Morgunblaðið - 18.12.1977, Síða 1
Bls. 65—96
Sunnudagur
18. desember
Mjólk höfðum
nær aldrei
við Kristján
Theodársson um föður
hans, Theodór FHðriks-
son, nthöfund, og
líf fjölskyldunnar á
uppvaxtarárum hans
Kristján Theodórsson, sem í
þessu viðtali segir frá föður sín-
um og lífi fjölskyldunnar á
uppvaxtarárum hans.
Theodór Friðriksson, höfundur
ævisögunnar t Verum.
vorin og fram yfir áramót En á sumrin
fór hann lika stundum i burtu. til
Hriseyjar, Siglufjarðar og viðar Og
hann vann í kolanámunum á Tjörnesi
lika, eftir að við komum til Húsavikur
Svona hefur þetta verið. að heimilis-
feðurnir voru meira og minna í burtu
að afla fanga fyrir heimilið Á meðan
var sambandslaust við þá. nema hvað
stöku sinnum var skrifað En yfirleitt
bara beðið
— Vorið 1916 fluttum við til Húsa-
víkur Þar var stærra þorp. meiri at
vinna og arðvænlegra en á Sauðár-
króki, segir Kristján Þar var skemmti-
legt fyrir stráka að alast upp Við
bjuggum lengst af i Gröfum. litlum
torfbæ Baðstofan var með timburgólfi
og súðbyrt. en borðin voru farin að
svigna undan þunga torfsins Sprung-
ur voru i súðinni. svo að stráin komu
inn Mamma bannaði okkur að slita
þau, taldi það ólánsmerki Ef rigndi lak
mikið inn Þá voru rúmin tekin frá og
látin undir lekann öll tiltæk ilát í
baðstofunni var allt eldað á kolavél En
framhýsi með moldargólfi var i bænum
og hlóðareldhús. þar sem mamma
Keyptu kú fyrir skáldastyrkinn
..Ég vissi það áður en ég fór að
heiman. að ég mundi verða að flytja úr
Rauða húsmu um Krossmessuna
vegna þess. að það var nú komið i eigu
annars manns, er ætlaði að búa i þvi
sjálfur. Fékk ég þá leigt uppi á lofti í
norðurendanum i svokölluðu Melsteðs-
húsi Hafði það hús lengi verið i eigu
Helgu gömlu Steinsdóttur frá Keldu-
dal í þessari ibúð vorum við hjónin.
þangað til við fluttum frá Sauðárkróki
vorið 1916 Á þessu lofti voru þeir
fæddir báðir synir minir, Kristján 7
janúar 1912 og Hjálmar 12 septem-
ber 1915
Kristján Theodórsson, sem hóf lífs-
feril sinn uppi á lofti í Melsteðshúsinu
á Sauðárkróki, situr nú hjá okkur á
ritstjórnarskrifstofu Morgunblaðsins,
þangað kvaddur til að spjalla um föður
sinn, Theodór Friðriksson, og lif fjöl-
skyldunnar á uppvaxtarárum hans
Þessa fólks, sem íslendingum er orðið
kunnugt úr sjálfsævisögu Theodórs. í
Verum. sem nú er aftur komin út. sögð
á 723 blaðsiðum i tveimur bindum
Útvarpshlustendum eru frásagnir
Theodórs kunnar, þvi Gils Guðmunds-
son las bókina sem framhaldssögu ekki
alls fyrir löngu Og er frásögnin af
upphafi Kristjáns hér að ofan úr bók-
inni Heldur frásögnin áfram og sýnir
vel aðstæður fjölskyldunnar um þetta
leyti
„Við höfðum þarna til umráða all-
stóra stofu, er náði þvert yfir loftið og
var súð báðum megin Höfðum við
rúmin okkar undir súðunum sitt hvor-
um megin, en borð var á milli rúmanna
við gluggann, sem horfði gegn norðri
Eldavél höfðum við i öðru horninu
fram við dyr Var þessi stofa okkar því
allt í senn: dagstofa. svefnherbergi,
eldhús og búr — og raunar geymsla
lika Þó gátum við geymt utanhafnarföt
á ganginum fyrir framan og voru þau
þá hengd þar upp á uglur Auk þessar-
ar stofu var þarna á loftinu ofurlitið
kvistherbergi með austurglugga Bjó
þar gömul einsetukona, hæglát og góð
viðskiptis Enn var þar suðurstofan lik
stofu okkar og bjó Helga gamla Steins-
dóttir þar ásamt tveimur hálfvitlausum
ungum stúlkum Var það raunalegt að
vita af þeim aumingjum rétt við hliðina
á sér----Ofan af loftinu var brattur og
þröngur stigi og varð að renna sér i röð
meðfram reykháfnum til að komast að
stiganum Á neðri hæð hússins hafði
Helga gamla greiðasölu og söfnuðust
þar um hana drykkjuræflar og annar
trantaralýður, einkum á haustin Varð
þar þá oft ærið hávaðasamt. en furða
var það, hvað við hjónin sluppum við
ágang Og það var mikil bót i máli,
þeim Helgu gömlu og konunni minni
kom mjög vel saman Vildi Helga
Sigurlaugu alltaf mjög vel, siðan þær
voru i Hegranesi báðar
Inn á þetta loft í Melsteðshúsinu var
nú konan flutt með krakkana og bú-
slóðina, er ég kom úr norðurförinni
með hálfan skrokk af rauðmaga og
sild Þó að ekki væri hluturinn mikill
kom okkur vel að hafa þetta nýmeti i
soðið En ég var særður eftir bróður-
missinn, og heldur fannt mér óyndis-
legt þarna á loftinu Saknaði ég Rauða
hússins Einkum fann ég til þess. hve
ónæðisamt þarna var við skriftir minar.
þvi að auk þess. sem oft vildi verða
skarkalasamt innan um blessuð börnin
(þau voru sex) og á ýmsu lék um
lundarfar konunnar, mátti nú búast við
háreisti fram eftir nóttu af neðri hæð-
inni á þeim stundum, sem ég hafði
helzt gripið til skrifta áður Svona fóru
þá bestu ár ævinnar, meðan skapið var
heitast Og þó að ég legði smásagna-
gerðina aldrei alveg á hilluna. tók ég
að slá meir. slöku við. eyddi oft mörg-
um stundum í það að skrafa við kunn-
ingjana og leyfði mér þá léttúð að
stunda spilamennsku eins og Jörundur
hundadagakonungur
Annars var ég oft þaulsætinn heima
tímunum saman Ég hafði ánægju af
börnunum rninum. sat með þau á
hnjánum og raulaði við þau Þau voru
vel hraust Anna og Sesselja tóku nú
að gerast svo stálpaðar að þær fóru í
sveit á sumrin Sesselja var stundum
tímunum saman á Hellulandi. en Anna
var a m k eitt sumar á Hringveri i
Hjaltadal En á veturna var allur hópur-
inn heima á loftinu i Melsteðshúsinu
Alltaf gat ég krafsað saman einhverja
matbjörg handa heimilinu. en um önn-
ur lifsgæði var tæpast að ræða
Um atvinnu mina árið 1911 skal ég
vera fáorður. enda var hún með líkum
hætti og verið hafði undanfarin ár
Sumarið 1911 réðst ég háseti hjá
Eggert Jónssyni, og var Jón Pálmason,
sem nú var tekinn við Gránu, miklu
liðlegri við mig i skiptum en Stefán
faktor hafði verið Var ég þá ekki upp á
Kristján Gislason kominn, en vann hjá
honum um haustið i sláturhúsinu eins
og undanfarin haust”
Þannig segist Theodór frá aðstæðum
fjölskyldunnar i bókinni í Verum En
veturinn sem sonur hans fæðist þarna.
fer hann vestur i Bolungarvik til sjó-
róðra að venju En konan og börnin
biða hans heima
Heimilisfaðirinn
í burtu
— Ég er ekki nema fjögurra ára
gamall. þegar við flytjum frá Sauðár-
króki. segir Kristján Þó man ég eftir
þvi þegar bróðir minn Hjálmar fæðist.
en hann er fjórum árum yngri en ég
Og ég man eftir pabba þar, sérstaklega
vegna eins atviks Pabbi var ákaflega
kvikur á fæti og gekk alltaf hratt Ég
var með honum á götu. skokkaði á eftir
honum Krakkar hlupu i veg fyrir mig
og ég dróst aftur úr Ég var farinn að
kjökra. þegar pabbr rankaði við sér og
sneri við til min Þetta þótti mér vænt
um, ekki síst að hann skyldi skamma
krakkana Hann var alltaf góður við
okkur börnin Annars var hann af-
skiptaliti11 v.ð okkur. eins og þá var
siður Yfirleitt var uppeldið á þeim tima
hjá húsmæðrunum Hann var lika alltaf
á förum
— Faðir minn var yfirleitt á mótor-
bátum á sumrin og fór i verið þegar
kom fram yfir áramót Timinn heima
var því frá því að hann kom heim á
reykti oft kjöt fyrir sjálfa sig og aðra, og
þar var soðið slátur Þá fylltist allt af
reyk Þarna var stór skápur. sem ég
held að pabbi hafi keypt á uppboði.
þegar námurekstrinum var hætt Sem
betur fer eru þurrviðri mikil á Húsavik.
en snjóþungt Það kom fyrir að maður
varð að skriða gegn um glugga til þess
að komast út Bærinn fór hér um bil i
kaf og varð að moka frá dyrunum utan
frá
Eftir að pabbi kom úr vermu vorið
1922, tókst honum að byggja við
baðstofuna. rifa úr henni suðurstafinn
og byggja við hana baðstofuhús með
timburstafm og stórum suðurglugga
Þessi baðstofa var hans einkaherbergi.
þegar hann var heima og þar sat hann
v.ð skriftir En við notuðum hana þegar
hann var i burtu Á haustin, frá þvi að
sláturtið var búin. var enga atvinnu að
hafa, nema ef skip komu Ekki var nein
bryggja heima, og allt flutt i land í
uppskipunarbátum Menn fengu vinnu
við uppskipun. umskipun á saltkjoti
o fl En oftast var ekkert að gera þar til
menn.fóru burtu á vertíð um áramótm
— Pabbi fór þá stundum fram i
sveit. heimsótti Guðmund á Sandi,
flutti fyrirlestra í Laugaskóla o fl Við
fórum aldrei með honum. enda voru
þetta erfiðar vetrarferðir Annars sat
hann við skriftir i baðstofunni sinni
Móðir min var hugulsöm við hann.
þegar hann var að skrifa og vildi ekki
trufla hann Ég man oft eftir þvi að hún
klæddi sig i buxur af pabba og sótti
vatnið, þó iðulaus stórhrið væri úti, til
þess að þurfa ekki að kalla á hann
Vatnið var sótt i læk. sem rann með-
fram bænum Á vetrum skefldi yfir
þennan læk og hún fór út, mokaði ofan
af honum og sótti vatn
— Faðir minn kom oft fram. ef
hann hafði skrifað eitthvað og las það
fyrir mömmu. eins og til að fá hennar
emsögn um það Þau spjölluðu mikið
um það sem hann var að skrifa í
Gröfum skrifaði hann, held ég. Líf og
blóð. Lokadag og Mistur. en handntin
sin hafði hann alltaf með sér i verið
Hefur sjálfsagt unnið að þeim þar lika,
enda var hann þá að reyna að fá þau
gefin út Faðir minn sagði okkur krökk
unum oft frá ferðalögum sinum og
SJÁ NÆSTU SÍÐU
Fjölskylda Theodórs. Eiginkona hans, Sigurlaug Jónasdóltir, heldur á
Hjálmari syni sínum. Kristján til vinstri. Og fyrir aftan hana standa
systurnar Þorbjörg, Anna, Sesselja og Elísabet.