Morgunblaðið - 03.07.1977, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JULl 1977
„Úti við sval-
an sæinn...”
Herjólfur kringum
Eyjar á sunnudögum
Aukaferðir milli lands
MJÖG miklir farþegaflutningar
hafa verið með Herjólfi að undan-
förnu og hefur skipi orðið að fara
aukaferðir vegna hópa úr landi. A
sunnudögum er nú áformað að
Herjólfur fari í skemmtisiglingar
kringum Eyjar þegar vel viðrar
og verða þær ferðir farnar fyrir
hádegi og munu taka V/í—2 tíma.
Á föstudag fór Herjólfur tvær
ferðir milli lands og Eyja með um
150 farþega í hvorri ferð. 100
manna hópur starfsfólks Oliu-
og Eyja með hópa
félagsins var þar á meðal og hélt
fólkið rakleiðis í Herjólfsdal eftir
komuna til Eyja og tjaldaði til
helgarinnar, en þar er nú búið að
setja upp aðstöðu fyrir ferða-
menn.
I seinni ferðinni á föstudags-
kvöld flutti Herjólfur 80 flugfar-
þega til Þorlákshafnar, en þeir
hefðu ella orðið tepptir í Eyjum
vegna veðurs. í gær var hópur
Sóknarkvenna á leið út í Eyjar,
alls um 70.
Loðskinn stefnir
á fullvinnslu og
f jölgun starfsfólks
„EFTIR sumarleyfi reiknum við
með að taka nokkurn tima f
almenna tiltekt f verksmiðjunni,
en sfðan eigum við von á gærum
til vinnslu þegar slátrun hefst f
september", sagði Jón Asbergs-
son framkvæmdastjóri Loðskinns
á Sauðárkróki f samtali við Mbl. f
gær þegar við innturn eftir gangi
mála hjá fyrirtækinu.
Jón sagði að hráefni væri nú á
þrotum, en sumarleyfi hæfust um
miðjan júli. Kvað Jón 15—20
manns í vinnu hjá þeim að
staðaldri en þeir hyggja á tals-
verða aukningu starfsfólks með
fuilvinnslu gæruskinna. Maður
fer til London á vegum verk-
smiðjunnar í vetur til þess að
læra sútun, en Jón kvaðst gera
ráð fyrir að á næstu árum fjölgaði
starfsfólki upp í 40—60 með
fullvinnslu gæruskinna. „Það
opnast ýmsir möguleikar með
fullvinnslu," sagði Jón, „þegar
maðurinn kemur heim frá
sútunarnámi, en það vantar
sútaraílandinu."
Innan skamms verður hið nýja dýpkunarskip vita- og hafnarmálastjórnar tilbúið til notkunar, en
þessa mynd tók Ól.K.M., þar sem verið er að setja nýja Gretti saman f Reykjavfkurhöfn. Skrokkurinn
var keyptur frá Noregi, en gröfubúnaðurinn, sem nú er verið að setja um borð, var keyptur frá
Bandarfkjunum.
Rfs nýtt Tívolí
við EUiðavog?
FYRIRTÆKIÐ Tfvolf hefur
áhuga á að kanna möguleika á þvf
að koma upp skemmtigarði á
svæðinu milli ósa Elliðaánna f
Elliðavogi. Málið er þó á algjöru
byrjunarstigi en hefur lftillega
verið reifað við fulltrúa borgar-
innar, sem sýnt hafa þvf áhuga.
Að sögn Baldvins Björnssonar,
eins af forráðamönnum Tivolís,
hefur fyrirtækið hingað til sér-
hæft sig í innflutningi video-
leiktækja, sem komið er fyrir á
Tónleika-
hald í
Tónabæ
í sumar verða haldnir tónleikar á
þriðjudagskvöldum í Tónabæ.
Verða tónleikar þessir f júlf og
ágúst og þeir fyrstu verða á
þriðjudagskvöld, 5. júlf, en þá
verða það Vfsuvinir, sem verða
með vísnakvöld. Meðal þeirra
sem þar koma fram má nefna
Hjalta Jón Sveinsson, Gfsla
Helgason og Árna Johnsen.
Aðrir tónleikar, sem ákveðnir
hafa verið, eru 12. júlí með hljóm-
sveitinni Tívolí, 19. júli verður
Fresh, 26. júlí spilar Eik og 9.
ágúst verða Jassmenn á ferðinni f
Tónabæ með Viðar Alfreðsson i
fararbroddi. Þann 16. ágúst
verður Cobra. 23. ágúst leikur
Brimkló og endapunkturinn setur
Póker 30. ágúst. Þetta verða sem
áður segir fyrst og fremst tón-
leikar og ekki er reiknað með að
viðstaddir bregði sér í dans en
miðaverð verður krónur 600 i
hvert skipti.
ýmsum stöðum. Fyrirtækið hefur
nú áhuga á að færa út kviarnar
með því að koma upp skemmti-
garði, en Baldvin sagði að þessar
hugmyndir væru nú að mótast, og
fyrst lægi fyrir að afla þekkingar
og fyrirmynda frá hliðstæðum
fyrirtækjum erlendis. Hingað til
hefðu þeir beint sjónum sínum að
skemmtigarðinum Tumbogolf í
Svíþjóð, sem segja mætti að sér-
hæfði starfsemi sina fyrir golf-
áhugamenn en hér væru ætlunin
að hafa töluvert breiðari starf-
semi.
Baldvin sagði, að forráðamenn
fyrirtækisins hefðu augastað á
landskikanum milli ósa Elliðaána,
sem gerði það að verkum að ekki
þyrfti að ráðast í að girða svæðið
með miklum girðingum, er um
leið afskræmdu umhverfið, auk
þess sem þarna væri mikil veður-
sæld. Engu að siður væri það þó
taln forsenda reksturs þessa
skemmtigarðs að hafa alla að-
stöðu undir þaki vegna hins
ótrygga veðurfars, og ekki væri
ráð fyrir þvi gert að setja upp
leiktæki á borð við parisarhjól og
rússibana, þar sem það væri að
sýna sig erlendis að rekstur þess-
ara gömlu góðu skemmtigarða
væri ekki nógu tryggur. Hins veg-
ar væri með fyrirferðaminni leik-
tækjum hægt að láta reksturinn
ganga, ekki sízt ef siðan mætti
tengja hann útivist ýmiss konar,
sem fyrirhuguð væri í Elliðavogi,
svo sem smábátahöfninni, og eins
mætti leita samstarfs við aðra að-
ila t.d. um veitingarekstur.
Baldvin tók fram að enn væru
þessar hugmyndir á frumstigi og
þeir ættu eftir að kynna sér starf-
semi af þessu tagi viðar erlendis,
t.d. I Bandaríkjunum þar sem
Framhald á bls. 47
Skiptakjör vestfirzkra
sjómanna fyrir dómstóli
..Rlkisstjórinn", Óskar I rlkinu
(ÁTVR I Eyjum), 4 sksmmtisigl
ingu 4 þessum gamalklasslska b4t
suSur 4 BraSrabraka.
„VIÐ HÖFUM löngu lýst okkur
reiðubúna til viðræðna, en engar
undirtektir fengið ennþá,“ sagði
Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðu-
sambands Vestfjarða er Mbl.
spurði hann I gær, hvað liði samn-
ingamálum vestfirzkra sjómanna.
„Við lftum svo á, að þegar bráða-
birgðalögin, sem sett voru um
skiptakjörin I ágúst 1976, runnu
út 15. maf sl„ þá hafi okkar gamli
samningur um skiptakjörin vakn-
að aftur til llfsins þvf hvorugur
aðilinn sagði honum upp. En út-
gerðarmenn eru á öndverðum
meiði og halda sig við samkomu-
lagið, sem gert var f Reykjavfk f
febrúar 1976 og bráðabirgðalögin
bundu okkur við, hvað skiptakjör-
in varðaði. Nú er einmitt f gangi
fyrir bæjarþingi Isafjarðar mál,
sem höfðað hefur verið til að fá
úr þessu skorið.“
Mál þetta höfðaði skipverji á
skuttogara og krefst hann þess, að
fá uppgert samkvæmt þeim
skiptakjarasamningi, sem gilti á
Vestfjörðum, þegar bráðabirgða-
lögin voru sett. Máli þessu var
upphaflega vísað frá héraðsdómi
til sjó- og verzlunardóms, sem aft-
ur vísaði þvi til félagsdóms. Þeim
úrskurði var áfrýjað til Hæsta-
réttar, sem kvað upp þann úr-
skurð að málið ætti heima fyrir
almennum dómstóli og hefur mál-
ið nú aftur komið fyrir bæjarþing
Isafjarðar.
Þegar Mbl. spurði Pétur, hvers
vegna hvorugur aðilinn segði
gamla samkomulaginu um skipta-
kjörin upp, svaraði hann því til,
að það væri hagstæðara
hvað skiptakjörin varðar, en sam-
komulagið, sem gert var I Reykja-
vik. Hins vegar vildu útvegsmenn
ekki segja samkomulaginu upp af
sinni hálfu, þvi slik uppsögn væri
viðurkenning þeirra á þvi, að
samkomulagið væri enn I gildi.
NÚ ER tfmi smóbátaútgerSarinnar um allt land og menn
dóla sér til dundurs á hafinu þegar færi gefst, sumir dorga,
aðrir leika sér að hugmyndafluginu f friði og ró bátskæn-
unnar og enn aðrir bregða á leik og fá sér sundsprett um
leið og hversdagsrykið er skolað af. Þessar myndir tók
Sigurgeir f Eyjum á skröltinu kringum Eyjar eitt kvöldið
fyrir skömmu, en smábátaútgerð blómstrar þar ekki sfður
en útgerð hjá meiri háttar útvegsbændum.
Þatta unga Eyjafólk ar þarna vi8 staSjann I ElliBaay a8 fara I útilagu, an þaB varBur anginn varri þótt hann vökni
og akki dónalegt a8 fá sér sundspratt I tsrum sjónum og gantast dálltiB vi8 náungann. Þair tóku eina bröndótta
tveir peyjarnir 4 ateSjanum an hún andaSi auSvitaS I Atlantshafinu
Eirlkur GuBnason kennari og Einar Valur Bjarnason yfirlnknir ranna frá
bát þeirra, BYR. Þa8 ar mörgum knrt a8 snkja á spegilslátt hafiS og njóta
Gulli og Gaui snaka vasnni soBn
ingu um bor8 viB Bjamareyjar-
horniB austur af Heimaay. an þar