Morgunblaðið - 13.04.1977, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1977
STAÐAN
STAÐAN f 1. deild er nú
þessi:
Valur 12 10 0 2 268:238 20
Víkingur 13 10 0 3 325:292 20
FH 13 7 2 4 306:280 16
Haukar 13 6 3 4 270:263 15
IR 13 5 2 6 282:291 12
Fram 11 4 2 5 231:236 10
Þróttur 14 2 4 8 272:308 8
Grótta 13 0 1 12 252:309 1
Markhæstir:
Hörður Sigmarsson
Haukum 99
Konráð Jónsson Þrótti
85
,!Viðar Símonarson FH 79
Ólafur Einarsson Vík-
ingi78
Þorbjörn Guðmundsson
Val 70
» «
• *
V &
t ♦
■
Geir Hallsteinsson sækir að Vfkingunum Viggó Sigurðssyni og Ólafi Einarssyni
ekki föst en hnitmiðuð, oft i gólfið
og því illviðráðanleg fyrir mark-
verðina, þar sem færið er stuttu.
Þá átti Sæmundur Stefánsson
mjög góðan leik, bæði í vörn og
sókn og Björgvin Björgvinsson
átti ekki sjö dagana sæla á lin-
unni hjá Sæmundi. Magnús Ólafs-
son hefur komið geysisterkur upp
i vetur og hann átti ekki siztan
þátt i því að leggja Vikingana að
velli. Þá áttu þeir Viðar, Geir og
Arni einnig góðan leik.
Vikingarnir áttu ekkert svar
við vörn FH-inga þegar leið á leik-
inn. Páll Björgvinsson, sem oft er
drjúgur við þessar aðstæður, fann
sig ekki, hvorki í sókn né vörn.
Þeir Ólafur Einarsson, Viggó og
Þorbergur sáu um að skora mörk-
in ásamt Björgvin, en hann fékk
lítið svigrúm á línunni, þar sem
hann var i mjög strangri gæzlu
Sæmundar. Björgvin gerði samt 4
mörk og fiskaði auk þess nokkur
vitaköst, en flest þeirra voru mis-
notuð, en Víkingarnir misnotuðu
4 vítaköst í leiknum. Vörnin var
slök hjá Víkingunum að þessu
sinni og markvarzla engin. Það
atriði, sem liklega kemur verst
niður á liðinu er skortur á reynd-
um stjórnanda utan vallar, þar
sem þjálfarinn Rósmundur Jóns-
son hefur einnig leikið með iið-
inu.
Dómarar voru Hannes Þ.
Sigurðsson og Karl Jóhannsson og
dæmdu þeir leikinn vægast sagt
illa, án þess það bitnaði meira á
öðru liðinu en hinu.
—SS.
Það dugði Víkingi ekki til
sigurs að skora 30 mörk
Islandsmeistaratitillinn blasir nú við Valsmönnum
Enska
knatt-
spyrnan
Urslit i ensku knattspyrnunni i
gærkvöldi:
I. DEILD:
Það voru töluverðar sveiflur i
leik liðanna. Víkingarnir byrjuðu
af miklum krafti, boltinn gekk vel
á milli manna og stórskytturnar
Ólafur Einarsson, Viggó Sigurðs-
son og Þorbergur Aðalsteinsson
skoruðu úr hverju skoti. Hinum
megin á vellinum var það aftur á
móti Janus Guðlaugsson sem
helzt fann leiðina í markið með
sínu snöggu og lúmsku skotum
sem markverðir Vikings réðu
ekki við þrátt fyrir að þau væru
ekki mjög föst. Undir iok seinni
hálfleiksins brugðu FH-ingar á
það ráð, sem átti eftir að reynast
þeim vel. Þeir fóru að leika vörn-
ina framar en áður og við það
truflaðist sóknarleikur Víkings
stórlega, ekki sízt vegna þess að
Páll Björgvinsson, sem Víking-
arnir treysta mest á við svona
aðstæður, var ekki nema svipur
hjá sjón. Víkingarnir, sem náð
höfðu 5 marka forskoti um miðj-
an fyrri hálfleikinn, fyrst 10:5 og
síðan 12:7, misstu þetta forskot
niður smám saman og í hálfleik
var staðan 14:13 Vikingi I vil.
1 upphafi seinni hálfleiks náðu
Víkingarnir þriggja marka for-
skoti en FH-ingarnir minnkuðu
muninn aftur og þegar fimm mín-
útur voru liðnar af seinní hálf-
leiknum höfðu þeir jafnað metin
16:16. Næstu mfnúturnar var leik-
urinn í jafnvægi en þegar 10 mín-
útur voru liðnar af seinni hálfleik
náðu FH-ingar sinum bezta leik-
kafla, skoruðu 6 mörk í röð og
náðu öruggri forystu, 26:20. Á
þessum kafla varði Magnús Ólafs-
son með ágætum í marki FH, en
kollegar hans i Vikingsmarkinu
vörðu varla bolta leikinn út í
gegn. Þrátt fyrir þennan marka-
mun gáfust Vikingarnir ekki upp
og litlu munaði að þeim tækist að
jafan metin rétt fyrir leiksiok.
Þeim tókst að minnka muninn í
31:29 og Viggó Sigurðsson brun-
aði upp i hraðaupphlaupi og skaut
i stöng þegar hann átti tök á þvi
að minnka muninn í aðeins eitt
mark. Þá voru þrjár mínútur til
leiksloka og allt gat gerzt. En
þarna fór siðasta von Vikings og
líklega fór þarna lika von Víkinga
urn að hljóta Islandsbikarinn í ár.
FH-ingar náðu þarna án vafa
sinum bezta leik í vetur. Munaði
miklu fyrir þá að fá Reyni Ólafs-
son þjálfara aftur á bekkinn, en
hann sýndi fyrri félögum sinum í
Val þá vinsemd að mæta ekki
þegar FH og Valur léku á dög-
unum. Stjórnaði Reynir liðinu af
röggsemi, og fáir standa honum á
sporði við skipulagningu varnar-
leiks, eins og bezt sást í þessum
leik. Janus Guðlaugsson átti nú
enn einu sinni ágætan leik. Hann
er geysilega hreyfanlegur í sókn-
inni og hann er óragur við að
demba sér inn i varnir andstæð-
inganna og skjóta. Skotin eru
Bristol City — Tottenham 1:0
Leicester — Derby 1:1
Stoke — Leeds 2:1
2. DEILD:
Burnley — Bolton 0:0
Carlisle — Oldham 1:1
Hull — Blackburn 1:0
Luton Town — Millwall 1:2
Sheffield Utd. — Blacpool 1:5
ElnKunnagiBtln
^... . . ..............-... ..... ...
FH: Magnús Ólafsson 3, Janus Guðlaugsson 3, Viðar Sfmonarson
3, Jón Gestur Viggósson 1, Guðmundur Árni Stefánsson 1, Arni
Guðjónsson 2, Sæmundur Stefánsson 3, Guðmundur Magnússon
1, Geir Hallsteinsson 2, Birgir Finnbogason 1.
VlKINGUR: Rósmundur Jónsson 1, Ólafur Einarsson 3, Magnús
Guðmundsson 1, Páll Björgvinsson 1, Björgvin Björgvinsson 3,
Ólafur Jónsson 1, Þorbergur Aðalsteinsson 3, Viggó Sigurðsson 3,
Jón G. Sigurðsson 1, Erlendur Hermannsson 2, Grétar Leifsson 1.
HAUKAR: Þorlákur Kjartansson 1, Sigurður Aðalsteinsson 1,
Ingimar Haraldsson 1, Elfas Jónasson 1, Jón Hauksson 3, Ólafur
ólafsson 2, Stefán Jónsson 1, Guðmundur Haraldsson 1, Sigurgeir
Marteinsson 2, Hörður Sigmarsson 3, Þorgeir Haraldsson 3,
Gunnar Einarsson 3.
GRÓTTA: Guðmundur Ingimundarson 2, Hörður Már Kristjáns-
son 1, Björn Pétursson 1, Kristján Guðlaugsson 1, Magnús Sig-
urðsson 2, Arni Indriðason 3, Grétar Vilmundarson 1, Georg
Magnússon 2, Magnús Margeirsson 1, Gunnar Lúðvfksson 2,
Stefán örn Stefánsson 1.
LIÐ IR: Ingimundur Guðmundsson 1, Bjarni Bessason 1, Sigurð-
ur Svavarsson 1, Sigurður Sigurðsson 1, Agúst Svavarsson 4,
Björn Guðmundsson 1, Vilhjáimur Sigurgeirsson 2, Hörður
Hákonarson 2, örn Guðmundsson 2, Brynjólfur Markússon 3,
Sigurður Gfslason 1.
LIÐ ÞRÓTTAR: Sigurður Ragnarson 1, Halldór Bragason 2,
Gunnar Gunnarsson 2, Jóhann Frfmannsson 2, Sævar Ragnarsson
1, Sveinlaugur Kristjánsson 4, Bjarni Jónsson 3, Sigurður Sveins-
son 3, Konráð Jónsson 2.
FII-INGAR hleyptu heldur betur spennu I Islandsmótið þegar þeir lögðu Vlkinga að velli I 1. deild þegar
liðin mættust I fþróttahúsinu I Hafnarfirði miðvikudaginn fyrir páska. Vfkingarnir skoruðu að vanda
mörg mörk eða 30 að tölu en það dugði ekki I þetta sinn þvf FH- ingar gerðu 34 mörk, en f hálfleik hafði
staðan verið 14:13 Vfkingí f vil. Þannig voru gerð 64 mörk f þessum 60 mfnútna leik, 27 f fyrri hálfleik en
37 í þeim seinni. Er sjaldgæft að svona mörg mörk séu gerð f toppleik sem þessum. Annar leikur með háu
skori var fyrri viðureign sömu liða, f mótinu en þa sigraði Vfkingur 35:26. Þessar markatölur gefa til
kynna góðan sóknarleik en slakar varnir og markvörzlu. Þetta var fyrsta tap Vfkinga eftir 10 sigurleiki f
röð, og eru þar innifaldir tveir sigrar yfir Valsmönnum, sem FH hefur lfklega fært íslandsmeistaratign-
ina á silfurfati með sigrinum yfir Vfkingi. Valur á eftir tvo leiki við Fram og titillinn blasir við félaginu.
Hin slaka byrjun Vfkings í mótinu virðist ætla að verða liðinu að falli, en það tapaði tveimur fyrstu
leikjunum fyrir Haukum og IR.
SKYLDUVERK AÐ
LJÚKA LEIKNUM
ÞAÐ VAR greinilegt þegar Haukar og Grótta mættust f 1. deild
Islandsmótsins f handknattleik I Hafnarfirði á miðvikudagskvöld fyrir
páska að ekki var neitt I húfi fyrir liðin. Haukarnir úr leik f baráttunni
um meistaratitilinn og engin fallhætta fyrir hendi og Grótta þegar
fallin I 2. deild. Það var ekki æsingur útaf neinu, leikurinn gekk hægt
og rólega fyrir sig og án allra átaka, alveg eins og menn væru að ljúka
skylduverki. Lið Hauka var hinn öruggi sigurvegari eins og búast
mátti við, það skoraði 26 mörk gegn 18 mörkum Gróttu, en f hálfleik
var staðan 14:10 Haukunum f vil.
Framan af fyrri hálfleiknum
héldu Gróttumenn I við andstæð-
inga sina eða allt þar til 7 minútur
voru eftir af hálfleiknum. Þá var
staðan jöfn 9:9, en næstu 5 mörk
gerðu Hakarnir og þar með var öll
von Gróttumanna um að krækja
sér í stig til viðbótar því eina sem
þeir hafa nú þegar, fokin út I
veður og vind. 1 seinni hálfleik
héldu Haukarnir áfram að bæta
við forskotið og munaði ekki
minnst um framlag Gunnars Ein-
arssonar markvarðar, sem hrein-
lega lokaði markinu langtímun-
um saman í seinni hálfleik. Loka-
tölurnar urðu sem fyrr segir
26:18 og mikið lifandis ósköp
urðu menn fegnir þegar flautað
var til leiksloka.
Ekki þarf að fjölyrða um
frammistöðu einstakra leik-
manna. Minnzt hefur verið á þátt
Gunnars Einarssonar I marki
Hauka en auk hans áttu Jón
Hauksson, Þorgeir Haraldsson og
Hörður Sigmarson beztan leik.
Hörður náði ekki 100 marka
múrnum í leiknum, hann vantaði
eitt mark uppá og er nú búinn að
skora 99 mörk og á einum leik
ólokið. Það þykir helzt tfðindum
sæta hjá Gróttu, að Björn Péturs-
son skoraði ekki eitt einasta mark
í leiknum, en hann hefur verið
ein styrkasta stoðin í sóknarleik
Gróttu þann tfma sem liðið hefur
verið í 1. deild.
Dómarar voru Jón Friðsteins-
son og Valur Benediktsson. Leik-
urinn var auðdæmdur og þeir
dæmdu hann vel. __