Alþýðublaðið - 15.10.1958, Qupperneq 6
6
AlþýðublaðiS
Miðv'kudagur 15. október 1958
h’aifinkEr verkameirn lafa fsiifi
f% hækkun auk ýmissa lagíæringa.
BÆJARBÍÓ í Hafnarfirði
frumsýndi s. 1. laugardags-
kvöld hina ágætu mynd Rík-
harður III., sem gerð er af
Sir Laurence Qliver eftir leik
riti Shakespeares, Óhætt er
að fullyrða, að þessi mynd
stendur jafnfæti-s kvikmynd-
unum Hamlet og Júlíus Cesar
sem einhver bezta kvikmynd,
er gerð hefur verið eftir
Shakespeareleikriti. Stafar
þetta vafalaust m a af því, ao
leikritið Ríkharður III. er að
ýmsu leyti betur fallið til
kvikmyndunar en mörg önn-
ur leikrit hins mikla snill-
ings.
Saga Ríkharðs III., eins og
Shakespears segir hana, er
einshver hin ógeðslegasía
saga um valdagræðgi og al-
gjört samvizkuleysi, sem
hægt er að hugsa sér og hefur
Ríkharður áreiðanlega ekki
verið svo slæmur, sem hann
er gerður í leikhúsinu. Fyrir
tnörgum árum fundust tvær
beinagrindur af börnum und-
ir stiga í Tower í London, og
er talið líklegt, að þar hafi
verið beinagrindur hinna
ungu sonu Játvarðar IV. bróð
ur Ríkharðs sem hann á að
hafa rutt úr vegi tii að kom-
ast sjálfur í hásætið.
Ekkert hefur verið til spar
að að gera þessa mynd sem
bezt úr garði og það jafnvel
svo, að snillingar eins og Ced-
ric Hardwicke og John Giel-
gud hafa þarna með höndum
smáhlutverk, Játvarðs IV.
og hertogans af Clarence, sem
báðir voru bræður Ríkharðs.
Af stórum nöfnum má auk
þess nefna Laurence Oliver
sjálfan ,sem leikur Ríkharð
af mikiiii snilld, Ralph Rich-
ardson, sem leikur hertogann
af Buckingham, einnig mjög
vel, Claire Bloom, sem leikur
Lady A:ane,. síðari konu Rík-
harðs, af prýði, auk fjölda
annarra ágætra leikara.
Óhætt er að hvetja menn
eindregið til að sjá þessa á-
gætu mynd. Það er ekki á
hverjum degi sem menn fá
tækifæri til að sjá verk eins
af stórsnillingum heimsbók-
menntanna flutt af slíkum
snilldarbrag. Ekki þurfa
menn að óttast enskuna, því
að framburður og framsögn
er með miklum ágætum, eins
og við var að búast af vönum
Shakespeareleikurum, en til
aukinnar þæginda hafa menn
einnig danskan texta, svo að
auðvelt á að vera að fylgjast
með.
G.G.
VEBKAiMANN AFÉL AGIÐ
Hlíf í Hafnarfirði hélt almenn-
an félagsfund sl. sunnudag. A
fundinum voru lagðir fram og
skrðir nýir kjarasamningar,
som gerðir hafa verið við at-
vinnurekendur. Voru samning-
arnir samþykktir einróma.
Samkvæmt þessum nýju
samningum hækkar kaup hafn.
firzkra verkamanna um 3,5%
(hafði áður hækkað um ö%
hmn 25. júlí sl.)- Ýmsar breyt-
ingar voru gerðar á kaupgjalds
flokkum o. fl.).
Giidistími samningsíns er frá
19. okt. nk. til 15. okt. 1959.
Fyrri kjarasamn.ngur Vmf.
Hlííar og atvinnurekenda var,
gerður 24. júlí si. og var gildis-
tími hans til 1 júní 1959.
SAMÞYKKTIR
Á þessum félagsfundi Vmf.
Hlífar voru samþvkktar eftir-
farandi tillögur:
„í tilefni af skr.fum og um-
ræðum um afnám kaupgjadls-
vísitölu og kaupbindingu sam-
þykkir fundur í Vmf. Hiíf 12.
okt. 1958 eftirfarandi:
1. Þótt greiðsla á dýrtíðarupp
bótum á laun samkvæmt kaup-
gjaldsvísitölu hafi ekki gef.ð
algerlega jákvæðan árangur,
þar sem sú hefur ætíð verið
viðleitni valdhafanna hverju
sinni, að falsa vísitöiuna með
niðurgreiðslu á v.ssum vöru-
flokkum, þá hefur þetta kerfi
þó verið eina vörn launþeganna
gegn skefjalausum kjararýrn-
unum vegna hækkaðs vöru-
verðs.
Fyrir því telur fundurinn, að
ekki komi til mála að verka-
lýðshreyfingin fall.st á afnám
kaupgjaldsvísitölu, nema aö
upp verði tekið annað kerfi,
sem á betri og raunhæfan hátt
tryggi launþegum kaupuppbæt
urvegna hækkaðs vöruverðs.
2. Binding á kaupgjaidi er
slík árás á hagsmun; og frelsi
verkalýðsins að verkalýðshreyf
ingin verður að bregðast hart á
móti og fyrirbyggja. slíka fyrir
ætlun með mætti samtakanna.
,,Fundur haldinn í Verka-
mannafélaginu Fllíf sunnúd.
12. okt. .1958 ítrekar fyrri sam-
þykkt Hiífar um fögnuð yfir út-
færslu á f skveiðilandheiginni
og fordæmingu á ofbeldisáð-
gerðum Breta.
Telur fundurinn, að eigi
verði hjá því komist, ef Breiar
halda uppteknum hætti, að
slíta við þá stjórnmálasam-
bandi og að ríkisstjórn íslands
ber. að kæra þá tafarlaust fyrir
Sameinuðu þjóðunum fyrir
vopnaða árás á vopnlausa smá-
þjóð.
Þá télur fundurinn, að hin
svívirðilega framkoma Breta
gagnvart íslandi í landbeJgis-
málinu svo og að sú þjóð, er tók
að sér hervarnir landsins, skuli
láta slíka árás og ógnun aí-
skiptalausa, sanni á svo ótví-
ræðan hátt, ,að eigi verði um
villzt að ísland eigi ekkert er-
ind. í Atlantshafsbandalaginu
od beri alþingi og ríkisstjórn
að vinna að úrsögn íslands úr
því.
.Telur fundurinn, að hiutverk
íslands á alþjóðavettvangi eigi
að vera það, að bera kiæði á
vopn hinna stríðardi aðila og
bera sáttarorð milli þjóða.“
■■■■■■■■»■■■■■*■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•
ÞAÐ er ekki álitlegt fyrir ;
sjómann að verða éftir af >
skipi sínu í Japan. Hefur
ýmsum orðið ærið hált ó því :
nú upp á síðkastið. Allir er- ■
lendir sjómenn, sem eftir j
verða í Japan, eru dregnir:
fyrir rétt samkvæmt inn- ;
flytjendalöggjöfinni og ■
hljóta hegningu. j
Þeir eru svo færðir í fang- :
elsi ellegar í fangabúðir. En ;
bæði í fangabúðunum og ■
fangelsinu verður sjómaður- :
inn að borga fyrir uppihald- ;
ið með þremur dölum á dag ;
greiða fyrir vörzlu og flutn- j
ing. j
Þá er sjómaðurin skyldug- j
ur til að greiða sjálfur far- ;
gjald sitt frá landinu, ef;
" hann fær ekki vinnu á sltipi. j
■ Hefur það komið þráfaUllega U
: fyrir. að ungir menn hafi beð ;
; ið mánuðum saman í fanga- ;
■ búðum. :
LENGSTU jarðgöng heims-
ins koma til með að liggja und
ir hæsta fjall Evrópu, Mont
Blanc. Fúllgerð stytta þau
leiðina frá París til Mílanó
um 313 km. Göngin verða 12
km. löng og liggja frá Aosta
á Italíu til Chamonix í Frakk.
landi. Gert er ráð fyrir að
verkinu verði lokið 1961.
Um langan aldur hafa verið
uppi áætlanir um að gera jarð
göng undir Mont Blanc en
kostnaðarhliðin hefur hingað
til verið óyfirstíganleg. Hin
i stórúukna bílaumferð síðari
i ára og n.ý tækni við bvggingu
, jarðganga hefur vakið nýjar
vonir manna meðal um, það
að fært verði að hrinda Þess-
ari áætlun í íramkvæmd. lial-
irnir hafa þegar haf.ð að grafa
frá sinni hlið.
Áætlunin gerir ráð fyrir að
jarðgöngin verði iýst upp og
24 benzínstöðvar verði á Jeið-
inni. Brautir verða átta m.
breiðar og sprengja verður
burtu eina millj. kúbikmetra
af grjóti. Kostnaður er áætl-
aður um 300 milljón krónur.
Sænskum verksmiðjum hef
ur verið falið að fram.Ieiða
öll tæki til framkvæmdanna
og sænskir sérfræðingar verða
ítölskum verkfræðingum til
aðstoðar.
iÞað var ítalski greitinn
Lorq-Totino, sem fyrstur hóf
framkvæmdir við að gera jarð
göng undir Mont-Blanc. Þær
framkvæmdir stöðvuðust þó
fljótlega, en þá hafði verið
grafið 200 metra inn í fjallið.
Jarðgöngin verða grafin í
um það bil 1380 metra hæo,
og verður að leggja dýra vegi
að opi þeirra. Bannað verður
að nema staðar í göngunum
— umferðin má aldrei stöðv-
ast. Þá verður bannað að aka
fram úr og strangar reglur um
hámarkshraða verða settar.
Öll farartæki sem um göngin
fara munu greiða skatt og er
gert ráð fyrir að kostnaðurinn
verði greiddur þannig á til-
tölulega skömmum tíma.
Bandaríska bókasýningin að Langavegi 18 A hefur verið mjög
vel sótt og er tala gesta komin yfir 6000 manns. Mikið hefur
selzt af bókum og eru sum eintök unpseld, en geta má þess,
að unnt er að panta allar bækur, sem sýndar eru. Hér á eíri
myndinni siást forseti fslands, Ásgeir Ásgeirsson, og mennta-
málaráðherra. Gvlfi Þ. Gílason, skoða sýninguna. -— Á neðri
myndinni er ísak Jónsson, sjíólastjóri, að skoða barnabækur
á sýningunni.
r
Hpfcipalur ambassador Koregs á bME.
ABALRÆÐISMAÐUR Noregs (
í San Francisco, Bjarne Vil-1
helm Börde, var á ríkisráðs-
fundi 10. þ. m. útnefndur am-
bassador Noregs á íslandi.
Mun hann væntanlega taka
við embætti sínu í Reykjavík
einhvern tíma fyrir næstu
áramót.
Börde ambassador fæddist
árið 1897 í Östre Aker nálægt
Osló og er verzlunarskólageng
inn. 1918 vaf hann ráðinn rit-
ari í Upplýsingaskrifstofu at-
vinnuveganna í Noregi. Árið !
1934 gerðist hann starfsmaður
utanríkisþjónustunnar, en varð
skrifstofustjóri í Birgðamála-
ráðuneytinu árið 1939 og
gegndi því starfi á stríðsárun-
um. Ráðuneytisstjóri í verzlun-
ardeild utanríkisráðuneytis-
ins árið 1945, en árið eftir for-
stjóri Útflutningsráðs Noregs.
Arið 1948 var hann sendimað-
ur ráðsins í vesturríkjum USA
með aðsetri í San Francisco.
Árið 1951 tók Börde aftur
við stjórn Útflutningsráðsins,
þar til hann varð aðalræðis-
maður í San Francisco árið
1952. Börde ambassador hefur
i ritað margar greinar um við-
í skipíamál og oft verið fulltrúi
Noregs í viðræðum og samning
um við aðrar þjóðir.
BEIRUT, þriojudag (NTB—
AFP). Átján manns féllu í á-
tökum milli múhameðstrúar-
manna, sem fylgja ríkisstjórn-
inni, og hægrisinnaðra krist-
1 inna manna í Beirut í dag. Mörg
verkalýðsfélög í Líbanon hafa
boðáð verkföll á morgun ef
stjórnarkreppan verður ekkl
leyst fyrir þann tíma. Ef af
verkfallinu verðúr', lamast allt
athafnalíf í landinu, Falangi'st-
ar hafa staðið í verkfdili' í þrj'áf
vikur samfleytt.
Afhugasemd
Að gefnu tilefni skal þess
getið, að hinir nýju kjarasamn-
ingar Framsóknar taka gildi 19.
október nk.