Morgunblaðið - 02.04.1977, Síða 33

Morgunblaðið - 02.04.1977, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. APRIL 1977 33 félk í fréttum + Stundum finnst okkur aó ttskuhúsin hafi endaskipti á árstfðunum. Núna þegar vorið nálgast og margir eru sjálfsagt farnir að hugsa fyrir sumar- fatnaðinum sýna tfskuhúsin I Parfs haust- og vetrartfskuna fyrir næsta vetur. Japanski tfskuhönnuðurinn Issey Miyake sýndi nýlega þennan volduga vetrarfrakka á tfsku- sýningu f Parfs. + Danski forsætisráðherrann Anker Jörgensen hefur gefið ræður sfnar út f bókarformi. Þessi mynd var tekin f Illum þar sem forsætisráðherrann ritaði nafn sitt á bókina fyrir kaupendur. Aftur á leiksviðinu + Kirk Douglas hefur ekki leikið á leiksviði síðan árið 1963 er hann lék aðalhlut- verkið f „Gaukshreiðrinu" á Broadway Kirk Douglas hefur nú snúið aftur til leik- hússins og leikur um þess- ar mundir í „One man show" um ensk-ameríska föðurlandsvininn og rithöfundinn Thomas Paine. „James Whitmore getur leikið Harry Truman og Henry Fonda Clarence Darrow. þá hlýt ég að ráða við Thomas Paine. Hann var 72 ára þegar hann dó, árið 1809 og það eru ekki margir á lífi sem muna eftir honum. Það gerir mér auðveldara fyrir.'Y Sœmilegt tímakaup + Kvikmyndastjarnan Marlon Brando hefur fengið greitt hæsta tímakaup sem um getur í sögu kvikmyndanna. Fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni „Superman“, sem tðk 12 daga að mynda fékk hann greiddar rúmar 690 milljónir. Dágott tfmakaup það. Sköllótti leikarinn + Löngu áður en Telly Savalas varð Kojak, höfðum við kynnst öðrum sköllóttum leikara, nefni- lega Yul Brynner. Hann hefur ekki verið mikið í sviðsljósinu að undanförnu, en kemur nú fram á Broadway sem konungurinn í Sfam í leikritinu „Konungurinn og ég“ („The King And I“), en það hlutverk lék hann fyrst fyrir 25 árum. IdagsbrönI verkamannafélagið Dagsbrún Aðalfundur félagsins verður haldinn í Iðnó sunnudaginn 3. apríl 1977 kl. 2 e.h. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Aðild Dagsbrúnar að Listaskála Alþýðu. 3. Önnur mál. Félagsmenn fjölmennið og sýnið skfrteini við inn- ganginn. __________________Stjórnin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.