Morgunblaðið - 20.04.1977, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRlL 1977
13
Jafnsjálfsagt að verja
Grjótagjá og byggðina
- segir framkvæmdastjóri Náttúruverndarráds —
®PermobeI
— Þetta er nú það fyrsta, sem
ég heyri um að Grjótagjá sé í
hugsanlegri hættu af varnar-
garðagerð á Mývatnssvæðinu,
sagði Árni Reynisson, fram-
kvæmdastjóri Náttúruverndar-
ráðs, er Mbl. leitaði til hans vegna
mótmæla Vogabúa, sem telja að
með svonefndum varnargarði 7 sé
stefnt að þvf að beina hugsanlegu
hraunrennsli að Grjótagjá og
eyðileggja hana. — Við höfum
reglulega fundi með heimamönn-
um þarna og sá næsti verður um
helgina. Ég tel Ifklegt að þá verði
þetta mál rætt en það get ég sagt
strax að frá sjónarmiði Náttúru-
verndarráðs er jafnsjálfsagt að
verja Grjótagjá og að verja byggð-
ina. Þetta eru tvenns konar verð-
mæti sem full ástæða er til að
verja, sagði Árni Reynisson.
Arni sagði, að Náttúruverndar-
ráð hefði fallizt á tillögur um
garðagerð til að verja byggðina
fyrir hugsanlegu hraunrennsli,
en i umræðum um þessi mál hefði
aldrei verið á það bent, að slík
garðagerð gæti stefnt Grjótagjá i
voöa.
— Þetta mál verður vafa-
iaust sérstaklega rætt á fundinum
með heimamönnum um helgina,
sagði Árni, og reynist ótti Voga-
búa á rökum reistur, verður að
sjálfsögðu gripið til nauðsynlegra
ráðstafana til að vernda Grjóta-
gjána.
Skátar og Sumargjöf sjá
um skemmtanir í Reykja-
á sumardaginn fyrsta
BLONDUN
á stadnum
bílalökk á allfle^i|r
tegundir bíla
frá Evrópu
Japan og
USA
1
CARCOLOtt
Á sumardaginn fyrsta munu
skátar f Reykjavfk og Sumargjöf
standa að skemmtunum f tilefni
dagsins sem endra nær.
Að þvf er segir í fréttatilkynn-
ingu frá Skátasambandi Reykja-
vfkur, þá verða skátamessur
haldnar á vegum skáta í Nes-
kirkju og Breiðholtsskóla. Enn-
fremur verður messa í Hallgrfms-
kirkju sérstaklega ætluð eldri
skátum og velunnurum þeirra.
Þar mun sr. Ragnar Fjalar þjóna
fyrir altari en frú Ingibjörg Þor-
valdsdóttir predika.
Skrúðgöngur verða frá Hljóm-
skálanum og Sjómannaskólanum
kl. 13.00 og verður gengið að
Austurbæjarskólanum þar sem
skátarnir hafa komið fyrir Tívoli
og verður selt inná svæði skólans
fyrir vægt verð. Kr. 100.00 fyrir
fullorðna og kr. 50.00 fyrir börn,
síðan verður Sumarkróna seld á
staðnum og verður hún gjaldmið-
ill fyrir þau leiktæki sem verða að
staðnum. Þar verða m.a. skot-
bakkar, dósabakkar, spákonur og
margt annað sem fróðlegt er að
sjá og reyna. Skemmtiatriði munu
verða á palli innan svæðisins og
munu þau verða endurtekin með
stuttu millibili þann tíma sem
Tívoliið er opið.
Um kvöldið mun svo verða al-
mennur dansleikur í porti skólans
og mun hljómsveitin ,,Póker“ sjá
um að skemmta fólki þar. Einnig
munu skátarnir sjá um sitt eigið
skátaball í Tónabæ og verður það
aðeins fyrir skáta.
BLOSSX í
SKIPHOLTI 35 Verilun 8 i3-so
REYKJAVlK Í!ÍS
Langt frá öllu lagi
segir formadur Lagarfljótsnefndar um hug-
myndir um hækkun vatnsborðs Lagarfljóts
Morgunbladid
óskareftir
bladburdarfólki
— Ég tel þessar hugmyndir svo
langt frá öllu lagi, að ég veit
hreint ekki hvaða orð ég á að hafa
um þær, sagði Hjörieifur Gutt-
ormsson, formaður Lagarfljóts-
nefndar, þegar Mbl. leitaði álits
hans á þeim ummælum rafveitu-
stjórnans á Égilsstöðum, Erlings
Garðars Jónassonar, að til um-
ræðu væri að rafmagnsveiturnar
fengju að hækka vatnsborð
Lagarfljóts i vetur. — Með þvf að
fara I 21 metra, eða ef til vill
hærra, er fljótið komið svo veru-
lega yfir náttúrulega hæð sfna, að
upp koma alls kyns atriði, sem
engar skýringar hafa fengizt á,
sagði Iljörieifur.
Hann kvaðst hins vegar ekkert
hafa heyrt um þessar hugmyndir
fyrr en Mbl. skýrði honum frá
þeim, en skylt er að hafá samráð
við Lagarfljótsnefnd i máli sem
þessu. — Ég vil benda á, sagði
Hjörleifur, að hæð vatnsborðsins
var mál, sem á sinum tíma var
mjög lengi á athugunarstigi.
Þetta var mjög viðkvæmt mál og
það var ekki hlaupið að þvi að
finna því friðsamlega lausn, sem
ég tel að hafi tekizt. Samkomulag-
ið um 20,5 metra vatnsborð við
Lagarfljótsbrú á timabilinu 1.
október til 30. apríl gildir til árs-
loka 1978 og ég tel hiklaust, að
það væri bezt að fá reynsluna af
þeirri miðlun út næsta ár, áður en
áfram er haldið, og með fyrri sam-
komulagsgerð i huga tel ég hreint
ekki auðvelt að freista þess að ná
samkomulagi um einhver frávik
frá þvi.
Austurbær: Flókagata, neðri
#
Uthverfi: Blesugróf
_ % Upplýsingar í síma 35408
Flugleiðir bjóða ný-
stárleg sérfargjöld
FLUGLEIÐIR hafa tekið upp ný-
breytni í þjónustu sinni því að frá
1. aprfl hafa tekið gildi ný sérfar-
gjöld á leiðinni milli íslands og
Evrópulanda. Fyrir tilstilli þess-
ara sérfargjalda, sem eru hlið-
stæð vor- og haustfargjöldum,
geta þeir sem eiga þess kost að
gera ferðaáætlun með nokkrum
fyrirvara nú átt þess kost að ferð-
ast frá Islandi til 57 borga í
Evrópu.
Þessi almennu sérfargjöld gefa
einnig möguleika á þvi að unnt er
að hafa viðkomu í öðrum borgum,
bæði á leiðinni út og á leiðinni
heim, þannig t.d að sá sem er á
leið til Danmerkur getur haft við-
komu í Ösló á leiðinni til Kaup-
mannahafnar og síðan i Glasgow á
leiðinni heim. Eftir að til Kaup-
mannahafnar er komið gildir far-
seðillinn siðan áfram til allra
borga i Danmörku en verðið er
eftir sem áður hið sama eða
53.740 krónur. Þetta er frábrugð-
ið venjulegu leiguflugi, þar eð
farseðillinn í þeim er bundinn við
viðkomandi áfangastað, að því er
Sveinn Sæmundsson, blaðafull-
trúi Flugleiða, skýrði Morgun-
blaðinu frá í gær.
Auk þessara sérfargjalda eru
nú í gildi sérstök fargjöld i áætl-
unarflugi, sem geta kostað minna
heldur en annarrar leiðar far á
þessari sömu flugleið en því fylg-
ir það skilyrði að ferðamaðurinn
verður að kaupa með þessu far-
gjaldi viðdvöl og greiða fyrir það
aukalega um 25 sterlingspund eða
röskar 8 þúsund 'krónur. Ásamt
þessu munu Flugleiðir sðan í
sumar standa fyrir 111 leiguflug-
ferðum til Evrópulanda á sam-
svarandi kjörum og gerðist hjá
öðrum þeim sem hér halda uppi
leiguflugi.
Aðstoðarutan-
ríkisráðherra
Sovétríkjanna
í heimsókn
- Aðstoðarutanríkisráðherra
Sovétrikjanna, Igor Nikolayevich
Zemskov, kom i opinbera heim-
sókn til Íslands i gær. Hann mun
dvelja á íslandi i tvo daga og eiga
viðræður við Einar Ágústsson
utanríkisráðherra og embættis-
menn utanríkisráðuneytisins.
|>olid e t ótfúlegt
Veðrunarþol er einn veigamesti eiginleiki,
sem ber að athuga þegar málað er við
íslenzkar aðstæður.
Þol — þakmálningin trá Málningu h.f.
hefur ótvírætt sannað gæði sín, ef dæma
má reynslu undanfarinna ára. Stöðugt
eftirlit rannsóknastofu okkar með
framleiðslu og góð ending auk meðmæla
málarameistara hafa stuðlað að
vinsældum ÞOLS.
ÞOL er alkýðmálning. Einn lítri fer á um
það bil 10 fermetra.
ÞOL er framleitt í 10 staðallitum, sem gefa
fjölmarga möguleika í blöndun.
ÞAKMÁLNING
SEM ENDIST
málning'f