Morgunblaðið - 02.04.1977, Síða 38

Morgunblaðið - 02.04.1977, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. APRlL 1977 I STUTTU MALI ORÐTAKIÐ: Lengi getur vont versnað átti bærilega við leik Gróttu og ÍR I 1. deildar keppni Islandsmótsins I handknattleik sem fram fór í Ilafnarfirði f fyrra- kvöld. Sannast sagna voru tiiburð- ir beggja liðanna þannig í leik þessum að ekki er sæmandi 1. deildar liðum. Sjálfsagt er þarna að einhverju leyti um að kenna áhugaleysi leikmanna liðanna, en úrslit leiksins skiptu ekki svo miklu máli. Grótta virtist þegar ' búin að sætta sig við fall I 2. deild og ÍR-ingar búnir að missa af lest- inni í baráttunni á toppnum I 1. deildinni. Af tveimur slökum var ÍR held- ur skárri aðili þessa leiks, þótt vörn væri raunar ekki fyrir að fara hjá liðinu. Þess gerðist reynd- ar ekki mikil þörf fyrir IR- leikmennina að vera leggja mikið á sig í varnarleiknum, þar sem þeir skoruðu úr þeim sóknum sem þeir vildu viðhafa að skora úr, svo sem mörkin 29 sem liðið gerði seg- ir gleggst til um. Voru ekki liðnar nema 7 mínútur af leiknum þegar staðan var orðin 6:1 fyrir ÍR, og flest þessara marka höfðu ÍR-ingar fengið að skora í algjöru næði. Höfðu þeir stundum alveg annan vallarhelminginn fyrir sig, þegar þeir voru að athafna sig. Gróttuliðið hefur ekki verið svipur hjá sjón i vetur miðað við hvað það var t.d. seinni hluta vetr- ar í fyrra. Það sem gerir gæfumun- inn nú er að þeir leikmenn sem sett hafa mestan svip á liðið, Árni Indriðason og Björn Pétursson, eru nú báðir langt frá sínu bezta, sérstaklega þó Árni sem er ekki nema skuggi af því sem hann var áður en hann varð fyrir meiðslum í vetur. Ungu mennirnir í liðinu hafa heldur ekki náð að rífa sig upp úr meðalmennskunni í vetur, og hætt er við að róðurinn verði erfiður í 2. deild að ári fyrir liðið, nema það bæti verulega ráð sitt. Sem fyrr greinir var ekkert óeðlilegt við það að ÍR-ingar tækju þennan leik jafn léft og þeir gerðu. Aðeins einn leikmaður var eitthvað áberandi í liðinu: Brynjólfur Markússon, en það var einkum hans framtaki að þakka að iR-ingar náðu strax traustri for- ystu í leiknum. — stjl. Ágúst Svavarsson kominn I uppáhaldsskotstöðu sfna, og ekki þurfti aó sökum að spyrja — knötturinn hafnaði I marki Gróttu. Iþróttahúsid f llafnarfirdi 31. marz fslandsmótió 1. deild trslit: FH — Þróttur 18—18 (8—10) (. AN(il!R LEIKSINS: Mín. FH Þóttur 4. Janus 7. Janus 12. 14. Þórarir 14. 16. 18. 18. 20. 21. 23. 23. 24. 25. 27. 28. (ieir (ieir Vióar (iuðm. A. Viðar (v) 1:0 1:1 2:1 2:2 3:2 3:3 3:4 3:5 3:6 3:7 4:7 5:7 5:8 5:9 6:9 7:9 8:9 Halldór Sveinn Konráð Sveinlaugur Sveinlaui'ur Konráð Jóhann Konráð 28. 8:10 Konráð hAiti.k.ikir 32. Viðar (v) 9:10 36. 9:11 Sveinn 37. 9:12 Sveinlaugur 37. Jón 10:12 38. Þórarinn 11:12 42. Guðmundur A 12:12 43. 12:13 Sveinn 44. 12:14 Halldór 45. Þórarinn 13:14 49. 13:15 Bjarni 50. Viðar 14:15 51. (iuðmundur 15:15 54. 15:16 Jóhann 54. Sæmundur 16:16 56. 16:17 Konráð 56. Sæmundur 17:17 57. 17:18 Konráð (v) 59. Viðar (v) 18:18 MORK FH: Viðar Sfmonarson 5, Þórarinn KaRnarsson 3, Janus (iuðlaugsson 2, (ieir Hallsteinsson 2. (.uðmundur Arni Stefánsson 2, Sæmundur Stefánsson 2. Jón (íestur VÍKKÓsson 1, (iuðmundur MaRnússon I. MÖRK ÞROTTAR KunriA JAnsson 6. Sveinn Sveinsson 4. Sveinlaugur Kristjáns- son 3. Halldór Kragason 2. Jóhann Frfmans- son 2, Bjarni Jónsson I. BHOTTVlSANIR AF VKLLI: llalldór Bragason oj» Konráð Jónsson, Þrótti, f 2. mfn. MISHFPPNIJÐ VlTAKÖST: FnKin. DOMARAR: Olafur Steingrfmsson or (iunnar Kjartansson. Þeir dæmdu leikinn mjoK vel. með þeirri undantekningu aðölafi varð á afdrifarfk skyssa á lokamfnútu leiks- ins. — stjl. 3. Axel 1:2 4. 1:3 Brynjólfur 5. 1:4 Vilhjálmur 5. 1:5 Ágúst 7. 1:6 Hörður 8. Gunnar 2:6 8. 2:7 Brynjólfur 10. Magnús S. 3:7 14. Georg 4:7 15. 4:8 Hörður 15. Georg 5:8 19. Árni 6:8 20. 6:9 Ágúst 20. 6:10 Ágúst 21. 6:11 Bjarni 23. Grétar 7:11 23. 7:12 SigurðurSv. 25. Björn 8:12 27. Grétar 9:12 28. 9:13 Brynjólfur 29. 9:14 Hörður 29. Árni 10:14 ilÁLKLKIKUR /32. 10:15 SigurðurSv. 32. Björn 11:15 33. 11:16 Vilhjálmur 34. Gunnar 12:16 35. Björn 13:16 38. 13:17 SigurðurG. 38. 13:18 Brynjólfur 40. Axel 14:18 42. 14:19 Vilhjálmur 42. 14:20 Ágúst 45. Magnús M 15:20 46. Magnús S. 16:20 46. 16:21 Ágúst 49. Magnús M. 17:21 49. 17:22 Ágúst (v) 50. 17:23 Sigurður Sv. 50. 17:24 Björn 52. Grétar 18:24 53. 18:25 SigurðurG. 54. 18:26 Brynjólfur 55. Árni 19:26 56. Björn P. 20:26 58. Árni 21:26 58. 21:27 Brynjólfur 58. Árni 22:27 60. 22:28 Vilhjálmur ( Iþróttahúsið f Hafnarfirði 31. marz Islandsmótið 1. deild (JRSLIT: (irótta — ÍR 22—29( 10—14) (iangur leiksins. Mfn (irótta ÍR 1. 0:1 Brynjólfur 2. 0:2 Brynjólfur MÖRK (iRÓTTt: Arni Indriðason 5, Björn Pétursson 4, Axel Friðriksson 2, (iunnar Lúðvfksson 2, (ieorg Magnússon 2, (irétar Vilmundarson 3, Magnús Mar- geirsson 2, Magnús Sigurðsson 2. MÖRK IR: Brynjólfur Markússon 8, Agúst Svavarsson 7, Vilhjálmur Sigur- geirsson 4, Sigurður Svavarsson 3, Hörður Hákonarson 3, Sígurður Gfslason 2, Bjarni Bessason 1, Björn (ifslason 1. BROTTVlSANIR AF VFLLI: Ágúst Svav- arson 2 mfn. MISHFPPNUÐ VÍTAKÖST: Guðmundur Ingimundarson varði vftakast Vilhjálms Sigurgeirssonar á 17. mfn. og Stefán örn varði vftakast Vilhjálms á 36. mfn. DÓMARAR: örn Guðmundsson og Bjarni (iunnarsson. Þeir dæmdu auðveldan leik vel. —stjl Einkunnagiolin LIÐ FH: Magnús Ólafsson 2, Birgir Finnbogason 2, Sæmundur Stefánsson 2, Geir Hallsteinsson 2, Viðar Slmonarson 3, Þórarinn Ragnarsson 3, Janus Guðlaugsson 1, Jón Gestur Viggósson 1, Guðmundur Árni Stefánsson 2, Guðmundur Magnússon 2, Árni Guðjónsson 2. LIÐ ÞRÓTTAR: Sigurður Ragnarsson 4, Sveinlaugur Kristjánsson 2, Gunnar Gunnarsson 2. Sveinn Sveinsson 3. Bjarni Jónsson 2, Jóhann Frlmannsson 3, Sigurður Sveinsson 1, Konráð Jónsson 3, Halldór Bragason 2. LIÐ GRÓTTU: Guðmundur Ingimundarson 2, Stefán Öm 2, Björn Pétursson 2. Axel Friðriksson 1. Georg Magnússon 1. Árni Indriðason 2, Hörður Már Kristjánsson 1, Þór Ottesen 1, Magnús Sigurðsson 1, Magnús Margeirsson 2, Gunnar Lúðvlksson 2, Grétar Vilmundarson 1. LIÐ ÍR: Örn Guðmundsson 2, Sigurður Svavarson 2. Bjami Bessason 1, Björn Glslason 1, Hörður Hákonarson 1, Vilhjálmur Sigurgeirsson 1, Brynjólfur Markússon 3, Ágúst Svavarson 2, Sigurður Glslason 2. Sveinlaugur Kristjánsson kominn I gott færi og skorar eitt af mörkum sinum I leiknum I fyrrakvöld. Akveðnir Þróttarar gáfu FH aldrei höggstað á sér Sennilega hafa fæstir átt von á þvf að leikur FH og Þróttar I 1. deildar keppni Islandsmótsins I handknattleik, er fram fór I Hafnarfirði I fyrrakvöld, yrði burðugur. Af leikjum þessara liða að undanförnu mátti ætia að FH-ingar myndu eiga auðvelt með að ná báðum stigunum úr leiknum — að Þróttur yrði þeim auðveld bráð. En raunin varð önnur. Þróttarar börðust geysi- lega vel allt frá upphafi leiksins og uppskáru annað stigið. Voru Islandsmeistararnir raunar heppnir að ná helmingaskiptum eftir atvikum, en mjög vafasamt vftakast sem dæmt var á loka- mfnútum leiksins færði þeim annað stigið. Einn FH-inganna, Sæmundur Stefánsson, lét sig þá falla inn f IR vörnina, og hafði heppnina með sér, þar sem annar dómarinn Ólafur Steingrfmsson, dæmdi vftakast. Hinn dómarinn, Gunnar Kjartansson, virtist hins vegar gefa merki um ruðning, enda slfkur dómur mun nær sanni. Þróttarar höfðu frumkvæðið nær allan leikinn I fyrrakvöld og léku oft prýðilega. Voru þeir Lengi getur vont versnað - er einkunn sem á bezt við leik ÍR og Gróttu reyndar mikið með knöttinn og sóknarlotur þeirra sumar langar, en oftast var góð ógnun hjá þeim og FH-vörnin, sem þó barðist vel og var á góðri hreyfingu, lenti oft í vandræðum. I varnarleiknum keyrðu Þróttarar svo á „útopn- uðu“, og sýndu af sér það mikinn dugnað að flestir áttu vona á að þeir spryngju á limminu þegar á leikinn leið. En það verður einnig að segjast eins og er að FH-ingar auðvelduðu þeim mikið vörnina. Hvað eftir annað reyndu FH- ingar að keyra upp mikinn hraða f sóknarleik sínum, en einmitt þá var hvað minnst ógnun í spili þeirra. Hraðinn út af fyrir sig er bitlaust vopn, ef ekki býr eitthvað ákveðið að baki sem hann á að leiða af sér. Greinilegt var f upphafi leiks- ins í fyrrakvöld að FH gerði ráð fyrir auðveldum sigri í leiknum og var þá oft skotið án mikillar fyrirhyggju. Átti Janus Guðlaugs- son þar oftast hlut að máli, en nýting hans í leiknum var með afbrigðum slök. Bætti það ekki úr skák fyrir FH-inga að markvörður Þróttar Sigurður Ragnarsson, varði allan leikinn mjög vel, og kemur þar enn einu sinni heim og saman kenningin um að ef vörn liðs er sæmileg, þá fylgir oftast sæmileg markvarzla. Þegar á leikinn leið, og FH- ingar gerðu sér ljóst að þeir höfðu ekki sigur í leik þessum á hendi sér, fóru þeir að reyna að leika meira yfirvegað en gert hafi verið á upphafsmínútunum. En Þrótt- arar voru ekkert á að gefa sig — gengu út á móti skyttunum, og fylgdust vel með linumönnunum, sem var fremur auðvelt verk, þar sem ekki er mikil hreyfing á lín- unni hjá FH og lítið aðstoð sem skytturnar fá þaðan. Mikil spenna var i leiknum eftir að FH-ingar höfðu jafnað úr fyrr- nefndu vítakasti, en Þrótturum tókst ekki að ná því að skora. Voru það hinir leikreyndu menn FH-liðsins sem beittu þar kunn- áttu sinni og brutust endalaust á Þrótturunum, þannig að tíminn fór í að taka hvert aukakastið af öðru. —stjl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.