Morgunblaðið - 13.08.1977, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. AGUST 1977
Rafvirkjarnir
hætta undanþág-
um á þriðjudag
„NEI, það hefur ekki verið
boðað til fundar og ég hef ekk-
crt um slíkt heyrt,“ sagði
Magnús Geirsson, formaður
rafiðnaðarsambands Islands,
er Mbl. ræddi við hann 1 gær-
kvöldi.
Rafvirkjar, sem vinna hjá
ríkisveitunum, en eru ekki
ríkisstarfsmenn hafa á mánu-
dagskvöld verið þrjár vikur í
verkfalli og á fundi í gærmorg-
un samþykktu þeir að frá og
með þriðjudeginum myndu
þeir hætta að veita undanþág-
ur vegna bilana, ef ekki hefur
samizt fyrir þann tíma.
Að sögn Magnúsar hefur
talsvert verið um undanþágur
til viðgerða, þar sem mikið hef-
ur verið um bilanir, einkum í
Húnavatnssýslum, á Vestfjörð-
um og á Austurlandi, þar sem
línur og tengivirki þola illa
álagið m.a. vegna súrheys-
þurrkunarinnar.
Tók niðri
Fjörutíu lesta bátur, Draupnir
HU 65, tók niðri á svonefndum
Flandraraboða skammt frá
bryggjunni á Djúpavogi í fyrri-
nótt. Varðskipið Arvakur lá inni á
Djúpavogi og kippti það bátnum
lausum.
Manuela í
f remstu röd
íalþjódlegri
flautukeppni
Manuela Wisler flautuleikari
hlaut 3. verðlaun í alþjóðlegri
keppni flautuleikara í Vicenza
á ttalíu fyrir skömmu, en
Manuela keppti þar fyrir
tslands hönd. 11 lönd tóku þátt
f keppninni með alls 31 flautu-
leikara, en 1. verðlaun voru
ekki veitt.
í fyrstu umferð urðu þátt-
takendur að leika sónötu eftir
Bach og sérstakt tónverk sem
var samið fyrir þessa keppni. I
2. umferð var á efnisskránni
flautukonsert eftir Mozart og
nútímaverk, val úr sex tón-
verkum, en í 3. umferð var
sjálfvalið verk.
„Vonast eftir
vidunandi
lausn innan
fárra daga”
„MALIÐ hefur verið rætt við fuli-
trúa ríkisstjórnarinnar og er nú í
athugun hjá bönkunum," sagði
Jónas Haralz bankastjóri Lands-
bankans þegar Morgunblaðið
spurði hann í gær hvort rétt væri
að mikil andstæða væri gegn því
innan bankanna að aflaandvirði
fiskiskipa yrði greitt af veðsetn-
ingu í viðskiptabanka. Þá sagði
Jónas, að hann vonaðist til að
viðunandi lausn fengist á málinu
innan fárra daga.
Skemmdirnar á Alafossi
Þessar myndir af Álafossi voru teknar í höfninni í
Helsingjahorg í Svíþjóð, skömmu eftir að skipið
kom til hafnar eftir að hafa lent í árekstri við
dönsku járnbrautarferjuna Kronborg. Vel sést
hvernig gat hefur komið á skipið ofarlega á bak-
borðskinnung á móts við akkerisstæðið, en akkerið
slitnaði af við áreksturinn. M.vndirnar tók Jón
Guðnason skipstjóri á Álafoss.
Bær frá 10. öld
grafinn upp á
HRAFNSEYRI
„ÞAÐ SEM við grófum þarna upp
er bær frá 10. öld að við teljum,“
sagði Mjöll Snæsdóttir fornleifa-
fræðingur í samtali við Mb. I gær-
kvöldi, en hún var þá nýkomin til
Reykjavíkur, ásamt Guðmundi
Ölafssyni fornleifafræðingi og
Kristfnu Sigurðardóttur forn-
leifafræðinema, vestan frá
Hrafnscyri við Arnarfjörð, þar
sem þau hafa unnið að fonleifa-
greftri 1 sumar. „Það sem við
grófum upp, var skáli með einu
afhýsi og langeldi, jarðhús þar
rétt hjá, sem hefur verið baðhús,
og svo smiðja. Skálinn er þrettán
metra langur að innanmáli."
„Þarna heitir Grélutóftir og
timans vegna gæti það staðið að
þetta væri bær þeirra landnáms-
hjóna, Áns og Grélafar sem Land-
náma getur um. Þau byggðu fyrst
f Dufansdal, en Grélöfu fannst
þar ilma illa úr grasi svo þau
fluttu sig og byggðu Eyri við
Arnarfjörð, að þvf er Landnáma
segir.
Þessar tóftir eru í um tíu mín-
útna gang í vestur frá Hrafnseyr-
arbæ, niður undir sjó, vestur und-
ir Hrafnseyraránni."
Að sögn Mjallar fundu þau
þremenningarnir mjög lítið af
hlutum í tóftunum, dálftið af
járnbrotum, pottbrot úr klébergi,
nokkrar glerperlur og smástykki
úr tálgusteini. í smiðjunni fannst
svo mikið gjall.
Mjöll sagði að tóftirnar hefðu
verið mjög grunnt, jafnvel svo, að
það hefði valdið þeim erfið leik-
um, en jarðvegurinn ofan á hefði
verið um skóflustunga að þykkt.
Fornleifagröftinn hófu þau 22.
júní og sagði Mjöll að þarna í
kring væru fleiri rústir, sem von-
andi gæfist tækifæri til að athuga
næsta sumar.
Þúsundir Mendinga
á suðlægum slóðum
Fullskipað í sólarlandaferðir um þessar mundir
MORGUNBLAÐIÐ hafði f gær
samhand við þrjár ferðaskrifstof-
anna og innti frétta af gangi mála
I sambandi við ferðir til sólar-
landa. Alls eru þessar þrjár ferða-
skrifstofur nú með um 3500 Is-
lendinga á sfnum snærum f sólar-
löndum um þessar mundir og er
nokkra aukningu að ræða frá s.l.
ári. Fara hér á cftir samtöl við
talsmenn ferðaskrifstofanna.
„Við höfum aldrei flutt eins
mikinn fjölda af íslendingum til
sólarlanda á einu sumri og við
höfum orðið að neita farþegum i
Framhald á bls 18.
„Við munum flytja
létta sígilda tónlist,,
13 tónleikar Sinfóníuhljómsveit-
arinnar á liringferð um landið
Sfldveiðarnar
hefjast 20. ágúst
HEIMILT verður byrja sfldveiði
með reknetum eftir átta daga eða
hinn 20. ágúst n.k.
Má búast við að flestir rekneta-
bátanna haldi þá strax til veiða,
þar sem heildarkvóti hefur verið
settur á reknetabátana, samtals
10 þúsund tonn, en heimilað hef-
ur verið að veiða 25 þúsund lestir
af síld í haust. AIIs hafa 64 bátar
fengið leyfi til síldveiða með rek-
netum.
Hringnótabátar mega hins veg-
ar ekki hefja veiði fyrr en 20.
september n.k. og er þeim heimilt
að veiða samtals 15 þús. lestir en
aflanum er skipt niður á bátana,
sem stunda síldveiðar með hring-
nót.
Sigurður Björnsson óperusöngv-
ari, framkvæmdastjóri Sinfónfu-
hljómsveitar tslands.
Sinfónfuhljómsveit Islands
leggur 7. sept. n.k. upp í viða-
mestu hijómleikaför sem hljóm-
sveitin hefur farið um landið, en
hún mun halda 13 tónleika á
Norður-, Austur- og Suðurlandi.
Fyrir ári hélt hljómsveitin tón-
leika á Vestfjörðum og f sumar á
Snæfellsnesi. Var hvarvetna mik-
il aðsókn að hljómleikum Sin-
fónfuhljómsveitarinnar og vfðast
hvar húsfyllir. Hljómleikaför
Sinfónfunnar að þessu sinni mun
standa f tæpar tvær vikur og verð-
ur ferðast f rútubílum.
„Þetta verður 60 manna hóp-
ur“, sagði Sigurður Björnsson
framkvæmdastjóri Sinfóníu-
hljómsveitarinnar i samtali við
Morgunblaðið, „ en stjórnandi
verður Páll P. Pálsson og ein-
söngvarar verða Siglinde
Kahmann og Kristinn Hallsson.
Á þessum tónleikum verðum
við með létta sfgilda tónlist,
engar sinfóníur, heldur
munum við koma til móts við
almennan tónlistaráhuga fólks
og kynna jafnframt sinfóníu-
hljómsveitina og þá möguleika
sem slík hljómsveit býr yfir,
en Sinfóníuhljómsveitin hefur
Framhald á bls 18.
Hrafn Halldórsson
Maðurinn, sem fórst i bifhjóla-
slysinu í Reyðarfirði s.l. miðviku-
dag hét Hrafn Halldórsson til
heimilis að Brú í Jökuldal. Hrafn
var fæddur 22. september 1949.
Sprengingar Rússanna;
„99% til&mmgamál
— en ekki dynamit”
„MER finnst að verið sé að gera
úlfalda úr mýflugu f sambandi
við þessar sprengingar vfsinda-
manna hér um slóðir, þetta eru
veiðimannasögur að allt sé fullt
af dauðum seiðum um alla á.
Eg held að þcir hafi í höndun-
um 12 seiði," sagði Stefán Sig-
urmundsson þegar Mbl. náði
tali af honum á Litlu Tjörnum í
gær, en Stefán er fulltrúi Orku-
stofnunar með rússnesku vfs-
indamönnunum sem eru við
landreksmælingar. Mælitækni
þeirra byggist á sprengingum f
vatni og nota þeir frá 5—200
kg. af dynamiti f hverri spreng-
ingu. Leiguhafar á veiðiréttind-
um f Fnjóská hafa ákveðið að
kref jast skaðabóta vegna trufl-
— segir fulltrúi
Orkustofnunar
unar á veiði af völdum spreng-
inga og oddviti Ljósavatns-
hrepps vfsaði vfsindamönnum
burtu frá Fosshóli þegar mann-
virki þar nötruðu öll f einni
sprengingunni f Skjálfanda-
fljóti.
„Varðandi það að það sé tukt-
hússök að sprengja á þennan
hátt eins og formaður veiðifé-
Iagsins Flúðir á Akureyri seg-
ir,“ sagði Stefán, „þá er það rétt
ef menn læðast að nóttu til og
sprengja í hyl fullum af fiski,
en það er ekki okkar háttur og
þar sem við sprengjum skemm-
ir sprengingin út frá sér i
20—30 m fjarlægð. Eg er illa
svikinn ef öll seiði i Fnjóská
hafa einmitt verið á sundi
þarna sem við sprengdum. Ég
tel að þarna séu Akureyringar
að vesenast i máli sem þeim
kemur ekkert við þótt þeir hafi
Ieigt ána. 1 sambandi við þessar
rannsóknir höfum við talað við
20—30 landeigendur, eitt veiði-
félag, náttúruverndarráð og við
höfum haft sama hátt á og s.l.
ár, en þá var Jón Kristjánsson
fiskifræðingur hjá Veiðimála-
stjóra með okkur í ráðum.
Um tjörnina hjá Litlu Tjörn-
um, sem rætt hefur verið um,
Framhald á bls 18.