Morgunblaðið - 17.09.1977, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1977
25
Halldór Vilhjálmsson:
Sídari hluti
RADSTEFNA
EVRÓPSKRAR ÆSKU
Það er áberandi, hve mikið af
ungum ferðamönnum bæði frá
Vestur- og Austur-Evrópu leitar til
Póllands. Það er sama, hvar komið
er, alls staðar rekst maður á heilu
breiðurnar af þessu unga ferða-
fólki eitthvað á aldrinum 17—18
ára og um tvítugt, þrammandi með
bakpokana sína og smáskjatta, tvo
og tvo eða í hópum. Þetta korn-
unga fólk býr mest í tjöldum eða á
hinum ódýru hótelum Turysty,
sem er að finna víðs vegar um
landið, og samsvara að sumu leyti
ísl. ,,Eddu“-hótelunum, nema hvað
Turysty-hótelin eru miklum mun
ódýrari. Margt af þessu unga fólki
ekur um á eigin bílum, en aðrir
ferðast með hinum ödýru pólsku
ríkisjárnbrautum landið þvert og
endilangt. Þjóðvegakerfi Póllands
verður að teljast gott og ágætar
hraðbrautir liggja landshornanna
á milli.
löngu hættur að lesasín eigin dag-
blöð eða hlusta á útvarp í frétta-
leit, en hefur þeim mun meiri
áhuga á að leita sér frétta upp á
eigin spýtur hjá erlendum ferða-
mönnum.
Hagstætt verðlag
Fyrir vestræna ferðamenn mun
Pólland vera ódýrasta land álfunn-
ar. Þannig er hægt að ferðast um
endilangt landið á fyrsta farrými í
pólskri járnbrautarlest fyrir 7000
ísl. kr.(1100 zíoty). Engum skal
ráðlagt að reyna að ferðast á öðru
farrými í austur-evrópskri járn-
Chocholowska dalurinn í Tatra-
fjöllunum, skammt frá
Zakopane; vinsæll ferðamanna-
staður allt árið um kring.
ungis eftir að þessari upphæð
fyrir hvern dvalardag hefur verið
skipt, öðlast vegabréfsáritunin og
dvalarleyfið í landinu gildi. Hið
opinbera gengi á einum banda-
ríkjadagl er 33 ztoty. Bannað er að
flytja ztoty inn í landið eða út úr
því, þegar haldið er heimleiðis.
Við komuna til landsins fær sér-
hver vestrænn ferðamaður í
hendur opinberan leiðarvisi um
sölu á erl. gjaldeyri; leiðarvísirinn
er á þessa leið: „Sala á erlendum
gjaldeyri fer fram i NBP (pólska
rikisbankanum), útibúum bank-
ans, á ferðaskrifstofum, í stærri
gistihúsum landsins, á alþjóðaflug-
völlum í landinu, á landamæra-
stöðvum, í járnbrautarlestum á
leið inn í landið eða á leið til
útlanda, og á gjaldeyrissölustöðum
í höfnum landsins. Sala á er-.
lendum gjaldeyri utan ofan-
greindra sölustaða er ekki leyfð og
varðar refsingu samkvæmt pólsk-
um lögum.“
Vart er hinn vestræni ferða-
maður samt kominn út úr ein-
hverjum þessara ofangreindu
gjaldeyrissölustaða, þá er hann
ávarpaður af óaðfinnanlegri kurt-
éisi á þýzku, frönsku eða ensku:
„Góðan dag, herra minn, hafið þér
Pólland
Pólverjar eru erlendum gestum
sinum góðir gestgjafar, og það á
ekki eingöngu við um það fólk,
sem beinlínis starfar að ferðamál-
um, heldur einnig um allan al-
menning. Fólk virðist alltaf vera'
reiðubúið til að veita útlendingum
vinsamlegar upplýsingar, ef spurt
er um eitthvað, og smávegis aðstoð
er fúslega veitt, ef um hana er
beðið. Yfirvöld ferðamála í land-
inu hafa lagt sig mjög fram við að
gera fólki. sem ferðast um landið
og býr í tjöldum eða hjólhýsum,
dvölina á tjaldsvæðum landsins
sem auðveldasta og þægilegasta.
Landsvæðin, sem valin hafa verið
undir hin rúml. 300 tjald- og hjól-
hýsasvæði Póllands, eru á margan
hátt fjölbreyttari en ferðafólk á
almennt að venjast i Evrópu. Þá er
séð fyrir nægilegu rými fyrir
hvert tjald eða hjólhýsi, oftast i
litlu skógarrjóðri, þannig að fólk
verði fyrir sem minnstu ónæði og
átroðningi af nábýlisfólki sinu.
Vel útbúnar þjónustumiðstöðvar
fyrir tjaldbúa eru hafðar miðsvæð-
is, og þar er allt til sölu, sem
ferðamaðurinn þarfnast: Benzín á
bílinn, gas á suðutækin, öl, vín og
brennivin, allt hið nauðsynlegasta
i matseldina o.s.frv. Þá eru og
fyrir hendi snyrtilegir veitinga-
staðir, oftast undir berum himni,
þar sem hægt er að snæða fyrir
litinn pening, og má geta þess að
pólverjar eru hreinustu listamenn
í tnatreiðslu, enda sjálfir mjög
kræsnir og gera miklar kröfur til
gæða matarins.
brautalest, a.m.k. ekki að sumar-
lagi, því oftast ferðast þrisvar
sinnum fleiri farþegar á öðru far-
rými heldur en tala sætanna er, og
troðningurinn er ólýsanlegur. Þótt
farþegatalan fari þannig langt
fram úr flutningsgetu 2. farrýmis,
bæta a-evrópskar rikisjárnbrautir
aldrei við aukavögnum handa fólk-
inu eins og reglan er i V-Evrópu. 1
hinum sósialistísku alþýðulýðveld-
um er það hversdagsleg sýn að sjá
háaldrað fólk, kornung börn með
foreldrum sinum og konur jafnt
sem karla á öllum aldri flutt
4—500 km leið standandi saman-
þjappað eins og kvikfénaður á
öðru farrými í járnbrautarlestum,
og hið almáttuga riki, eigandi járn-
brautanna, krefur þetta fólk um
fullt fargjald eins og þá sem
hreppt hafa sætin. Fyrirlitningu
hins opinbera þjónustufyrirtækis
á sinum eigin löndum og viðskipta-
vinum virðist engin takmörk sett.
Fyrir góða máltíð á veitingahúsi
greiðir maður sem svarar
240—360 ísl. kr. (40—60 zfoty); að
setja upp tjald á 1. flokks tjald-
svæði kostar um 60 kr. á dag (10
zfoty) og hverjum íbúa tjaldsins
ber auk þess að greiða um 100 kr. á
dag (18 zJoty) fyrir þjónustu. Að
leggja hjólhýsi eða bil á sérstökum
stæðum á tjaldsvæðunum kostar
ferðamanninn einnig60ísl. kr. (10
z4oty) og leiga á smáhýsi fyrir 1—2
gesti kostar um 240 kr. á sólar-
hring. Fyrir annan og þriðja flokk
tjaldstæða og smáhýsa greiðist
mun lægra gjald, Fyrir ferðamenn
frá vesturlöndum kostar gisting á
a-evrópskum gistihúsum oftast
helmingi meira en fyrir gesti frá
austur-evrópskum löndum. Þannig
kostar gisting fyrir vestrænan gest
200—1200 z/foty (þ.e. 1200—7200
ísl. kr.) fyrir eins manns herbergi,
heftir því i hvaða gæðaflokki gisti-
húsið er, en næsti maður i röðinni
borgar aðeins helming þessa
verðs, sé hann alþýðulýðveldis-
maður. Gisting á einkaheimilum
nýtur mikilla vinsælda hjá vest-
rænum ferðamönnum og mjög
mörg pólsk heimili taka á móti
næturgestum og selja stundum
morgunverð; gjaldið fyrir gistingu
á einkaheimilum er frá 150—250
zloty (900—1500 kr.) og eru það
oftast gistihúsin, sem miðla slikri
gistingu.
ZJoty os zíoty
er mismunandi
Þegar komið er inn yfir landa-
mæri Póllands eða lent á flugvell-
inum í Varsjá, ber v-evrópskum
ferðamönnum að skipta 12 US $
eða jafngildi þeirrar upphæðar i
hörðum, gjaldgengum, vestrænum
gjaldeyri í pólsk ztoty fyrir hvern
dag, sem dvalist er i landinu. Ein-
ef til vill i hyggju að selja erlend-
an gjaldeyri prívat: sterlingspund,
dollara, franka, v-þýzk mörk,
gyllini, sænskar krónur? Eg býð
yður 120 ztot.v fyrir einn banda-
ríkjadal." „Já, en opinbert gengi
er aðeins 33 z+oty fyrir 1 US $,“
segir hinn óviðbúni vestræni gest-
ur. „Já, hið opinbera gengi," segir
þá pólverjinn, „ég býð yður 140
zíoty fyrir 1 bandariskan dal.
Viljið þér selja?“
Enginn skyldi þó álíta, að pól-
verji, sem býður slíka svartamark-
aðs prísa fyrir vestrænan gjald-
eyri, sé að gera það að gamni sínu,
af ævintýramennsku eða glæfra-
mennsku. Hann kaupir erl. gjald-
eyri á uppsprengdu verði einfald-
lega til að öðlast ferðafrelsi. Þvi
hafi pólskur þegn eignast á ein-
hvern dularfullan hátt, og þá ólög-
lega samkvæmt ofangreindum
pólskum reglum um sölu og kaup á
erl. gjaldeyri, v-þýzk mörk dollara,
pund eða annan vestrænan gjald-
miðil, þá getur hann gengið inn i
pólska rikisbankann og opnað þar
reikning á sínu nafni, t.d. með þvi
að leggja inn 10 US $, 20 DM eða
hvaða vestrænan gjaldeyri sem
hann hefur komizt yfir.
Enginn, alls enginn dirfist að
spyrja hann, hvar eða hvernig
hann hafi fengið þennan erlenda
gjaldeyri i hendur. Hafi þessi
maður náð að safna á þennan lög-
í sumarleyfislandinu Póllandi
hefur ungt ferðafólk viðs vegar að
úr Austur-Evrópu gott tækifæri til
að hitta jafnaldra sina frá vestur-
löndum og skiptast á skoðunum
við þá. Hið frjálsmannlega og vin-
gjarnlega viðmót pólsks almenn-
ings gagnvart erlendum ferða-
mönnum á sinn ríka þátt i að
skapa hið rétta andrúmsloft fyrir
slík kynni og umræður milli aust-
urs og vesturs, og á síðustu árum
hefur Pólland þannig orðið eins
konar ráðstefnuland evrópsks
æskufólks. Þarna eiga sér stað um-
ræður og stofnað er til vináttusam-
banda milli einstaklinga sem oft
reynast haldgóð og nytsöm fyrir
báða aðila, enda byggð á eigin
áhuga þessa unga fólks og eigin
frumkvæði þess. Hinir kommún-
istisku fjölmiðlar Austur-Evrópu
flytja enn einhæfar og afskræmd-
ar fréttir frá vesturlöndum, og er
sama tuggan borin á borð dagsdag-
lega: atvinnuleysi, siðspilling, of-
sóknir á hendur saklausum, fram-
farasinnuðum verkalýðsleiðtog-
um, morð og eiturlyf. Aðrar fréttir
eru naumast birtar, og austur-
evrópskur almenningur er fyrir
Sukiennice — Klæðahiiilin — við Aðalmarkaðstorgið í Krakow, Suður-Póllandi er byggð bæði f
gotneskum og renaissance stfl. Þetta hús er ágadt dæmi um hinar fjölmörgu byggingar, sem prýða
horgina, cn Krakow er ein elzta borg Evrópu og eitt mesta menningarsetur Póllands.
lega bankareikning sinn hjá ríkis-
bankanum upphæð i erlendum
gjaideyri, sem . svarar til 130
bandaríkjadala, þá má hann taka
hvenær sem er út allt að 125 US $ í
hvaða vestrænum gjaldeyri, sem
hann kýs; siðan getur hann gengið
til lögregluyfirvalda sinnar borgar
og beðið um vegabréf sitt til út-
landa, sem alltaf er geymt hjá lög-
reglunni, þegar pólverji er i
heimalandi sinu. (Sama gildir um
önnur sósíalistariki). Hafi þessi
pólski þegn, sem á 125 bandarikja-
dali i reiðufé, hegðað sér skynsam-
lega og óaðfinnanlega að dómi
pólsku leyniþjónustunnar, þá fær
hann eftir fáa daga umbeðið vega-
bréf til Vestur-Evrópu og fær að
ferðast óáreittur. Hann hefur sem
sagt öðlast hið langþráða ferða-
frelsi vegna gjaldeyriseignar sinn-
ar hjá pólska rikisbankanum. Þess
ber þó að geta, að einu sinni á
þriggja ára fresti á pólverji, sem
hefur hegðað sér skynsamlega og
óaðfinnanlega að dómi yfirvalda,
kost á þvi að ferðast til vestur-
landa, og má hann þá m.a.s. kaupa
sér erl. gjaldeyri í rikisbankanum
fyrir zíoty, en þó aðeins 150 v-þýzk
mörk eða jafngildi þeirra í öðrum
vestrænum gjaldeyri. Til að gera
sér grein fyrir, hve há þessi upp-
hæð er, má geta þess, að gisting á
venjul. vestur-þýzku gistihúsi
kostar frá 50—60 v-þýzk mörk á
sölarhring fyrir einn! En meiri erl.
gjaldeyri má pólskkur ferðamaður
ekki hafa með sér lögum sam-
kvæmt.
Krakow
Hin fornfræga Krakow i Suður-
Póllandi þykir ' fegurst allra
pólskra borga. Þegar á 9. öld er
borgarinnar getið i heimildum
sem helzta verzlunarstaðar Pól-
lands, og hún var höfuðborg lands-
ins fram til 1609. Krakow hefur
sloppið furðu vel við eyðileggingu
og hervirki margra styrjalda á um-
iiðnum öldum, og borgin komst
jafnvel nær ósködduð gegnum
hildarleik síðari heimsstyrjaldar-
innar. Yfir hinum gamla borgar-
hluta Krokows gnæfir Wawel-
kastalinn, að mestu í renaissance-
stíl, en þessi kastali var aðsetur
póllandskonunga um aldir. 1 borg-
inni úir og grúir af fornfrægum,
sögulegum stórhýsum (alls 760
talsins segja krakowbúar), og ber
sérstaklega að nefna byggingarnar
við Rynek Giowny (Aðalmarkaðs-
torgið), sem eru hinar fegurstu, og
byggðar á ýmsum stíltimabilum.
Enginn listaunnandi, sem heim-
sækir Krakow, verður fyrir von-
brigðum með það sem ber fyrir
augun i þessari aðlaðandi stór-
borg.
Hin leynilega
hiifuöborg Póllands
I Kielcehéraðinu, um 160 km
norðaustur af Krokow, stendur
borgin Czgstochwa við Warta-fljót.
Þetta er ekki einungis mikil stál-
iðnaðarborg, heldur einnig háborg
hins kaþólska Póllands í
Czgstochowa stendur klaustrið og
klausturkirkjan Jasna Góra
(Geislafjall), en klaustrið var
stofnað árið 1382 af Wladyslaw
konungi Jagiello. 1 klausturkirkj-
unni hangir mynd heilagrar Guðs-
móður, sem sögð er máluð af sjálf-
um guðspjallamanninum Lúkasi.
Pólverjar hafa gífurlega helgi á
hinni svörtu madonnumynd í
Czgstochowa, en við fyrirbænir
hinna trúuðu fyrir framan Guðs-
móðurina hafa gerzt mörg krafta-
verk. Dýrðarljómann frá hinni
heilögu Guðsmóður, klaustrinu og
klausturkirkjunni í Czestochwa
leggur um allt Pólland og langt út
fyrir landamærin, og tugþúsundir
pilagríma alls staðar að úr Pól-
landi svo og frá öðrum rómversk-
kaþólskum löndum Evrópu koma
árlega til Czgstochowa til þess að
biðjast fyrir, taka þátt í guðsþjón-
ustum og veita hinu heilaga sakra-
menti viðtöku á Jasna Góra. Hin
kaþólska kirkja á sér djúpan og
einlægan hljómgrunn í pólskum
hjörtum, ekki sizt þegar þjóðin á i
þrengingum. Þegar yfirmaður
kirkjunnar, Stefan kardináli
Wyszinski, talar, hlustar öll þjóð-
in. þvi það er pólskur almenning-
ur, sem hefur gert kaþólsku kirkj-
una að lifandi uppspreltu heillar
þjóðar, sem veitir von um frelsi,
réttlæti og betri tima pólverjum til
handa.