Morgunblaðið - 02.04.1977, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUG ARDAGUR 2. APRlL 1977
27
milljarða dala á þessu ári og um
svipaða upphæð á næsta ári.
Heildarlækkunin nemur þó að-
eins um 1% af brúttó þjóðarfram-
leiðslu, sem er of litið til að auka
nokkuð á verðbólguna á þessu
stigi málsins. Hins vegar er ekki
að búast við miklum ef þá nokkr-
um árangri I tilraunum til að
draga úr verðbólgunni í náninni
framtíð.
Ef skattalækkunin verður ekki
meiri en fyrirsjáanlegt er má
búast við þvi að peningastefna
muni auka á örfandi áhrif henn-
ar. Það er gagnstætt því sem varð
1975, þegar takmörkun peninga-
magns leiddi til hærri vaxta og
dró úr árangri af þensluaukandi
skattastefnu. Gera má ráð fyrir að
vextir hækki aðeins litið á þessu
ári, þannig að skammtima vextir
hækki um 1 % eða meira yfir árið
en lagntímavextir miklu minna.
Það er ljóst að efnahagslegur
uppgangur á sér nú stað í Banda-
ríkjunum og að hann mun halda
sænjilegum hraða á þessu ári og
næsta. Raunframleiðsla 1977
verður líklega 5 til 5.5% meiri en
í fyrra og almennt verðlag hækk-
ar liklega um 5.5 til 6%. Þróun
efnahagsmála verður því nokkuð
hagstæð í Bandarikjunum i ár.
Höfum kaupendur að eftirtöldum verðbréfum.
VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI RÍKISSJÓÐS:
Kaupgengi pr, kr. 100.-
1966 2. flokkur 1619 35
1967 1. flokkur 1522.36
1967 2. flokkur 1512.51
1968 1 flokkur 1322.22
1968 2. flokkur 1243.77
1969 1 flokkur 929.29
1970 1. flokkur 855.1 7
1970 2 flokkur 663.58
1971 1. flokkur 595.27
1972 1 flokkur 518.85
1972 2. flokkur 447.79
1973 1 flokkur A 347 98
1973 2. flokkur 321 65
1974 1 flokkur 223.40
1975 1. flokkur 182 64
1975 2. flokkur 139 38
1976 1 flokkur 132 65
1976 2 flokkur 107.72
VEÐSKULDABRÉF:
1 — 3ja ára fasteignatryggð veðskuldabréf með hæstu vöxt-
um. (20% — 36% afföllum)
HLUTABRÉF:
Flugleiðir HF Sölutilboð óskast.
Höfum seljendur að eftirtöldum verðbréfum:
1972 A 390 95 (10% afföll)
1974 D 254 00 (10% afföll)
1974 F 179 48 (10% afföll)
HLUTABRÉF:
Almennar tryggingar HF Kauptilboð óskast
PJÁRPUTinGARPCMC ÍAflDDI Hft
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
Lækjargötu 12 - R (Iðnaðarbankahúsinu)
Sími20580.
Opið frá kl. 1 3.00 til 1 6.00 alla virka daga.
Sadat rædir fridarhorfur í
Bonn, París og Washington
ANWAR Sadat, forseti Egypta- framhald friðarviðræðna milli tlminn til að finna sanngjarna
lands, hóf i dag viku ferð sína til
Vestur-Þýzkalands, Frakklands
og Bandaríkjanna, þar sem hann
ræðir við stjórnmálaleiðtoga,
meðal annars um friðarhorfur f
Mið-Austurlöndum. Er ferð for-
setans I beinu framhaldi af um-
fangsmiklum viðræðum leiðtoga
Arabarikjanna að undanförnu
um sameiginlega stefnu varðandi
— Elzta
stéttar-
félag
landsins
áttatíu
ára . . .
Framhald af bls. 15
og bókbindara og Félagsheimili
prentara og bókbindara.
Stjórn H.Í.P.
í dag
Stjórn félagsins nú er þannig
skipuð. að formaður er Ölafur
Emilsson, en með honum í stjórn
eru: Hermann Aðalsteinsson,
varaformaður, Pétur Agústsson,
ritari, Guðmundur Á. Grétarsson,
gjaldkeri og meðstjórnendur
þeir: Ölafur Björnsson,
Sæmundur Arnason og Hafsteinn
Hjaltason. Varastjórn skipa:
Jóhannes Eiríksson, Hilmar
Karlson og Sveinbjörn Kr.
Stefánsson.
Félagið hefur frá árinu 1910
gefið út málgagn sitt, Prentarann.
Starfsemi H.t.P.
í dag
Stjórn Hins íslenzka prentara-
félags efndi til blaðamanna-
fundar nú i vikunni til þess að
kynna félagið á þessum tíma-
mótum þess. Ólafur Emilsson, for-
maður félagsins, sagði við það
tækifæri, að félagið hefði mjög
góð samskipti við önnur stéttar-
félög í landinu. Það væri eitt af
aðildarfélögum Alþýðusambands
Islands og hefði raunar verið
meðal stofnenda þess. Félagið
tekur þátt í starfsemi sambands-
ins enda þótt Félag íslenzka
prentiðnaðarins, sem er við-
semjandi félagsins, sé ekki innan
Vinnuveitendasambands Islands.
Þá er félagið aðili að
Alþýðubankanum og Lista-
skála alþýðu, en hvað varðar er-
lend samskipti hefur félagið verið
aðili að Alþjóðasambandi prent-
ara frá 1930 og það gekk í Sam-
band norrænna prentiðnaðar-
manna á árunum 1969 til ’70 en
það samband sameinaðist á síðast-
liðnu ári Nordisk Grafisk Union,
sem er samband allra prent-
iðnaðarfélaga á Norðurlöndum,
en hlutverk þess er að fá aðildar-
félögin til þess að vinna saman,
samræma baráttumál og styrkja
hvert annað í fjárhagslegu eða
menningarlegu tilliti. Þá er og
tilgangur félagsins að veita félög-
unum gagnkvæman stuðning í
verkföllum og verkbönnum með
varasjóði, sem til þess er stofn-
aður. Af sjóðfénu skal einnig
kosta norrænar ráðstefnur og ef
til vill sameiginlega fræðslustarf-
semi.
ÍJtgáfustarfsemi
félagsins
Útgáfustarfsemi Hins íslenzka
prentarafélags er nokkur. Áður
er getið Prentarans, en i tilefni 75
ára afmælis félagsins' fyrir 5
árum gaf það út hugvekjur Hall-
bjarnar Halldórssonar, sem að
sögn Ólafs Emilssonar var ein-
hver merkasti. félagsmaður sem
verið hefur innan H.Í.P. Félagið
gaf út Prentaratal árið 1955 og á
Áraba og Gyðinga. Þá eru viðræð-
urnar I Bonn, Parls og Washing-
ton framhald viðræðna, sem utan-
rfkisráðherrar landanna þriggja
hafa átt við Sadat forseta f Kafró
hver I sfnu lagi undanfarið.
Talið er að Sadat muni i viðræð-
um sínum í höfuðborgunum
þremur leggja áherzlu á þá skoð-
un sina, að nú sé einmitt rétti
siðastliðnu ári kom út Bóka-
gerðarmannatal í sambinnu við
önnur bókagerðarfélög. Félagið á
gott bókasafn, sem geymt er i húsi
þess við Hverfisgötu.
Framtíð
félagsins
Ólafur Emilsson, formaður
H.I.P., gat þess á blaðamanna-
fundinum að undanfarin ár hefði
verið starfandi nefnd skipuð full-
trúum frá bókagerðarfélögunum
þremur, H.I.P., Bókbindarafélagi
Islands og Grafíska sveinafélag-
inu. Hlutverk nefndarinnar er að
finna grundvöll fyrir sameiningu
þessara þriggja félaga og kvaðst
Ólafur vonast til að lausn fengist
á því máli von bráðar. Undan-
farin ár hefur aðalfundur H.I.P.
ávallt samþykkt að stefnt skyldi
að þessari sameiningu.
Sameining sem þessi er ekkert
séríslenzkt fyrirbrigði, þar sem
bókagerðarfélög um alla Evrópu
hafa verið að sameinast. Nú er
svo komið að bókagerðarfélög
hafa enn ekki verið sameinuð í
eitt félag í aðeins þremur Evrópu-
Iöndum. Löndin eru ísland, Dan-
mörk og Sviss. I Sviss er unnið að
sameiningu félaganna, en í Dan-
mörku hefur svo um samizt að
sameining á að taka gildi um ára-
mótin 1978 til '79. Ólafur kvaðst
vonast til að sameining tækist
hérlendis innan tveggja ára. Sam-
eininguna kvað hann nauðsyn-
lega.
Tæknivandamál
félagsins
Formaður H.I.P. sagði að
vandamál félagsins vegna örrar
tækniþróunar í prentiðnaði væru
mikil. Hann kvað félagið myndu
þurfa að eiga náið samstarf við
t.d. Blaðamannafélag Islands,
Félag íslenzkra auglýsinga-
teiknara og fleiri aðila utan þess-
ara félaga. Vandamálið kvað hann
vera, að þessi félög hefðu ekki
áorkað því að ná samstöðu um að
halda prentgripaframleiðslu
innan sinna marka. Þess vegna
kvað hann samstarf þessara aðila
nauðsynlegt.
Ólafur Emilsson kvað Finna ef
til vill komna lengst á þessari
braut. Þessi félög í Finnlandi
hafa myndað með sér samstarfs-
nefnd sem einnig spannar
útvarpsmenn, radiotæknimenn
o.fl. og tryggir þessi nefnd
atvinnuöryggi þessara starfshópa.
Hann kvað tækniþróunina á síð-
ustu árum hafa verið þá, að fram-
leiðendur prentvéla hafa i æ rík-
ari mæli hafið framleiðslu véla,
sem eru svo ódýrar og henta til-
tölulega litlum fyrirtækjum, að
þessir aðilar eru nú í sífellt aukn-
um mæli færir um að prenta sitt
prent sjálfir. Þetta eru aðilar,
sem hafa fjármagn handa milli
og kaupa þessi tæki.
Prentiðnaóurinn hefur ekki
sinnt þessu nægilega hér á ís-
landi, sagði Ólafur, og nú vakna
prentsmiðjueigendur skyndilega
við þann vonda draum, að þeir
eru að missa af öllu smáprenti og
prentsmiðjur landsins standa nú
uppi með aðeins viðamestu prent
verkefnin, svo sem eins og Sima-
skrá og annað slíkt. Prent-
smiðjurnar eru nú hins vegar af
veikum mætti að kaupa slík tæki.
Hér kvað Ólafur hið opinbera
þurfa að grípa í taumana — ef
ekki eigi að fara illa fyrir bókaút
gáfu á tslandi — með þjóð, sem
stært hefur sig af því um fjölda
framtíðarlausn á deilum Araba og
ísraela, en i þeirri lausn verði að
felast réttlát ákvörðun um vanda-
mál Palestinu-Araba.
I Bonn er liklegt að Sadat itreki
þá skoðun sina að fulltrúum
Vestur-Þýzkalands beri að taka
þátt I umræðum um frið i Mið-
Austurlöndum, en einnig er lik-
Framhald á bls. 31
ára að vera einhver mesta bóka-
þjóð veraldar. Nauðsynlegt væri
að hafa vel menntaða bókagerðar-
menn við framleiðslu bóka. Þvi
má prentsmiðjurnar ekki skorta
rekstrarfé og ekki má slaka á
prentmenntun og endurmenntun
prentara.
Kjarabaráttan
framundan
Hið íslenzka prentarafélag
sagði upp gildandi kjarasamn-
ingum við prentsmiðjueigendur
hinn 17. marz siðastliðinn og lýsti
um leið fyrir stuðningi við kröfur
Alþýðusambands Islands. Það
hefur mótað sérkröfur sinar, sem
ganga út á það að þeir, sem hafa
lægstu launin, fái verulegar
kjarabætur, en að auki eru kröfur
um atriði, sem önnur félög hafa
þegar náð fram í samningum.
Ólafur Emilsson sagði að bóka-
gerðarmenn á Islandi væru nú
verr launaðir en starfsfélagar
þeirra i nágrannalöndunum.
Hann nefndi sem dæmi að fær-
eyska prentarafélagið hefði fyrir
nokkru haft samband við H.Í.P.
til þess að spyrjast fyrir um kaup-
taxta. Ólafur sagði að fulltrúi fær-
eysku prentararina hefði verið
undrandi er hann heyrði kaup-
taxtatölur héðan, 25 þúsund
króna vikukaup með yfirborgun,
en sambærilegar tölur frá Fær-
eyjum kvað hann vera rúmlega 45
þúsund krónur. Hafa ber í huga,
sagði Ólafur, að við Islendingar
þurfum að vinna mun lengri
vinnudag til þess að hafa mann-
sæmandi laun en aðrir.
Ólafur kvað þróun launamála
prentara vera þannig að í bóka-
iðnaði og prentiðnaði væri ísland
nú orðið láglaunaland.. Forlög i
Noregi og í Færeyjum láta nú
prenta í æ rikari mæli bækur á
Islandi og kvað hann þetta orðið
að verulegu vandamáli innan
hinna norrænu samtaka, sem
H.I.P. ætti aðild að. Ólafur kvaðst
nýlega hafa staðið í því að byggja
yfir sig hús og kvað hann þær
greiðslur, sem hann hafi þurft að
inna af hendi til iðnaðarmanna í
byggingariðnaði hafa sannfært
sig um, hve langt bókagerðar-
menn hefðu dregizt aftur úr
iðnaðarmönnum almennt, einkum
þeim er ynnu ákvæðisvinnu. Það
kom hins vegar fram á fundinum,
að á öðrum áratugnum bannaði
H.I.P. félagsmönnum sínum að
vinna ákvæðisvinnu.
Á árinu 1976 fluttust 5 prent-
arar úr landi, vegna þess, hve
prentiðn er illa launuð — kom
fram á fundinum með stjórn
H.l.P. Langflestir þessara prent-
ara fluttust til Svíþjóðar. Frá
áramótum nú hafa þrír prentarar
flutzt utan og aðrir þrír eru á
förum.
Félagar i Hinu íslenzka prent-
arafélagi eru í dag um 400 talsins,
þar af á bilinu 70 til 90 óiónlærðir
félagsmenn. I tilefni afmælisins
verður afmælishóf félagsins
haldið að Hótel Borg, sunnu-
daginn 3. apríl — á morgun — og
er félagsmönnum og fjölskyldum
þeirra, svo og velunnurum félags-
ins þar boðið til kaffdrykkju.
Hófið hefst klukkan 15.30 , en á
undan verður kvikmyndasýning i
Fjalakettinum(áður Tjarnar-
bíó). Þar verður sýnd kvíkmynd
af för prentara að Hólum í Hjalta-
dal og jafnframt úr 50 ára
afmælishófi félagsins og kvik-
mynd frá landi félagsins, Miðdal i
Laugardal. Einnig er verið að
leggja lokahönd á sérstakt
afniælisrit. sem kemur nú út i
aprilbyrjun.