Morgunblaðið - 17.09.1977, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1977
37
Æ VELVAKANDI
f SVARAR í SÍMA
1^0100 KL. 10—11
rf' FRÁ MÁNUDEGI
a Mí/Min&raM'u ir
vanimmM
tilgang, og tilgangurinn er sá að
byggja upp sjálfan sig og ætt sína,
þjóðernið tunguna, menninguna
og mannvitið. Þetta á að vera al-
viðurkennt, og það er ekki í ósam-
ræmi við hið trúarlega hugarfar.
Þjóðirnar eiga að greinast, en
ekki renna saman, því á þann hátt
einn getur hver þeirra haft til-
gang. Og með þeim hætti getur
allt mannkyn orðið samtaka um
það markmið sem framundan er.
Þorsteinn Guðjónsson.“
Við þetta er engu að bæta öðru
en því að fyrirsögnin á bréfi
Halldórs Laxness var hans, en
ekki blaðsins. En næst er komið
að lítilii ósk þriggja kvenna er
liggja á Landspitalanum:
% Af hverju
popptónlist
á sunnudags-
morgnum?
„Okkur langar til að beina
nokkrum orðum til tónlistar-
deildar útvarpsins. Hvernig
stendur á því að poppmúsík er
spiluð á sunnudagsmorgnum?
Vita ekki allir að ungt fólk sefur
til hádegis á sunnudögum? Væri
ekki skynsamlegra að leika létta
tónlist á þessum tima þegar
fullorðna fólkið er að drekka
morgunkaffið? Við viljum helzt
sígilda tónlist t.d. pianóverk
Chopins, valsa eða etýður. Eins
væri tilvalið að leika plötur með
Poul Robson, Frank Sinatra,
Stefán íslandi, Magnúsi Jónssyni
eða Hauki Morthens, Sigfúsi
Halldörssyni og fleirum. Sem sagt
eitthvað sem á við eldra fólkið á
meðan unga fólkið sefur.
Þrjár konur á st. 16
Landspitalanum."
Þessari litlu ósk er hér með
komið á framfæri við tónlistar-
deildina. Það er svo sem alls ekki
víst að allt ungt fólk sofi til
hádegis á sunnudögum, til er ár-
risult fólk meðal yngri árganga
rétt eins og hinna eldri og vera
má einnig að sumt yngra fólkið sé
alls ekki enn farið að sofa á
sunnudagsmorgnum!
ÞeSvSÍr hringdu . . .
0 Liprir bíl-
stjórar SVR
Sveinn Sveinsson,
Sólvallagötu 3:
„Hér hjá Velvakanda kvart-
aði ég eitt sinn um stirðbusahátt
strætisvagnabílstjóra, en nú er
það búið og gleymt. 10. sept. s.l.
þurfti ég að sinna áríðandi erindi
og var á siðustu stundu. Eg var
ekki staddur nálægt stoppistöð
SVR er leið 6 varð á vegi minum.
Ég gaf bilstjóranum merki um að
ég hefði áhuga á að komast in í
vagninn án þess þó að hafa
nokkra von um að því yrði sinnt
og án þess að gera nokkrar
kröfur. Bíllinn var i kyrrstöðu og
hieypti bilstjórinn mér inn og
gerði mér þar með stóran greiða.
Vil ég þakka honum fyrir það, en
þetta var kl. 12:30. Aftur i dag,
11.9., stóð svipað á fyrir mér er ég
var staddur i Laugarneshverfi.
Var ég að koma frá Laugarnes-
apóteki er leið 5 ók hjá og var
ökumaður kvenmaður. Ekki var
ég við stoppistöð, en gaf henni
merki að mig langaði að komast
inn í vagninn og varð hún við
þessari ósk og gerði mér mikinn
greiða. Ég þakka henni hjartan-
lega fyrir það. fyrir
trúmennskuna. ég er orðinn
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pótursson
Á skákmóti í Astralíu í ár kom
þessi staða upp i skák þeirra
Jamiesons, sem er talinn sterkasti
skákmaóurinn þar syðra, og hins
16 ára gamla Rogers, sem hafði
svart og átti leik:
21. .. . Hxg2H 22. Be6 — Dd3 (22.
. . . Dxe6? 23. Dxe6 — Bxe6 24.
Kxg2 var auðvitað hvítuni í hag)
23. Bxc8 (Hvitum yfirsást næsti
leikur svarts. Eina von hans var
23. Rcl!?) Hxf2! 24. De4 — De3
(Nú er hótunin 25. ... f3 fylgt
eftir af 26. . .. Hh2 + !) 25. Hfl —
Hxe2 og hvítur gafst upp.
gamall og þreyttur og stirður og
þess vegna er ég hjartanlega
þakklátur fyrir svona lipurð eins
og hjá þessum vagnstjórum
báðum.“
% Hákarl og
megrunarkúr
„Góðan dag Velvakandi.
1) Hvað finnst manneldis-
fræðingum um að hafa hákarl
sem einn rétt í megrunarkúrinn?
Ég mæli sjálf með honum, ég hefi
heyrt að hann lækni magasárindi
og trúi þvi alveg.
Vonandi lærir hver kynslóð af
annarri að verka hann rétt, — svo
bragðið sé sem bezt. í sumar fékk
ég mjög góðan hákarl frá Flat-
eyri. Afram með þennan þjóðar-
rétt og útrýmum magasárum.
Magasýrurnar ráðast ekki á slim-
húð maga, sem hefur hákarl
innanborðs.
2) Hamingjuöskir til lands-
byggðarinnar sem fær að hluSta á
Sieglinde Kahmann ásamt Kristni
Hallssyni og Sinfóníuhljómsveit-
inr.i.
3) Ósk til sjónvarpsins um að
taka Migrene-höfuðverk til bæna,
a.m.k. i umræðuþætti og fá Jón
Bendix lækni og Normu Samúels
og fleiri til að ræða þau mál.
Kveðjur, Geirþrúður."
HÖGNI HREKKVÍSI
Svona fyrstu vikuna verð ég að mæta á réttum
tíma í skölanum!
■H T 31
£)<jrictcmsa\(l úUouri nn
6Idwíj
Dansaðí r
Félagsheimili HREYFILS
í kvöld kl. 9—2. (Gengið inn frá Grensásvegi.)
Fjórir félagar leika
Aðgöngumiðar í sima 85520 eftir kl. 8.
Klúbbar og félagasamtök
Hljómsveitin
Pónik og Einar
getur nú framvegis tekið að sér að leika fyrir
dansi á skemmtunum Leikum að sjálfsögðu
alla tegund hljómlistar Umboðssímar 33099
og72805
Geymið auglýsinguna.
frumsýnir nýja „Nobody-mynd":
ENN HEITI ÉG "NOBODY"
Bráðskemmtileg og spennandi, alveg ný, itölsk kvikmynd
i litum og CinemaScope um hinn snjalla „Nobody"
Aðalhlutverk:
TERENCE HILL — MIOU MIOU
KLAUS KINSKY
Islenzkur texti
Bönnuð innan 1 2 ára.
Sýnd kl 5, 7.30 og 10