Morgunblaðið - 20.04.1977, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 20.04.1977, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1977 23 Minning: Birgir Thorberg málarameistari Við kveðjum í dag, vin okkar og félaga Birgi Thorberg Magnús- son, málarameistara, sem and- aðist aðfaranótt 6. apríl s.l. Okkur setti hljóða þegar okkur barst andlátsfrétt hans. Vegir guðs eru órannsakanlegir, en ef grannt er skoðað þá finnur maður stundum rök almættis þegal- frá líður. Þegar okkur berst andlátsfregn góðs vinar þá hrökkvum við við, og spyrjum gjarna „Hvers vegna?“ Af tilviljun dvaldi Birgir heit- inn á heimili okkar siðustu næt- urnar, sem hann lifði og grunaði okkur þá, að dauði hans væri ekki langt undan. Við erum ekki ein um það hve svo skyndilegur dauði, kemur fólki á óvart, og er það þó sárast fyrir nánustu aðstandendur eins og i þessu tilfelli eftirlifandi konu hans og börn. En allir verða að horfast í augu við það að jarðvist okkar hér i þessum heimi tekur enda, hvort sem hún reynist stutt eða löng. Hún er einnig misjafnlega björt, gatan sem við við göngum hér, ýmist grýtt eða slétt. Birgr heitinn fékk að ganga þessar götur báðar. Við höfum þá trú að líf okkar hérna megin graf- ar, sé fyrst og fremst skóli og reynsla hvers og eins, svo mis- jöfn, sem hún kann að vera, sé aðeins undirbúníngur undir hið eilifa líf á himnum, sem bíður okkar þegar viö hverfum héðan. Birgir heitinn var aðeins 44 ára þegar hann lést, en margir fá lengri tíma til að læra í þessum skóla og eru þá jafnframt betur PLASTI-GLAS ÞÉTTIEFNI FRÁ G00D YEAR Piasti-Glas þéttir leysir mörg þéttingarvandamál á einfaldan hátt. Þök og rennur má þétta með aðeins einni umferð af Plasti-Glas. Plasti-Glas má bera beint á flötinn, jafnvel í vætu. Laugaveg 29 sími 24320 og 24321 HJOLBARÐAR DUNLOP eykur stöðugleika bifreiðarinnar i akstri DUNLOP hjólbarðarnir eru sérstaklega virkir í bleytu DUNLOP er endingargóð gæóavara Verð Stærðir aðeins 145*10 sport 4PR 5.610.- 155x12 sport4PR 5.510.- 145x13 sport4PR 6.460.- 560x1 5 D75 4PR 6.760 - 750x16 RK3 6PR 11.760 - Gerið verðsamanburð /1USTURBAKKI HF Skeifan 3A, SÍMAR 38944-30107 undir lokaprófið búnir en þeir sem hverfa héðan á þessu aldurs- skeiði. En það er okkar heitasta ósk, að vel hafi verið á móti honum tekið, hjá þeim sem öllu ræður og í öllu og alstaðar býr. Birgir heitinn var trúaður mað- ur, þótt hann hefði ekki hátt um þau mál í hinu daglega lífi. Hann var einlægur vinur vina sinna, alltaf reiðubúinn að gera öðrum greiða og hjálpa, þótt hann hefði sannarlega nóg við tíma sinn að gera, hann hafði fyrir stóru heim- ili að sjá. Við dvöldum á heimili hans i nokkra mánuði fyrir nokkrum árum, þa'r sem við vorum að bíða eftir að flytjast í íbúð okkar, þá fengum við tækifæri til að kynn- ast hans konu og elskulegu börn- um og eigum við ógleymanlegar minningar frá þessum samveru- stundum. Einnig ferðuðumst við Oft saman út í sveit á sumrin, sem var mjög ánægjulegt. Við viljum enda þessar fátæk- legu línur, um leið og við vottum konu hans börnum og öðrum ást- vinUm hans, dýpstu samúð, með ljóðlínum Daviðs Stefánssonar. „Þú safst niér bæúi jíl(‘úi mína «j> sorjíir. þú ^afst rtiúr þusund hrundar sk< jahorKÍr. þú gafst mér gullna hljóma. þú gafst mér hclj'idóma. og lést mÍR teyga angan hjartra hlóma." Kristín og Sigurjón II. Fæddur 10. sept. 1932 Dáinn 6. apríl 1977 Ein af þeim rúnum sem seint verða ráðnar er hve misþunga bagga lifið bindur mannanna börnum. Sumir lifa sólarmegin í tilverunni alla sína ævidaga án sjáanlegra erfiðleika eða átaka. Aðrir heyja látlausa baráttu frá vöggu til grafar við innri öfl og ytri aðstæður sem rekja má jöfn- um höndum til erfða og um- hverfis. Vera má að þessháttar barátta sé einatt þroskandi og jafnvel göfgandi, en oft á tíðum verður hún svo tvísýn og ógnvæn- leg, að manni koma í hug álög i þeim sögnum og ævintýrum sem sprottin eru beint úr þjóðar- djúpinu og túlka með sinum ein- falda og átakanlega hætti viðhorf almúgans við margvislegum og meinlegum örlögum mannkindar- innar. jr Hálfbróðir minn, Birgir Thor- berg, sem í dag er borinn til graf- ar tæplega hálffimmtugur, var einn þeirra einstaklinga sem lifið lagði á hinar þyngstu byrðar allt frá fyrstu bernsku. Á viðkvæm- asta skeiði ævinnar varð hann að una því að móðir hans lægi árum saman hjálparvana á sjúkrabeði, en hann flæktist milli vanda- lausra, sem eflaust veittu honum þá ástúð og hlýju sem í þeirra valdi stóð, en ofurviðkvæmu geði hefur þessi langi viðskilnaður við móðurina áreiðanlega verið mikil raun og mótað alla gerð og við- Framhald á bls. 31 Þú færö mikiö fyrir peninginn þegar þú kaupir f// A T 131 131 er með barna- læsingum á hurðum er með stá/styrkt farþegarými. er með áskrúfuðum frambrettum, sem mjög auðvelt er að skipta um. 131 er með sérbyggðum stuðara, sem gengur inn allt að 6 cm áður en yfirbygging verður fyrir tjóni. 131 Glæsilegar innréttingar og fallegt mælaborð. Auk þess má nefna stórt farangursrými, tvöfalt bremsukerfi, einangraðan topp, færanlegt stýri og sérlega vel ryðvarinn frá verksmiðju. FIAT EINKAUMBOÐ A ISLANDI Davíð Sigurðsson hl SÍOUMULA 35. SÍMAR 38845 — 38888

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.