Morgunblaðið - 02.04.1977, Page 20

Morgunblaðið - 02.04.1977, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. APRlL 1977 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. APRtL 1977 21 (Jtgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarf ulltrúi Fréttastjóri Auglýsingasjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthias Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10100. Aðalstræti 6, simi 22480 Áskriftargjald 1100.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 60.00 kr. eintakið. Hlutskipti lífeyris- þega og láglaunafólks Ein alvarlegasta afleiðing þeirrar hrikalegu verðbólgu, sem hér hefur verið nú I bráðum 5 ár er sú, að smátt og smátt hefur munurinn á efnum og Iffskjörum fólks farið vaxandi. Bilið hefur breikkað milli þeirra, sem minnst efni hafa og hinna, sem við bezt efni búa. Óðaverðbólga leiðir til fjárhagslegrar stéttaskiptingar I landinu. Þetta er auðvitað ógnarleg tilhugsun, þvf að öll þróun íslenzks þjóð- félags á þessari öld hefur verið f átt til jöfnuðar og munurinn á Iffskjörum fólks, hvort sem um hefur verið að ræða hfbýli manna, fæði eða klæði, hefur farið minnkandi eftir þvf sem liðið hefur á þessa öld. En nú á sfðari árum hefur þetta farað að breytast á ný og eru það alvarleg tfðindi. Þeir, sem verst eru settir f okkar samfélagi,eru Ifklega verr settir nú af völdum langvarandi óðaverðbólgu en lægstlaunaða fólkið hefur verið um langt skeið og þvf veldur dýrtíðin. Það fólk er Ifklega fleira en menn grunar, sem hefur ekki annað en lífeyrisgreiðslur og tekju- rygginguna frá Tryggingastofnuninni, sem nú nemur milli 40—50.000 kr. á mánuði fyrir hvern einstakling og getur hver sem er sett sig f >por þess, sem þarf að gera tilraun til að lifa af slíkum tekjum. Jafnvel þóttfólkbúi f skuldlausu húsnæði eða jafnvel ódýru leiguhúsnæði sem iveitarfélög hafa útvegað, er með engu móti hægt að ná endum saman með slfkar tekjur. Fyrir allmörgum vikum var viðtal í sjónvarpi við iðnverkakonu, sem hafði um 75.000 kr. á mánuði í laun og fyrir tveimur börnum að sjá. Húsaleigukostnaður þessarar konu mun hafa verið um 30.000 kr. á mánuði, þannig að eftir stóðu 45.000 kr. til þess að greiða annan nauðsynlegan framfærslukostnað. Þessi iðnverkakona <agði, að sfn vegna mætti loka öllum skemmtistöðum, kvikmynda- húsum og Þjóðleikhúsi. Þetta væri veröld sem hún þekkti ekki og hefði engin efni á að kynnast. Það er vonandi ekki margt fólk á tslandi sem þarf að lifa af og sjá fjölskyldu farborða á 75.000 kr. á mánuði. En það fólk er til og það er kannski fleira en þá grunar, sem búa við betri kjör og lifa f þeirri veröld, þar sem leikhúsferð og bfóferð telst til <jálfsagðra hluta. En hvort sem þeir fslendingar eru fleiri eða færri, sem ýmist þurfa að komast af á Iffeyri og tekjutryggingu eða slfku lágmarkskaupi þá er það þjóðfélagi okkar til vansæmdar. Dýrtfðin, hin hrikalega óðaverðbólga, sem hófst á árinu 1973 og hefur ekki tekizt að hemja sfðan nema að takmörkuðu leyti er mesti bölvaldurinn í Iffi þessa fólks og meginástæðan fvrir þvf, hversu kreppt hefur að þvf og hve mikill munur er orðinn á kjörum þess og annarra launþega f landinu. Má sem dæmi nefna, að á sama tfma og iðnverkafólk f Reykjavík hefur 75—80.000 kr. á mánuði f laun eru meðaltalstekjur sjómanna á Vestfjarðatogurum, þ.e. háseta, yfir 400.000 kr. á mánuði, sem þýðir að tekjur yfirmanna á þessum togurum eru að nálgast milljón krónur á mánuði. Hlutskipti lffeyrisþega og láglaunafólks f dag er einhver hrika- legasta afleiðing óðaverðbólgunnar, sem við höfum fyrir augum. Þótt undarlegt kunni að virðast, þá er það nú samt svo, að einmitt þetta sama fólk, sem býr við lægstu launin, reynir að leggja fáeinar krónur til hliðar til þess að skapa sér eitthvert öryggi, m.ö.o. þetta eru sparifjáreigendurnir, sem óðaverðbólgan hefur leikið svo grátt. Þetta er fólkið, sem lánar bönkunum nokkrar krónur til þess að þeir geti lánað út til annarra, en bankarnir borga þessu fólki aftur f minni krónum, þrátt fyrir vaxtahæðina, sem menn eru að býsnast yfir. Það er okkur öllum til vansæmdar, ef ekki tekst að halda þannig á þeim kjarasamningum, sem nú standa yfir, að hlutur þessa fólks verði bættur stórkostlega. En — ef verulegur hluti af þeirri kjarabót, sem hugsanlega verður hægt að tryggja þessu fólki og auka þar með jöfnuðinn á ný I nkkarsamfélagi gengur til annarra verður afleiðingin sú, eins og Morgunblaðið hefur margoft sýnt fram á á undanförnum vikum, að verðbólgan magnast á ný og þá sjá lffeyrisþegar og láglauna- fólk sína sæng uppreidda enn einu sinni. Þess vegna er full ástæða til að ræða það f alvöru að þessu sinni, hvort unnt er að færa niður verðlagið f landinu, hvort unnt er að lækka matvöruverð svo einhverju nemi, þvf að mesta kjarabótin fyrir þá þjóðfélagsþegna sem hér hafa verið gerðir að umtalsefni væri einmitt sú, að takast mætti að lækka verðlag á brýnustu Iffsnauðsynjum almennings. Hér f Morgunblaðinu hefur verið vikið að þvf hvort unnt væri að fella niður söluskatt af fleiri tegundum matvöru en nú þegar hefur verið gert, en svo sem kunnugt er var söluskattur felldur niður af mjólk og mjólkurvörum. Vafalaust eru ýmsir tæknilegir erfiðleikar samfara þvf að lækka eða fella niður söluskatt á öðrum matvörum og e.t.v. er heppilegra að lækka matvöruverðið á öðrum stigum en söluskattsstiginu, það er útfærsluatriði. En kjarni málsins er sá, að matvælakostnaður er orðinn svo gffurlega hár að f raun og veru er ekki hægt að tryggja betur kjarabót til handa láglaunafólki og Iffeyrisþegum en einmitt sú leið að lækka matvöruverð. Þetta er verkefnið sem framundan er: í fyrsta lagi að stórbæta lffskjör láglaunafólks og Iffeyrisþega, en láta aðra bfða betri tfma. t öðru lagi að gera þetta á þann veg, að verðbólgan haldi áfram að skreppa saman en magnist ekki á ný. Ábyrgð þeirra, sem að kjara- samningunum standa og rfkisstjórnarinnar f þessum efnum er mikil. í raun og veru hriktir f undirstöðum samfélags okkar vegna verðbólg- unnar á undanförnum árum. Litlu má muna, að bankakerfið hreinlega hrynji saman vegna áhrifa verðbólgunnar á spariinnlán landsmanna. Ef bankakerfið hefði fengið sama hlutfall f sparifé og árið 1970, hefði það 40 milljörðum króna meira til ráðstöfunar f dag en það hefur. Með sömu þróun verður Iftið eftir af bankakerfinu eftir svo sem fimm ár, svo að dæmi sé nefnt um áhrif og afleiðingar óðaverðbólgunnar. Á Í»EIM tíma, sem núverandi ríkisstjórn hefur setið á valdastóli, hafa framkvæmdir í orkumálum verið miklar. Unnið hefur verið að Sigölduvirkjun og framkvæmdum að ljúka. Þá var hafizt handa um virkjun Kröflu, sem núverandi ríkisstjórn tók í arf frá vinstri stjórn. Ennfremur hefur verið unnið að lagningu hinnar svonefndu byggða- línu vestur og norður um land. Auk þessa hefur núverandi ríkisstjórn heimilað virkjun Hrauneyjafoss, en fram- kvæmdir við þá virkjun munu hefjast á þessu ári og er það leyfi veitt á grundvelli laga, sem samþykkt voru á síðasta valdaári viðreisnarstjórnar. Jafnframt hefur verið unnið að virkjana rannsóknum á Norðurlandi á eldfjallalausu svæði og hefur ríkisstjórnin nýlega lagt fram lagafrumvarp, þar sem óskað er heim- ildar til virkjunar Blöndu. Þetta segir þó ekki alla söguna um framkvæmdir og fyrir- ætlanir á sviði orkumála um þessar mundir. Hitaveitulagning hefur tekið stórstígum framförum á sfðustu tveimur árum og not- hæft heitt vatn hefur fundizt í byggðalögum, þar sem þess var áður ekki von. Ein aðal ástæðan er sú, að þegar í upphafi valdatíma núverandi ríkisstjórnar hafði Gunnar Thor- oddsen orkuráðherra frumkvæði um, að keyptur var til landsins fullkominn jarð- bor, sem borað getur mun dýpra en eldri borar í eigu okkar tslendinga. Þessi nýi bor og stóraukin jarðhitaleit hefur valdið því, að byggðarlög, sem áður áttu ekki von á því að geta fengið hitaveitu fá hana nú og hafa framkvæmdir við lagningu hitaveitu og leit eftir heitu vatni verið mjög miklar á síðustu tveimur árum. Augljóst er, að svo miklar framkvæmdir við virkjun innlendra orkugjafa hafa áhrif á framvindu efnahagsmála og fjármála jafn- framt því, sem þær leggja grundvöll að efnameira þjóðfélagi í framtíðinni. Morgun- blaðið hefur átt viðtal við dr. Gunnar Thor- oddsen orkuráðherra, þar sem fjallað er ítarlega um alla helztu þætti orkumála, rætt um þá gagnrýni, sem fram hefur komið á einstaka framkvæmdaþætti eins og t.d. Kröfluvirkjun og ýmis önnur málefni, sem þetta varðar. Fer þetta viðtal við dr. Gunnar Thoroddsen hér á eftir. Helztu mark- mið í orku- málum — Hver eru helztu markmið núverandi rfkisstjórnar f orkumálum? — í fyrsta lagi ber að nefna það almenna markmið að afla orku og dreifa henni til þess að fullnægja orkuþörf landsmanna til heimilisnotkunar, í framleiðslu og þjón- ustugreinum og auka þannig almenna hagsæld, segir dr. Gunnar Thoroddsen. Hér er átt við raforku til iðnaðar, fiskvinnslu, bú- rekstrar, samgangna og annarra þarfa eftir því sem unnt er. í öðru lagi er stefnt að nýtingu innlendra orkugjafa í sem rfkustum mæli i stað innfluttra. Það verður megináherzlan á nýtingu jarðvarma til húsahit- unar, en rafhitun þar sem jarðvarmi er ekki fyrir hendi. En það er ekki aðeins í húsahitun, sem unnt er að auka notkun innlendra orkugjafa og draga úr hinum er- lendu, heldur eru miklir möguleikar á sviði iðnaðar i verksmiðjum, þar sem olía er nú notuð, en unnt er að nota í staðinn rafmagn, jarðgufu eða heitt vatn. I þessu sambandi er rétt að vekja athygli á því, að orkulindir okkar íslendinga eru töluvert ánnars eðlis en aðalorkulindir erlendis. Vatnsorka og jarðvarmi okkar endurnýjast sífellt. Þetta er ein hringrás. tJrkom- an sfast niður í jarðveginn og kemur upp aftur eftir allmörg ár úr laugum, hverum og borholum. Ég mun hafa komizt svo að orði við lagningu hornsteins Sigöldu, að hverir og fallvötn á íslandi mundu duga meðan rigndi á tslandi og fékk að launum skemmtilega mynd i Morgunblaðinu eftir Sigmund. Þegar við virkjum vatns- föll eða jarðhita erum við ekki að ganga á eða eyða auðlindum okkar heldur hagnýta þær, en náttúran heldur áfram að endurnýja þær. Þessu er öðruvísi farið með kol og olíu. Þar er magnið takmarkað og það tekur milljónir eða tugi milljóna ára að mynda þessi efni að nýju. Að fróðustu manna sögn er nú gengið svo ört á oliubirgðir heimsins, að innan tiu ára megi búast við minnkandi framboði, — minna framboði en þarf til að fullnægja eftirspurn og þar af leiðandi verðhækkun. Með allt þetta í huga þurfum við Islendingar að halda áfram á fullri ferð að virkja vatnsföll og jarðvarma og slaka ekki á, en ennþá er aðeins örlítill hluti þessara íslenzku orkulinda hagnýttur. Sameign heimamanna og rikis fíætt vid dr. Yfir 80% lands- manna fá húsa- hitun með jarð- varma ánæstu árum í þriðja lagi þarf að finna leiðir til orkusparnaðar og til að bæta nýtingu orkunnar. Þetta er unnt að gera með endurbættum framleiðsluaðferðum i atvinnuvegum þjóðarinnar, með betri einangrun húsa, með endurbót- um á dreifikerfi rafmagns viða um land til að draga úr orkutapi. 1 þessu sambandi þarf miklar rannsóknir, tilraunir, og ekki sízt leiðbeiningar til notenda af hálfu rafmagnsveitna. 1 fjórða lagi þarf að undirbúa og velja hagkvæmar virkjanir. Ég tel, að grundvallarstefnan eigi að verða sú að velja bæði stórar virkjanir, en einnig miðlungs stórar og minni virkjanir víðs vegar um landið. Sú stefna að ráðast eingöngu í stórvirkjanir er ekki rétt. Auðvitað verða hinar smærri virkjanir að vera fjárhagslega hag- kvæmar, og margar þeirra eru það lika. Rökin fyrir þvi að stefna ekki eingöngu á stórvirkjanir heldur reisa einnig smærri virkjanir úti um land eru einkum þessi: það er meira öryggi í því að fá rafmagn ekki aðeins eftir löngum háspennulínum, sem liggja oft og tíðum um torsótta f jallgarða og örðugt að gera við i vetrarhríðum, ef eitthvað bilar, — heldur séu einnig rafstöðvar heima fyrir í héruðum, sem tryggja heimilum og atvinnu- rekstri orku, ef háspennulínur bila. Þá er það mikil- vægt mál fyrir byggðastefnuna, jafnvægi í byggð lands- ins, að virkjanir séu allvíða og þá að verulegu leyti í eigu heimamanna. Það skapar atvinnu og umsvif, treystir og styrkir sjálfsvitund fólks, eflir sjálfsforræði byggðarlaganna. Einnig er brýn nauðsyn að reisa rafstöðvar utan hinna eldvirku svæða, en nú eru allar stærstu raf- virkjanir landsmanna við Þjórsá og Tungnaá undir rótum Heklu. Meðal annars með þetta í huga hefur verið lögð á það áherzla að undanförnu að undirbúa virkjun Blöndu f Húnavatnssýslu og Bessastaðaár í Fljótsdal. 1 fimmta lagi er stefnt að nýju skipulagi f orkumálum landsmanna. Það skipulag, sem við búum við nú þarfn- ast endurskoðunar. 1 sumum landshlutum er vel fyrir séð, t.d. á Suð- vesturlandi, þar sem Landsvirkjun, sameignarfyrirtæki rfkis og Reykjavikurborgar hefur það verkefni með höndum að sjá þessum landshluta fyrir nægilegri raf- orku og hefur gert það af fyrirhyggju og myndarskap eins og fyrirrennari hennar Sogsvirkjun áður. En I ýmsum öðrum landshlutum er skipulagi áfátt og oft óljóst hvaða aðili það er, sem á að sjá fólki fyrir raforku eða hvort það er yfirleitt nokkur. Thoroddsen iðnadarráðherra um orkumái ■■ — Hvaða breytingar eru fyrirhugaóar f þessum efn- um? — Við höfum tvær rikisstofnanir, sem báðar hafa unnið mikið og gott starf, Rafmagnsveitur ríkisins og Orkustofnun. Rafmagnsveitur ríkisins hafa annazt raf- væðingu sveitanna og tekið að sér raforkumál á ýmsum þeim stöðum á landinu, þar sem erfiðast er að láta raforkufyrirtæki bera sig. Orkustofnun er vísinda- og rannsóknarstofnun. Verksvið og valdsvið beggja þess- ara stofnana þarf að endurskoða og samræma. Að þvf er varðar skipulag orkumála er það grundvallarskoðun okkar sjálfstæðismanna, að landshlutafyrirtæki, sem verði sameign heimamanna og ríkisins, eigi að hafa mikil áhrif, réttindi og skyldur við uppbyggingu og dreifingu orkunnar. Siðan þarf ríkið að hafayfirumsjón þessara mála og það er nauðsynlegt að skiigreina sem skýrast, hvaða verkefni og hvaða skyldur hver aðili hefur. Þessi stefna um veruleg áhrif og afskipti sveitar- félaganna sjálfra er í samræmi við yfirlýsta stefnu Sambands íslenzkra sveitarfélaga og Samband Islenzkra rafveitna. Þegar ákveða þurfti, hvernig skyldi staðið að endurskoðun á skipulagi orkumála var sú leið valin að skipa fyrst nefndir fyrir hina einstöku landshluta til þess að kanna hug heimamanna og viðhorf til slíkra sameignarfyrirtækja, þar sem sveitarfélögin og rikið væru aðilar að. Að þvi er Norðurland varðar, hafði slík athugun verið gerð i tíð fyrrverandi orkuráðherra, Magnúsar Kjart- anssonar, en málin strönduðu m.a. vegna þess, að hann setti skilyrði, að rfkið ætti a.m.k. 50% slíkra fyrirtækja. Eftir stjórnarskiptin 1974, þegar þessar landshluta- nefndir hófu störf sín, lét ég þær og forráðamenn landshlutasamtaka vita, að slik krafa væri ekki lengur neitt skilyrði heldur gæti vel komið til greina og gæti stundum verið æskilegt að sveitarfélög ættu meirihluta. Þetta breytta viðhorf greiddi mjög fyrir þessari könnun og tilraun til að koma á slíku samstarfi. Orkumálanefnd Vestfjarða, undir forystu Þorvalds Garðars Kristjáns- sonar alþingismanns, skilaði fyrir réttu ári mjög itar- legri greinargerð og tillögum um orkubú Vestfjarða. Allir nefndarmenn voru þar á einu máli og allar sveitar- stjórnir á Vestfjörðum studdu málið. Lög um orkubúið voru samþykkt á Alþingi sl. vor og hefur siðan verið lögð mikil vinna í að undirbúa formlega stofnun orku- búsins, og að þvf stefnt, að það geti orðið á næstunni. Þær nefndir, sem fjölluðu um Norðurland og Austur- land hafa einnig skilað tillögum og greinargerð og eru þær til nánari athugunar. I öðrum landshlutum eru nefndir einnig starfandi. Þegar þessi undirbúnings- vinna var þannig alllangt komin, þótti tímabært að skipa nefnd til þess að endurskoða orkulögin í heild og gera tillögur um heildarskipulag orkumála. Sú nefnd er fyrir nokkru tekin til starfa. Um þessi mál vil ég svo segja það að lokum, að skipuiag orkumála þarf gagn- gerðrar endurskoðunar við og það er von min, að þessi víðtæka endurskoðun leiði til endurbóta og til nýs skipulags, senj byggt verði á samstarfi rikis og sveitar- félaga og verði að verulegu gagni I orkumálum þjóðar- innar. — Hvernig er háttað skipulagi og eignaraðild hita- veitna og hvernig snertir það skipulag orkumála f heild? — Ailar hitaveitur á Islandi eru f eigu sveitarfélag- anna, án þess að ríkið sé þar meðeigandi nema i einu tilviki, sem er Hitaveita Suðurnesja. Þar eiga sveitar- félög 60%, en ríkið 40%. Ástæðan er sú, að þar sem ríkið er eigandi flugvallarins, sem er á þessu veitu- svæði, var talið æskiiegt og eðlilegt, að ríkið kæmi inn sem meðeigandi. Var þetta sameiginlegt álit sveitarfél- aganna og ríkisvaldsins. — Nú stendur yfir úttekt á orkumálum okkar er ekki svo? HEILDSOLUVERÐ RAF0RKU LÆGRA EN í FLESTUM LÖNDUM EN ÚT- SÖLUVERÐ MEÐ ÞVÍ HÆSTA A N0RÐURLÖNDUM — Jú það þótti nauðsynlegt að stofna til heildarút- tektar á orkubúskap þjóðarinnar. Það verk var hafið fyrir tveimur árum og vinna að því sérfræðingar á vegum iðnaðarráðuneytisins f samstarfi við áætlana- deild Framkvæmdastofnunar ríkisins. Einn þáttur þessa starfs er að finna þjóðhagslega hagkvæmustu leiðir til að sinna orkuþörf einstakra landshluta og landsins í heild. Sem dæmi um vinnubrögðin má nefna að athugaðir voru allir raunhæfir kostir varðandi full- nægingu orkuþarfar Vestfjarða áður en orkunefnd Vestfjarða skilaði tillögum sínum. Einnig hefur verið gerð skýrsla um orkumál Norðurlands svo og sundurlið- uð skýrsla um allt upphitað húsnæði i landinu til þess að geta metið orkuþörf til húshitunar á hinum ýmsu stöðum. Er nú unnið að úttekt á orkumálum Austur- lands með svipuðum hætti og á Vestfjörðum. — Er það sjálfsögð stefna að tengja alla landshluta saman f eitt kerfi? Ég tel rétt að stefnt verði að því að tengja sem flest veitusvæði á landinu saman á næstu árum. Þessi teng- ing er líka nauðsynleg öryggis vegna, ef bilanir verða. En ekki sízt er bætt nýting aflstöðvanna með slikri samtengingu. Erfiðleikar vatnsaflsstöðva á vissum árs- tímum þjaka ekki allar stöðvar á sama tíma. Álagstopp- ar eru heldur ekki samferða alls staðar á landinu og þvi er samtenging virkjana gagnleg til bættrar nýtingar orkunnar. 60% olfa — Hvernig er hlutfallið nú á milli notkunar inn- lendra orkugjafa og erlendra orkugjafa? — Nú er séð fyrir um 60% af orkuþörf iandsmanna með olíu. Það er þvi ákaflega mikilvægt viðfangsefni að hraða svo sem verða má þeim verkefnum, sem draga úr oliunotkun og leiða þannig til sparnaðar á dýrmætum gjaldeyri. I því efni er það fljótvirkast og stórtækast að hraða hitaveituframkvæmdum víðs vegar um landið og er kannski rétt að gefa nokkra mynd af því, sem gerzt hefur í þeim efnum á sl. tveimur árum. Eftir stjórnarskiptin var lögð á það sérstök áherzla að auka jarðhitaleit og boranir eftir heitu vatni. Á síðasta ári hafa t.d. verið framkvæmdar jarðeðlisfræðilegar mælingar og aðrar forrannsóknir á fjölmörgum stöðum. Hitastigulsboranir, þ.e. grunnar holur til að kanna hita í berggrunni og hvernig hann stígur eftir þvi sem neðar dregur, hafa verið framkvæmdar á 15 stöðum á landinu á sl. ári, en þessar boranir auka mjög vitneskju um jarðhitalikur á hinum ýmsu stöðum. Þá var lögð á það áherzla að auka mjög borkostinn og voru keyptir á árinu 1975 tveir nýir borar til landsins, gufuborinn Jötunn, sem er stórvirkasti bor okkar og getur borað 3lA km niður í jörðina og borinn Narfi, sem báðir hafa komið að stórmiklu gagni á þessum tveimur árum. Á sl. ári var borað fyrir Akureyri við Laugaland í Eyjafirði með þeim góða árangri, að þar hafa fengizt 100—150 sekúndulítrar, sem er um helmingur af núver- andi vatnsþörf Akureyrar til hitunar. I þessu sambandi er athygiisvert, að i þeirri áætlun, sem fyrrverandi iðnaðarráðherra lagði fyrir Alþingi vorið 1974 um hugs- anlegar hitaveitur í fyrirsjáanlegri framtíð, var Akur- eyri ekki talin eiga möguleika, heldur yrði þar að nota rafmagn til húsahitunar. í þeim áætlunum var gert ráð fyrir, að 66% lands- manna mundi geta orðið aðnjótandi hitaveitu. Með þeim auknu rannsóknum og borunum, sem fram hafa farið á siðustu tveimur árum hefur sú breyting orðið á, að talið er, að yfir 80% landsmanna muni á næstu árum geta fengið húsahitun með jarðvarma. Auk þæginda fyrir fólkið sjálft er þetta afar mikilvægt fyrir gjald- eyrisstöðu þjóðarinnar. Sem dæmi um þann árangur, sem þegar hefur náðst má nefna, að notkun disiloliu til húsahitunar hefur farið minnkandi. Árið 1974 voru notuð 141 þús. tonn af olíu til húsahitunar, árið 1975 134 þús. tonn og 1976 lækkaði þetta magn i 111 þús. tonn. Annað dæmi má nefna um gjaldeyrissparnað af hitaveitu: Hitaveita Reykjavíkur sparar þjóðinni 4 mill- jarða í gjaldeyri miðað við það, að olía væri notuð til húsahitunar í Reykjavík. Þegar Hitaveita Suðurnesja er fullgerð mun gjaldeyrishagnaður af henni nema, um einum milljarði króna. Raforku- verðið — Ef við snúum okkur þá að raforkuverðinu heyrist tvenns konar gagnrýni. I fyrsta lagi, að raforkuverð sé alltof hátt hér miðað við raforkuverð á hinum Norður- löndunum og hefur nýlega verið birtur verðsamanburð- ur við Danmörku f þeim efnum. 1 öðru lagi er þvf haldið fram, að raforkuverðið til álversins og málmblendi- verksmiðjunnar f Hvalfirði sé of lágt og vegna þessa lága raforkuvers til stóriðjufyrirtækja verði almennir neytendur að greiða þeim mun hærra verð. Hvað vill orkuráðherra segja um þetta? — Þegar rætt er um raforkuverð þurfum við að greina sundur heildsöluverð og smásöluverð, segir dr. Gunnar Thoroddsen. Hér á landi er framleiðslukostnað- ur virkjana og heildsöluverð lægra en i flestum löndum öðrum nema Noregi, en Norðmenn virkjuðu verulegan hluta af sinni vatnsorku á fyrri hluta þessarar aldar; þeir njóta nú góðs af þeim lága virkjunarkostnaði og þvi, að búið er að greiða niður verulegan hluta stofn- kostnaðar. Aðstaða okkar íslendinga til virkjana er mjög hagstæð. Við höfum marga virkjunarmöguleika, þar sem framleiðslukostnaður er tiltölulega lágur. Á þetta bæði við um vatnsaflsvirkjanir og jarðgufu- virkjanir. 1 hópi hagstæðustu virkjana nú eru Sigalda, Hrauneyjafossvirkjun og Blanda og framleiðslukostn- aður Kröfluvirkjunar er hliðstæður við þessar vatns- aflsvirkjanir. Fjölmargar aðrar virkjanir hér á landi munu reynast svipaðar að kostnaðarverði, s.s. Dettifoss- virkjun, Fljótsdalsvirkjun og vafalaust margar fleiri. Framleiðslukostnaður og heildsöluverð hjá Lands- virkjun er mjög hagstæður vegna þess, að Landsvirkjun nýtur eldri virkjana, þriggja í Sogi og Búrfellsvirkjun- ar. Þegar litið er þvf á heildsöluverð raforku er það fyllilega sambærilegt við það, sem annars staðar gerist. En allt annað verður uppi á teningnum, þegar kemur að smásöluverði. Smásöluverð eða útsöluverð raforku er með því hæsta, sem gerist á Norðurlöndum. Það er eðlilegt, að landsmönnum þuki það undarlegt, að smásöluverð raf- magns skuli hér á landi vera fjórum sinnum hærra en heildsöluverð eða jafnvel meira. Hverjar eru orsakirn- ar? Ég skal nefna hér fáeinar. Dreifikerfi raforku á íslandi er dýrt vegna víðáttu landsins, fjallgarða og strjálbýlis. Ríkissjóður tekur veruleg gjöld, i fyrsta lagi aðflutningsgjöld af efni í dreifikerfið. Hins vegar hafa virkjanir og háspennulínur I sambandi við þær jafnan verið undanþegnar tollum. 1 öðru lagi er 20% söluskatt- ur af rafmagni og 13% verðjöfnunargjald, sem er notað upp í reksturskostnað Rafmagnsveitna ríkisins. Enn- fremur er nýting orkuvera hér á landi ekki eins hag- kvæm og víða annars staðar, þar sem orkuver eru öll samtengd. Það koma hér margar fleiri ástæður til. Þetta mál þarf að kanna ofan í kjölinn og reyna að finna leiðir til þess að minnka þetta mikla bil milli smásöluverðs og heildsöluverðs. Á síðasta miðsvetrarfundi Sambands íslenzkra rafveitna hreyfði ég þessu máli og fór fram á það, að sambandið tæki að sér að rannsaka og sundur- greina hinar raunverulegu ástæður til þessa ástands, gera um það álitsgerð og tillögur. Samband íslenzkra rafveitna hefur þegar lagt mikla vinnu í athugun á gjaldskrám og mun væntanlega vinna vel að þessu verkefni. En hvað sem öðru líður er ljóst, að fjárþörf rikisins er hér nokkur þröskuldur I vegi. — Hver eru rökin fyrir hinu lága raforkuverði til stóriðjufyrirtækja og hvaða skýring er á þvf, að Islenzk iðnfyrirtæki, sem þurfa að framleiða gufu svo dæmi sé nefnt hafa t.d. komizt að þeirri niðurstöðu að ódýrara sé að nota olfu til þess heldur en raforku? — Stóriðjufyrirtækin fá raforku við vægu verði og á það bæði við um Álverið, Áburðarverksmiðjuna og Sementsverksmiðjuna. En ýmis meðalstór iðnfyrirtæki verða að nota erlenda orkugjafa, einkum olíu, t.d. til Framhald á bls 22. Fyrri hluti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.