Morgunblaðið - 02.04.1977, Side 13

Morgunblaðið - 02.04.1977, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. APRlL 1977 13 Nlyndllsl eftir BRAGA ASGEIRSSON efu málverk á Þingvöllum sama daginn, svo sem frægt mun vera, og telst hann einfaldlega vera frá Meðallandi i Desjamýrarsókn og rammíslenzkur langt aftur I ættir. Ég hallast þvi frekar að þvi að telja megi einkenni Báltasar ein- staklingsbundin I þá veru, að hann sé djarfur, fljóthuga og hugnist betur að láta gamminn geysa frekar en að einbeita sér lengi á afmörkuðu tæknisviði og stunda langar setur við sama við- fangsefnið.Þó er hann einmitt persónulegastur og spánskastur, er hann beitir yfirveguðum vinnubrögðum og sýslar ekki um of með liti. Þá nær hann einmitt þeim magnaða dulúðuga blæ, sem maður þekkir svo vel úr spænsku málverki og erfðavenju sem þarlendir listaskólar hafa reynt að rækta á marga vegu og margur haft gott af. Ég á hér við arfinn frá Zurbaran, Murrillo, Goya, E1 Creco, Velasques o.fl.. Baltasar hefur orðið geysivin- sæll hér á landi bæði fyrir mynd- skreytingar i Lesbók og barna- bækur og seinna málverk sín ekki sízt portrett- og hestamyndir. Það er einnig með ólíkindum, hve hann hefur orðið íslenzkur I eðli sínu með árunum og hve rika tilfinningu hann hefur með mörgu þvl sem íslenzkt er. —Fyrri sýning Baltasars að Kjarvalsstöðum greip mig sterk- ari tökum en þessi, sem virðist öllu misjafnari i heildina og lista- mðurinn sýnist renna skeiðið ein- um of geyst. Hann „brillerar" með glæsilegum tæknibrögðum, sem vafalitið taka margan skoð- andann með stormi, en sem eiga sér iðulega ekki djúpar rætur i heildarsamsetningu myndskip- unarinnar, tengjast ekki innri æðum myndflatarins. Baltasar sprengir hið hefð- bundna svið verkefnavals síns með því að mála myndir, er minna á Pop-list, svo sem myndina af íslandi og hestunum („Ljáðu mér vængi“), sem hann kveðst mála vegna hinna mörgu á íslandi, er viljað hafa hefja sig til flugs á listasviði, en háðir voru einangr- uninni, — svo og í uppdrætti af Reykjavík „Vandamál" og mynd- inni „Gjört eftir þríhygningsmæl- ingum hins danska herforingja- ráðs“. Einnig málar hann djarfar nektarmyndir, sem þó eru gjör- samlega lausar við að vera grófar. Portrettmyndirnar eru margar á sýningunni og verða þær mér minnisstæðastar er hann hefur lagt einna mest í frá sjálfum sér, svo sem myndin af Hrafnhildi Sigurðardóttur, er minnir mig mjög á rússneskan 19. aldar realisma, sem enn er i fullu gildi þar eystra, svo og myndin af Arn- hildi Björnsdóttur, sem er eink- um heilleg fyrir það, að hann hef- ur skilið strigann eftir auðann í bakgrunni. Myndirnar af Thor Vilhjálmssyni og Sigfúsi Daða- syni eru hresslega málaðar, enda mótívin malerisk með ágætum, en það verður ekki sagt um allar persónur, sem Baltasar málar, og eðlilega bætir hann það gjarnan upp með litaflóði og tæknibrögð- um. Erfitt á ég með að meta það, hvernig Baltasar notar hvítt til að ná hvellum og sterkum hljóm inn- an í neti sterkra og rikra lita- hljóma — glæsilegt að vísu, en léttkeypt og raskar lita- sem form- gæðum. Hestamyndirnar eru margar, en allfrábrugðnar fyrri hesta- myndum listamannsins. Hann notar hestinn meira sem stiliserað tákn i núverandi vinnu- brögðum sem minna á „skabalónstækni", og virðist hann hér vera á miðri þróunarbraut, sem erfitt er að segja til um hvaða stefnu taki i framtfðinni. I heild er þetta hin hressileg- asta sýning og er óhætt að hvetja leikann sem lærðan að heimsækja hana. Ég vil að lokum minnast á tvennt, er valdið hefur mér um- hugsun og heilabrotum, og það er, hví þessi listamaður rækir ekki betur beztu hliðar listar sinnar — flýti sér hægar — og svo kemur það mér spanskt fyrir sjónir að koma inn á sýningu myndverka, þar sem upphengingin virðist meir miðast við að gefa hliðarat- höfnum rými (dansi og tónlist) en að styrkja og efla sjálf mál- verkin. Heimir Hannesson, formaður Ferðamálaráðs islands, ásamt E.P. Kearney. aðal- framkvæmdastjóra ráðstefnuráðs írska lýðveldisins. væru bókaðar ráðstefnur allt fram til 1981 og er tala gesta tæplega fimmtán hundruð. er með eru taldir smærri fundir. Heimir Hannesson, formaður Ferðamálaráðs sagði, að ráðið kæmi til með að starfa á þeim grundvelli að vera þjónustaðili við þá aðila sem halda ráðstefnur hér á landi. Að lokum var Kearney spurður hverja hann áliti möguleika íslands sem ráðstefnulands. Kvaðst hann állta að núverandi aðstæður i Reykjavík til aðhalda litlar ráðstefn- ur væru sambærilegar við hvaða land sem væri. Hins vegar sagðist hann álíta að hingað til hefði verið gert of litið af þvi að auglýsa landið til ráðstefnuhalds og of litið gert af því að kynna jsland i sliku augna- miði. Tók hann sem dæmi að hingað til hefði hann alltaf heyrt talað um ísland, sem land iss og elda. Hins vegar hefði honum ekki verið kunn- ugt um öræfaferðir inn á hálendi jslands, sem honum þætti mjög freistandi. Ættu islendingar að kynna hina ómenguðu náttúru, sem landið hefur upp á að bjóða. Hátíðarhljómleikar Poljjfónkórsins: Hér fara á eftir inngangsorð, sem Thor Vilhjálmsson, rithöfundur, hefur ritað i söngskrá í tilefni hátíðartón- leika Pólýfónkórs- ins um páskana. Hér er söngur sem gengur til hugar og hjarta, hófstilltur vel og fágaður — andstæður öskrinu, hrekkur undan hark- inu og sigrar það þó. Hvað þýðir orðið polyfon? Fjölhljómandi, raddir sem fléttast, þar ómar allt i sátt; þá verður hver tónn að vera réttur, allar raddir hreinar sér og samstilltar hverri hinna, allt bæði gott sér og samgott. Það er vel að sumir menn láti ekki ötula agenta upp- blásturins og eyðileika tefja för sína og framtak hvað þá hindra, sem jafnan telja úr og tíunda tormerkin við að fram- kvæma djarfar hugsjónir og eru svo fundarglaðir á gatna- mótum og í öldurhúsum og nýtnir á samkvæmistækifær- in til að iðka frádráttarreikn- ing í menningarmati og sam- þykkja fordæmingu á alla viðleitm sem stefnir til hins ómetanlega; sem byggir á fullkomnunardraumnum; sem þráir það sem aldrei verður náð en stefnir þó í þá átt, þrep af þrepi, fet fyrir fet. Þú hóar saman fólki sem þrá- ir með þér hinn hreina tón, hvernig sem þú átt nú að fara að þvi að eignast hann. Þið reynið aftur og aftur, leit- ið, aftur og aftur; við skulum syngja þetta enn einu sinni og reyna að komast aðeins Thor Vilhjálmsson mannshjartans sem er sam- eignararfur þjóðanna, hæverskur erindreki heims- skáldskaparins. Og nú máttu ekki hætta. Þú hefur eignazt hljóðfærið og lært með að fara það sem þó verður aldrei fulllært. í höndum ofurhugans Ingólfs hefur Polyfónkórinn sem hann stofnaði mótaði og stýrir orðið dýrmætt hljóðfæri sem við viljum halda áfram að hlusta á, miðill handa okk- ur til framfærslu á vængborn- um söngerindum skálda sem ortu fyrir allan heiminn og Að þrá hinn hreina tón — eftir Thor Vilhjálmsson, rithöfund riær. Því betur þú syngur því1 strangari er krafan, þrám heitari. Kallarðu þetta ást? Þetta undarlega afl sem kall- ar á það sem býr einhvers- staðar djúpt i þér, þú þekkir það ekki sjálfur, og lætur þig vaxa i stöðugri viðleitm. Til að verða sá sem þig dreymdi, svo þú getir þjónað betur þvi ómælanlega. Suma dreymir að syngja fyrir sina þjóð það sem var ort fyrir heimmn, og svo ertu einn daginn kallaður út i löndm, þú ert farinn að syngja með þeim sem þar voru helzt til þess kjörnir fyrir heiminn þessi erindismál alla tið; auk þess stolt okkar oft á þjóðaþingum með lotn- ingarfullum og hreinræktuð- um söng sinum Ómæld eru áhrif hans þegar órðin á tón- mennt þjóðarinnar á tuttugu ára lífsskeiði kórsins; skyldi söngsmekkur ekki hafa tekið stökk síðan kór þessi hóf starf? Og ekki verður heldur mælt dýrmætið sem felst i yndi þeirra sjálfra sem sungið hafa þar samkvæmt síns hjarta þrá; fyrir okkur sem hlýtt höfum og heyra vildum enn, ’ þökk Polyfónkórnum upphafsmanni hans og fóstra, stjórnandanum Ingólfi Guðbrandssyni. Thor Vithjálmsson. ^HON^ L\ AUÐVELDASTA leióin til tungumálanáms LINGUAPHONE er hentug fermingargjöf. LINGUAPHONE fæst bæði á hljómplötum og kassettum. Vió veitum allar upplysingar, og l^póstsendum hvert á land sem er. Laugauegi 96 simh I 36 56 UMBODSMENN LINGUAPHONE Bókabuðir: Keflavikur-Andrésar Nielssonar Akranesi-JónasarTómassonar isafirói - Þórarins Stefánssonar Húsavik- Tónabúóin Akureyri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.