Morgunblaðið - 18.12.1977, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1977
79
„Gleði-
fregn”
Ný hljómplata
KOMIN er út hljómplatan Gleði-
fregn, en á henni syngja þrjár
systur 12 lög, innlend og erlend.
Lögin eru med kristilegum text-
um en nafnió á plötunni, Gleði-
fregn, er tilraun til að þýða enska
orðið „gospel“, eins og útgefandi,
Gunnar Þorsteinsson, orðaði það.
Það eru systurnar Ingibjörg,
Hrefna og Þórey Guðnadætur,
sem syngja öll lögin á plötunni, en
þær hafa sungið saman frá barns-
aldri og sungið m.a. f kórum hjá
Hvítasunnusöfnuðinum, en upp-
taka plötunnar fór fram í London
í síðasta mánuði og tók allur frá-'
gangur plötunnar aðeins einn
mánuð, en Gunnar Þorsteinsson
sagði að það væri mettími.
Þrjú lög eru eftir íslenzka höf-
unda, m.a. Guðna Guðmundsson
en hann er faðir stúlknanna og
hefur móðir þeirra, Jóhanna
Karlsdóttir, gert texta við það
ásamt tveimur öðrum. Hin is-
lenzku Iögin eru eftir Helenu
Leifsdóttur og Jóhann G.
Jóhannsson. Utsetningu og stórn
upptöku annaðist enski píanist-
inn Peter Bye. Hönnun umslags
sá Valdimar Jörgensen um og
Prentval prentaði. Sem fyrr segir
er Gunnar Þorsteinsson útgefandi
en dréifingu annast Fálkinn h.f.
Systurnar Ingibjörg, Hrefna og
Þórey Guðnadætur syngja öll lög
á plötunni Gleðifregn.
Forstjóra-
staða Ríkis-
útgáfunnar
auglýst laus
MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ
hefur auglýst stöðu forstjóra
Ríkisútgáfu námsbóka lausa til
umsóknar, en Jón Emil Guðjóns-
son, sem gegnt hefur starfinu um
árabil, hefur sagt því lausu, þar
sem hann hefur nú náð eftir-
launaaldri.
Umsóknarfrestur um stöðuna
er til 28. desember.
AUGLYSINGASIMINN ER:
22480
3Hor0tinþlahiþ
Lögreglustöð í Kefla-
vík
Tilboð óskast í gerð sökkla og botnplötu bygg-
ingar lögreglustöðvar í Keflavík.
Verkinu skal lokið 1 5. maí 1 978.
Útboðsgögn verða afhent í skrifstofu vorri gegn
10.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð
á sama stað miðvikudaqinn 4. jan. 1978, kl.
1 1.30.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMi 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006
BMW í nýjum búningi
ÖRYGGI ER ÓMETANLÉGT
BMW bifreiðar eru byggðar fyrir meiri hraða og álag en flestar aðrar bifreiðar.
Stefna BMW verksmiðjanna er að sameina eiginleika sportbíls og þægindi einkabíls.
BMW er viðbragðsfljótur, lipur, stöðugur í akstri, rúmgóður með stórum rúðum
og þægilegur fyrir ökumann og farþega.
Góðir akstufseiginleikar tryggja öryggi f akstri.
BMW BIFREIf) ER ÖRUGG EIGN. jL
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633
Gjörið svo vel og skoðið
breytinguna um leið og þér
gerið jólainnkaupin.
GETS
AÐALSTRÆTI 2
Full búð af nýjum
glæslilegum vörum