Morgunblaðið - 18.12.1977, Page 6

Morgunblaðið - 18.12.1977, Page 6
70 MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1977 Ertu athugull? Oft sjáum við hluti og atvik kringum okkur, sem við tökum varla eftir — og getum þess vegna ekki notið þeirra, sem skyldi, ef þeir væru einhvers virði. Reyndu t.d. að spyrja heima hjá þér, hvort einhver fjölskyldumeðlimur, sem venjulega gengur með klukku, man, hvernig tölurnar eru á úrinu háns. En hann má ekki athuga það fyrst? Eru þær rómverskar (I, II, III o.s.frv.), sést bara önnur eða þriðja hver tala o.s.frv.? Hvað vantar? Börnin á myndinni hafa dundað sér við sitthvað síð- ustu daga. Þau eiga ýmis verkfæri eins og sést á efri myndinni. En dag einn, þegar þau ætla að fara að taka til höndunum aftur, vantar ýmislegt í safnið. Þeim kemur ekki saman um, hvað vantar og byrja að rífast heiftar- lega. Getur þú ekki hjálpað þeim að finna, hvað vantar með því að bera saman myndirnar tvær? Þau yrðu þér sjálfsagt þakklát. jn>f>[osnnnjp 3o [ofd ‘R8ns>[Áa :usnBq Þörir S. Guðbergsson Rúna Gfslatfóttir Saga um jólasálm Á aðfangadagsmorgun sat Marteinn Lúther eins og svo oft áður á vinnu- stofu sinni. Dyrnar opnuð- ust hægt og Kathe, kona hans, kom í gættina. „Heyrðu, Marteinn minn,“ sagði hún, ,,Ég hef í svo mörgu að snúast.. Hjálpaðu mér nú svolítið. Sittu hjá Hans litla, svo að ég geti haldið áfram að vinna. Marteinn stóð upp og gekk fram að vöggu litla sonar síns. Hann settist niður og beygði sig yfir litlu vögguna og virti fyrir sér sofandi barnið. Hann varð hugsi. Hann sá fyrir sér hinn mikla kærleika Guðs á himnum. Einmitt á jólakvöld lá Jesús, sonur Guðs, eins og lítið ósjálf- bjarga barn í jötu. Marteinn varð gagntek- inn af þessari hugsun og tók hörpuna sína og fór að stilla hana. Þarna vð vöggu litla sonar síns orti hann sálminn: Af himnum ofan boðskap ber, og lagið gerði hann um leið. Þessi sálmur hefur síðan verið sunginn á hverjum jólum síðan um víða veröld. Mikil lœti þegar jólin koma „Af hverju eru svona mikil læti, þegar jólin koma?“ spurði Einar litli móður sína. Mamma hans svaraði ekki strax. Hún var önnum kafin við að gera hreint á baðherberginu. „Af hverju má enginn vera að þvf að tala við mann, þegar jólin eru að koma?“ hélt Einar áfram og fylgd- ist með hverri hreyfingu móðurinnar. „Ha, hvað ertu alltaf að tauta, Einar minn?“ spurði móðir hans óþolinmóð. „Sérðu ekki, að ég er að vinna, skúra, hreinsa, þvo, baka, bóna, fægja — ég er að gera hreint fyrir jólin. Og vertu svo ekki alltaf með þessar eilífu spurning- ar, drengur. Maður fær bókstaflega aldrei frið.“ Einar saug upp í nefið og stakk höndunum á kaf í buxnavasana. Hann leit um baðherbergið. Engin gluggatjöld. Þau voru í þvotti. Engar mottur á gólfinu. Þær voru í hreins- un. Allt var á ferð og flugi. Allir höfðu óvenju mikið að gera. Enginn mátti vera aðþví að ræða við Einar. „Getur ekki pabbi hjálp- að þér við þvottinn?" spurði Einar og færði sig aðeins fjær mömmu sinni, eins og hann byggist við, að hún segði honum að fara út og leika sér. „Hvenær á hann að gera það?“ spurði móðir hans, stanzaði andartak og þurrkaði af sér svitann. „Þegar hann kemur heim úr vinnunni,“ svaraði Einar blátt áfram. „Hann hefur bara ekki tíma til þess, held ég,“ svaraði móðir hans og byrj- aði aftur að þvo. „En Bjarni bróðir? Get- ur hann ekki hjálpaö?" „Hann er í prófum, bless- aður, eins og Anna. Það hjálpast allt að. Allir hafa miklu meira en nóg á sinrii könnu. Próf í skólunum svo að allt heimilið er undirlagt. Eins og þessi próf geti ekki verið viku eða hálfum mánuði fyrr, fyrst þeir þurfa endilega að hafa þau.“ Hún hætti allt í einu að tala og leit á Einar. Hann skildi auð- sjáanlega hvorki upp né niður í því, sem móðir hans sagði. Hann fann það hins vegar mjög vel, að enginn á heimilinu mátti vera að því að tala við hann. Allir voru óvenju uppteknir. Móðir hans settist andar- tak niður með gólftuskuna í höndunum. „Já, hvernig er þetta annars með þennan bless- aða jólaundirbúning?“ hugsaði hún. „Hvar enda öll þessi ósköp? Auglýsing- ar, auglýsingar, kaup, gjaf- ir, vinna og aftur vinna og aukavinna — auk allrar vinnunnar heima. Börnin byrja að telja dagana heil- um mánuði fyrir tímann og gjafirnar aukast með

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.