Morgunblaðið - 13.04.1977, Blaðsíða 48
ÝSINGASÍMINN ER:
22480
2H«rgunblabi&
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1977
KORATRON
Þarf aldrei að pressa
Nýja hassmálið:
Þriðji maðurinn
í gæzlu í gær
RANNSÓKN nýja hassmálsins
var haldið áfram um páskana.
Stöðugar yfirheyrslur eru í mál-
inu og í gær var þriðji maóurinn
settur í gæzluvarðhald. Maðurinn,
sem er rúmlega tvítugur Reykvík-
ingur, var úrskurðaður i allt að 30
daga gæzluvarðhald. Hér mun
vera um að ræðá innflutning og
dreifingu á allmiklu magni af
fíkniefnum og hafði þetta við-
gengizt um alllangt skeið.
Brezkir hermenn stöðvuðu
Kljáfoss til að leita vopna
— ÞETTA FÖR allt einkar
kurteislega fram, og reyndar
bað liðsforinginn mig marg-
sinnis afsökunar á þessu ónæði.
Það eina var, að þegar ég sá, að
annar varðmaðurinn, sem stóð
yfir áhöfninni í reyksalnum,
var með byssuna f skotstöðu, þá
bað ég liðsforingjann að sjá til
þess, að hann væri ekki að miða
þetta á mannskapinn. Það var
strax tekið til greina og varð-
maðurinn var látinn setja byss-
una í gólfið, segir Finnbogi
Finnbogason, skipstjóri á Kljá-
fossi, f viðtali við Mbl., en
brezkir hermenn stöðvuðu
Kljáfoss úti af Belfast 2. aprfl
sl. og gerðu vopnaleit f skipinu.
— Þetta var bara skylduverk
hjá þeim, segir Finnbogi, en
ekki það, að einhver grunur
léki á þvf að við værum í vopna-
smygli! Þeir hafa mjög stranga
gæzlu og fylgjast með öllum
skipum, sem fara þarna inn fyr-
ir þrjár mflurnar.
Morgunblaðið ræddi við Árna
Björnsson, fyrsta stýrimann á
Kljáfossi. — Við vorum á sigl-
ingu frá Reykjavík til Weston
Point, segir Árni. Og vorum
fyrir utan Belfast-flóann, en
þarna siglum við allt upp í eina
mílu frá landinu. Það er mjög
algengt, að Bretarnir kalli okk-
ur upp, þegar við siglum þarna
um og spyrji okkur um ferðir
okkar, en við höfum ekki lent í
leit áður.
Nú klukkan var eitthvað um
sjö, þegar tundurduflaslæðari
kom og gaf okkur stöðvunar-
merki. Við stöðvuðum strax
skipið og þeir komu tiu á tveim-
Framhald á bls. 32
Bara skylduverk hjá þeimogallt fór einkar kurteis-
lega fram, — segir Finnbogi Finnbogason, skipstjóri
ÁKVEÐIÐ hefur verið að gjald-
eyrisyfirfærslur til þeirra, er fara
f skemmtiferðir til útlanda, skuli
hækka um helming eða úr 50.000
í kr. 75.000 á mann. Hefur þá
gjaldeyrisyfirfærsla til ferða-
manna hækkað um 100% á tæp-
lega einu ári, þvf f júnf f fyrra
hækkaði yfirfærslan úr kr. 37.000
í kr. 50.000. í fréttatilkynningu,
sem Morgunblaðinu barst f gær
frá viðskiptaráðuneytinu segir,
að jafnframt þessari hækkun,
sem nú er ákveðin, falli niður
heimildir ferðaskrifstofa til þess
að selja matarávfsanir og kynnis-
t fyrsta sinn sfðan um áramót
snjóaði f Reykjavík og
nágrenni á annan í páskum.
Var óðar komið gott skfðafæri f
Bláfjöllum og í gærkvöldi voru
þar allar lyftur opnar fram til
kl. 22. Mikill fjöldi fólks dreif
sig f Bláf jöllin f gær, en mynd-
ina tók Friðþjófur af ungum
skfðamönnum, sem voru að
festa á sig skíðin þar efra f gær.
Kröfur einstakra iðnaðarmannafélaga:
Eru í sumum tilfellum á
annað hundrað prósent
BAKNEFNDIR vinnuveitenda og I
launþega, VSl og ASl, hafa verið
boðaðar til fundar f dag, klukkan |
14, en á morgun er boðaður sátta-
fundur hjá sáttasemjara rfkisins.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið aflaði sér f gær er
kröfugerð stéttarfélaganna nokk-
uð misjöfn. Þau hafa að undan-
förnu verið að afhenda Sérkröfur
sfnar og t.d. f kröfum Sambands
byggingamanna kemur skýrt
fram að launabil verði aukið. Þá
er blaðinu einnig kunnugt um að
hæstu kröfur Málm- og skipa-
smfðasambandsins gera ráð fyrir
yfir 60% hækkun sé aðeins miðað
við sérkröfur, en þegar svo við
bætast almennar kröfur ASl er
kaupkrafan orðin hátt á annað
hundrað prósenta.
Kröfur þessara iðnaðarmanna-
félaga sem annarra eru i litlu
samræmi við þá láglaunastefnu,
sem kjaramálaráðstefna ASÍ
markaði. Þó hafa ýmis félög fylgt
þeirri stefnu, sem þar var mörkuð
og eru þar á meðal mannmörg
launþegasamtök, svo sem eins og
iðnverkafólk og verzlunarmenn. í
greinargerð, sem Vinnuveitenda- I
sambandið lagði fram á samninga-
fundi, sem haldinn var fyrir viku, |
og birt er í Mbl. í dag, var m.a.
lögð fram spurningin: „Með tilliti
Framhald á bls. 32
ferðir gegn greiðslu f íslenzkum
krónum.
Þegar Morgunblaðið hafði sam-
band við Stein Lárusson, formann
Samtaka ferðaskrifstofanna,
sagði hann að vissulega gleddist
hann yfir þessari hækkun gjald-
eyrisskammtsins. „Og ég vona
innilega að yfirfærslunni verði
skipt réttilega milli ferðaskrif-
stofanna og ferðamannanna.
Það er staðreynd að með þeim
hluta ferðakostnaðarins sem
ferðaskrifstofurnar hafa fengið
vegna hótelkostnaðar í sólarlönd-
unum, er raunverulega útilokað
að láta íslendinga búa í sómasam-
Framhald á bls. 32
Hafsteinn Hjaltason, annar vélstjöri, og Árni Björns-
son, fyrsti stýrimaður, I brúnni á Kljáfossi f gær.
Ljósm: Ól.K.M.
Einvíginu fram hald-
ið á Loftleiðum í dag
Sjá nánar um skákina á bls 18
ÁKVEÐIÐ hefur verið að annað
aukaeinvfgi Horts og Spasskys
hefjist að Hótel Loftleiðum
klukkan 17 f dag, og að seinni
skák aukaeinvfgisins verði á sama
stað og tfma á föstudaginn. Frá
þessu vár skýrt á blaðamanna-
fundi, sem Skáksamband Islands
hélt f gærkvöldi, en fyrr um
kvöldið höfðu forráðamenn Skák-
sambandsins ráðfært sig við skák-
mennina um framhald einvfgis-
ins. Eins og búizt var við lykt-
aði 14. skákinni með jafntefli,
en hún var tefld áfram f gær.
Urðu skákmennirnir ásáttir
um jafntefli eftir 57 leiki.
Hafa þeir nú báðir 7 vinninga,
en 13. skákin varð einnig f
jafntefli. Strax að lokinni skák-
inni í gær var dregið um liti f
öðru aukaeinvíginu og valdi
Spassky hvfta peðið úr hendi
Horts og hefur hann þvf hvftt f
-dag.
Sfrax i gær var hafizt handa
við flutning alls útbúnaðar úr
Menntaskólanum við Hamrahlíð
til Hótel Loftleiða, en vegna vel-
vildar skólayfirvalda MH fengust
afnot af húsnæði skólans yfir
páskana. Ríkissáttarsemjari hafði
húsnæðið að Hótel Loftleiðum
bókað í dag, en hann var tilbúinn
að hliðra til fyrir skákmönnunum
Framhald á bls. 32
Hort og Spassky heilsast viA upphaf skákar-
innar á laugardaginn, en þarna hittust þeir
við skákborðið eftir langt hlé vegna veikinda
Spasskys. Ljósm. Friðþjófur.
Y firf ærsla í g jald-
eyri til ferðamanna
hækkar um 50%