Morgunblaðið - 13.08.1977, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. AGUST 1977
ORKA & TÆKNI
eftir VALGARÐ
THORODDSSEN
Skip án stýris
Dönsk skipasmiðastöð lauk
nýlega smíði all nýstárlegs
skips fyrir norskt skipafélag.
Hér er um að ræða vöruflutn-
ingaskip, þar sem aðaláherslan
er lögð á góða hagnýtingu til
flutninga á bifreiðum, flutn-
ingavögnum og vörum í gám-
um.
Það þótti vel hafa tii tekist á
því sviði, miðað við stærð skips-
ins, en jafnframt var vélbúnað-
ur og skrúfur þannig hannaðar
að ekkert stýri þarf á skipið.
Skipið er frekar lítið, 1830
DW tonn, 1117 brútto reg. tonn,
en ganghraði all mikill, eða 15
sjóm.. Lengdin stafna á milli er
93,2 m., breiddin 14,8 m. og hæð
upp að efsta dekki 8,9 m.. Vélar
skipsins eru tvær, 2400 hestöfl
hvor. Skrúfuna má stilla á ýmsa
vegu, snúa um lágréttan ás, en
auk þess 360 gráður um lóðrétt-
an ás sinn, en við þennan búnað
má komast af án stýris.
Það getur lestað 56 flutninga-
vagna á tveimur dekkum ásamt
35 fólksbilum, — eða 23 flutn-
ingavagna og samtímis 116 stk.
af 20 feta gámum.
Skipið verður fyrst um sinn í
förum milli Florída og Venesú-
ela.
Nýstárleg orku-
vidskipti milli
Norðurlanda
Mikið fjaðrafok var í siðustu
þingkosningum i Sviþjóð um
byggingu kjarnorkuvera þar I
landi. Þeir sem voru á móti
byggingu slíkra orkuvera sigr-
uðu, en þegar þeir voru teknir
við stjórn landsins, bitu þeir i
súra eplið og samþykktu kjarn-
orkuverin.
Nú er framleiðsla þessara
orkuvera orðin útflutningsvara
Sviþjóðar, og hvað meira er —
útflutningsvara til hins orku-
auðuga Noregs.
Svo sem kunnugt er fá Norð-
menn alla sina raforku frá
vatnsorkuverum, og hefur það-
an fengist ódýrust raforka, sem
til þekkist. Margt kemur þó til,
sem veldur þvið að Norðmenn
eiga erfitt um vik að virkja
fleiri vatnsföll til ódýrrar raf-
orkuvinnslu, og enn hefur það
valdið erfiðleikum að úrkoma
til fjalla hefur verið mjög lítil á
liðnu vori og í sumar — vatns-
orkuverin vantar vatn — eða
réttara sagt vatnsgeymana upp
á hálendinu skortir forða til
vetrarins.
Það varð þvi að ráði að Norð-
menn föluðust eftir raforku frá
Svíþjóð, til notkunar í sumar,
en geyma sér orku fjallavatn-
anna til vetrarins. Sviar tóku
slíkum viðskiptum fegins
hendi, því raforkunotkun er
minni að sumri til en að vetri,
og gátu þeir með sölunni til
Noregs, bætt hagnýtingartíma
sinna kyndistöðva, en þar mun-
ar mest um kjarnorkuverin
varðandi hagkvæmni við stöð-
ugt jafnt álag.
Að undanförnu hafa þessi
viðskipti numið að jafnaði um
300.000 kw, en norsku ríkisraf-
veiturnar greiða fyrir þetta ríf-
lega 300.000,- n.kr. á dag, en
það samsvarar um 11 til 12
milljónum ísl. kr. á dag.
Stýrislausa
skipið,
Nopal Sea.
Stærsta kjarrÞ
orkuver Norður-
landa, Ringhals í
Svíþjðð, 1600
MW. í byggingu
stækkun um 1800
MW.
Sitt
af hverju
Almennt er talið að Norð-
menn séu nú komnir í þá að-
stöðu í raforkumálum sínum,
að töluverð verðhækkun sé þar
á næstu grösum.
Norsk Hydro hitar
hús í Danmörku
Norska fyrirtækið Norsk
Hydro var um árabil mest
þekkt fyrir framleiðslu á til-
búnum áburði, og byggðist sú
framleiðsla að verulegu leyti á
ódýrri raforku.
A hinum síðari árum, sérstak-
lega eftir lok síðari heimsstyrj-
aldarinnar, hefur fyrirtækið
fært mjög út kvíarnar á öðrum
sviðum. Meðal annarra verk-
efna Norsk Hydro er þátttaka i
olíuborunum undan ströndum
Noregs og efnavinnsla úr olí-
unni.
Fyrir skömmu hefur Norsk
Hydro hafið oliusölu beint til
notenda i Danmörku, og hefur
nú náð undir sig 6% af allri
húshitunarolíu þar í landi.
Upplýsingastjóri fyrirtækisins
telur góðar horfur á aukinni
sölu, það sem náðst hafi sé að-
eins byrjun, en ætlunin sé að
taka einnig upp sölu á bensíni.
Hann segir það stefnu Norsk
Hydro að leggja aðal áhersluna
á markaðinn á Norðurlöndum,
og upplýsir að á árinu 1976 hafi
fyrirtækið selt olíur til Svíþjóð-
ar fyrir 1440 M.n.kr. (53.000
milljónir ísl.kr.) og selt til Dan-
merkur fyrir 1670 M.n.kr.
(64.000 milljónir ísl. kr.)
Raforkuverð í
Bandaríkjunum
Á árinu 1976 var framleiðslu-
yerð raforku í Bandarikjum
Norðurameríku að meðaltali
þetta, miðað við núverandi
gengi gjaldmiðils:
I kjarnorkuverum
2,95 kr. hver kWst.
1 kolakyntum orkuverum
3,55 kr. hver kWst.
í olíukyntum orkuverum
7,09 kr. hver kWst.
1 kola- og olíukyntum orku-
verum 4,53 kr. hver kWst.
Hér er ekki minnst á vatns-
orkuver, enda er raforkufram-
leiðsla þeirra i Bandaríkjunum
lítill hluti heildarframleiðsl-
unnar.
Við þennan samanburð kem-
ur fram að kjarnorkuverin eru
snökktum ódýrari i rekstri en
önnur orkuver, en þó er aðgæt-
andi að hagstætt verð þeirra
fæst aðeins þar sem hægt er að
hagnýta þau meðfullum afköst-
um í mjög langan tíma á ári
hverju.
I bandaríkjunum ber lítið á
andstöðu gegn byggingu kjarn-
orkuvera, ólíkt þvi sem er í
ýmsum Vestur-Evrópu löndum,
svo sem þekkt er frá V,-
Þýzkalandi, Frakklandi og Sví-
þjóð.
1 lok ársins 1976 lét þekkt
stofnun í Bandarikjunum fram
fara skoðanakönnun um þetta
mál. Atkvæðin féllu þannig að
61% voru fygljandi aukningu
kjarnorkuvera, en 22% á móti.
Til samanburðar við raforku-
verðið i Bandarikjunum má
geta þess að söluverð raforku
frá íslenskum vatnsorkuverum,
miðað við afhendingu beint frá
mannvirkjum orkuveranna, var
á árinu 1976 um það bil 2,45 kr.
hver kWst. Hér er um að ræða
meðalverð án stóriðju.
.Stærsta vatnsorkuver
heimsins, Grand Coulee,
við landamæri Banda-
ríkjanna og Kanada.
Hver vélasamstæða 1000
MW. 1 undirbúningi er
stækkun stöðvarinnar í
alls 10.000 MW. (Saman- ,
burður: Landsvirkjun f
jok 1976 um 330 MW).