúskinnsskóm" eftir Gest
Hannson (2). Tilkynningar
kl. 9.30. Létt lög milli atriða.
Oskalög sjúklinga kl. 9.15:
Kristfn Sveinbjörnsdóttir
kynnir. Bókahornið kl. 11.15:
Barnatfmi í umsjá Ilildu
Torfadóttur og Hauks
Águstssonar. Kynntur verður
Stefán Jónsson og verk hans.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
SÍÐDEGIÐ
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 Á seyði
Einar Örn Stefánsson
stjórnar þættinum.
15.00 í tónsmiðjunni
Atli Heimir Sveinsson sér
um þáttinn.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir
íslenzkt mál
Ásgeir Blöndal Magnússon
cand. mag. talar.
16.35 Létt tónlist.
17.30 Útvarpsleikrit barna og
unglinga:
„Rauða höllin“ eftir Odd
Björnsson
Leikstjóri: Þórhallur
Sigurðsson.
Persónur og leikendur:
Katrfn/ Jóhanna Kirstfn
Jónsdóttir, Gústaf/ Svan-
hildur Óskarsdóttir, mamma
Katrfnar/ Margrét Guð-
mundsdóttir, Kóbrffugl/
Ingunn Jensdóttir, kráka/
Sigurður Skúlason, páfa-
gaukur/ Guðbjörg Þor-
bjarnardóttir, ugla/ Þórunn
Pálsdðttir, fkorni/ Ása
Ragnarsdóttir, fjósakonu-
fugl/ Nfna Sveinsdóttir,
SKJÁNUM
LAUGARDAGUR
2. apríl
16.30 íþróttir
Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.35 Christensens-
fjölskyldan (L)
Danskur myndafiokkur.
2. þáttur. Jóhann verður Ifka
að vinna.
Jóhann byrjar nú f skóla, en
hann þarf að vinna f verk-
smiðju eftir skólatíma, þvf
að faðir hans er drykkfelld-
ur og heldur eftir af kaupi
sfnu fyrir vfnföngum.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
Sögumaður Ingi Kari
Jöhannesson.
(Nordvision — Danska sjón-
varpið)
19.00 íþróttir (Laðhi.)
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Læknir á ferð og flugi
(L)
Gamlir kunningjar bregða á
leik í nýjum, breskum gam-
anmvndaflokki f 13 þáttum.
Þýðandi Stefán Jökulsson.
20.55 Úr einu í annað
Umsjónarmenn Berglind
Ásgeirsdóttir og Björn Vign-
ir Sigurpáisson.
Stjórn upptöku Tage
Ammendrup.
21.55 Slys (Accident)
Bresk bíómynd frá árinu
1967.
Handrit Harold Pinter.
Leikstjóri Joseph Losey.
Aðalhlutverk Dirk Bogarde,
Stanley Baker og Jaequeline
Sassard.
Myndin gerist í háskólahæn-
um Oxford og hefst með þvf,
að ungur maður biður bana f
bílslysi fyrir utan heímili
kennara sfns, en unnusta
hans kemst iífs af.
Þýðandi Krístmann Eiðsson.
23.40 Dagskrácrlok.
stelpur/ Sigurlaug Jónas-
dóttir og Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir, Maja/ Ásdfs
Þórhallsdóttir.
18.00 Tónleikar. Tilkvnningar
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Ekki beinlínis
Böðvar Guðmundsson rabbar
við tvo leikara, Aðalstein
Bergdal og Gest Einar Jónas-
son, um heima og geima.
Hljóðritun frá Akureyri.
20.15 Einleikur á píanó: Jenia
Kren leikur
a. Frönsk svíta nr. 5 f G-dúr
eftir Bach.
b. „Ljósbrot á vatni“ eftir
Debussy.
— Frá útvarpinu í ísrael
20.35 Fornar minjar og saga
Vestri-byggðar áGrænlandi
Gísli Kristjánsson flytur
ásamt Eddu Gísladóttur þýð-
ingu sfna og endursögn á
bókarköflum eftir Jens Ros-
ing — Þriðji þáttur.
21.00 Hljómskálamúsfk frá
útvarpinu f Köln
Guðmundur Gilsson kynnir.
21.35 „Það gerist eitthvað",
smásaga eftir Heinrich Böll
Hrefna Beckmann þýddi.
Sigmundur Örn Arngríms-
son leikari les.
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir
Danslög
23.55 Fréttir. Dagskrárlok.
Klukkan 17.30:
Nýtt barnaleikrit
eftir Odd Björnsson
Á dagskrá útvarpsins í dag
er leikrit fyrir börn og
unglinga klukkan 17.30.
Oddur Björnsson samdi
þetta leikrit og er það hið
fyrsta í flokki fimm
norrænna barnaleikrita og
er hér um að ræða tilraun
útvarpsstöðvanna á
Norðurlöndum til samv-
innu á þessu sviði. Verða
leikritin á dagskrá fimm
næstu laugardaga klukkan
17.30.
Dagskrárfulltúi barna-
og unglingaefnis útvarps-
ins, Gunnvör Braga
Sigurðardóttir, sagði að til-
drög þessarar samvinnu
norrænna útvarpsstöðva
væru þau, að á þingi barna-
og unglingadeildanna, sem
haldið var í Finnlandi árið
1975, urðu miklar umræð-
ur um gerð leikrita fyrir
börn og unglinga og
hugsanlega samvinnu
stöðvanna þar um. Að þeim
umræðum loknum var
ákveðið að hver stöð réði
sér rithöfund til að skrifa
leikrit sem tæki 30 mínút-
ur í flutningi. Efni var
ákveðið að skyldi fjalla um
dag I lífi tíu ára barns.
Frekari ákvarðanatöku var
frestað að sinni, en í marz
1976 var þessari fyrstu nor-
rænu samvinnu útvarps-
stöðvanna um leikrit fyrir
börn settur rammi um gerð
og framkvæmd. Hugtakið
einmana barn var valið til
meðferðar. Til nánari
afmörkunar á hugtakinu
var ákveðið að benda
væntanlegum rithöfundum
á eftirfarandi efni til úr-
vinnslu: 1. Fatlað barn
(t.d. heyrnarskert) 2.
Fyrsta ástin. 3. Einmana
innan hópsins. 4. Einmana
meðal fullorðinna. 5. Vilji
eða þrá eftir seinsemd.
Höfundum voru settar
skorður um hvert form
þeir veldu verkefni sínu
eða hvernig þeir höguðu
vinnu sinni að öðru leyti.
Skilafrestur á handritum
var í september 1976 og að
lokum var ákveðið að
flutningi verkanna yrði
lokió fyrir þing barna- og
unglingadeildanna, en það
verður haldið í Kaup-
mannahöfn nú í vor.
Sú spurning vaknaði á
þinginu í Finnlandi fyrir
tveimur árum hvort bæri
að taka til umfjöllunar í
hinum ýmsu barna- og
unglingatimum efni, sem
væru sérstaklega viðkvæm
eða sár, eða láta þau eiga
sig. Niðurstaðan af þeim
umræðum varð sú, að ekki
væri eingöngu rétt, heldur
bæri deildunum skylda til
að taka til meðferðar og
reyna að sýna myndir úr
lífsveruleika barna, en
hann hlýtur óhjákvæmi-
lega að vera bæði sorg og
gleði og allt þar á milli.
Okkur kann að virðast að
ýmis atvik í lífi barna séu
ekki tilefni stórra til-
finningasveiflna — en
börnum geta þau hin sömu
atvik virzt ekki minna en
stóri dómur. Það sem er
mannfólkinu kannski hvað
frekast sameiginlegt er
vottur af einmanaleika og
börn eru meira einmana en
Oddur Björnsson.
Gunnvör Braga
Sigurðardóttir.
við og eiga þar að auki
óhægara um vik með að
rjúfa einsemd sína en við
og kemur þar einkum
tvennt til. Þau hafa ekki
sömu þjálfun í að tjá sig —
Það fyrsta í f lokki fimm
norrænna barnaleikrita