Alþýðublaðið - 23.08.1920, Page 4
4
ALÞYÐUBLAÐIÐ
loii konungnr.
Eítir Vpton Sinclair.
Fjórða bók:
Erfðaskrá Kola konungs.
(Frh.).
„Jæja, þér ætlið að reka þá á
dyr fyrir kvöldið, Cartwright —
og það, þó þeir hafi hús sín á
ieigu frá félaginu, og samkvæmt
ieigusamuingum sjálts félagsins,
verði að segja þeim upp hús-
næðinu með þriggja daga fyrir-
vara“.
Cartwright var svo óvarkár að
svara. Hann hugsaði líka um Ed-
wardl „Þeir verða ekki bornir út
af félaginu, heldur af yfirvöld-
nnura".
„Þar sem þér sjálfur eruð æðsti
maðurf"
„Eg hefi af tilviljun verið val-
inn sveitarstjóri í Norðurdalnum.
En eg sé annars enga ástæðu til
þess, að deiia um þessi mál við
yður“.
„En eg geri það. Það er að
minsta kosti í einu falli ástæða
til að ræða þetta — nefnilega
hvað sjálfan mig áhrærir. Þér
gáfuð bróður mínum í skyn, að
þér hefðuð í hyggju að láta bera
mig út, eða var ekki svof"
„Eg bað bróður yður um, að
fá yður til að hverfa héðan".
„En þér létuð hann skilja það
á yður, að ef hann gæti það
«kki, mynduð þér sjá fyrir mér?“
„Já, eg gerði það".
„Og ástæðan, sem þér færðuð
fram var sú, að þér hefðuð feng-
ið skipun um það símleiðis frá
Pétri Harrigan. Má eg spyrja, í
hvaða embætti situr Pétur Harri-
gaa hér í bænutn?"
Cavtwright sá snöruna og sagði
óþolinmóður: „Bróðír yðar hlýtur
að hafa misskiiið mig“.
„Misskiidurðu hann, Edward?"
En Edward var orðinn leiður
á öllu þessu, og var kominn út
að glugga. Hann var að horfa út
um gluggann og hafði enga löng-
un til þess að snúa sér við. En
námustjórinn vissi að hann heyrði
tii hans. „Ungi maðui", sagði
hrmn, „þér hafið brotið ýmsar
tilskipanir hér í bænum".
„Er banaað að gangast fyrir
stofnun verksmannafélags meðal
mámumanna?"
„Nei, En það er bannað að
halda ræður á götum úti".
„Hver gaf út það bann?"
„Bæjarstjórnin".
„Og í henni eru, Johnson póst-
meistari og skrifari félagsins, Elli-
son bókhaldari félagsins, Strauss
einn af verkstjórum félagsins,
O’Callahan forstjóri veitingakrár
félagsins —“
„Fyrirgefið, en það er ekki krá
félagsins*.
„Það er hús, sem félagið hefir
leigt O’Callahan, og notað tii
veitinga með vitund féiagsins, er
ekki svo?“
Cartwright þagði.
„Og fimti bæjarfulltrúinu er
sjálfur þér — herra Enos Cart-
wright, hreppstjóri og námustjóri
félagsins. Og þið bannið götu-
fundi, en félagið á veitingahúsin,
íbúðarhúsin, kirkjuna og skólann.
Má eg þá spyrja, hvar ætlist þið
til, að verkalýðurinn haldi fundi
sína?“
„Við kærum okkur ekkert um
það, að hvatningamenn fái tæki-
íæri til þess að æsa starfsfólk
vort upp“.
„Ágætt. Eltir því hefi eg brotið
bann ykkar, með því að halda
ræðu á götunni. Hvaða hegning
er við því?“
„Þér fáið að vita það, þegar
þér sætið fyrir það hegningu".
Þetta og hitt.
Hörframleiðsla Eússa.
Talið er að hörframleiðsla Rússa
verði 5 milj. pnd. þetta ár. Fyrir
stríðið mun hún hafa verið 20
milj. pnd. hæst. Sést á þessu hverj
ar afleiðingar hafnbannið, og véla-
skorturinn sem leiðir af því, hefir
haft á atvinnuvegi Rússa.
Hríð í Bnenos Aires.
í fyrsta skifti í 300 ár kom
hríð í Buenos Aires um daginn.
Rafmagnsstöð borgarinnar stöðv-
aðist og alt sem er framleitt meö
rafmagni.
Demantaframleiðsla í Trans-
waal 1919.
Demantatramleiðsla í Transwaal
var árið 19x0 873,961 karöt og
virði 68 miij. króna í peningum.
£IJ Msjðgi
t i 1 S Ö 1 XX
á "V estwrgötu 14.
^.lþýÖail>Ia,OiÖ
er ódýrasta, ijölbreyttasta og
bezta dagblað landsins.
Eanpið það og lesið, þá
getið þið aldrei án þess verið.
Saltkjðt, í smásölu og stór-
kaupum, ódýrast í Kaupfélagi
Reykjavíkur, Gamla bankanum.
Ilann héit líflnn.
Franskur spámaður sagði lags-
konu eins Frakkakonungs það íyr
ir, að hún mundi deyja innan 8
daga. Þetta stóð heima.
Kóngur varð æfareiður, kallaði
spámanninn fyrir sig 'og dæmdi
hann til þess að hengjast,
Er dóniurinn var upp kveðinn
spurði kóngur: Fyrst þú ert svona
vitur, geturðu, líklega sagt mér.
hvað lengi þú átt sjálfur að lifa?
Hinn ansaði: Eg dey þremur
dögum á undan yðar hátign.
Kóngur Jét ekki. hengja hamx.
Umferðin um Panamasknrðinn.
Á síðasta reikningsári Panama-
skurðsins (frá 30. júní 1919 til 30.
júnf 1920 fóru 2476 kaupskip um
skurðinn, og voru þau samtsls 8
milj. nettó tonn. Síðan skurðunnn
var opnaður fyrir 6 árum hefir
aldrei verið jatnmiki! umferð uro
hann, enda eðliiegt að umferðin
ykist er styrjöldinni lauk.
Knldaheld hús.
Verkfræðingi nokkrum í Saskat-
chewau hefir nýlega tekist að
gera hús úr steinsteypu aem er
algerlega kuidahelt. 1 húsinu eru
9 herbergi og á þvt samtals 43
gluggar.
Væri ekki síst þörf á slíkuni
húsum hér, eí þetta er annað eu
nýjasta ameríska „húmbúkkið".
Ritstjóri og ábyrgðarœaftar:
Ólafur Friðriksson.
PreutsmiÖjau Gntenberg