Morgunblaðið - 17.09.1977, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1977
19
„ Allur heimurinn
hlær að okkur”
— skrifuðu norsku blöðin og krefjast endurbóta á kosningalögæcjöf og talningafyrirkoniulagi
Ösló 16. sept.
Einkaskeyti til Mbl. frá AP.
„ALLUR heimurinn skellihlær
ad okkur", veinaói Dasblaöið í
Osló í í»rein sinni uni norska
„kosiiingasirkusinn“. og Lars
Korvald, fyrrverandi tilvonandi
% ■ /
VEÐUR
víða um
heim
Amsterdam 16 skýjað
Aþena 28 bjart
Barcelona 26 léttskýjað
Berlin 14 skýjað
Brússel 19 bjart
Chicago 17 bjart
Frankfurt 18 skýjað
Genf 19 mistur
Helsinki 7 skýjað
Hong Kong 32 rigning
Hóh.borg 30 sól
Kaupm.höfn 13 sól
Lissabon 32 bjart
London 16 sól
Los Angeles 23 skýjað
Madrid 29 rigning
Malaga 25 léttskýjað
Majorka 26
Miami 30 skýjað
Montreal 17 skýjað
Moskva 7 rigning
New York 22 skýjað
Ósló 14 bjart
Parls 22 skýjað
Rómaborg 22 bjart
Stokkh. 10 bjart
Tel Aviv 29 bjart
Toronto 17 skýjað
Vancouver 15 skýjað
Það var örlítil sárabót fyrir SV, sem beið afhroð í kosningunum, pegar
kom í Ijós að frambjóðandi flokksins í Nordland, Hanna Kvamo, hafði
hlotið þingsæti sem áður hafði verið talið Hægriflokknum. Hún sést
hér með Berge Furre, formanni SV, og Steini Örnhoi, sem báðir féllu í
kosningunum.
forsætisráðherra í borgaraflokka-
stjórn, andvarpaði og sagöi: „Við
gerum okkur hlægileg í augum
alls heimsins."
Verdens Gang líkti „talninga-
hneykslinu" við eins konar tomb-
ólu. Arbeiderbladet taldi að enn
væri ekki séð fyrir endann á
þessu og í forystugrein var leið-
arahöfundur blaðsins hvassyrtur
vegna sifelldra mistaka í fram-
kvæmd talningarinnar.
Málgagn Miðflokksins, Nation-
en, kallaði talninguna „skopleik í
mörgum þáttum'1 og Morgenblad-
et, sem styður Hægriflokkinn.
sagði að enn væri málið ekki til
lykta leitt í fimm fylkjum og því
væri ekki ioku fyrir það skotið, að
enn ein vitleysan kæmi upp á
yfirborðið.
Aftenposten kallaði talninguna
hneyksli og sagði: „Stjórnmála-
mennirnir halda niðri i sér andan-
um. Kosningahneyksli leiddi til
þess að telja varð aftur i Nord-
land.“ Forystugrein blaðsins bar
titilinn „Skrípaleikur og harrn-
leikur".
Öll blöðin eru á einu máli um að
af þessu megi draga þann lærdóm
og þann helztan, að slikt megi
ekki endurtaka sig. Arbeiderblad-
et bendir á aðferðir sem eru not-
aðar við talningu atkvæða í Sví-.
þjóð og Danmörku sem eiga þó
ekki að draga úr talningarhraðan-
um. Blaðið segir að ábyrg stjórn-
arstofnun verði að bera ábyrgð á
atkvæðatalningu til að komið
verði í veg fyrir slíka vitleysu se-ni
Framhald á bls. 22.
Bretar dæma
veiðiþjóf
Plymouth, Englandi 16. sept.
Einkaskeyti til Mbl. frá A.P.
DÓMUR var í dag kveðinn upp
yfir spönskum skipstjóra sem
sakaður var um að hafa verið með
skip sitt að veiðum innan land-
helgi Bretlands án le.vfis. Var
skiptst jórinn dæmdur til að
greiða fimm þúsund sterlings-
punda sekt og málskostnað.
Skipið Sanga var tekið 130 míl-
ur úti af Seilleyju og fært til
hafnar. Skipstjórinn Alexandro
Roderigues játaði brot sitt. Ekki
var farið fram á að afli og veiðar-
færi yrðu gerð upptæk en hins
vegar varð að setja tryggingu fyr-
ir sektinni áður en togarinn fékk
að sigla á braut.
Aðeins 140 spönskum togurum
er leyft að veiða innan 200 milna
markanna og leyfi Sanga rann út i
júnimánuði. Beiðni um að leyfi
skipsins yrði endurnýjað hafði
verið lögð fram en ekki afgreidd
þegar skipið var tekið.
Mao á líkbörunum.
Grein í Dagblaði
alþýðunnar:
• •
Onnur kona
Maos og sonur
drepin af
þjóðernis-
sinnum
Tókíó, 16. sept. AP.
HINN 8. september sl. þegar
ár var liðið frá andláti Mao
Tse-tung formanns í Kína, var
það gert heyrum kunnugt að
hjúkrunarkonan Chen Yu-
ying sem hefði annast um Mao
fyrir löngu, hefði skrifað um
líf og dauða formannsins I
Dagblað alþýðunnar. Þar í seg
ir meðal annars frá því hvern-
ig dauða annarrar konu Maos
bar að höndum fyrir 47 árum
Hersveitir þjóðernissinna
sem voru að reyna að ná Mao
tókst með brögðum á ná konu
hans Yang Kai-hui, elzta syni
Framhald á bls. 22.
Norsku kosningarnar í tölum
LOKS hafa birzt endanlegar tölur um úrslit kosninganna i Noregi og fara
þær hér á eftir:
atkv þings
Verkamannaflokkurinn 962 728 42.4% 7.1% aukn 76 aukn 14
Hægri flokkurinn 560 025 24.7 7.3% aukn 41 aukn 13
Miðflokkurinn 196 005 8 6%2 3% tap 12 tap 9
Kristl þjóðarfl 274 516 12 1 0.4% tap 22 aukn 2
Venstre 72 371 3 2% 0 3% tap 2 óbr
Nýi þjóðarfl 38 067 1.7% 1 4% tap 0 tap 1
Framfarafl 42 862 19% 3.1% ta p 0 tap 4
Sósíaliski vinstrifl 94 016 4 1 % 7.1% tap 2 tap 1 4
Kommúnistafl
(fylgj Moskvu) 8 355 0 4% óbr 0
Kommúnistafl Engin þingsæti
(fylgj Peking) 14 109 0.6% 0.2% aukn engin þingsæti
Aðrir smáflokkar 5 560 0 2% 0 3% tap engin sæti
Sakkarín ekki
bannað í bili
Washington, 16. sept.
Reuter. AP
BANDARÍSKA öldunga-
deildin samþykkti í dag að
fresta því um átján mánuði
að lagt yrði bann við notk-
un sakkaríns í stað sykurs í
matvælum og lyfjum.
Bandaríska stofnunin sem
sér um eftirlit með matvæl-
um og lyfjum hafði lagt til
að slíkt bann yrði lögleitt
eftir að kanadískar rann-
sóknir bentu til þess að
stórir skammtar af
sakkaríni yllu krabbameini
í rottum.
Sykursýkissjúklingar
svo og framleiðendur
drykkja og matvæla meó
sakkaríni í stað sykurs mót-
mæltu þessum hugmynd-
um kröftuglega og töldu að
ekkert annað efni gæti
komið í staö sakkaríns og
væri ekki útlit fyrir að
íslendingar að byr ja að skynja
sannleikann um Sovétríkin
segir í grein í Izvestia
Moskvu, 16. september. AP.
SOVÉZKI blaðamaðurinn Yuri
Goloshubov ritaði í dag grein i
Izvestia, máigagn sovézku ríkis-
stjórnarinnar um samskipti ts-
lands og Sovétríkjanna í tilefni
heimsóknar Geirs Hallgríms-
sonar forsætisráðherra lslands
til Sovétríkjaanna síðar í þess-
um mánuði, þar sem hann segir
að skuggi Atlantshaísbanda-
lagsins hvíli enn yfir talandi,
en að íslenzka þjóðin trúi á
vinsamleg tengsl við Sovétrík-
in. Goloshubov ritaði grein sína
eftir að hafa heimsótt tsland og
m.a. hitt Geir Hallgrímsson að
máli.
Goloshubov sagði i grein
sinni að þvi miður fyndu menn
oft fyrir nærveru NATO, en
íslendingar væru að byrja að
skynja sannleikann um Sovét-
ríkin, afrek þess og friðarást.
Hann nefndi í sambandi við
samskipti landanna aðild Sovét-
ríkjanna að Sigölduvirkjun og
hafði eftir íslenzkum verka-
manni: „Við erum orðnir vinir
sovézku starfsbræðra okkar og
þökkum þeim fyrir að aðstoða
okkur við að búa aflstöðina
tækjum." Þá sagði hann frá
sovézkum bilum, sem hann
hefði séð á götum Reykjavíkur
og frá samstarfi íslands og Sov-
étríkjanna á sviði nýtingar auð-
linda hafsins og fiskverndunar.
Eftir viðtal sitt við Geir Hall-
grímsson sagði blaðamaðurinn
að íslenzki leiðtoginn hefði sagt
að samskipti íslands og Sovét-
rikjanna nú væru jákvæð og
vonir stæðu til að þau héldu
áfram að þróast á þann hátt.
Hafði hann eftir islenzka for-
sætisráðherrarnum: „Við von-
umst til að viðskiptatengsl
landanna þróist á jákvæðan
hátt báðum I hag.“
Að lokum segir i greininni að
skv. sovézkum skýrslum hafi
Sovétmenn selt Islendingum
vörur fyrir 49,4 milljónir doll-
ara á sl. ári, einkum olíu og
vélar og keypt fisk og aðrar
vörur frá islandi fyrir 23,2
milljónir dollara.
neitt sams konar kæmi á
markað í náninni framtíð.
í atkvatðagreiðslunni þar
sem mikill meirihluti
greiddi frestunartillögunni
atkvæði var einnig lögð
áherzla á að herða og auka
rannsóknir á eiginleikum
sakkaríns á tímanum sem
gefin er til athugunar á
málinu.
Hækkun
lægstu launa
í Banda-
ríkjunum
Washinton, A.P.
FULLTRUADEILD bandariska
þingsins hefur samþykkt lög, sem
segja fyrir um hækkun á lág-
markslaunum i landinu frá
janúarmánuði n.k. Launin eigaþá
að vera 2.66 $ á klukkustund eða
þvi sem nemur um 459 isl krón-
um, en i dag eru lægstu tímalaun-
in 2,30$
Um 3.1 milljón af 90 milljónum
bandariskra verkamanna eru á
þessum launum á klukkutimann.
Frumvarpið fer nú fyrir
öldungadeild þingsins, en þegar
hefur samskonar frumvarp verið
samþykkt þar í nefndum.