Morgunblaðið - 02.04.1977, Page 15

Morgunblaðið - 02.04.1977, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. APRÍL 1977 15 hlutfall af fjölda fullnuma prent- ara í hverri prentsmiðju. Fyrsta verk- fallið 1899 Þetta sumar, 1899, var gert verkfall i einni af prentsmiðj- unum í Reykjavík. Að öllum lík- indum var hér um að ræða fyrsta verkfall stéttarfélags á Islandi og stóð það aðeins einn dag, þar sem prentsmiðjueigandinn, sem hlut átti að máli, gekk að öllum kröf- um, sem félagið setti fram. Þetta var í júnímánuði og prentsmiðjan var Aldarprentsmiðjan. En þótt þetta fyrsta verkfall hefði orðið svo velheppnað sem raun bar vitni, tók það félagið sjö ár að öðlast viðurkenningu prent- smiðjueigenda sem samningsaðili fyrir prentara í landinu. í forystu fyrir öðrum stéttarfélögum Eins og segir i upphafi þessarar greinar, hefur Hið íslenzka prent- arafélag jafnan verið í forystu fyrir stéttarfélögum í landinu og oft og einatt hafa prentarar orðið til þess að afla fyrstir aukinna réttinda launþega og félagslegra umbóta. Hér verður nú drepið á nokkra punkta í sögu félagsins. 0 Árið 1908 nær félagið fram vinnutímastyttingu í 9 klukku- stundir, en við stofnun þess var vinnutiminn 12 klukkustundir á dag. 0 Árið 1909 — stofnaður At- vinnuleysistryggingasjóður. 0 Árið 1915 er fyrst samið um sumarleyfi á fullum launum og var það þá 3 dagar. 0 Árið 1918 hefst prentlistar- fræðsla innan stéttarinnar fyrir forgöngu Hallbjarnar Halldórs- sonar. 0 Árið 1920 semur H.I.P. um 8 stunda vinnudag, fyrst íslenzkra verkalýðsfélaga. 0 Árið 1921 er prentlistar- fræði föst námsgrein við Iðn- skólann. 0 Árið 1923 semur félagið í verkbanni um vísitölubætur á laun prentara, og er það í fyrsta sinn í sögu verkalýðshreyfingar- innar að slíkt er gert á Islandi. 0 Árið 1942 næst fram 4ra stunda stytting vinnuvikunnar yfir sumarmánuðina, júní, júlí og ágúst og var aukið við það í samn- ingum næstu árin, eftir þvi sem unnt var hverju sinni. 0 Árið 1944 var samið um að öll aukavinna umfram 3 klukku- stundir yrði greidd með 100% álagi. 0 Árið 1959 semur félagið um Lifeyrissjóð prentara, og skyldu félagsmenn greiða 4% af launum sínum til hans, en atvinnu- rekendur 6%. 0 Arið 1960 er samið um 100% álag á alla aukavinnu án tillits til á hvaða tíma sólarhrings hún er nnin. 0 Árið 1966 semur H.t.P. um 40 stunda vinnuviku í áföngum, fyrst islenzkra verkalýðsfélaga. 0 Árið 1970 verður allt óiðn- lært fólk, sem áður hafði unnið aðstoðarstörf i prentsmiðjum félagar H.Í.P. með fullum félags- réttindum. 0 Árið 1974 semur H.I.P., eftir rúmlega 6 vikna verkfall, m.a. um launajafnrétti ófaglærðs fólks innan prentiðnaðarins. Þá fá konur, sem vinna við aðstoðar- störf í prentsmiðjum sömu laun og karlar, en áður hafði verið töluverður launamunur milli kynja. Þessar tvær myndir sýna glögglega framþróun siðustu ára I prentiðnaði. Annars vegar er setjarasalur Morgunblaðsins með blýsetningu og þeirri prentsvertu, sem þvl fylgdi, en hins vegar er offsetprentsalur blaðsins I sömu húsakynnum. Eignir Hins íslenzka prentarafélags Til þess að tryggja stöðugt verð- gildi sjóða sinna, greip félagið til þess ráðs á árinu 1941, að festa fé sitt að nokkru leyti í fasteignum. Þetta ár keypti félagið jörðina Miðdal i Laugardal með það fyrir augum að nota land hennar fyrir sumarbústaðahverfi. I Miðdals- landi eru nú orlofsheimili félags- ins og sumarbústaðir einstakra félagsmanna. Úthlutar félagið þeim félagsmönnum, sem þess óska, land undir bústaði og reisa þeir sér þá síðan sjálfir. Verður nú á þessu ári lokið við byggingu um 25 bústaða á nýju skipulags- svæði í landareign félagsins og verða bústaðirnir þá alls um 50. Frá því er H.I. P. keypti jörðincj Miðdal hefur ábúandi verið þar, en jörðin er landnámsjörð og hefur verið kirkjustaður frá fornu fari. Sama árið og félagið keypti Mið- dal, festi það einnig kaup á hús- inu Hverfisgata 21 í Reykjavík, en þar eru í dag skrifstofur félagsins, Lífeyrissjóðs prentara Framhald á bls. 27 Ný og fullkomin offset- prentunartæki væntanleg — Rætt við Óla Vest- mann Einarsson, kennara Prentskólans Fyrsti fasti, verklegi skólinn fyrir iðnnema var prentskólinn, sem tók til starfa I Iðnskólahusinu árið 1958 og þá þurftu allir prent- nemar að vera i þeim skóla hluta af námstima sfnum. Kennarar hafa alltaf verið þrir og er Óli Vestmann Einarsson, prentari, sá sem lengst hefur starfað við skólann og kennir þar enn setningu. Aðrir kennarar eru Ástmár Ólafsson sem sór um hönnunardeild og Olgeir Axelsson. prentkennari. Mbl. ræddi stuttlega við Óla og spurði hann um hvað væri á döfinni hjá skólan- um: — Nú er að fara i gang verknáms- skóli fyrir bókiðnaðinn og verða vélakaup fjármögnuð af ríki og Reykjavlkurborg Þá fara nemar í eitt ár í grunnskóla fyrir allar 8 greinar bókiðnaðarins, kynnast öllum grein- unum, og á síðari hluta þess árs velur nemandinn sina sérgrein. Þessar 8 greinar eru bókbandsiðn, offsetiðn, sem skiptist I offset- Ijósmyndun, offsetprentun og offset- skeytingu og plötugerð, prentiðn, sem skiptist I prentun og setningu, og prentmyndagerð, sem skiptist I prentmyndaljósmyndun og prent- myndasmíði — Að undanförnu hefur verið unnið að starfslýsingu fyrir prent- iðnaðinn undir umsjá Benedikts Gunnarssonar, tæknifræðings, og þar er rætt um að e.t.v sé hægt að sameina sumar greinar prent- iðnaðarins, en þær eiga mjög margt sameiginlegt. Út frá þeirri lýsingu er unnið að námsskrárgerð. sem Óskar Guðmundsson, framkvæmdastjóri iðnfræðsluráðs, og Þurlður Magnús- dóttir, fulltrúi, stjórnar. — Þá má nefna að nú stendur fyrir dyrum alger endurnýjun á tækjum skólans og I ráði er að festa kaup á fullkomnustu tækjum til offsetprentunar, en Sveinn Sigurðs- Hallbjörn Halldórsson, yfirprentari, vlgði tæki prentskólans með þvf að setja eftirfarandi: Prentlisi er göfug mennt. prenti(hi vandosamt starf. prentverk þreytandi vinna. Frá pressusal — myndin var tekin fyrir nokkrum árum Samstarf nemenda og kennara er mikið og hér er Oli Vestmann Einarsson að ræða við einn nemanda I setningu son, skólastjóri iðnskólans, hefur sagt að prentiðnin hafi algjöran for- gang um fjárveitingar á þessu ári. Það mun gjörbreyta okkar aðstöðu til kennslunnar, þvl við höfum verið mest upp á náð blaðaprentsmiðj- anna komnir með að kenna á offset- setningartækin. Óli Vestmann Einarsson sagði, að það hefði alla tlð verið mjög gott samstarf milli atvinnulifsins og skólans og tengslin verið náin frá upphafi. Þá sagði hann að I kjara- samningum hefðu alltaf verið ákvæði um endurmenntun og hafa félög prentiðnaðarins haft 4—5 síðustu ár námskeið til endurmennt- unar og þau verið kostnaðarsöm Kvaðst hann vona að iðnaðarráð- herra myndi veita fjármagni til að hægt væri að halda þeim áfram, en tækninni hefur fleygt mikið fram undanfarin ár I öllum prentiðnaði „Tækniþróunin mun tvímælalaust þýða aukna möguleika á alþjóðavett- vangi fyrir grafiska iðnaðinn. Fyrst og fremst munu þessir möguleikar opnast fyrir þá framleiðendur sem fljótastir verða til að laga sig að nýjum markaðsaðstæðum og ráða yfir faglegri þekkingu til að taka hina nýju framleiðslutækni I notkun. Fyrir ýmsa sem ekki ráða við að hagnýta ser hina nýju tækni, en halda áfram að byggja framleiðslu slna á hefðbundnum aðferðum, verður tækniþróunin trúlega alvar- leg hótun þegar fram líða stundir," sagði Óli Vestmann Einarsson að lokum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.