Morgunblaðið - 25.05.1977, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 25.05.1977, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 1977 15 w ERLENT Andstaða gegn olíuleit Kaupmannahöfn, 24. maf. NTB. DANSKA stjómin ætlar ekki að fresta fyrirhugaðri olíuleit við Grænland í sumar þótt fram hafi komið greinileg andstaða á Grænlandi gegn olfuleitinni. Full- trúar f grænlenzku málmnefnd- inni og fleiri aðilar á Grænlandi hafa krafizt þess að olfuboruninni verði frestað vegna slyssins á Ekofisk-svæði Norðmanna í Norð- ursjó nýlega. En Jörgen Peder Hansen Grænlandsmálaráðherra sagði effeffir stjómarfund f dag: „Það verða engar breytingar á áformum um boranir f sumar." Begin Tel Aviv 24. maf — Reuter. ENN leikur vafi á hver verður forsætisráðherra nýrrar rfkis- stjðrnar í ísrael þrátt fyrir full- yrðingar hægri leiðtoga um að Begin, sem nú er sjúkur, verði leiðtogi stjðrnarinnar. Begin, sem er 64 ára, fékk slæmt hjartaáfall fyrir tveimur mánuðum og í gær var hann enn fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fundið til þrauta fyrir brjósti, þreytu og álags eftir þingkosn- ingarnar þar sem flokkur hans, Likudbandalagið, vann 43 af 120 þingsætum. Læknir Begins sagði, að hann yrði á sjúkrahúsi í viku að minnsta kosti og gæti haldið áfram afskiptum af stjórnmálum eftir frekari hvíld, en hann sagði að hann yrði að fara sér hægt fyrst um sinn. Aðrir leiðtogar Likud segja, að Begin verði örugglega forsætis- ráðherra, en áreiðanlegar heimildir herma, að leiðtogar flokksins leiti nú að staðgengli ef veikindi hindra Begin í að gegna forsætisráðherraembætti. Ekki er ljóst hver gæti tekið af við Begin, en nefndur hefur verið Ezer Weizman, fyrrum yfirmaður flughersins, sem er næst æðsti leiðtogi Herut-arms Likudbanda- lagsins, og nánasti samstarfs- maður Begins innan þess arms. Hins vegar bendir margt til þess, að Weizman, sem að miklu leyti skipulagði stjórnmálabaráttu Likuds, njóti ekki stuðnings ann- arra arma flokksins. Leiðtogar Likuds áttu í dag fyrstu viðræður við leiðtoga Lýð- ræðislegu umbótahreyfingar- Milljónir Frakka í verkfalli París, 24. maf. Reuter. MILLJÓNIR- franskra verka- manna tóku þátt í sðlarhrings- verkfalli, sem allar verkalýðs- hreyfingarnar boðuðu til I dag, og atvinnulif Iamaðist um allt landið. Tugir þúsunda tóku þátt í mótmælagöngu í París, skólar voru lokaðir, blöð komu ekki út, póstur var ekki borinn út og farþegaflutningar lögðust niður að mestu. Þrettán ár eru siðan allar verkalýðshreyfingarnar lýstu síðast yfir stuðningi við alls- herjarverkfall. Hins vegar tóku leiðtogar hófsamari verkalýðsfélaga ekki þátt i mótmælunum í Paris. Þeir vilja leggja áherzlu á kröfur um frjálsan samningsrétt í stað þess að ráðast á stjórnina. innar, sem hlaut 15 þingsæti, um stjórnarmyndun. Leiðtogi flokks- ins, Yigael Yadin, prófessor í fornleifafræði, sagði að utanríkis- og varnarmál hefðu verið á dag- skrá og að flokkarnir héldu með sér annan fund á fimmtudag. Heldur stiórnin í Hollandi velli? Likud leitar að nýju leiðtogaefni JOOP den Uyl, forsætisráðherra Hollands undanfarin fjögur ár og leiðtogi Verkamannaflokksins, stefnir að því í þingkosningunum á morgun að endurvekja stjðrnarsamstarfið við kristilega demókrata sem fðr út um þúfur fyrir tveimur mánuðum og kunnugir telja að lfkur séu á að það takist. Að vísu er gert ráð fyrir því að viðræður um myndun nýrrar stjórnar geti tekið nokkra mán- uði, en den Uyl er það kappsmál að koma í höfn ýmsum umbóta- frumvörpum sem döguðu uppi þegar stjórnin sagði af sér. „Þetta er mikilvægustu kosningar sfðan 1946,“ segir den Uyl og bætir því við að valið standi á milli frekari umbóta og nýrrar hægristjórnar. Samkvæmt skoðanakönnunum vilja 58% kjósenda að den Uyl verði áfram forsætisráðherra enda jókst vegur hans þar sem hann þótti halda vel á Lockheed- mútumálinu sem Bernharð prins var viðriðinn — draga úr þeim álitshnekki sem hneykslið varð konungsfjölskyldunni, afstýra þeim möguleika að Júlíana drottning legði niður völd og koma í veg fyrir að hneykslið yrði að kosningamáli. Eini keppinautur den Uyl um stöðu forsætisráðherra er stað- gengill hans síðustu fjögur ár, Andreas van Agt dómsmálaráð- herra, leiðtogi hins nýja flokks kristilegra demókrata (CDA) sem var stofnaður í fyrra til að sam- eina flokk kaþólskra og tvo flokka mótmælenda. Enn skortir ein- drægni í hinum nýja flokki sem er mitt á milli Verkamanna- flokksins og frjálslynda flokksins sem er hægrisinnaður. Skoðanakannanir benda til að CDA fái þriðjung atkvæða, Verkamannaflokkurinn einnig þriðjung, frjálslyndir einn sjötta og rúmlega 20 flokkar afganginn (um 14 flokkar munu \fá þing- sæti). Verkmannaflokkurinn hef- ur 43 þingsæti og verður liklega áfram stærsti flokkurinn en litlu má muna. Verkamannaflokkurinn er i kosningabandalagi með Róttæka flokknum sem er lítill vinstri- flokkur og hafði tvo ráðherra af sextán í síðustu stjórn. En rót- tækir vilja ekki fara aftur í stjórn með kristilegum demókrötum og þá getur flokkur den Uyl aðeins haft náið samstarf með litlum frjálslyndum vinstri flokki ,,D ’68“.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.