Morgunblaðið - 02.04.1977, Síða 30

Morgunblaðið - 02.04.1977, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. APRlL 1977 BRANDUR BJARNASON lézt 30. marz. JarSarförin auglýst slðar. Eltsa Jónsdóttir Lilja Brandsdóttir Bryndts Brandsdóttir Bjami Brandsson. Eiginkona min, móðir, tengdamóðir og amma GUÐBJÖRT EINARSDÓTTIR lézt á Egilsstaðaspítala 31 mars s.l. Jón Eirtksson Einar Eirtksson Guðmundur Sigurðsson og barnabörn. t Faðir minn EINAR HELGASON, Vlðimel 21, Reykjavtk, lézt I Landsspitalanum 30. marz. Guðni Einarsson Etsku litla dóttir okkar og systir MARÍA ANNA Háholti 1, Keflavtk léztá Landsspltalanum 24 mars. Jarðarförin hefur farið fram. Eltnrós Eyjólfsdóttir Sigurður Jónsson Ásdts Elva Sigurðardóttir Jón Sigurðsson. + Útför móður okkar INGIBJARGAR GUÐMUNDSDÓTTUR, frá Patreksfirði, Drápuhltð 42. fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 5. aprtl kl. 1.30. Ingibjörg Jónsdóttir, Jón Jónsson, Kristfn Jónsdóttir, Valgeir Jónsson, Guðmundur Jónsson, Krístján Jónsson. + Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi EGILL RAGNARS Fálkagötu 3, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudag 4 aprll kl 3 e.h Sigrtður Ragnars Guðrún Ragnars Guðjohnsen Stefán Guðjohnsen Egill Ragnars Guðjohnsen Sigurlaug R. Guðmundsdóttir. Sigrtður Guðjohnsen Jakob Guðjohnsen Stefán Gunnar Guðjohnsen + Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför JÓHÖNNU STEFÁNSDÓTTUR frá Raufarhöfn. Sigrfður og Björn Önundarson og fjölskylda. + Þakka öllum þeim, sem veittu mér samúð og hluttekningu við andlát og útför eiginmanns mtns, ÍVARS H. JÓNSSONAR Sléttahrauni 15. Hafnarfirði. Serstakar þekkir vil ég færa fyrirtækinu Hlaðbæ h.f. fyrir veitta aðstoð Esther Haraldsdóttir. Þórunn Þórólfsdótt- g ir — Minningarorð A Fædd 8. 9.1930 Dáin 26. 3.1977 Þórunn fæddist að Stóru- Breiðuvikurhjáleigu í Helgustaða- hreppi Suður-Múlasýslu. Þar bjuggu þá foreldrar hennar Mekkin Guðnadóttir og Þórólfur Kristjánsson. Hún var yngst fjögurra systkina. Aðeins tveggja ára gömul missti hún föður sinn. Systir hennar Jóhanna var þá tekin í fóstur af hjónunum Jónínu Stefánsdóttur ljósmóður og Guðna Eiríkssyni að Karlskála í sömu sveit. Móðir Þórunnar var mikil dugnaðarkona, þó ekki væri hún há I loftinu og hélt hún áfram búskapnum. Það hefur eflaust verið erfitt fyrir hana með þrjú smábörn, þvl engin voru þægindin og engar vélar til að létta fólkinu störfin I þá daga. Tengdafaðir hennar, Kristján Eyjólfsson, bjó þá hjá henni, en hann lést ári síðar. Skömmu slðar verður Mekkín enn fyrir mikilli sorg, er hún missir einkason sinn Guðna, sem var elsta barn hennar og sem hún eflaust hefur bundið miklar vonir við. Árið 1935 bregður Mekkln búi og flyst með dætur slnar tvær Guðrúnu og Þórunni að Vöðlum I Vaðlavík. Þar var Þórarinn bróðir hennar bóndi og þar bjuggu einnig fleiri systkini hennar. A þeim árum var stórbýli á Vöðlum á þeirra tlma mælikvarða og heimilið mjög mannmargt. Systurnar alast þarna upp meðal margra ættingja og vöndust fljótt öllum algengum sveitastörfum. Á styrjaldarárunum jókst mjög fólksflóttinn úr sveitum landsins og náði sá flóttí einnig til Vaðla. Smám saman flyst flest fólkið á brott og brátt eru ekki aðrir eftir en þær mæðgur og Þórarinn. Guðrún fór einnig fljótlega að heiman, er hún hafði aldur til, en Þórunn bjó á Vöðlum i mörg ár hjá móður sinni og frænda. Eftir því sem aldurinn færðist yfir þau systkinin kom þá æ meira I hennar hlut að sjá um búreksturinn. Hún var þaulvön smalamennsku og æfð í að klifra kletta. Margar ferðir hefur hún farið i Gerpi, eh þar eru brattar skriður, klettabelti og viða hengiflug í sjó fram. Þórunn var mjög natin við dýr og gerði ailt sem hún gat til að þeim gæti liðið sem best, enda voru öll dýr vinir hennar. Árið 1967 bregður Þórarinn búi og þær mæðgur flytjast með honum til Eskifjarðar. Það hafa eflaust verið þung spor fyrir þau, en ekki var annað að gera þar sem fyrirsjáanlegt var að búskap yrði fljótlega hætt á þeim eina bæ, sem þá var enn i byggð I Vaðlavík fyrir utan Vaðla. Auk þess voru þau systkinin orðin gömul og lasburða. Á Eskifirði keyptu þau lítið hús Hátún og þar bjuggu þau þrjú saman þar til Þórarinn andaðist árið 1970 og þær mæðgur siðan eftir hans dag. Eftir komuna til Eskifjarðar fór Þórunn að vinna i frystihúsinu og þar vann hún á meðan heilsan leyfði, eða þangað til I ársbyrjun 1976. Húsbændur hennar fengu fljótt traust á henni og fólu henni vandasöm störf. Á Eskifirði gekk hún I Kvenfélagið og Slysavarnafélagið og starfaði hún mikið fyrir bæði þessi félög enda var hún ákaflega viljug og vildi allt fyrir alla gera. Snemma á siðasta ári gekkst hún undir höfuðaðgerð á Borgar- spitalanum. Því miður hlaut hún engan bata og byrjandi lömun jókst smátt og smátt. Nokkru eftir aðgerðina fór hún austur á Eski- fjörð. Hún hafði áhyggjur af móður sinni og hugðist annast hana einsog áður. En þróttur hennar var þrotinn og hún var fljótlega flutt í sjúkrahúsið á Nes- kaupstað og þaðan að Reykjalundi og þar dvaldi hún síðustu mánuðina. Hún var þá mjög mátt- farin og átti erfitt með allar hreyf- ingar. Hún var þvi mjög upp á hjúkrunarfólkið komin, en slíkt var andstætt eðli hennar, hún kunni betur við að snúast í kring- um aðra heldur en að láta aðra snúast í kringum sig. Hún andaðist á Landspítalanum 26. mars s.l., en þangað hafði hún verið flutt dauðvona viku áður. Þórunn saknaði alltaf sveitar- innar, enda hafði hún dvalið þar öll sín æskuár. Hún talaði oft um Vaðlavíkina með sínum grösugu grundum og fagra fjallahring. Hún var greind og fróðleiksfús, en því miður átti hún ekki kost á neinni skólamenntun umfram barnaskóla. Þó ekki væri hún gömul var samt öll aðstaða til menntunar erfiðari á uppvaxtar- árum hennar en nú er, einkum í afskekktum sveitum. Menntunar- skortinn bætti hún upp með lestri góðra og fróðlegra bóka. Skömmu áður en hún veiktist bað áhuga- maður um örnefnasöfnun hana um að gera fyrir sig skrá um örnefni i landi Vaðla. Henni gafst ekki tími til þess fyrr en eftir að hún veiktist. Af meðfæddri þraut- seigju og dugnaði hófst hún handa, þótt þrótturinn væri ekki meiri en svo að hún rétt gat haldið á blýanti. Ég fékk að sjá þessa skrá og undraðist ég mjög yfir þeim aragrúa af örnefnum sem hún þekkti. Því miður entist henni ekki aldur til að ljúka þessu verki og er hætt við að einhver örnefni hafi farið með henni í gröfina. Þórunn var mjög þakklát öllum þeim sem gerðu henni eitthvað gottt og heimsóttu hana i veikindum hennar. Hún var einnig afar þakklát starfsfólkinu á Reykjalundi, sem annaðist hana af miklum dugnaði við erfiðar aðstæður. Um leið og ég kveð Þórunni frænku mína vil ég votta móður hennar og systrum mína dýpstu samúð og ég bið guð að styrkja þær í sorg sinni. Ingibjörg Vigfúsdóttir. Aðalfundur Kvenrétt- indafélags íslands Á aðalfundi Kvenréttinda- félags íslands, sem nýlega var haldinn, afhenti Þórunn Valdimarsdóttir, formaður Verkakvennafélagsins Fram- sóknar, K.R.F.Í. 25 þúsund krónur að gjöf í tilefni 70 ára afmælis þess. Sagði hún m.a. að Framsókn ætti K.R.F.Í. tilveru sina að þakka og vildi sýna þakklætisvott fyrir lífgjöfina, en Verkakvennafélagið var stofnað fyrir tilstuðlan Kvenn- réttindafélgsins 25. okt. 1914. Sólveig Ólafsdóttir var endurkjörin formaður, aðrar I stjórn eru Björg Einarsdóttir, varaformaður, Ásthildur Ólafs- dóttir, Aðalheiður Bjarnfreðs- dóttir, Brynhildur Kjartans- dóttir, Erna Ragnarsdóttir, Gerður Steinþórsdóttir, Kristín Guðmundsdóttir, Guðrún Gísla- dóttir, Þóra Brynjólfsdóttir, Júlíana Signý Gunnarsdóttir og Guðrún Sigriður Vilhjálmsdótt- ir. Guðný Helgadóttir, fyrrv. for- maður, og Anna Sigurðardóttir, forstöðumaður Kvennasögu- safns Islands voru kjörnar heiðursfélagar og á fundinum voru fluttar skýrslur frá nor- rænni ráðstefnu og alþjóða- þingi kvenna, er tveir stjórnar- menn höfðu setið. Þá var hafin söfnun til minningar um stofn- anda félagsins er mun standa út árið. I frétt frá K.R.F.Í segir að framundan sé mikið starf og sérstaklega sé brýnt að bæta Starfsaðstöðuna að Hallveigar- stöðum og nauðsynlegt sé að gera fjáröflunarátak í því sam- bandi. Frá vinstri Anna Sigurðardóttir, Guðný Helgadóttir og Sólveig Ólafsdóttir við útnefningu heiðurs- félaga- Ljósmyndari: Kristinn Benediktsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.