Morgunblaðið - 25.05.1977, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1977
GUÐMUNDUR FRIÐRIKSSON:
Búvfsindi að drepa stór-
an fisk en smáfiskadráp
er eins og að mfga í skó- I
ÞORLEIFUR BJÖRGVINSSON:
Meðan borgað er fyrir
fiskinn sem kemur á
land. er hann dreDÍnn.
'MORGUNBLAÐIÐHEIMSÆKIRÞORLÁKSHÖFN■
Hér birtist síðari hluti afraksturs úr ferð Morg-
unblaðsins til Þorlákshafnar, þar sem sjómenn
og útgerðarmenn voru inntir álits á ástandinu f
fiskveiðimálum og létu jafnframt uppi skoð-
anir um það, hvað þeir vildu sjá gert til að
leysa vandann.
Texti: FREYSTEINN JÓHANNSSON
Ljósm: RAX og SIGURGEIR JÓNASSON.
Stjórnum
með verðlagi
og tímabundn-
um friðunum
0 „Það er eins með netaveiðarn-
ar og allt annað. Flotinn er of
stór,“ segir Þorleifur Björgvins-
son, framkvæmdastjóri Glettings
hf., þegar við heimsækjum hann i
skrifstofu fyrirtækisins til að
heyra álit hans á netagirðingum,
netafjölda, sókn og öðru, sem hér
í Þorlákshöfn er hið daglega
brauð.
„Sóknin er alltof hörð“, heldur
Þorleifur áfram. „ Það eru of
margir bátar. Hins vegar held ég
ekki, að sjómenn séu með fleiri
net en þeir mega. Þessir fjórir
bátar, sem við erum með, eru með
þetta 11—12 trossur og það eru
tólf menn á.
En fleiri bátum fylgja fleiri net
og þegar flotinn er of stór, þá eru
netin of mörg. Að vlsu er visst
svæði friðað og opið út eins og
frímerki, en það er auðvitað
ekkert gefið að þorskurinn rati
bara eina leið_ inn á friðaða
svæðið."
— Þú segir of margir bátar. En
voruð þið ekki einmitt að fá
ykkur nýjan bát fyrir skemmstu?
„Það er rétt,“ segir Þorleifur.
„Til þess að tryggja fyrirtæki
okkar nægt hráefni, þá urðum við
að fá okkur bát.
Þegar ég tala um of stóran flota
hérna, þá á ég við þann skipa-
fjölda, sem landar hér, en tals-
verður afli er sóttur hingað á
bílum og síðan ekið alla leið til
Akraness og ef til vill upp á
Snæfellsnes."
— Ert þú þá fylgjandi einhvers
konar kjördæmaskiptingu á
hafinu?
„Ekki vil ég nú beint segja það.
Ætli sú kjördæmaskipting yrði
nokkuð minna umdeild en sú á
þurra landinu."
— En hvað um kvótakerfi?
„Ég held, að það sé ófram-
kvæmanlegt að ætla að segja skip-
stjórum: Nú megið þið ekki veiða
meira en 400 tonn af þorski. Þetta
er svo misjafnt. Einum myndi ef
til vill duga skammturinn út
vertíðina, en annar myndi klára
hann á einum og hálfum til
tveimur mánuðum.“
— Hvað sérð þú þá til ráða?
„Ég tel að við eigum að bætá
stjórnunina með verðlagningu og
svo auðvitað tímabundnum frið-
unum, sem þó þurfa að koma til
fyrr en nú.
Það sem ég á við er það, að
meðan borgað er fyrir þann fisk,
sem berst á land, þá er hann
drepinn. Ég held, að við ættum að
láta ógreitt fyrir þann fisk, sem er
til dæmis undir 54 sentimetrum
og þá er ég viss um að
sjómennirnir myndu sitja sig úr
færi um að drepa hann. Einnig
held ég að við ættum að hækka
verðið á karfa, því ég er eindregið
þeirrar skoðunar að með
aðgerðum af þessu tagi megi ná
árangri og öðru vísi ekki.“— Hvað
með ufsann?
„Það er nú svo merkilegt, að
hann er okkur nú alveg horfinn.
En ég tel víst, að þegar Þjóð-
verjarnir eru á braut þá förum
við aftur að sjá ufsann. Þeir liggja
yfir honum á Eldeyjarhryggnum
og persónulega er ég ekki I nokkr-
um vafa um að þeir veiða miklu
meira af honum en þeir segja
okkur. Ég held að þeir leggi svo
mikla sókn á hann, að stofninn
megi ekki við meiru."
Stórfelld og
stöðug skipa-
kaup eru
óhugnantegar
aðgerðir
# „Ég vildi ekki vera sjávarút-
vegsráðherra I dag. En ef ég hefði
ekki setið á þeim stóli, þegar við
vorum að færa út landhelgina
okkar, þá hefði ég látð skipafjölg-
un bíða, þar til fiskifræðingar
hefðu talið aukna sókn mögulega.
Nei, nei, ég er ekkert að vera
„ VANDINN ER OF MIKIÐ
Vöruflug
NewYork- Reykjavík
ISCARGO tilkynnir vöruflug
REYKJAVÍK - NEW YORK:
NEW YORK- REYKJAVÍK:
Hringiö og fáió nánari upplýsingar
6 UÚNÍ
8UÚNÍ
ISCARGO HF
Reykjavíkurflugvelli
Símar: 10541 og 10542
Telex: 2105 Iscarg-is
ISCARGO
Þjórsárhátíð
umhvíta-
sunnuna
HÉRAÐSSAMBANDIÐ Skarp-
héðinn gengst fyrir Þjórsár-
hátfð um hvltasunnuna.
Verður þarna margt til
skemmtunar frá föstudegi til
mánudags, en hátíðin verður
við Þjórsárbrú.
Hátíðin byrjar föstudaginn
27. maí og stendur fram á
mánu dag 30. maí. Þarna koma
fram 3 hljómsveitir Haukar,
Fress og Crystal. Halli og
Laddi kynna og skemmta,
Baldur Brjánsson og Þorsteinn
Eggertsson koma fram og
diskótek verður i tjaldi. Helgi-
stund verður á sunnudag kl.
14, Pétur Maack cand. theol.
annast hana með aðstoð
Hauka. Víðavangshlaup fer
fram á sunnudag. Aflrauna-
steinar verða á svæðinu,
Fullsterkur, Hálfsterkur og
Amlóði handa samkomugest-
um að reyna sig á og tjaldstæði
verða á Þjótandatúni. Sæta-
ferðir verða á staðinn úr
Reykjavík. Aðgangseyri er I
hóf stillt, 2500 krónur fyrir
allan timann.