Morgunblaðið - 20.04.1977, Blaðsíða 17
16
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRlL 1977
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 20. APRlL 1977
17
Útgefandi
Framkvœmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingasjóri
Ritstjóm og afgreiðsla
Auglýsingar
hf. Árvakur. Reykjavlk.
Haraldur Sveinsson.
Matthlas Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Bjöm Jóhannsson.
Árni GarDer Kristinsson.
ASalstræti 6. slmi 10100.
Aðalstrœti 6. slmi 22480
Alþýðuflokkurinn
og varnarmálin
Benedikt Gröndal, formaður Alþýðuflokksins, skrifaði at-
hyglisverða grein hér I Morgunblaðið í sfðustu viku, þar sem hann
fjallaði um afstöðu Alþýðuflokksins til varnarmála, aðildar Islands að
Atlantshafsbandalaginu og varnarsamstarfsins við Bandarfkin, og tók
af öll tvfmæli um viðhorf Aiþýðuflokksins til þeirrar meginstefnu f
utanrfkismálum, sem við tslendingar höfum byggt á frá strfðsfokum.
1 grein þessari sagði Benedikt Gröndal m.a.: „ftg er jafn sannfærður
um það f dag og ég var fyrir 28 árum, að sú stefna fslenzka lýðveldisins
I öryggismálum, sem þá var mörkuð, var rétt. Sámkvæmt öllum
lögmálum utanrfkismála, valdatogi og valdajafnvægi risaveldanna,
landfræðilegri stöðu og þróun vopnabúnaðar kom ekki annað til mála
en taka þátt f varnarsamtökum grannrfkja okkar við N-Atlantshaf.
Þótt margt hafi breytzt til hins betra og Ifkur á styrjöld milli stórvelda
minnkað eru þessi grundvalfaratriði enn óbreytt. Valdataffið heldur
áfram og vfgbúnaðarkapphlaupið er f algfeymingi. Varnarlaust ts-
land mundi, eins og nú horfir, gerbreyta jafnvægi á nyrzta hfuta
Atlantshafs. Staða Noregs mundi stórversna og þrýstingur á tslend-
inga magnast. Við þurfum sannarlega að hugsa meira og raunhæfar
um þessi mál en við höfum gert og gera okkur grein fyrir framþróun
þeirra án allra hleypidóma. Íslenzka þjóðin hefur verið þverklofin f
utanríkis- og öryggismálum allt frá lokum heimsstyrjaldarinnar. Þessi
klofningur er til lengdar hættulegur, af þvf að þessi mál eru einmitt
beint framhald sjálfstæðisbaráttunnar. Það er skylda ábyrgra manna
að reyna að draga úr ágreiningi og einangra þá fámennu hópa, sem
vfsvitandi stefna f ógæfuátt.“
Þetta er vef mælt hjá formanni Alþýðuflokksins og sérstakt fagnað-
arefni, að Benedikt Gröndal hefur ftrekað með svo afdráttarlausum
hætti stuðning Alþýðuflokksins við þá grundvallarstefnu f utanrfkis-
málum Islendinga, sem fylgt hefur verið f þrjá áratugi og Alþýðu-
flokkurinn og forystumenn hans áttu svo mikinn þátt f að móta, enda
gerðist Isfand aðili að Atlantshafsbandalaginu f stjórnartfð rfkis-
stjórnar Stefáns Jóhanns Stefánssonar fyrrum formanns Alþýðu-
flokksins. Yfirleitt hefur raunin orðið sú f V-Evrópu, að jafnaðarmenn
hafa reynzt hinir traustustu og sterkustu málsvarar þess varnarsam-
starfs, sem fram fer innan vébanda Atlantshafsbandalagsins. Svo er
um jafnaðarmenn f Danmörku og þá ekki sfður í Noregi, en afstaða
Verkamannaflokksins norska til öryggismála norsku þjóðarinnar er til
slíkrar fyrirmyndar, að margir mættu af henni læra, enda er hún
mótuð af þeim merku leiðtogum norskra jafnaðarmanna, sem kynnt-
ust af eigin raun ógnum einræðisins f heimsstyrjöldinni siðari.
Benedikt Gröndal gerir þessa afstöðu jafnaðarmanna f V-Evrópu að
umtalsefni f grein sinni og segir: „Svo fór um alla V-Evrópu, að
yfirgnæfandi meirihluti jafnaðarmanna taldi stofnun og styrk Atlants-
hafsbandalagsins vera einu leiðina til að tryggja frið f álfunni og
varðveita frelsi þeirra þjóða þar, sem ekki höfðu glatað þvf fyrir 1949.
Árin sfðan hefur rfkt mikil velmegun f hinum frjálsu löndum álfunn-
ar og þau hafa öll kosið að koma upp velferðarrfkjum, sem er mikill
sigur fyrir jafnaðarstefnuna. Á móti kemur samdráttur fjármagns og
áhrifa f hinum risavöxnu fjölþjóða auðhringum, en það styrkir stöðu
auðmagnsins. Átlantshafsbandalagið hefði aldrei orðið til eða dafnað
án sterkrar þátttöku evrópskra jafnaðarmanna og leiðtogar þeirra hafa
gegnt mikilvægu forystuhlutverki innan þess. Hér á landi hafa þeir
einnig átt veigamikinn þátt f mörkun stefnunnar f varnarmálum og
nægir að nefna f þvf sambandi menn eins og Stefán Jóh. Stefánsson,
Guðmund I. Guðmundsson og Emil Jónsson."
Um meginstefnuna í utanrfkis- og öryggismálum hefur yfirleitt rfkt
samstaða meðal þeirra þriggja lýðræðisflokka, sem stóðu að aðild
tslands að Atlantshafsbandalaginu 1949. Stöku sinnum hefur að vfsu
kastazt f kekki milli þessara flokka, Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar-
flokksins og Alþýðuflokksins, en aldrei hefur það þó leitt til fráhvarfs
frá þessari grundvallarstefnu, og meðan lýðræðisflokkarnir þrfr
standa saman um hana er sjálfstæði íslands borgið. Það hlýtur svo að
vera stöðugt viðfangsefni á hverjum tfma að gera uppvaxandi kynslóð-
um í landinu grein fyrir forsendum þessarar stefnu f utanríkis- og
öryggismálum. Hinar eldri kynslóðir og þeir, sem nú eru að komast á
miðjan aldur upplifðu sjálfir af eigin raun þá atburði, sem leiddu til
stofnunar Atlantshafsbandalagsins og varnarsamningsins við Banda-
rfkin. Þessar kynslóðir komust f snertingu við þann ótta, sem greip um
sig f V-Evrópu eftir styrjaldarlokin, þegar lýðræðisþjóðir vestan
járntjaldsins afvopnuðust, en Sovétrfkin héldu áfram að hervæðast og
kommúnistastjórnir voru settar á fót f hverju Austur-Evrópulandinu á
fætur öðru f skjóli Rauða hersins.
Ungt fólk f dag, sem er innan við þrftugt, hefur hins vegar ekki sömu
forsendur og þeir, sem eldri eru, til þess að skilja af eigin raun þessa
stefnu. Þess vegna skiptir það miklu máli, að hinir eldri hafi það
jafnan f huga, að nauðsynlegt er að uppfræða æskuna um þá atburði,
sem leiddu til þess, að tslendingar mótuðu þá stefnu f utanríkis- og
öryggismálum, sem sfðan hefur verið fylgt. En jafnframt hafa komið
til sögunnar ný rök, sem öll hnfga að sama marki og það eru rök, sem
unga fólkið á fsiandi á að eiga auðvelt með að skilja. Það eru rök hinna
vaxandi umsvifa Sovétrfkjanna á N-Atlantshafi, sem jafngilda þvf að
Sovétrfkin ættu landamæri að tslandi og hefðu uppi stöðugar hernað-
arógnanir við þessi landamæri með sama hætti og þau hafa uppi við
landamæri Sovétrfkjanna og Noregs. I raun og veru er stigsmunur en
ekki eðlismunur á návist sovézka flotans við tsland og nágrenni þeirra
við Finnland.
Sú skylda hvflir ekki sfzt á forystumönnum lýðræðisflokkanna
þriggja að halda uppi þvf fræðslustarfi, sem er nauðsynlegt til þess að
upprennandi æska geri sér grein fyrir nauðsyn þeirrar utanHhis-
stefnu, sem mótuð var fyrir 30 árum. Grein Benedikts Gröndals,
formanns Alþýðuflokksins, f Morgunblaðinu f sfðustu viku var mál-
efnalegt og sterkt framlag til þeirrar fræðslustarfsemi.
Spassky-Hort — sídasta skákin — Spassky-Hort — síðasta skákin — Spassky-Hort — síðasta skákin — Spassky-Hort — síðasta skákin — Spassky-Hort — síðasta skákin
Hort missti þráð-
inn undir lokin
Kátir voru karlar...
Það er einsog að koma í innkaupa-
stofnun þegar maður kemur úr lyftunni
á hæð hér á hótelinu þar sem okkur
vesælum blaðamönnum hefur verið
plantað niður síðasta dag stóreinvígis-
ins. Innkaupastofnun stendur á dyr-
unum og síðan einhver nöfn utan á
dyrum aðskiljanlegra herbergja.
Annars má ég ekki halla á hann
Hilmar veitingastjóra, því hann hefur
svo sannarlega reynst vinur í raun,
tilbúinn að leysa hvern vandann sem
upp kemur. Nú þýða engin vettlinga-
tók við blaðamennskuna, allt verður að
vera tilbúið í maskínurnar klukkan hálf-
ellefu í kvöld og ekkert múður.
Hér ganga verkalýðsleiðtogar og
vinnumálamenn um sali og eiga
faktfskt hótelið. og Skáksambands-
stjórnin lifir uppá þeirra náð og bless-
un og einsog ég hef oft tekið fram, þá
erum við skriffinnarnir einskonar
sveitarlimir Skák-
sambandsstjórnar-
innar sem fluttir
erum hreppaflutn-
ingi eftir því sem
efni standa til
hverju sinni.
Kapp>arnir eru sestir við borðið og
Ríkisútvarp-Sjónvarp á staðnum með
sín tól og tæki Allt til reiðu og upp
kemur sænsk vörn, eitthvað svipað tafl
og Hort tefldi þegar hann lagði Ijónið
fyrir löngu síðan
Fólk þyrpist að og allt teiknar uppá
metaðsókn, búið að selja hátt í hundr-
að miða áður en leikurinn hefst
Þeir eru í skákgöllunum sínum aðal-
leikararnir og ég statistinn lét skera hár
mitt í tilefni dagsins lifandi f þeirri von
að ég verði boðinn f matarbita hjá
Brekkubóndanum á morgun. Þessi
grein er skrifuð á framsóknarvélina
hans Gunnars Salvarssonar sem hefur
reynst mér hin ágætasta hjálpar-
hella. . . Jóhannes skákkappi Jónsson
er sendiherra og þeim málum er því vel
borgið
Hér á númer 376 sem er alveg inn í
enda á ganginum á þriðju hæð er bæði
hjónarúm og góð aðstaða og sennilega
erum við vel varðir fyrir hnýsnum
áhorfendum, sem ekki hafa séð hvern-
ig skrifað er á ritvél.
í vinnudeilunni tefld teórfa
Á leið minni niður hitti ég Guðlaug
rektor og spyr hann eftir stöðunni I
vinnudeilutaflinu og hann segir að enn
séu þeir að leika byrjunina eða eftir
bókinni einsog það heitir á skákmáli.
Sigfinnur verkalýðsleiðtogi frá Norð-
firði situr I bakkabúðinni og er I brúnni
peysu en ekki einsog kollegar hans,
sem skera sig ekki úr á neinn hátt eru
borgaralega klæddir og enginn vandi
að taka feil á þeim og atvinnurek-
endum. Já, ég er að skrifa um hina
skákina þeirra Spasskys og Horts.
Leikurinn er æsandi og nú þegar klukk-
an er ekki nema sex er þegar orðið
mannfall á borðinu, drottningar liggja
óvlgar I valnum og válegir atburðir I
nánd. Báðir tefla af fullri hörku og
engin jafnteflislykt I loftinu
Hér hefur bæst nýr blaðamaður I
hópinn, lltill hnokki aðeins ellefu ára
og er fulltrúi Lac Monde I Frans
Hann ber sig faglega að verkefninu og
er með bláa möppu sem hann skrifar
leikina I ásamt athugasemdum. . Efni-
legur unglingur það Gunnar Steinn er
kominn á staðinn með ritvél tilbúinn i
slaginn og hér er llka Sæmundurá Vlsi
alvopnaður. Hér á 376 verður slegist
uppá lif og dauða um að gera slðasta
leiknum sem best skil Auðvitað eru
úrslitin þegar ráðin en ekki ástæða að
nefna verðandi sigurvegara I þeirri
órustu
Alltaf er verið að koma manni á
óvart. Sigurjón blaðafulltrúi heiðrar
okkur I herbergi númer 376 með þvl
að afhenda okkur boðskort frá sjálfum
menntamálaráðherra og frú þar sem
við erum beðnir að gera þeim hjónum
þá ánægju að koma til kvöldverðar I
Ráðherrabústaðnum miðvikudaginn
20 aprll kl. 1 9. Ég segi takk fyrir mig.
Já og ekki má gleyma þvl að Skáksam-
bandið býður llka til hófs á Hótel Borg
sama kvöld svo það verður nóg að gera
siðasta vetrardag
Nei þetta dugir ekki að hlaupa svona
út undan sér I annarri hverri setningu.
eftir
Björn
Bjarman
Teflt til þrautar í dag
því lokahófió er í kvöld
eftir
Sigtrygg
Sigtryggs-
son
HORT og Spassky setjast að skák-
borðinu í Kristalsal Hótels Loft-
leiða klukkan 14 f dag og tefla þá
til þrautar sfðustu skák einvfgis
þeirra, en skákin fór f bið f gær-
kvöldi. Áð mati sérfræðinga er
jafntefli Ifklegast. En kapparnir
verða að hafa hraðan á f dag þvf f
kvöld klukkan 19 er þeim boðið
ásamt fleiri gestum til kvöldverð-
ar f Ráðherrabústaðinn og þar
verða verðlaun
afhent. Sigur-
vegarinn fær 1.5
milljónir
fslenzkra króna
en sá sem tapar
einvfginu fær
eina milljón
króna.
Mikill mannfjöldi fylgdist með
skákinni á Loftleiðum i gær-
kvöldi, líklega um 500 manns.
Hort hafði hvítt og hann valdi þá
byrjun, sem færði honum eina
sigurinn i einvíginu, en Spassky
breytti útaf í fimmta leik. Sér-
fræðingar voru á þeirri skoðun að
Hort hefði fengið nokkru rýmra
tafl út úr byrjuninni og eftir 20
leiki lýsti Ingi R. Jóhannsson þvi
yfir að hann vildi frekar vera með
hvítu mennina. En Spassky tefldi
vel skákina út í gegn og engin
mistök gerði hann á seinni stigum
skákarinnar, eins og stundum
hefur gerst í þessu einvígi og sið-
ast á sunnudaginn. Þetta var ekki
sérlega fjörug skák og þegar á
leið var augljóst að hún myndi
fara í bið, sem líka kom í ljós og
Spassky lék biðleikinn í 42. leik.
Keppendur höfðu að þessu sinni
góðan tíma og hvorugur lenti i
tímahraki.
Hjálmarssonar menntamálaráð-
herra í Ráðherrabústaðnum í
kvöld, sem hann heldur skák-
meisturunum Boris Spassky og
Vlastimil Hort, aðstoðarmönnum
þeirra og eiginkonum, stjórn
Skáksambandsins ásamt starfs-
mönnum einvigisins, fulltrúum
fjölmiðla og nokkrum öðrum gest-
um. Þar verða ávörp flutt og verð-
laun afhent.
Einvfgisslit og sumarfagnaður
verður siðan haldinn að Hótel
Borg, í kvöld og verður þar dans
stiginn þar til kl. 2 eftir miðnætti,
en hljómsveit Hauks Mortens
leikur fyrir dansi. Ómar Ragnars-
son flytur gamanþátt og sönvar-
arnir Kristinn Hallsson og Vassily
Smyslov og e.t.v. fl. koma fram.
Aðgöngumiðar og borðapantan-
ir á skrifstofu Hótels Borgar frá
kl. 4 í dag eða við innganginn
(suðurdyr). Húsið verður opnað
kl. 9.
Einar S. Einarsson, forseti
Skáksambandsins, sagði f gær-
kvöldi að allar lfkur bentu til
þess að einhver hagnaður yrði af
einvfgishaldinu. Hann kvað þó
eftir að gera ýmislegt upp og vildi
hvetja þá sem eiga óuppgerða
reikninga við Skáksambandið að
gera skil sem allra fyrst, svo gera
mætti upp einvfgishaldið.
Hort fór sér að engu óðslega f byrjun skákarinnar. Hér er hann að ræða
frammi á gangi við Sigurjón blaðafulltrúa Skáksambandsins um
úreltar einvfgisreglur á meðan Spassky er að hugsa um næsta leik inni
f sal.
Er bangsi að leiSa
IjóniS í gildru?
En nú er seinagangurinn tekinn við á
neðstu hæðinni og sáttasemjari rlkisins
kominn I áhorfendasalinn mikilúðlegur
að vanda og skyggir á ýms stórmenni
sem lagt hafa leið slna hingað út I
mýrina
Spassky þarf mikið að hugsa og
Hort spásserar á hlaðinu og glottir. . .
Kannski ætlar Vlastimil kallinn að láta
spádóminn verða ofan á og láta vinn-
ingsskák Boris falla I gleymskunnar dá
(ég er að reyna að vera ofurlltið
skáldlegur).
Helgi Sæm, er hér nú I þessari
andránni og segir enga snerpu vera I
skákinni niðri að minnsta kosti tefli
Spassky linkulega og sé ekki að vænta
neinna stórviðburða af hans hálfu.
Þeir Gunnararnir sem ég minntist á I
slðasta greinarkorni eru móðgaðir yfir
hve hógværum orðum ég hefði farið
um skákgetu þeirra og segja að ég hafi
kallað þá smáskákvita Ég held þeirfari
ekki með rétt mál, en hef ekki neitt við
höndina til að sanna mál mitt. Á hinn
bóginn er orðið skákviti að sjálfsögðu
afstætt orð og ekki sama við hverja er
miðað
Staðan er enn I jafnvægi og erfitt að
fá áreiðanlegar spár
Klukkan er sjö og Spassky hefur eytt
klukkutlma til umhugsunar en Hort
aðeins hálftfma Er tékkneski björninn
að leiða Ijónið I sömu gildruna og hann
sjálfur hafnaði I slðasta leik? Hver veit?
Gunnar Eyþórsson snýr upp á sig og
talar frönsku við unga blaðamanninn
frá Le Monde. Það er ekki að heyra að
hann gefi Ellu Pálma neitt eftir I
frönskukunnáttu og er þá mikið sagt.
Vtrðulegur varafréttastjóri ónefnds
rlkisfjölmiðils er mættur og menn setur
hljóða og leggja gálgahúmgrinn til
hliðar meðan téður varafréttastjóri
kannar stöðuna á skákborðinu. Við I
öldungadeildinni reynum að halda
virðingu okkar og látum ungviðið um
skemmtilegheitin.
Er jafntefli á
nœstu grösum
Bragi vinur minn er allur á kafi I
kjaramálum og ég er i þann veginn að
láta sannfærast um að blaðamenn séu
lægst launaða stéttin I okkar vesæla
þjóðfélagi Þvllik ósköp Hungrið
sverfur að mér, löng biðröð I bakka-
búðinni og allt kaffi uppdrukkið og
ekkert meðlæti
Núna á mlnútunni átta hefur
Spassky svartan biskup á móti riddara
og sá stendur á hvitum reit. Ungu
skákvitarnir segja hvltu stöðuna rýmri
en varla nægilega góða til vinnings En
Horturinn þumbast áfram, leggur allt I
sölurnar.
Nú er Gunnar Steinn sestur við rit-
vélina og þá allt stuð búið hjá mér þvl
strákurinn er svo skratti flinkur að spila
á ritvél en ég seinn og mesti klaufi.
Nú er Spasský búinn að jafna
tlmann og vel það og ég held svei mér
þá. að farið sé að halla undan fæti hjá
bangsa. Ljónið hefur dregið út klærnar
og engin leið að spá nokkru um úrslit.
Sumir hafa orð á þvl að svarta staðan
sé slst verri
Klukkan mjakast áfram og aðeins
klukkutlmi og kortér eftir af tlmanum
og þegar hill undir sigur rússneske
Ijónsins, þvt jafntefli ætti að vera
nokkurn veginn öruggt
i neðri byggð er örtröð og varla
hægt að olnboga sig áfram og þó er
samgönguráðherra á staðnum
Skákvitarnír hér á hæðunum eru
hættir að diskutera skákina og verður
tlðrætt um pólitlk og fjölmiðla
Nú fer að halla að kvöldi hjá mér og
kveðfustundin að renna upp og liggur
við ég verði hátiðlegur og klökkur.
Þetta hefur þrátt fyrir allt verið ágæt
skemmtun og ég held ég megi segja
uppynging fyrir mig og á margan hátt
lærdómsrikt þó kunnáttan I skák hafi
ekki tekið neinum verulegum stökk-
breytingum I áttina til stjarnanna
Klukkan rúmlega tiu og ég hálf-
partinn búinn að tala eða skrifa loka-
orðin en allt i óvissu og biðskák fram-
undan og úrslítin óráðin og ég síðasti
maður til að spá um úrslit nema annað
hvort sigur á hvitt eða jafntefli. Hort
hefur sótt I sig veðrið og Ijónið slakað á
klónni og lesendur verða að blða til
morguns eftir endanlegum úrslitum úr
þessari slðustu og kannski fjörugustu
skákinni. ^
P.s. Pendúllinn heldur áfram að
sveiflast Þegar ég I einfeldni minni
hélt að öllu væri lokið og Spassky sæti
með sárt enni eða I besta falli jafntefli,
þá hafði dæmið alveg snúist við og
menn eru nokkurn veginn á einu máli
um að Hort megi þakka fyrir ef hann
nær jafntefli I stöðunni einsog hún var
þegar skákin fór I bið Að öðru leyti
endurtek ég þakkir mlnar til þeirra,
sem nennt hafa að lesa tilskrif mln
undanfarnar vikur.
„Og allir komu þeir aftur og enginn
þeirra dó. . . _ b.
Ég get trúað ykkur fyrir þvl landar
mlnir að það er meir en lltið strembið
að skrifa sæmilega grein hafandi
spegilmynd af sjálfum sér fyrir framan
sig eins og ég verð að þola þessa
stundina. Það fór nefnilega illa I morg-
un hjá rakaranum mlnum, hann var
svo upptekinn af að ræða við mig um
skákmál að hann gleymdi sér alveg og
hálfsnoðaði mig svo að það liggur við
borð að ég þekki varla sjálfan mig.
Bobbý svaf hér
á gólfinu
Forseti Skáksambandsins upplýsir
okkur fávisa blaðasnápa um að hér I
þessu herbergi hafi Bobby Fischer sof-
ið þegar hann dvaldi hér sumarið
1972. Svefnstaður var samt ekki tvl-
breiða rúmið heldur bert gólfið.
Forsetinn er annars nú á þessu
andartaki að gefa lýsingar á hvernig
menn eigi að vera klæddir I boði ráð-
herrahjónanna. hað er létt og kátt yfir
mannskapnum hér I númer 376 og
menn tlna af sér brandarana og óllkleg-
ustu menn eru fyndnir og skemmtileg-
ir. Ég þori ekki að nefna nein nöfn.
verð að hllfa ungliðunum á lokaspretti
skákskrifa
Jónas skákkappi Erlingsson kvartar
undan rjómakökuleysi og eru menn
ekki á eitt sáttir um að hann hafi gott af
sllku góðmeti.
Skákin byrjuð, Hort hefur leikið e-peðinu fram og fær sér kók á meðan
hann bfður eftir svarleik Spasskys.
Ljósm. Friðþjófur.
Hér fór skákin í bið. Svartur lék
biðleik.
Ef Hort tekst að vinna i dag
verður dregið um það hvor hrepp-
ir sigurlaunin. Munu kapparnir
draga umslög úr höndum Guð-
mundar Arnlaugssonar skákdóm-
ara. Hins vegar nægir Spassky
jafntefli i dag til að teljast sigur-
vegari i einviginu.
Lokahóf áskorendaeinvigisins i
ská verður sameinað móttöku og
kvöldverðarboði Vilhjálms
Spassky hugsar málið á kaffistofunni nokkrum minútum áður
en hann hóf taflið viS Hort.
Hvftt: Vlastimil Hort
Svart: Boris Spassky
Spænski leikurinn
1 e4 — e5, 2 Rf3 — Rc6, 3 Bb5 —
a6, 4 Bxc6 (Uppskiptaafbrigðið,
sem Hort hefur mikið dálæti á.)
dxc6 5. 0-0 — g4 (Spassky breytir
hér með út af 10. skákinni, þar
sem hann lék hér 5. . .. Dd6 og
tapaði) 6. h3 — h5, 7. d3 (En
auðvitað ekki 7. hxg4? — hxg4, 8.
Rel — Dh4 og mátar) Df6 8. Rbd2
— Re7, 9. Rc4 (Hvassara fram-
hald í þessari stöðu er 9. d4.
Svartur leikur þá bezt 9.. . Rg6,
10. Hel — Bd6 og staðan er tví-
sýn) Bxf3 (Spasský teflir til jafn-
teflis og grípur tækifæri til
uppskipta fegins hendi) 10 Dxf3
— Dxf3, 11. gxf3 — Rg6, 12 Be3
— Be7, 13 Khl (Hvitur hyggst
síðar meir nota sér hina hálfopnu
g-línu) Bf6 14 a4 — 0-0-0, 15 a5 —
Rh4, 16 Rd2 — Rg6, 17 Hadl
(Hort gat auðvitað ekki sætt sig
við 17. Rc4 — Rh4,) Rf4 18 Bxf4
(I endatafli á alltaf að hafa kóng-
inn sem næst miðborðinu, ekki
sist í þessu tilfelli þar sem hvitur
hefur bakstætt peð á d3) b5, 25
axb6 — cxb6, 26 Ke2 — b5, 27
Ra5 — Kc7, 28 Rb3 — Kb6, 29
Hal — Bf8, 30 Ha2 — Be7, 31
Hfal — Ha8, 32 Ha5 (Þessi leikur
virðist hafa mjög takmarkaðan
tilgang. 32. d4 — cxd4, 33. cxd4 —
Hc6, 34. Kd2 kom vel til greina,
en e.t.v. svarar svartur 32. d4 bezt
með c4 og hvitur á í nokkrum
erfiðleikum með að brjótast í
gegn.) Hc6, 33 Kdl (Eftir 33. c4
— bxc4, 34. dxc4 — Hcc8, lendir
svartur vart i erfiðleikum með að
halda jafnvæginu) Bf6, 34. Kc2
— c4! ( Eftir þennan leik getur
staðan talist í jafnvægi) 35. Rcl
(35. dxc4 — Hxc4, og síðan 36. ...
b4 var endu skárra fyrir hvít)
cxd4+, 36. Rxd3 — Be7, 37. e5
(Undarlegur leikur, vart hefur
Hort búist við að geta ýtt e-peðinu
lengra áfram? 37. Re5 kom engu
til leiðar eftir 37.He6, t.d. 38.
Rxf7? — Kb7, 39. c4 — Hf8, 40.
Rxg5 — Bxg5, 41. axb5 — Bd8 og
svartur hefuryfirhöndina) h4,
Spassky hverfur á brott f gærkvöldi eftir að hafa leikið biðleikinn en
Hort athugar skákina.
— exf4, 19. Rc4 (Hvítur virðist nú
hafa örlitið meiri möguleika, því
fæH svarts á kóngsvæng vega vart
upp á móti þrengri stöðu hans)
g5 20 Kg2 — Hh6, 21 Hfel (Eftir
21. e5 — Bg7, 22. d4 — Hd5, 23. c3
— Hh8, og síðan 24.. .. Hhd8 yrðu
hvitu miðborðspeðin að skot-
spæni fyrir svörtu mennina) c5,
22 c3 — Bg7, 23 Hg — g6, 24 Kfl
Leikið til að hvftur geti ekki
sprengt upp með h3 — h4 seinna)
38 b4 (Annars leikur svartur
sjálfur b5 — b4) Kb7, 39 Ha5a3
— Hd8, 40 Hdl — Hdc8, 41 Kb2
— He6, 42 Haal