Morgunblaðið - 02.04.1977, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. APRlL 1977
Hættu vid að ræða frekar
utanríkis- og öryggismál
Nýr útíbús-
stjóri í
Garðabæ
BANKARAÐ Búnaðarbanka Is-
lands hefur ráðið Ilalldór Ólafs-
son, deildarstjóra verðbréfadeild-
ar bankans, útibússtjóra við útibú
bankans f Garðabæ, þar eð Svavar
Jóhannsson, sem gegnt hefur
starfi útibússtjóra frá stofnun
útibúsins 3. september s.l., hefur
að ósk bankastjórnar tekið að sér
að gegna starfi skipulagsstjóra
bankans.
Hinn nýi útibússtjóri, Halldór
Ólafsson, er fæddur 6. marz 1928.
Halldór varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1950.
Hann hóf starf i Búnaðarbanka
íslands þann 1. október 1953 og
hefur verið deildarstjóri verð-
bréfadeildar bankans frá árinu
1965._______
Ályktanir Iðju:
Fæðingar-
orlof í
almanna-
tryggingar
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning:
Aðalfundur Iðju, haldinn í
Lindarbæ 30. marz 1977, krefst
þess að fæðingarorlof verði
tekið inn í hið aímenna
tryggingakerfi landsmanna, en
ekki greitt úr atvinnuleysis-
tryggingasjóði.
Einnig krefst fundurinn
þess að allri mismunun í þessu
verói hætt og allar konur fái
greitt fæðingarorlof án tillits
til tekna eða hjúskaparstéttar.
Bætið
skilyrði
iðnaðar
Morgunblaðinu hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning
frá Iðju, félagi iðnverkafólks:
Aðalfundur Iðju, haldinn í
Lindarbæ 30. marz 1977, krefst
þess af ríkisstjórn og Alþingi,
að islenzkum iðnaði verði búin
sömu skilyrði í lán- og vaxta-
málum og öðrum undirstöðuat-
vinnuvegum þjóðarinnar.
Fundurinn minnir á, að
íslenzkum iðnaði er ætlað að
taka við meginhluta af því
vinnuafli, sem við bætist á
íslenzkum vinnumarkaði á
komandi árum.
— Nýtt póst-
númerakerfi
Framhald af bls. 2.
að póstnotendur kynni sér efni
hennar og þær leiðbeiningar sem
þar er að finna.
Það hefur verið áætlað, að til
þess að pöstnúmer komi að full-
um notum þurfi um 60—70% af
öllum póstsendingum að vera með
póstáritun. Þegar því marki er
náð, má gera ráð fyrir að slíkar
póstsendingar njóti forgangs
viðflokkun.
Helsingfors, 1. aprfl.
Frá Pétri J. Eirfkssyni.
ÞÓ AÐ utanrfkismál hafi ekki svo
teljandi sé skotið upp koilinum I
almennum umræðum á þingi
Norðurlandaráðs f dag, hafa þau
verið þvf meir til umræðu á göng-
um og hliðarherbergjum f þing-
húsinu hér f Helsingfors. Sam-
kvæmt upplýsingum þingfulltrúa
ætluðu nokkrir fulltrúar að feta f
fótspor finnska kommúnistans
Aarne Saarinens og gera utanrfk-
is- og öryggismál að umræðuefni
á þinginu. Vfsuðu þeir f þvf sam-
bandi til þess fordæmis, sem þeir
álitu forsætisnefnd ráðsins hafa
sýnt f Kaupmannahöfn f fyrra
með yfirlýsingu sinni um fisk-
veiðideilu Breta og Islendinga, en
samkvæmt hefð hefur Norður-
— Leyfir ekki
frekari búsetu
Framhald af bls. 40
brigðisráðs Hafnarfjarðar. Sagði
hann að hjá þvi yrði ekki komizt
að öllum iðnaði fylgdi einhver
mengun og væri stefnan sú að
reyna að minnka þá mengun eins
og mögulegt væri. Benti hann á að
um þessar mundir gengi maður
undir mannshönd við að reyna að
finna út að allt væri ómögulegt
við áliðnaðinn, en hins vegar væri
minna um þetta talað þegar ekki
fiskaðist eins vel og nú, bæði af
þorskfiski og loðnu.
Ragnar sagði að álverinu hefði
verið boðið að kaupa land og
mannvirki nálægt verksmiðjunni,
en það væri ekki þeirra mál, því
ríkið hefði á sínum tíma samið um
málið við Alusviss og Hafnar-
fjarðarbær hefði lagt til land und-
ir fyrirtækið án kvaða um skaða-
bætur.
Sagði Ragnar að á sama tíma og
verið væri að slá fram ýmsum
fullyrðingum um mengunarhættu
og menn teldu jafnvel að álverið
ætti að kaupa allt landið í kring
um verksmiðjuna þá væri búið að
ákveða að setja fullkomnustu
hreinsitæki sem völ væri á í verk-
smiðjuna og væri reiknað með að
því verki yrði lokið á þremur og
hálfu ári, en í lok næsta árs kvað
hann verkið myndu verða langt
komið. Taldi Ragnar að við þessa
framkvæmd, sem vissulega hefði
dregist lengur en æskilegt hefði
verið, myndi mengun af völdum
verksmiðjunnar minnka um allt
að 90—95%. Þá benti Ragnar á
það að von væri á mengunarsér-
fræðingi til landsins frá Noregi,
manni sem hefði unnið við þessi
mál lengi og kæmi á vegum ríkis-
ins. Taldi hann ástæðu til þess að
fá álit þessa sérfræðings á þeim
atriðum sem fjallað væri um í
fréttatilkynningu Heilbrigðisráðs
Hafnarfjarðar, en hún fer hér á
eftir:
Á fundi hjá Heilbrigðisráði
Hafnarfjarðar 23.3. 1977 greindi
Pétur Sigurjónsson, forstöðumað-
ur Rannsóknarstofu iðnaðarins,
frá þvi að með tilliti til loft-
streymis og veðurfars í kringum
álverksmiðjuna í Straumsvík gæti
undir vissum kringumstæðum
komið fram-jafnmikil eða meiri
mengun í andrúmsloftinu í næsta
nágrenni staðarins en finnst inni
á starfsvæðinu inni í kerskálun-
um.
Þetta tilkynnist hér með þeim
sem hlut eiga að máli og ekki
hefur þegar náðst til.
Með skírskotun til þessa álykt-
aði Heilbrigðisráð að það gæti
ekki leyft frekari búsetu í næsta
nágrenni staðarins.
Eins og fyrr er varað við berja-
tínslu i næsta nágrenni álversins
og ber að skola öll ber og allt
kálmeti vel úr vatni fyrir neyslu.
Mælst hefur verið til við Heil-
brigðiseftirlit ríkisins að þegar
farið verður í mælingar á mengun
á andrúmslofti I kerskálanum þá
fari jafnframt fram ámóta könn-
un á lofti í næsta nágrenni álvers-
ins m.a. með tilliti til væntanlegr-
ar starfrækslu hafnar og hugsan-
legra iðnaðarumsvifa á svæðinu.
landaráð ekki fjallað um utanrfk-
ismál.
Ragnhildur Helgadóttir sagði
Morgunblaðinu að hópurinn mis-
túlkaði greinilega yfirlýsingu for-
sætisnefndarinnar, ef hann ætl-
aði að bera fyrir sig umræðum um
öryggismál. Öryggismál væru
ekki til umræðu f Norðurlanda-
ráði að ósk Finna og af þeirri
eðlilegu ástæðu að löndin hefðu
valið mismunandi leiðir til lausn-
ar þessara mála.
„Um yfirlýsingu forsætisnefnd-
arinnar í fyrra gegnir allt öðru
máli,“ sagði Ragnhildur. „Hún
snerti vissulega utanríkismál, en
mál sem snertir ekki aðeins Is-
lendinga eða Norðurlönd mis-
munandi, heldur öll Norðurlönd-
in. Fiskveiðar eru mikilvægar alls
staðar á Norðurlöndum og Norð-
urlöndin, ekki sízt Norðmenn,
Danir, Færeyingar og Álendingar
eiga í svipaðri baráttu fyrir
verndun fiskimiða sinna. Þau ut-
anrfkismál, sem svo horfir við
um, eru Norðurlandaráði ekki
óviðkomandi, en slfkt gildir ekki
um öryggismál.“
Það varð því ekki af þvf að
öryggismálin yrðu tekin frekar
upp, nema hvað nokkrir þingfull-
trúar itrekuðu þá skoðun, að
Norðurlandaráð fjallaði ekki um
öryggismál.
Kekkonen, forseti Finnlands,
hélt i dag hádegisverðarboð fyrir
40 leiðandi stjórnmálamenn, sem
sæti eiga á þinginu, þar á meðal
ráðherra og meðlimi forsætis-
Flestir
prentarar
leggja nið-
ur vinnu
Kaupmannahöfn, 1. apríl NTB
PRENTARAR við flest dag-
blöð I Danmörku lögðu niður
vinnu í nótt, og segir Ritzau-
fréttastofan að þeir ætli ekki
að snúa aftur til starfa fyrr en
deila prentara og útgáfufyrir-
tækisins Det Berlingske Hus
hefur verið leyst.
— Brazilía
Framhald af bls. 1.
sem þingið hafnar. Gert er ráð
fyrir að þingið komi saman eftir
rúman mánuð eða svo. Þetta er í
fyrsta skipti síðan 1968 að svo
alvarleg stjórnmáladeila kemur
upp í landinu, en það ár var þing-
ið leyst upp í 9 mánuði. Herfor-
ingjastjórnin í Brazilíu hefur nú
verið við völd í landinu síðan
1964, er Joao Goulart forseta var
steypt úr stóli með hervaldi.
— Bandaríkja-
menn
Framhald af bls. 1.
hann mjög ánægður með ummæli
Carters nýlega, þar sem hann
lýsti stuðningi sínum við að
Palestfnumenn fengju eigið land-
svæði.
Sadat flýgur til Frakklands á
morgun, laugardag, og til Banda-
rfkjanna á sunnudag.
— Bygginga-
nefnd
Framhald af bls. 2.
endurhæfingu þeirra húsa, sem
nú standa á Bernhöftstorfunni.
Þessi húsaröð er eina heillega
húsasamstæðan í Reykjavík frá
þessum tfma. Hún er ómetanleg
fyrir umhverfi Stjórnarráðs og
Menntaskóla og órofa hluti þess
fjölbreytta umhverfis og sér-
kenna bórgarinnar sem við
teljum rétt að vernda.
nefndarinnar. Það vakti athygli
manna, að Kekkonen tók Oddvar
Nordli, forsætisráðherra Noregs,
afsfðis og ræddust þ'eir einslega
við drykklanga stund. Leikur eng-
inn vafi á þvf að gagnrýni Saarin-
ens á Norðmenn og nærvera for-
setans meðan Saarinen hélt ræð-
una hafi verið til umræðu og að
Kekkonen hafi fullvissað Nordli
um að ekkert samband hefði verið
milli komu sinnar til þingsins og
orða Saarinens.
Almennum umræðum var hald-
ið áfram í morgun og talaði einn
íslenzku fulltrúanna, Halldór Ás-
grfmsson, en skýrt er frá ræðu
hans annars staðar í blaðinu. Því
næst var fyrirspurnatími og kom
ekkert fram í honum sem varðar
Islendinga beint.
— Rússar saka
Framhald af bls. 1.
niður fjölda vopna, sem ógnað
gætu eldflaugastöðvum Sovét-
ríkjanna á landi. Brezezinski
endurtók ummæli Carters, þrátt
fyrir neitun Grómýkós í gær, að
það kynni að vera að Rússar væru
að leika sama leikinn og á árun-
um eftir 1960, er þeir höfnuðu
fyrst takmörkunum á gagneld-
flaugakerfum, en féllust síðan á
þær. Hann sagði að stóryrði Gró-
mýkós um að alít hefði veriö eyði-
lagt, sem búið hefði verið að
byggja upp, gæfu til kynna að
Sovétmenn væru eitthvað í varn-
arstöðu því að þeir hefðu alltaf
litið á sig um helztu boðbera af-
vopnunarstefnunnar í heiminum.
Brezezinski lagði að lokum
áherzlu á að bæði Brezhnev og
Carter hefðu lagt áherzlu á að
samningaviðræður héldu áfram
og því væri ekki rétt að segja að
gersamlega hefði slitnað upp úr
viðræðunum.
Vestrænir stjórnmálafréttarit-
arar segja að hin opna stefna
Carters Bandaríkjaforseta í utan-
ríkismálum hafi neytt Rússa til að
hverfa frá fyrri stefnu sinni um
algera Jeynd yfir viðræðum við
erlendar ríkisstjórnir. Er þetta í
fyrsta skipti síðan 1964 á dögum
Kruschevs, að háttsettur sovézkur
embættismaður kallar erlenda
fréttamenn á fund sem þann, er
haldinn var I gær. Segja fréttarit-
arar að ummælum Grómýkós hafi
greinilega verið beint að sovézk-
um áheyrendum, sem fengu að
sjá allan fundinn I sjónvarpi,
skömmu eftir að honum lauk og
óvanir eru að heyra leiðtoga sína
tala svo hreinskilnislega, berja í
borðið og þar fram eftir götunum.
- Sanjays
Framhald af bls. 1.
sóknar á þessum málum. Singh
sagði að enn hefði ekki verið
ákveðið með hverjum hætti rann-
sóknin færi fram, en að hann gæti
fullvissað þingmenn um að þessi
mál væru mjög ofarlega á verk-
efnalista rikisstjórnarinnar.
Þingmaður Janata, K. Gupta,
sagði í ræðu í þinginu að Sanjay
hafði freklega misnotað sér
aðstöðu sína á valdatimum móður
sinnar og hefði meðal annars
fengið keypt 445 ekra land í
Haryanafylki undir verksmiðj-
una, langt undir markaðsverði.
Sagði Gupta, að Bansa Lal, sem þá
var forsætisráðherra Haryana,
hefði lagt blessun sina yfir kaup-
in. Birfreiðaverksmiðja þessi átti
að framleiða 50 þúsund bila á ári,
en slík fjöldaframleiðsla byrjaði
aldrei og var hafin þar annar at-
vinnurekstur, m.a. smíði þunga-
vinnuvéla.
— Halldór
Framhald af bls. 19
hagsmunir hafa áhrif á og stjórna
efnahagslífinu. Þau eru vandamál
dagsins í dag og morgundagsins
Það er þvi eðlilegt, að mikil
áherzla sé lögð á slíka samvinnu.
Norðurlandaráð á að finna og
skipuleggja leiðir til samvinnu og
ætti að ná aðilum vinnumarkaðar-
ins á Norðurlöndum meira inn í
samstarfið.
Það eru margir hagsmunahópar,
sem hafa áhrif á efnahagslífið.
Meiri samvinna á milli þessara
hópa yfir landamærin eykur
eflaust möguleika okkar á að finna
réttar lausnir. Verzlun, útflutning-
ur og innflutningur eru meðál
þess, sem mikilvægast er fyrir
efnahagslif eins lands. Verzlunin á
milli Norðurlandanna er mikil, en
gæti haft verulega þýðingu fyrir
annað. Þess vegna verðum við að
vinna saman og taka tillit hver til
annars, ef við viljum auka við-
skiptin.
— Jón Skaftason
Framhald af bls. 19
kvæma þessar hugmyndir. Til
þessa þarf bæði fjármagn og
rannsóknir en að hvoru tveggja
höfum við aðgang. Eg vil þvi
leggja til að fundur ráðsins beini
því til ráðherra nefndarinnar að
hún undirbúi án tafar fram-
kvæmd tíu ára áætlunar um
aukna framleiðslu matvæla úr
fiskafurðum til að mæta þörfum
þróunarlandanna. Við skulum í
þessu sambandi minnast þess að
okkar velferð og öryggi verður til
langframa aðeins tryggð í frið-
sömum og réttlátum heimi," sagði
Jón Skaftason aðlokum.
— Rætt við dr. Gunnar
Thoroddsen
Framhald af bls.21
gufuframleiðslu til eigin nota, vegna þess að rafmagns-
verð er of hátt. Að því hefur verið unnið að undanförnu
að finna leiðir til þess að iðnfyrirtæki geti fengið
raforku við samkeppnisfæru verði.
Það sem mestum erfiðleikum veldur í þessu tilliti, er
hinn stutti nýtingartími aflsins hjá flestum islenzkum
iðnfyrirtækjum. Tökum sem dæmi verksmiðju, þar sem
eingöngu er unninn venjulegur vinnutimi og hún þarf
gufu til starfseminnar. Nýtingartími aflsins hjá verk-
smiðju þessari væri 2000—2200 klst. á ári ef álagið væri
jafnt allan vinnutimann, og berum þetta saman við 8000
klst. notkunartíma hjá stóriðjufyrirtækjunum sem
starfa allan ársins hring. Vegna mismunandi aflþarfar á
venjulegum vinnudegi getur þó nýtingartimi aflsins
farið niður í 1000 klst. á ári eða neðar.
Orkunotkun iðnfyrirtækja er mjög margbreytileg og
þarf sérstakrar athugunar við í hverju einstöku tilviki
og að undanförnu hafa ýmis fyrirtæki verið athuguð
með það i huga að leita ráða til þess að minnka
aflþörfina og auka nýtingartima aflsins þannig að raf-
orkan geti keppt við olíu hvað framleiðslukostnað ork-
unnar snertir.
Landsvirkjun hefur þegar boðið hagkvæm kjör I
þessu skyni, en með vissum skilyrðum sem varðar
móttöku orkunnar hjá kaupanda og heimildir seljanda
til að rjúfa straum á mestu álagstímum. En hér komum
við einnig að mikilvægum skipulagsatriðum. Sveitar-
félögin þyrftu að haga skipulagi sínu þannig, að á sama
svæði væri gert ráð fyrir iðnfyrirtækjum, sem þurfa á
mikilli orku að halda. StG.