Morgunblaðið - 03.07.1977, Síða 48
AUí;I.YSIN(;ASÍMINN KR:
22480
JHnremiliIfltiiö
iOíC0ilWÍl>feiíjiÍ^
KRUPS
Rafmagns heimllistæki fást um allt land
Jón Jóhannesson & Co. s. f.
Símar 26988 og 15821
SUNNUDAGUR 3. JULf 1977
Kona fórst
í eldsvoða
KONA um sextugt fórst í
eldsvoða á Laufásvegi 45B
í fyrrinótt. Laust eftir mið-
nætti var slökkviliðinu til-
kynnt um reyk inni í hús-
inu, en allir gluggar voru
lokaðir. Þegar slökkviliðið
kom á vettvang brutust
tveir reykkafarar inn í hús-
ið. Var konan þá látin. Var
eldur laus við rúm konunn-
ar þegar að var komið.
Talsverðar skemmdir urðu
af völdum reyks en minni
vegna elds í sambyggðri
stofu og svefnskála. Ekki
er unnt að greina frá nafni
konunnar að svo stöddu.
Um eldsupptök er ekki
vitað ennþá samkvæmt
upplýsingum rannsóknar-
lögreglunnar.
Velta olíufélaganna
25 milljarðar 1976
Hagnaður Esso 250 milljónir, Shell
um 80 og hjá OIís 69,4 miUjónir
Landnemar í Reykjavík standa fyrir skátamóti í Viðey um helgina og er það
fjölsótt af skátum úr Reykjavík og nágrenni. Myndin var tekin í Sundahöfn í gær
við Hafsteinsbryggju er skátar voru að gera klárt fyrir útileguna í Viðey.
Ljósmynd Mbl. Kristinn.
Eggjaframleiðendur:
VELTA olíufélaganna
þriggja varð um 25
milljarðar á síðasta ári og
hagnaður á rekstrarreikn-
ingum þeirra nam um 400
milljónum króna.
Vilhjálmur Jónsson, for-
stjóri Olíufélagsins h.f.
Fiskverðs-
mál skýrast
eftir helgi
FUNDUR var f yfirnefnd verð-
lagsráðs sjávarútvegsins um
almenna fiskverðið í gær, en
það átti að taka gildi um sfð-
ustu mánaðamðt. Að sögn Jóns
Sigurðssonar, þjóðhagsstjóra
og oddamanns f nefndinni, má
reikna með því að málið skýr-
ist strax eftir helgina, en hann
benti á að fiskverðsákvörðunin
tengdist kjarasamningagerð
sjómanna, en samningafundur
með sjómönnum og útgerðar
mönnum verður einmitt á
morgun, mánudag.
(Esso), sagði, að sala
félagsins á síðasta ári hefði
numið 10,7 milljörðum
króna. Hagnaður af rekstri
varð um 250 milljónir eftir
afskriftir upp á um 108
milljónir króna. Olíufélag-
ið hefur viðskipti varnar-
liðssins og sagði Vilhjálm-
ur, að þau væru stór liður í
rekstri og afkomu félgsins.
Ragnar Kjartansson,
framkvæmdastjóri Skelj-
ungs h.f. (Shell), sagði að
velta félagsins á s.l. ári
hefði verið um 8 milljarðar
króna. Afskriftir af fasta-
fjármunum námu um 100
milljónum og hagnaður
varð um 80 milljónir
króna.
Önundur Ásgeirsson,
forstjóri Olíuverzlunar ís-
lands h.f. (Olís), sagði, að
velta félagsins á síðasta ári
hefði orðið rösklega 6
milljarðar og bókfærður
hagnaður varð
milljónir króna.
69,4
30 þúsund hænum slátr-
að vegna offramleiðslu
Eggjaverðið komið í
en var komið niður í
SAMBAND eggjafram-
leiðenda hefur auglýst
nýtt heildsöluverð á
eggjum, þannig að það
hækkar úr 450 krónum
kílóið í 500 krónur eða um
rétt tæp 11%. í vetur sem
leið og snemma í vor fór
heiidsöluverðið hins vegar
allt niður f 300 krónur,
enda var þá offramleiðsla á
eggjum og var þá gripið til
þess ráðs að grisja hænsna-
stofninn verulega til að
koma markaðinum aftur f
jafnvægi.
Aö sögn Jóns Guðmundssonar,
bónda á Reykjum, forsvarsmanns
Sambands eggjaframleióenda, er
sala á eggjum ekki háö verðlags-
ákvæðum og ræður lögmálið um |
500 krónur kg.
300 krónur
íslenzka kristniboðið í Konsó:
Kristniboðarnir farnir
frá Eþíópíu vegna óöryggis
Islenzka Kristniboðssambandið hefur starf
VEGNA hins ótrygga ástands í
Eþfópfu eru nú engir fslenzkir
kristniboðar þar lengur, en
fslenzka Kristniboðssambandið
hefur rekið kristniboðsstöð með
miklum árangri f Konsó sfðan
1954. Jónas Þórisson stöðvarstjóri
í Konsó og Ingibjörg Ingvars-
dóttir kona hans komu nýlega
heím til tslands ásamt fjórum
börnum þeirra, en við stöðvar-
stjórn hefur tekið einn af
innlendu prestunum, Berisha
Hunde. Kristni söfnuðurinn f
Eþfópfu telur nú 7000 manns af
tæplega 100 þús. fbúum þar, en
starf kristniboðsstöðvarinnar nær
til allra byggða f Konsó. tslenzka
Kristniboðssambandið mun þó
áfram styðja starfið í Konsó svo
lengi sem kirkjan fær að starfa
þar, en á aðalfundi sambandsins f
vikunni var ákveðið að hefja
kristniboð f Kenya. Munu þau
Skúti Svavarsson og kona hans
Kjellrún halda þangað væntan-
lega í byrjun næsta árs ásamt
börnum þeirra, en íslenzka
Kristniboðssambandið mun hefja
starf f vesturhluta Kenya á land-
svæðinu Pokot. Þar búa um 1
milljón manna og er ekkert
kristniboð á þvf svæði, en Kristni-
boðssambandið mun starfa f sam-
vinnu við lútersku kirkjuna f
Kenya. Norska kristniboðið er
í Kenya
einnig að hefja störf f Kenya n.k.
haust.
Gísli Arnkelsson, fo_r aður
stjórnar Kristniboðssambandsins,
sagði i samtali við Mbl. í gær að
önnur norræn kristniboðssam-
bönd væru að draga saman seglin
í Eþfópiu vegna hins ótrygga
ástands þar, en hjúkrunarkonur
starfa þó áfram um sinn a.m-k. Ef
ástandið skánar í Eþíópíu reiknar
Kristniboðssambandið með að
senda þangað fólk að nýju, en
þróunin hefur þó verið sú að
innlendir menn taki við störfum
kristniboðanna f æ rfkari mæli og
hefur kristniboðið lagt áherzlu á
það.
framboð og eftirspurn þvi
ferðinni í verðlagningu eggja.
Samband eggjaframleiðenda aug-
lýsti nýlega hið nýja heildsölu-
verð — 500 krónur fyrir kilóið —
sem felur f sér 11% hækkun og er
það hugsað til viðmiðunar fyrir
framleiðendur. Hins vegar er
allur gangur á smásöluverðinu,
sem byggist á viðskiptasamkomu-
lagi milli kaupmanna og framleið-
enda, þar sem einstakir
kaupmenn leggja áherzlu á að fá
afslátt frá heildsöluverðinu og
leggja síðan sáralítið á eggin til að
laða til sín neytendur en aðrir
láta sig slíkt engu skipta og eru
með allt að 35% smásölu-
álagningu. Á einstöku stöðum þar
sem lítil eggjaframleiðsla er eru
einnig frávik frá heildsölu-
verðinu til hækkunar.
f vetur og snemma i vor komst
heildsöluverð eggja allt niður í
300 krónur, og stafaði það af of-
framleiðslu á eggjum, að þvi er
Jón sagði. Leiddi þetta til þess að
eggjaframleiðendur buðu verðið
niður hver fyrir öðrum fremur en
að sitja uppi með eggin, og fór
verðið þá svona langt niður, sem
Jón taldi að hefði naumast gert
meira en að duga fyrir fóður-
kostnaði. Hagtölur I lok síðasta
árs sýndu þá að hænsnastofninn á
öllu landinu var þá kominn upp í
um 250 þúsund fugla, en reynslan
sýndi hins vegar að markaðurinn
væri ekki í jafnvægi nema stofn-
inn væri ekki stærri en svo að ein
verpandi hæna væri á hvern íbúa
eða um 220 þúsund fuglar alls.
Þetta ástand hefði leitt til þess að
flestir stærstu framleiðendurnir
hefði grisjað verulega hjá sér
stofninn eða sem næst um 30
þúsund fugla, og áhrifin hefðu
verið fyrst í stað að nokkurs
skorts á eggjum gætti um tíma
snemma I vor. Nú væri hins vegar
framleiðslan komin í jafnvægi á
nýjan leik. Jón kvað þessa miklu
slátrun ekki mundu leiða til of-
framleiðslu á fuglakjöti og
verðfalli á því í kjölfarið, þar sem
mjög auðvelt væri að geyma
fuglakjöt.
Laxveið-
in fór vel
af stað
LAXVEIÐI hefur vlða farið
vel af stað I ám landsins það
sem af er sumri, en nokkuð
hefur þó borið á vatnsleysi f
ánum, að þvf er Þór Guðjóns-
son, veiðimálastjóri, tjáði
Morgunblaðinu f gær.
Þór sagði, að laxveiði hefði
verið mjög góð i júnimánuði i
einstökum ám þrátt fyrir þetta
og tiltók hann sérstaklega Lax-
á i Þingeyjarsýslu og Þverá i
Borgarfirði. Júlí er hins vegar
alla jafna aðalgöngumánuður-
inn og bezti veiðitiminn, og
eftir hann skýrast linurnar
fyrst að ráði. Vatnsleysið getur
þó sett mikið strik i reikning-
inn, þvf að það getur valdið þvi
að laxinn gangi mun tregar en
ella.
Sáttafundir með farmöimum
Sáttasemjari hélt fund með yfir-
mönnum á farskipum og vinnu-
veitendum þeirra í gærkvöldi,
laugardag, en kvöldið áður hafði
verið fundur bæði með yfir-
mönnum og undirmönnum á far-
skipum. Sáttasemjari hefur síðan
boðað sjómenn á fiskiskipum og
útgerðarmenn á fund kl. 16 á
mánudag og á þriðjudag hefur
verið boðaður fundur með blaða-
mönnum og útgefendum.