Morgunblaðið - 17.09.1977, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1977
5
Aðalfundur
Bílgreina-
sambandsins
SJÖUNDI aðalfundur Bílgreina-
sambandsins hefsLá morgun kl.
09:00 laugardag 17. s»ptember að
Hótel Loftleiðum, Reykjavík.
Um 120 manns, félagsmenn og
konur þeirra, munu sækja fund-
inn, sumir hverjir koma langt að,
utan af landi.
Auk venjulegra aðalfunda-
starfa munu fulltrúar sérgreina
innan sambandsins halda með sér
fundi um sin innri málefni. Þessir
hópar eru m.a. bilainnflytjendur,
bílamálarar og biLasmiðir, eigend-
ur gúmmiverkstæða og smur-
stöðvaeigendur. Verðlagsmál
munu verða sérstaklega rædd á
fundinum.
Að loknum fundinum verður
dansleikur fyrir fundarmenn og
gesti þeirra i Lækjarhvammi,
Hótel Sögu.
Framhalds-
skóli fyrir allt
Vesturland
Fjölhrauturskóinn á Akranesi
var settur 1 fyrsta sinn mánudag-
inn 12. september, en hugmyndin
að baki stofnun hans er að þarna
verði starfræktur framhaldsskóli
fyrir allt Vesturland, sem muni
taka um 450 manns í framtfðinni.
Fyrstu árin verða þrír efstu
bekkir grunnskóla hluti af Fjöl-
brautaskólanum, eða þar til hús-
næðismál grunnskólans leysast
með byggingu nýs skóla á svo-
nefndum Garðagrundum.
Nú í vetur munu 176 nemendur
stunda nám á framhaldsstigi við
skólann, 'en nemendur á grunn-
skólastigi eru um 290 talsins.
Framhaldsstigin skiptast í nokkr-
ar brautir, m.a. bóknámsbraut,
viðskiptabraut, uppeldisbraut,
vélstjórabraut, tréiðnabraut, raf-
iðnabraut o.fl.
Þorvaldur Þorvaldsson setti
samkomuna og menntamálaráð-
herra flutti ávarp, en Ölafur As-
geirsson, hinn nýi skólameistari,
flutti skólasetningaræðu.
Framhald á bls. 22.
Sérverslun með listræna húsmuni
Borgartún 29 Sími 20640
Sérstök sýning á húsgögnum
Alvars Aalto á laugardag og sunnudag
Hinn heimsfrægi finnski arkitekt Alvar Aalto hannaði
flest húsgögn sín upp úr 1930. Síðan hafa þau öðlast
sívaxandi vinsældir um allan heim; eftirsótt af hinum
vandlátu vegna forms og frágangs. Hin sérstaka
samlíming finnska birkisins sem einkennir húsgögn Alvars
Aalto gerir þau afar sterk. Bogadregnar og mjúkar línur
þeirra skapa rólegt og notalegt yfirbragð og gerir þau
auðveld í allri umgengni. Þessi húsgögn verða fallegri eftir
því sem þau eru notuð lengur.
Gjörðu svo vel að kynna þér verð og gæði
Peningur
gefinn út í
tilefni Iðn-
kynningar,
í Reykjavík
1 tilefni af Iðnkynningu í Reykja-
vík hefur Is-Spor h/f., ákveðið að
gefa út minnispening Iðnkynn-
ingar í Reykjavík. Er peningur-
inn úr bronsi, 4 sm í þvermál og
sést útlit hans á meðfylgjandi
mynd.
Peningurinn verður til sölu á
Iðnkynningu í Laugardalshöll,
svo og í happdrættishúsi Iðnkynn-
ingar i Lækjargötu. Aðeins er gef-
ið út takmarkað magn af peningn-
um, þannig að enginn peningur
verður fáanlegur hjá framleið-
anda að Iðnkynningu í Reykjavík
lokinni. Peningarnir verða
númeraðir frá 101 og áfram. Verð
hvers penings er kr. 1.200,—
Skoðunar-
ferð um
Kópavogs-
land
NORRÆNAFÉLAGIÐ i Kópa-
vogi mun ásamt fleiri félögum
gangast fyrir skoðunarferð um
Kópavogsland laugardaginn 17.
september. Skoðaðir verða
merkir staðir innan Kópavogs
undir leiðsögn Adolfs J. Peder-
sen. í frétt frá norræna
félaginu í Kópavogi segir að
farið verði frá Félagsheimilinu
kl. 13.30, ekið verði um Kárs-
nes, þaðan að Þinghóli og síðan
farið suður Vífilsstaðaveg að
Maríuhellum um Heiðmörkina
og að gömlum hreppamörkum.
Þvi næst verður farið að fólk-
vanginum i Bláfjöllum og siðan
að Kópaseli í Lækjarbotnum. A
heimleið verður farið fram hjá
Álfhóli. I ferðinni verður sagt
frá Digranesjörðinni, Fífu-
hvammi og HnoðrahoRi.
Mormónar þinga í Háskólanum
KIRKJA Jesú Krists af síðari-
daga heilögum, öðru nafni nefnd
Mormónakirkjan, heldur ráð-
stefnu i fundarsal Lagadeildar
Háskóla Islands að Lögbergi,
sunnudaginn 18. september kl.
10:00 f.h.
Öldungur Joseph B. Wirthlin,
einn af ráðamönnum kirkjunnar,
verður viðstaddur ásamt eigin-
konu sinni. Einnig Roger L. Han-
sen forseti og hans kona, en hann
er forseti trúboðsstöðvarinnar í
Kaupmannahöfn.
Munu þeir báðir flytja ræður á
ráðstefnunni. Ræður verða flutt-
ar eða túlkaðar á íslensku og er
ráðstefnan opin öllum sem á vilja
hlýða.
Meðlimir kirkjunnar á Islandi
eru nú 55 og þar aó auki eru um
75 bandarískir meðlimir á Kefla-
víkurflugvelli. Kirkjan hefur ný-
lega samþykkt byggingu kapellu
á Islandi ög er vonast eftir að
framkvæmdir geti hafist fljót-
lega. Meðlimir Mormónakirkj-
unnar um allan heim eru nú
4.000.000 og 25.000 ungir menn
þjóna sem trúboðar í 2 ár, á sinn
eigin kostnað. 14 þeirra eru hér á
Islandi.
Nýr framkvæmdastj óri
KFUM og KFUK í Reykjavik hafa
ráðið Guðna Gunnarsson sem
framkvæmdastjóra barna- og ung-
lingastarfs félaganna. Guðni er
fæddur í Reykjavík 29. júlí 1939
og hefur verið virkur þátttakandi
i starfi félaganna um árabil. Á
árunum 1964—1967 stundaði
hann nám við Moody Bible
Institute í Bandaríkjunum, eink-
um með tilliti til kristilegs starfs
meðal barna og unglinga. Undan-
farin ár hefur hann verið starfs-
maður og til skamms tima skrif-
stofustjóri á skrifstofu KFUM,
KFUK og Sambands ísl. kristni-
boðsfélaga, auk þess sem hann
hefur stundað nám í guðfræði við
Háskóla Íslands.
Eins og fyrr segir verður starfs-
vettvangur Guðna einkum barna-
og unglingastarf KFUM og
KFUK. Vetrarstarfið er nú senn
að hefjast og verður starfað i um
40 deildum i Reykjavík og ná-
grenni. A annað hundrað sjálf-
boðaliðar annast starfið i hinum
ýmsu deildum. Guðni mun hafa
aðsetur í aðalstöðvum félaganna
aö Amtmannsstig 2B.
Eiginkona Guðna er Ester
Gunnarsson hjúkrunarkona og
eiga þau þrjá syni.
Guðni Gunnarsson.