Morgunblaðið - 13.04.1977, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1977
29
Góður endasprettur Þróttar
LEIKUR lR og Þróttar f 1. deildar keppni Islandsmótsins f handknattleik, er fram fór f Laugardalshöll-
inni s.l. miðvikudagskvöld, var enn einn markasúpuleikurinn f deildinni. Urslit leiksins urðu 29—27
fyrir Þrótt — sem sagt: Tæplega eitt mark á mfnútu. Og þótt sóknarleikur beggja liða væri nokkuð góður
f leik þessum, þá segir slfkur markaf jöldi auðvitað nokkuð til um lélegar varnir og daufa markvörzlu
beggja liðanna.
Leikur þessi var mjög jafn, en
einhvern veginn hafði maður það
þó á tilfinningunni að Þrótt-
ararnir væru ivið sterkari aðilinn
og vist er að ekki var nema sann-
gjarnt að þeir sigruðu einu sinni i
jöfnum leik, jafnoft og þeir eru
búnir að tapa leikjum sínum
naumlega í vetur. Var þetta og
einn af betri leikjum Þróttara i
langan tíma, og sennilega mest
fyrir það að þjálfari liðsins,
Bjarni jónsson, var nú loks sjálf-
um sér líkur, en Bjarni hefur
tæpast náð sér á strik nu seinni
hluta vetrar. Rak Bjarni aðra leik-
menn liðsins áfrant með krafti
sínum og ákveðni, en sennilega er
það svo að Þróttarar þurfa slíka
„svipu“ á sér inni á vellinum til
þess að ná árangri.
IR-ingar tóku ósigri þessum
furðulega illa. Hlupu margir leik-
mannanna beint af velli að leik
loknum, og höfðu ekki fyrir því
að hylla andstæðinginn með
húrrahrópum, eins og tíðkast.
Hafa þessi vonbrigði iR-inga
sjálfsagt verið fyrst og fremst af
þvi, að þeir hafa talið Þróttara
auðvelda viðfangs fyrirfram, en
slíkt getur ekkert lið greinilega
leyft sér. Með svolitið meiri ögun
og ák ákveðni geta Þróttarar stað-
ið hvaða liði sem er á sporði, en
einhvern veginn virðist málum
þannig háttað hjá liðinu, að leik-
menn þess eru mjög misjafniega
fyrir kallaðir, — og hafa misjafn-
lega gaman af leikjum sínum.
Auk Bjarna átti Sveinlaugur
Kristjánsson mjög góðan leik
gegn tR á miðvikudaginn, og er
hann sá leikmaður Þróttarliðsins
sem vaxið hefur hvað mest að
undanförnu. Þá var Sigurður
Sveinsson drjúgur i leiknum, en
þessi kornungi leikmaður á vissu-
lega framtiðina fyrir sér, og und-
irritaður spáir því að Sigurður
eigi eftir að verða einn af allra
beztu handknattleiksmönnum ís-
lands í framtiðinni verði hann
nógu kröfuharður við sjálfan sig.
IR liðið lék ágætan sóknarleik á
móti Þrótturum, og mörg marka
liðsins voru gullfalleg, sérstak-
lega þó þau, sem komu úr þrumu-
skotum Ágústs Svavarssonar. En
vörn liðsins er þannig að það ligg-
ur stundm við að maður liti und-
an, þegar hún er að spreyta sig.
Furðulegt, þar sem margir leik-
manna ÍR-liðsins eru orðnir leik-
reyndir, og hafa mikið til brunns
að bera. Létu þeir Þróttara hvað
eftir annað snúa á sig á furðulega
auðveldan hátt, og þegar svo var
komið átti örn Guðmundsson
markvörður eðlilega fá svör. Án
þess að taka sig verulega á i vörn-
inni geta ÍR-ingar varla vænzt
þess að ná nær toppnum en liðið
hefur komizt i vetur, en takist að
gera þarna bragarbót, er óhætt að
fullyrða að liðið stendur tæpast
skáztu liðunum okkar að baki.
—stjl.
Bjarni Jónsson, þjálfari Þróttar, á fullri ferð.
KR hafði beturí bar-
áttuleik við Stjörnuna
STRAX að loknum leik IR og Þróttar 11. deíldar keppni lslandsmótsins f handknattleik f Laugardalshöll-
inni s.l. miðvikudagskvöld mættust þar KR og Stjarnan f 2. deildar keppninni. Sá leikur var 1. deildar
leiknum betri, sérstaklega hvað varðaði varnarleik og markvörzlu — já, — og baráttan f þessum leik var
Ifka langtum meiri.
Leikur KR og Stjörnunnar var
oft hinn skemmtilegasti á að
horfa, og þarna voru vissulega lið
framtíðarinnar á ferð, þar sem
bæði eru að stofni til skipuð korn-
ungum leikmönnum, sem þó
kunna margir hverjir töluvert
fyrir sér í listum handknattleiks-
ins. Aðal beggja liðanna í þessum
leik var þó baráttan — en þarna
var bókstaflega ekkert eftir gefið.
Varnirnar á fullri ferð allan leik-
inn, og oft dálitil harka, rétt eins
og á að vera í handknattleiknum
a.m.k. til þess að hann verði
skemmtilegur fyrir áhorfendur.
Leikurinn var nokkuð jafn
framan af, en undir lok fyrri hálf-
leiksins tóku KR-ingar á sig rögg
og höfðu 3 mörk yfir I leikhléi,
9—6. Þegar KR-ingar skoruðu svo
þrjú fyrstu mörk seinni hálfleiks-
ins og staðan var orðin 12—6
þeim í vil, áttu allir von á yfir-
burðasigri Reykjavikurliðsins. En
Garðbæingar voru ekki á þvi að
gefast upp. Þeir náðu mjög vel
útfærðum leikkafla í vörn sinni,
og tókst að jafna þegar 9 minútur
voru til leiksloka, 15—15. Var
mikil spenna í leiknum á lokamin-
útunum, en þá höfðu KR-ingar
heppnina með sér, og fengu tvö
fremur ódýr vitaköst sem þeir
skoruðu úr og sigruðu að lokum í
leiknum með 19 mörkum gegn 17.
Sem fyrr greinir var þetta
skemmtilegur baráttuleikur, þar
sem bæði liðin léku góða vörn og
markverðirnir stóðu fyrir sínu. I
sóknarleik beggja liðanna var líka
sjaldan mikið af dauðum punkt-
um — bæði reyndu að ógna að
mætti, en helzti gallinn hjá báð-
um var skortur á langskyttum.
Beztu leikmenn Stjörnunnar I
leik þessum voru þeir Magnús
Andrésson, Brynjar Kvaran
markvörður og Árni Árnason, en
beztir KR-inga voru þeir Ólafur
Lárusson, Emil Karlsson mark-
vörður sem stóð sig mjög vel og
Þorvarður Guðmundsson sem
skoraði mikiivæg mörk fyrir KR-
inga.
MAÐUR LEIKSINS: Ólafur Lár-
usson, KR
MÖRK KR: Ólafur Lárusson 9 (3
v), Þorvarður Guðmundsson 3,
Friðrik Þorbjörnsson 2, Sigurður
P. Óskarsson 2, Ævar Sigurðsson
1, Haukur Ottesen 1, Kristinn
Ingason 1.
MÖRK STJÖRNUNNAR: Árni
Árnason 5, Magnús Andrésson 3,
Magnús Teitsson 3 (3 v), Guð-
mundur Yngvason 3, Gunnar
Björnsson 2, Logi Ólafsson 1.
Góðir dómarar voru Björn
Kristjánsson og Óli Olsen.
— stk
. . . í stuttu máli
FH—Víkingur
íþróttahúsid, Hafnarfirúi. mió\ ikudag
inn 6. aprfl, (slandsmótið f handknattleik.
1. deild karla, FH Vfkinsur 34:30 (13:14).
Mfn FH Vfk.
2. 0:1 ÓlafurE.
4. 0:2 Þorbergur
5 Janus <v) 1:2
6. 1:3 Viggó
7. 1:4 Viggó
7. Viðar 2:4
8. 2:5 ÓlafurE.
9. JónGestur 3:5
9. 3:6 Þorbergur
11. Janus 4:6
11. 4:7 Þorbergur
12. 4:8 Viggó
13. Viðar (v) .5:8
13. 5:9 ÓlafurE.
14. 5:10 Viggó
15. Janus <v) 6:10
15. Viðar 7:10
17. 7:11 Viggó
18. 7:12 Þorbergur
21. Janus 8:12
22. 8:13 Björgvin
23. Janus 9:13
23. Viðar 10:13
24. Janus 11:13
25. 11:14 ÓlafurE.
25. Janus(v) 12:14
30. Janus 13:14
HALFLEIKltR
31. 13:15 ÓlafurE.
31. 13:16 Björgvin
32. Janus 14:16
33. Arni 15:16
34. Arni 16:16
34. 16:17 Björgvln
35. Geir 17:17
36. Viðar (v) 18:17
37. 18:18 Viggó(v)
38. Ami 19:18
38. 19:19 Viggó <v)
39. Viðar (v) 20:19
40. 20:20 Björgvin
41. Sæmúndur 21:20
42. Sæmundur 22:20
44. Geir 23:20
45. Geir 24:20
46. Sæmundur 25:20
47. Viðar 26:20
47. 26:21 Þorbergur
48. 26:22 Þorbergur
49. Janus (v) 27:22
50. 27:23 Páll
51. Sæmundur 28:23
51. 28:24 Erlendur
52. Sæmundur 29:24
53. Viðar (v) 30:24
53. 30:25 ÓlafurE.
54. Guðmundur M. 31:25
55. 31:26 Ól.J.
56. 31:27 ÓlafurE. (v)
57. 31:28 Viggó
57. 31:29 Magnús
58. Geir (v) 32:29
59. 32:30 Ölafur E. (v)
59. Guðmundur A. 33:30
60. Guðmundur A. 34:30
MÖKK FH: Janus Ciuðlaugsson 10 (4v),
Vidar Sfmonarson 8 (4v), Sæmundur
Stefánsson 5, ííeir Ilallsteinsson 4 (lv),
Arni (íuðjónsson 3. (iuðmundur Arni
Stefánsson 2. Guðmundur Magnússon 1
mark og Jón (iestur Viggósson 1 mark.
MÖRK VtKlNGS: Ólafur Finarsson 8
<2v), Viggó Sigurðsson 8 <3v), Þorbergur
Aðalsteinsson 6, Björgvin Björgvinsson 4,
Frlendur Hermannsson, Ólafur Jónsson,
Páll Björgvinsson og Magnús Guðmunds-
son eitt mark hver.
MISNOTUÐ VÍTAKÖST: Birgir Finn
hogason, FH, varði víti Ólafs Einarssonar
á 6. nifnútu. Magnús Olafsson, FII, varði
vfti Páls Björgvinsson á 29. mfnútu,
Viggós Sigurðssonar á 44. mfnútu og Ólafs
Finarssonar á 52. mfnútu og Janus
Guðiaugsson, FH, átti skot I stöng úr vígi
á $6. mfnútu.
BROTTVÍSANIR AF LEIKVELLI: Janus
Guðlaugsson. Arni Guðjónsson og
Sæmundur Stefánsson, allir úr FH, útaf f
2 mfnútur hver, Ólafur Einarsson. Vfk-
ingi, útaf f 5 mfnútur og Viggó Sigurðs-
son, Vfkingi, útaf í 2 mfnútur.
— SS.
ÍR — Þróttur
í STUTTU MALI:
Islandsmótið 1. deild
Laugardalshölf 5. aprfl
ttRSLIT: IR — Þróttur 27 —29 (14—14)
GANGUR LEIKSINS:
Mín. IR Þróttur
2. Brynjólfur 1:0
3. 1:1 Siguróur
4. Vilhjílmur 2:1
5. 2:2 Konráð
7. 2:3 Sveiniaugur
8. ÁKÚ't 3:3
9. 3:4 Konráð
11. Brynjélfur 4:4
11. 4:5 Siguróur
12. 4:6 Sveinlaugur
13. Agúsl 5:6
15. Agúsl (v) 6:6
16. 6:7 Sveinlaugur
17. Brynjólfur 7:7
18. Agúsl 8:7
18. 8:8 Sveintaugur
19. Agúst (v) 9:8
20. 9:9 Jóhann
20. Vilhjálmur 10:9
20. 10:10 Siguróur
21. 10:11 Gunnar
23. 10:12 Jóhann
24. Sigurður Sv. 11:12
25. 11:13 Konráð
26. 11:14 Konráð
27. Vilhjálmur 12:14
29. Brynjólfur 13:14
29. Hörður 14:14
halfleiklr
31. Sigurður Sv. 15:14
32. 15:15 Haiidór
33. Siguröur Sv. 16:15
33. 16:16 Sveinlaugur
34. Agúst 17:16
36. 17:17 Sveinlaugur
38. Agúst 18:17
39. 18:18 Halldór
39. 18:19 Bjami
40. Brynjólfur 19:19
41. 19:20 Konráð
42. Sigurður Slg. 20:20
42. 20:21 Konráð
45. Agúst 21:21
48. Vilhjálmur 22:21
49. 22:22 Konráð
49. Agúst 23:22
50. 23:23 Konráð
51. 23:24 Sveinlaugur
52. Viihjálmur 24:24
53. 24:25 Sveinlaugur
53. Vilhjálmur 25:25
53. 25:26 Halldór
55. Agúst 26:26
58. 26:27 Konráð
60. 26:28 Sveiniaugur
60. Vilhjáimur 27:28
60. 27:29 Sigurður
MÖRK ÍR: Agúst Svavarsson 10, Vil-
hjálmur Sigurgeirsson 7, Brynjólfur
Markússon 5. Sigurður Svavarsson 3,
Hörður Hákonarson 1, Sigurður Sigurðs-
son 1.
MÖRK ÞRÓTTAR: Konráð Jónsson 9.
Sveínlaugur Krist jánsson 9, Sigurður
Sveinsson 4, Halldór Bragason 3, Jóhann
Frfmannsson 2, Gunnar Gunnarsson 1,
Bjarni Jónsson 1.
BROTTVÍSANIR AF VELLI: Sævar
Ragnarsson og Jóhann Frfmannsson,
Þrótti. f 2 mfn.
MISHEPPNUÐ VlTAKÖST: Örn Guð-
mundsson varði vftakast Konráðs Jónsson-
ar á 30. mfn. og Ingimundur Guðmunds-
son varði vftakast Sveinlaugs Kristjáns-
sonar á 40. mfn. Sigurður Ragnarsson
varði vftakast Vilhjálms Sigurgeirssonar
á 41. mfn. og Agúst Svavarsson átti vfta-
kast f stöng á 54. mfn.
DÓMARAR: Gunnar Kjartansson og Ölaf-
ur Steingrfmsson og dæmdu þeir ágæt-
lega.
— stjl.
Haukar —
Grótta
I STUTTU MALl:
íþróttahúsið Hafnarfirði miðvikudag-
inn 6. apríl, íslandsraótið i handknattleik,
1. deiid karla, llaukar — Grótta 26:18
(14:10). MÍN HAUKAR (iRÓTTA
2. Hörður 1:0
6. 1:1 Georg
9. 1:2 Arni
10. Stefán 2:2
10. Hörður 3:2
n. 3:3 Grétar
14. Þorgeir 4:3
15. Þorgeir S:3
16. 5:4 Magnús Sig.
16. Hörður 6:4
17. 6:5 Magnús Sig.
19. Hörður 7:5
19. 7:6 Hörður Már
20. Ólafur 8:6
21 8:7 Hörður Már
21 Ólafur 9:7
22. 9:8 Gunnar
23. 9:9 Magnús Sig.
24. Hörður 10:9
25. Þorgeir 11:9
25. Guðmundur 12:9
26. Þorgeir 13:9
29. Jón H. 14:9
29. 14:10 Magnús Sig.
33. Hálfieikur 14:11 Georg
33. Hörður 15:11
34. 15:12 Ami I. (v)
35. Þorgeir 16:12
38 Jón H. 17:12
39. Ólafur 17:14 Georg
39. 16:13
40. Óiafur 18:14 Gunnar
43. 19:14
44. 19:15 Arni I. (v)
45. Jón H. 20:15
46. 20:1« Gunnar
48. Ingimar 21:16
51. JÓn H. 22:16
52. Þorgeir 23:16
54. 23:17 Ami I. (v)
55. Jón H. 24:17
56. • 24:18 ArniL (v)
58. Hörður 25:18
59. Sigurður 26:18
Mörk Hauka: Hörður Sigmarsson 7. Þor-
geir llaraldsson 6. Jón Hauksson 5, Ólafur
H. Ólafsson 4, Guðmundur Haraldsson,
Ingimar Haraldsson, Sigurður Aðalsteins-
son og Stefán Jónsson eitt mark hver.
Mörk Gróttu: Arni Indriðason 5 <3 v),
Magnús Sigurðsson 4, Georg Magnússon 3,
Gunnar Lúðvfksson 3, Hörður Már
Kristjánsson 2, Grétar Vilmundarson eitt
mark.
Misnotuð vftaköst: Hörður Sigmarsson
vfti f stöng á 5. mfnútu, Bjöm Pótursson.
Gróttu. vfti f stöng á 44. mfnútu. Gunnar
Einarsson, llaukum. varði vfti Björns
Péturssonar á 46. mfnútu og Grftars Vil-
mundarsonar á 49. mfnútu og Guðmundur
Ingimundarson, Gróttu. varði víti Ölafs
Olafssonar á 56. mlnútu.
Brottvfsanir af velli: Engin.
- —SS.