Morgunblaðið - 03.07.1977, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. JULl 1977
Ertu lejnilög-
reglumaður?
1. Afsakið ungfrú!
A hóteli nokkru situr ung stúlka fyrir framan spegilinn i herbergi
sínu. Hún er að snyrta sig til áður en hún ætlar út að sekmmta sér i
borginni. Allt I einu er barið létt að dyrum og ungur og myndarlegur
maður stingur höfðinu inn um dyragættina. En þegar hann kemur
auga á stúlkuna hörfar hann aðeins aftur á bak og segir kurteislega:
„Afsakið, ungfrú. Ég ætlaði inn i mitt eigið herbergi."
Andartaki seinna stökk unga stúlkan upp af stólnum, rauk í simann
og hringdi til lögreglunnar. Hún sagðist álíta, að ungi maðurinn væri
hótelþjófur og bað lögregluna um að hafa hendur i hári hans. Hvers
vegna áleit unga stúlkan að ungi maðurinn væri þjófur?
2. Hann fékk engin bréf!
Skólastjóri nokkur úti á landi þurfti að fara til höfuðborgarinnar á
ráðstefnu. Hann læsti vandlega öllum skúffum og skápum og tók
lyklana með sér. Til allrar óhamingju tók hann einnig með sér
lyklana af póstkassanum, sem hékk á hliðinu. Hann hafði beðið Pétur
litla um að senda sér öll bréf þegar í stað til höfuðborgarinnar, en
þegar þrír dagar voru liðnir án þess að hann fengi bréf, hringdi hann
til Péturs. Pétur sagði honum þá, að hann fyndi hvergi lyklana að
póstkassanum. Skólastjórinn bað hann þá að leita betur og láta sig
vita ef hann fyndi þá ekki. — En þegar skólastjórinn kom inn á
herbergið sitt, fann hann lyklana í frakkavasa sinum. Hann setti þá
þegar í stað í umslag, skrifaði utan á það til Péturs á heimilisfang
skólans til þess að Pétur týndi ekki lyklunum á leiðinni að heiman.
En hvernig sem á því stóð fékk skólastjórinn engin bréf svo að
hann fór að velta þvi fyrir sér, hvort Pétur hefði brugðist honum á
einhvern hátt.
Getur þú hjálpað honum til þess að finna lausn á vandanum?
Skemmtileg rökfræði!
í eyðimörkinni lágu þrjár slöngur i hring þannig að höfuð einnar
nam við afturenda hinnar. En alltí einu fór þeim að leiðast lífið og
byrjuðu í sömu andránni að éta hver aðra.
Og svo er hægt að spyrja í allri einlægni: Hvað varð af slöngunum?
Lausn á hinni sfðunni.
ÞEGAR mýfluga
stingur þig, er það
áreiðanlega kven-
fluga. Karlflugurnar
stinga aldrei, þær
lifa aðeins á jurta-
safa. En kvenflugan
er með langan, beitt-
an rana, sem hún
notar til að stinga
með. Fyrst dælir hún
vökva í stunguna, en
sá vökvi veldur því,
að blóðið storknar
ekki. Síðan sýgur
hún blóð í sig, þar til
afturhluti hennar er
orðinn stór og mikill.
Mýflugur eru til um
allan heim, og þær
ráðast jafnt á fugla,
dýr og menn.
Kambslál &
þakjárn
Allir sverleikar - allar lengdir fyrirliggjandi
Súðarvogi 3, 104 Reykjavík. Sími 86365
Vélstjórar
Þeir félagar í Vélstjórafélagi íslands, sem ekki
hafa fengið kjörgögn til stjórnarkjörs 1977, eru
vinsamlegast beðnir að hafa samband við skrif-
stofuna.
Vélstjórafélag íslands.
R0NS0N HEFUR
FLUTT VIÐGERÐA-
ÞJÓNUSTUNA
YFIR GÖTUNA
Til þess að geta veitt yður enn betri þjónustu,
höfum við flutt viðgerðarþjónustu fyrir:
RONSON kveikjara, rakvélar, þurrkur
RIMA mínútugrill, raftæki
AROMA kaffikönnur
WINCHESTER skotfæri
SHAKESPEARE veiðihjól, veiðarfæri
í rúmgott húsnæði að Vesturgötu 17 — aðeins
nokkur skref frá skrifstofum okkar.
Verið velkomin.
ONSON
Viðgerðarþjónustan
Vesturgötu 1 7, sfmi 11988.