Morgunblaðið - 02.04.1977, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. APRÍL 1977
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Arnarnes Arnarnes
Okkur vantar
blaðburðarfólk
í Arnarnesið strax.
Talið við afgreisluna í Garðabæ sími
42988 eða í Reykjavík sími 101 00
fMtogniilrlfifeife
Skrifstofustörf
Stúlka vön vélritun og almennum skrif-
stofustörfum óskast til starfa sem fyrst hjá
innflutnings og iðn fyrirtæki.
Umsóknir með uppl. um aldur, menntun
og fyrri störf sendist Mbl. fyrir 6. apríl
merkt: F — 4862.
Landssamband iðnaðarmanna óskar eftir
að ráða
viðskiptafræðing
eða lögfræðing
til starfa við miðlun upplýsinga og ráðgjöf
fyrir aðildarfélögin.
Æskilegt er að viðkomandi hafi nokkra
starfsreynslu. Nánari upplýsingar gefur
framkvæmdastjóri sambandsins á skrif-
stofu þess, Hallveigarstíg 1, Reykjavík.
Umsóknir er greini menntun, aldur og
fyrri störf sendist fyrir 1 4 apríl n.k.
Bifvélavirki —
Meirapróf
Bifvélavirki með meirapróf og rútupróf
óskar eftir framtíðarstarfi í Reykjavík eða
nágrenni. Nánari uppl. veitir viðkomandi
sunnudaginn 3. apríl í síma 1 3495.
Fasteignasala
Lögmaður, með skrifstofur í miðborginni,
óskar eftir félaga við stofnun og rekstur
fasteignasölu. Æskilegt að viðkomandi
hafi starfsreynslu. Reglusemi áskilin Til-
boð sendist Morgunblaðinu fyrir 6. apríl
merkt: Sölustjóri —
Smurbrauðs-
dama
óskast
Hjúkrunar-
fræðingar
Hjúkrunarfræðinga vantar nú þegar til starfa á flestar deildir
Borgarspitalans. Hlutavinna kemur til greina. Einnig vantar
hjúkrunarfræðinga til sumarafleysinga.
Smurbrauðsdömu vantar að Hótel Borg,
eða stúlku sem hefur áhuga á slíku starfi
og vill kynna sér þau nánar.
Upplýsingar veitir hótelstjóri.
Mjólkurfélag
Reykjavíkur
óskar eftir að ráða
a. Starfsmann, helst með Búnaðarskóla-
menntun og/ eða þekkingu á fóðurvör-
um.
b. Sölumann. Viðkomandi þarf að geta
starfað sjálfstætt við innkaup og sölu á
landbúnaðartækjum. Ensku og dönsku-
kunnátta æskileg.
Allar frekari uppl. eru veittar í skrifstof-
unni.
Mjólkurfélag Reykjavíkur,
Laugavegi 164.
Sjúkraliðar
Sjúkraliða vantar til sumarafleysinga á Borgarspítalann. Upp-
lýsingar á skrifstofu forstöðukonu í síma 81 200.
Reykjavík, 1. apríl 1977.
BORGA RSPÍTAUNN
Einkaritari
Flugleiðir h.f. óska eftir að ráða Einkarit-
ara framkvæmdastjóra sem fyrst. Starfið
felzt m.a. í bréfaskriftum og skjalavörzlu.
Viðkomandi þarf að geta vélritað eftir
segulbandi á íslenzku og ensku. Starfs-
reynsla er æskileg.
Umsóknareyðublöð fást á aðalskrifstofu
félagsins og á söluskrifstofu Lækjargötu
2.
Umsóknir sendist starfsmannahaldi fyrir
6. apríl n.k.
Flugleiðir H. F.
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Útgerðarmenn
Höfum fyrirliggjandi nokkrar vandaðar
þorskaneta-rúllur.
Velsmiðja Kristjáns Gíslasonar h. f.
Ný/endugötu 15. Reykjavík.
símar: 19105 og 18120.
Eyrarbakki
Sjálfstæðisfélag Eyrarbakka heldur aðalfund félagsins sunnu-
daginn 3. apríl kl. 1 7 að Stað á Eyrarbakka.
Aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Alþingismennirnir Ingólfur Jónsson og Steinþór Gestsson
mæta á fundinum.
Stjórnin.
Málfundafélagið Óðinn heldur stórglæsilegt
Bingó,
n.k. mánudagskvöld 4. apríl, kl. 20.30.
Spilaðar verða 1 4 umferðir.,Margir eigulegir vinningar í boði.
Aðálvinningur 20 þúsund kr. vöruúttegkt eftir eigin vali, eða
staðgreitt ef þess er óskað.
Stjórn Óðins.
Háskólar og æðri menntun
Landsmálafélagið Vörður _
samband félaga Sjálfstæðismanna I hverfum Reykjavikur
boðar til raðfunda og ráðstefnu um menntamál i mars, april og
mai.
Þegar hefur verið fjallað um grunnskólann, fjölbrautarskólann
og framhaldsskóla en á næstunni verða fundir um einstaka
aðra þætti menntamálanna.
Að lokum verður efnt til pallborðsráðstefnu, þar sem rætt
verður um efnið: SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN OG MENNTA-
MÁLIN og ennfremur rædd frekar einstök efnisatriði er fram
hafa komið á raðfundunum.
Á þriðja fundinum sem haldinn verður
mánudaginn 4. aprll kl. 20.30 i Val-
höll, Bolholti 7 (fundarsal í kjallara),
verður fjallað um háskóla og æðri
menntun.
Frummælandi: Halldór Guðjónsson,
dósent.
Almennar umræður og fyrirspurnir.
Mánudaginn 4. april — kl. 20.30 —
Valhöll, Bolholti 7.
Stjórn Varðar.
Sjálfstæðiskvennafélagið
Edda Kópavogi
heldur fund að Hamraborg 1, 2. hæð mánudaginn 4. apríl kl.
20:30.
Dagskrá.
1. Kosning á landsfund.
2. Bingó
3. Veitingar.
Allir velkomnir.
Listi vegna leikhúsferðar liggur frammi. Stjórnin.
Bolungarvík
Sjálfstæðiskvenfélagið Þuriður Sundafyllir heldur adalfund
mánudaginn 4. april kl. e.h. að Sólbergi.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosinn fulltrúi á landsfund.
Stjórnin
Hvöt, félag
sjálfstæðiskvenna
heldur kökubasar í Sjálfstæðishúsinu Bolholti 7, 2. apríl n.k.
kl. 2 e.h.
Stjórnin.
Framhaldsaðalfundur
Málfundarfélagsins Sleipnis Akur-
eyri, verður i sjálfstæðishúsinu litla
sal, laugardagínn 2. april kl. 14.
Pétur Sigurðsson, alþingísmaður
ræðir um atvinnu og launamál
Stjórnin.
Hafnarfjörður
Sjálfstæðiskvennafélagið Vorboði heldur kökubazar i Sjálf-
stæðishúsinu i Hafnarfirði, laugardaginn 2. april kl. 3. Konur
sem vilja gefa kökur eru vinsamlega beðnar að koma þeim i
Sjálfstæðishúsið, milli kl. 1 1 og 2 þann sama dag.
Stjórnin.
Smáibúða , Bústaða- og Fossvogshverfi
Viðtalstímar
Albert Guðmundsson, borgarfulltrúi
verður til viðtals að Langagerði 21,
(Kjallara) laugardaginn 2. april frá kl.
14.00 — 16.00.
(búar þessara hverfa eru velkomnir
með fyrirspurnir og ábendingar, sem
leitast verður við að leysa úr.
Stjórn félags Sjálfstæðismanna i
Smáibúða- Bústaða- og Fossvogs-
hverfi.