Morgunblaðið - 20.04.1977, Síða 11

Morgunblaðið - 20.04.1977, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRlL 1977 11 Jón E. Guðmundsson, Helga Steffensen og Hallveig Thorlacius með brúður úr Að skemmta skrattanum. Starra í Garði. Beiskust er þó sú niðurstaða verksins að strompar hinnar nýju verk- menningar hafi tekið við þvi hlutverki skrattans að slökkva á sólinni. Það er greinilega Krafla sem Helga hefur í huga og deilir á i verkinu. Kröfluvirkjun liggur að vonum vel við höggi enda er enga vægð að finna I Að skemmta skrattanum. En ádeila verksins sem er að visu undirstaða þess skyggir hvergi á kimilegu hliðarnar sem eru fjölmargar. Brúðurnar sjálfar eru gerðar af mikilli kunnáttu, ekki síst skrattinn og gamla konan. Verkið er ef til vill nokkuð hægfara sé miðað við brúðuleikhús almennt, en þess ber að gæta að textinn gegnir veigamiklu hlutverki. Hann er ekki út í bláinn eða aðeins til þess að skrýtnar brúður segi eitthvað. Hætta brúðuleikhúss er m.a. fólgin í þvi að það sé aðeins sýning á brúðum eða sprell. Það verður að gera þær kröfur til brúðuleikhúss að það hafi einhverju að miðla áhorf- andanum. Gaman væri að fram- hald yrði á verki eins og Að skemmta skrattanum með þeim hætti að góðir höfundar kæmu til móts við brúðuleikhúsið. Stjórnendur brúða hafa náð athyglisverðum árangri og það er íslensku brúðuleikhúsi mikil stoð að njóta leiðsagnar Jóns E. Guðmundssonar. Brúðuleik- húsið er vandmeðfarin list þar sem engu má skeika. Helst mætti finna að þvi að tal leikar- anna hafi ekki verið nógu skýrt (tæknilegs eðlis), en sé þess getið sem framúrskarandi var er það tvímælalaust túlkun Önnu Guðmundsdóttur á kerl- ingunni sem skrattinn sækir. Sama dag og Að skemmta skrattanum var frumsýnt sýndi Leikbrúðuland þrjá gamla kunningja: Fræið, 10 litla negrastráka og Meistari Jokob vinnur I happdrættinu. Um þessa þætti hefur áður verið fjallað, en sú skoðun skal árétt- uð að Fræið hafi verið skemmtilegast, trúast eðli brúðuleikhússins. En framleg Leikbrúðulands er við hæfi barna og mátti heyra að börnin kunnu vel að meta það sem fram var borið. Það er nú að færast I vöxt í brúðuleikhúsi að brúðurnar séu ekki einráðar á sviðinu. í Að skemmta skrattanum lék Bryndís Gunnarsdóttir hlut- verk verkfræðingsins. Þessu Framhald á bls. 18 að fyrirtækið hefði löngum haft sérstakan áhuga á útgáfu bóka um Norðurlönd og væri Island þar efst á blaði vegna sérstakrar menningar og sögulegs bak- grunns nútímaþjóðfélagsins. Sagði Christopher, að bókin Northern Sphinx ætti tildrög sin að rekja til timabils síðasta þorskastriðs. Hefði honum þá fundist vanta tilfinnanlega gagn- merka bók á ensku um íslendinga sjálfa, menningu þeirra og sér- kenni. Hefði hann um þær mund- ir komist i samband við Sigurð A. Magnússon sem hefði haft undir höndum handrit að bók, einmitt bók eins og hann hefði haft í huga að gefa út. Að visu hefði þurft að gera smábreytingar á handriti og uppfæra það örlítið, en i megin atriðum hefði það verið eins og bókin kemur fyrir sjónir. Sagði Hurst bókina eiga að vera að- gengilega fyrir almenna borgara þótt eflaust gæti hún jafnvel kom- ið að notum fyrir fræðimenn sem áhuga hefðu á íslandi. Á fund- inum með fréttamönnum fór Christopher Hurst mjög lofsam- legum orðum um höfund bókar- innar og sagði verkið vera meistarastykki í samþjöppun efnisatriða, án þess að um upp- talningarrit væri að ræða. „Þetta er góð lestrarbók, sem getur örugglega orðið mörgum að liði við að fræðast betur um íslend- inga og sérkenni þeirra þjóð- félags,“ sagði Christopher. Sig- urður A. Magnússon sagði að samning handrits hefði tekið um 5 ár í heild, en í lok þessa tíma hefðu svo ýmis atriði verið færð i réttari mynd miðað við breyt- ingar sem orðið hefðu. Bókinni verður dreift hérlendis af Bóka- verzlun Snæbjarnar Jónssonar og mun kosta tæpar 3 þúsund krónur. Kökusala um borð í varðskipi Á SUMARDAGINN fyrsta heldur félag aðstandenda Landheigis- gæzlumanna, Ýr, kökusölu, og ve.rður hún um borð í varðskipinu Óðni við varðskipabryggjuna á Ingólfsgarði. Þar verða . á boð- stólnum gómsætar kökur af öllum tegundum við vægu verði. Skip- verjar á varðskipinu munu sýna þeim gestum skipið sem áhuga hafa á. Ágóði af kökubasarnum mun renna í væntanlegan orlofs- heimilissjóð Landhelgisgæzlu- manna. Það er Pétur Sigurðsson, forstjóri Landhelgisgæzlunnar, sem af vinsemd hefur leyft Ý að halda kökusöluna um borð i þvi varðskipi sem mun verða i höfn á sumardaginn fyrsta. Kökusalan hefst kl. 14 e.h. Bernhöftstorfan rædd í ríkisstjórn Ekkert er enn afráðið um örlög Bernhöftstorfunnar af hálfu Stjórnvalda, en að sögn Vilhjálms Hjálmarssonar menntamálaráð- herra hefur þó Bernhöftstorfan komið fyrir á fundi í ríkisstjórn- inni. Þar var ákveðið að kanna málið betur áður en nokkur ákvörðun yrði tekin hvað gera skyldi. Ekki vildi ráðherra spá neinu urn hvenær ákvörðunar væri að vænta um þetta mál en það gæti varla talist mjög aðkall- andi miðað við ýmis önnur mál sem ríkisstjórnin fæst við um þessar mundir. Hafið þið kynnst, þú og King Oscar? King Oskar kipper síld er íslenzk framleiðsla og eitt alódýrasta og bezta áleggið á markaðnum í dag. Góð með brauði og kexi, ágætis uppistaða í salöt og margt fleira. KIPPER SNACKS 0F HERRING * LIGHTLY SMOKED FILLETS Ertu að byggia? Það fyrsta, sem hver húsbyggjandi þarf að hafa í huga er að tryggja sér gott timbur. t meir en 70 ár höfum við verslað með timbur. Sú mikla reynsla kemur nú viðskiptavinum okkar til góða. Við getum m.a. boðið: Móta og byggingatimbur í uppsláttinn og sperrurnar. Smíðatimbur og þurrkað timbur í innréttingar. Réttheflað timbur í skilrúmin. Gagnvarið timbur í veggklæðningar, girðingar og gróðurhús. Viðarþiljur á veggina. Einnig höfum við margar þykktir og gerðir af krossvið og spónaplötum, svo og harðtex, olíusoðið masonite, teak, oregonfuru eða cypress í útihurðir o.fl. Eik og teak til húsgagnasmíði. Efni í glugga og sólbekki. Onduline þakplötur á þökin. Þá útvegum við límtrésbita og ramma í ýmiss konar mannvirki. áTá Timburverzlunin ▼ Vdlundur hf. KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.