Morgunblaðið - 20.04.1977, Side 3

Morgunblaðið - 20.04.1977, Side 3
3 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL1977 Tilfærslur á sendiherrum Utanríkisráðuneytiö hef- ur nú ákveðið að gera nokkrar tilfærslur á sendi- herrum íslands erlendis og koma þær til framkvæmda í júlí — ágúst n.k. t frétt, sem Morgunblaóinu barst frá ráóuneytinu i gær, segir, að Guómundur í. Guðmundsson sendiherra í Stokkhólmi taki við sendiherraembættinu í Bruxelles og jafnframt stööu fastafulltrúa í ráði Atlantshafsbandalagsins. Tómás Á. Tómasson sendiherra i Bruxelles tekur við starfi fasta- fulltrúa íslands hjá Sameinuðu þjóðunum og Ingvi S. Ingvarsson tekur við sendiherraembættinu í Stokkhólmf. Sinfóníutónleikarnir: Nýjabrum og snillingar SÍKurður Ájíústsson Madur týndur Rannsóknarlögreglan í Kópavogi hefur lýst eftir 53 ára gömlum manni, Sigurði Ágústssyni, Birki- grund 39, Kópavogi. Sigurður fór af Borgarspítalan- um klukkan þrjú á mánudaginn og hefur ekkert til hans spurzt síðan. Sigurður er um 170 cm á hæð, grannvaxinn og með grásprengt hár. Hann var klædd- ur í græna hettuúlpu, ljósbrúnar buxur, svörtum uppháum kulda- sköm og verið getur að hann hafi haft á höfði svarta húfu með hvitri rönd. Þeir, sem vita um ferðir Sigurðar eru beðnir að hafa samband við lögregluna í Kópa- vogi. TÓNLEIKAR Sinfóníu- hljómsveitar ísland á morgun, sumardaginn fyrsta, verða töluvert nýstárlegir, því að þar verður frumflutt verk eftir Þorkel Sigurbjörnsson og jafnframt flutt verk eftir bandarískan stjórnanda hljómsveitarinnar, Samuel Jones. Ekki nóg með það heldur verður einleikari meó hljómsveitinni brezki píanóleikarinn John Lill, og mun væntanlega gera þriðja píanókonsert Beet- hovens góð skil. Efnisskrá tónleikanna á morgún einkennist annars af helmingaskiptum milli nýrrar og sígildrar tón- listar. Fyrst verður frum- flutt verkið ,,Ríma“ eftir Þorkel Sigurbjörnsson en þá tekur við pianókonsert- inn sem áður er getið. Síð- an verður flutt verkið „Let Us Now Praise Famous Men“ — hljómsveitarverk eftir stjórnandann Samuel Jones og loks flytur hljóm- sveitin Polovtsian-dansa eftir Borodin. Hljómsveitarstjórinn dr. Samuel Jones veitir forstöðu Shepherd-tónlistarskólanum í Houston í Texas. Hann er jafn- framt- eftirsöttur hljómsveitar- stjóri og hefur stjórnað mörgum þekktustu hljómsveitum vestan hafs auk þess sem hann er afkastamikió tónskáld. Verkið sem hér verður flutt samdi hann i tilefni af 200 ára afmæli byggðar I Shenandoah-dalnum og var verkið frumflutt í Woodstock i Virginíu árið 1972 undir stjórn Jones sjálfs. John Lill, einleikarinn að þessu sinni, er hins vegar í röð fremstu pianóleikara Bretlands, en hann vakti heimsathygli er hann vann til fyrstu verðlauna á Tsjai- kovsky-keppninni í Moskvu 1970. Síðan hefur hann leikið viða-um álfur, bæði hérna megin og hinum megin Atlantshafsins og viðar. Hann sótti okkur m.a. heim á Listahátíðinni 1972 L*____L. að verðmæti 25 milljónir að verðmæti 30 millíónir Dregið út strax í júlí Dregið út í I2.fk>kki Sala á lausum miöum stendur yfir Mánaðarverð míða er kr. 500 -en ársmiði kr. 6.000 Happdrættí DAS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.